Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 14
VTOHORF
Fólk fer að gerast forlagatrúar.
Allt verðlag fer hækkandi án þess
að nokkur virðist fá rönd við
reist. Pá reyna „ábyrgir“ einstak-
lingar (hér og þar) að koma með
ýmsar trúverðugar skýringar,
fyrir þá sem „óábyrgari" eru.
Tökum sem dæmi hækkun húsa-
leigu á Hjónagarði við Suður-
götu. í maí hækkaði leigan um
400 kr. (síðbúin skýring sögð:
viðhaldskostnaður). I júníhækk-
aði hún um 880 kr. (skýring ekki
gefin). Þessar tvær hækkanir
nema því 1280 kr. á stuttu tíma-
bili. Gott fólk! Það munar um
minna! Fyrstu viðbrögð manna er
að sporna gegn slíkri hækkun og
öðrum ámóta og leita skýringa.
Áður nefndri leiguhækkun var
hins vegar laumað í formi gíró-
seðils til viðtakenda. Leigusali
(þ.e. Félagsstofnun Stúdenta eða
m.ö.o. F.S.) sá enga ástæðu til
gagnkvæmra umræðna við
leigukaupendur (þ.e. íbúa á
Hjónagarði) um leiguhækkunina
né ástæðurnar fyrir henni. Nei!
Það hefði e.t.v. leitt til samkomu-
lags áður en í óefni var komið.
Með öðrum orðum: Fólk á ekki
að fá rönd við reist! Enda er það
svo skilnings-sljótt að það nær
ekki nokkurri átt. Nei greyin
mín! Trúið og hlýðir okkur! Þessi
stjórnarstefna er nokkuð í tísku
þessa dagana og þess vegna
skiljanlegt að hinir ungu
„ábyrgu“ karlmenn í stjórn F.S.
taki sér hana til fyrirmyndar. í
þessu samhengi flýgur mér í hug
hugtakið „lýðræði“ án þess að
vinna meira úr þeirri hugsun. Eitt
er víst: Ég var vakinn upp árla
morguns, fyrir nokkrum dögum,
þegar barið var dyra. Ég rýk á
fætur og lýk upp. Ung stúlka af-
Hjónagarðsdeilan
Sjónarmið íbúa á 36 fermetrum
„Við lifum viðsjáverða tíma. Ýmis
konar forlagatrú ræður ríkjum innan
þjóðfélagsins og margir hafa gerst
pokaprestar hennar. Efekki verður
spornað gegn þessari þróun mun meiri
hluti manna trúa því að þeir geti alls
engu breytt í eigin málum. “
hendir mér símskeyti sem ég
kvitta fyrir. Efni þess var: Ef þú
borgar ekki þá leigu sem við í
stjórn F.S. ákveðum, þá rýmum
við íbúðina eftir 7 daga. Mikið
helvíti maður! Þetta var þá tilefn-
ið. Og ég sem hélt sjálfan mig
dauðan.
Gott fólk! Við lifurn viðsjár-
verða tíma. Ýmis konar forlag-
atrú ræður ríkjum innan þjóðfé-
lagsins og margir hafa gerst pok-
aprestar hennar. Ef ekki verður
spornað gegn þessari þróun mun
meiri hluti manna trúa því að þeir
geti alls engu breytt í eigin mál-
um. Allt sé fyrirfram ákvarðað.
Allt sé best eins og það er og birt-
ist þeim. Það sem verra er: Pok-
aprestar forlagatrúar eru sér ó-
meðvitaðir um siðferðilegar af-
leiðingar trúar sinnar. Hverjar
eru þær? Jú - forræðishyggja í
sinni neikvæðustu mynd. Skipun-
um hinna fáu „að ofan“ skal
hlýtt. Annars hljóta hinir mörgu
„að neðan“ verra af. Gegn þess-
ari siðleysu hafa íbúar Hjónag-
arða snúist. Og segja má að við
höfum haft storminn í fangið.
Forlagatrúin og forræðishyggjan
eru því miður allsráðandi í
þjóðfélaginu í dag. Fólk á ekki að
vera með puttana í ákvörðunum
„ábyrgra“ pokapresta. Fólk á
ekki að reyna að sýna viðleitni til
að láta enda ná saman. Gott fólk!
Er þetta ekki allt saman öfugsnú-
ið. Það er eins og ég hafi heyrt því
fleygt að við ættum öll að vera
ábyrgir þegnar innan „lýðræðis-
ins“ og reyna helst að spara sem
mest. Ég hlýt að hafa misskilið
bæði markmið og leiðir.
Lokaorðin eru þessi: Stjórn
F.S. (ásamt meirihlutanum í
stúdentaráði) er ábyrg fyrir
Hjónagarðsdeilunni. Stjórnin
ætlaði að ákveða einhliða leigu-
hækkun (skv. því ættum við að
borga tæpar 8.000 kr. á mán.) án
samráðs við íbúa Hjónagarða,
eins og venja er. Slíkt kann ekki
góðri lukku að stýra. Málum er
nú þannig varið að lögfróðir
menn eru komnir í spilið. Allt er
betra en gagnkvæm umræða að
mati ráðstjórnarinnar í F.S. Mun
vonandi fást úr því skorið hvort
að dónaskapur stjórnar F.S. sé
löglegur eða ekki, en hann er
fólginn í að ef við borgum ekki
leiguhækkun þeirra þá hefur okk-
ur verið hótað því að verða borin
út. Slíkur er máttur peninganna
að hann blindar „ábyrga“ menn
gagnvart hinu mannlega.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess
að á næstunni hyggst stjórn F.S.
leggja út í nýbyggingu. Reisa á
nýjan Hjónagarð. Hugmynda-
samkeppnin ein og sér í kringum
það kostar litlar milljón krónur.
Á sama tíma liggur sá Hjóna-
garður sem við búum á undir
milljónakrónaskemmdum. Væri
ekki nær að koma því húsnæði í
sæmilegt lag, sættast á sann-
gjarnan leigugrunn o.s.frv., áður
en að lagt verður út í nýjar fram-
kvæmdir? Garðbúar hafa ætíð
veitt stjórn F.S. það nauðsynlega
aðhald sem þeir hafa þurft og
jafnframt leitað svara við ofan
greindum spurningum og leiða til
að raungera þau. Hvað annað!
Við búum nú einu sinni á þessum
stað en ekki hinir „ábyrgu“ karl-
menn í stjórn F.S. Sumir þeirra
mættu hins vegar minnka við sig
störf í nefndum og ráðum og
reyna að sinna því almennilega
sem þeir taka sér fyrir hendur.
Eitt er víst: Hvernig sem málin
þróast næstu daga, þá ætti Hjón-
agarðsdeilan að verða fólki um-
hugsunarefni. Stöndum á verði
gangvart pokaprestum forlaga-
trúar og forræðishyggju! Við get-
um spornað gegn hækkandi verð-
lagi almennt og dónaskap.
Óskar Sigurðsson
(íbúi á nr. 202).
Leiklist
r
86 áhugaleikfélög í BIL
Leiklistaráhugi í höfuðborginni verulega að aukast
Á nýafstöðnum aðalfundi
Bandalags íslenskra leikfélaga
fengu 3 ný leikfélög inngöngu í
Bandalagið, en það er
leikdeild Ungmennafélags
Mýrahrepps í Austur-
Skaftafellssýslu, Leikfélag
Garðabæjar og leikhópurinn
Veit mamma hvað ég vil. Sá
síðast nefndi er annar af tveim
leikhópum unglinga, sem nú
eiga aðild að bandalaginu,
hinn er leikhópurinn Saga á
Akureyri, sem hefur starfað
þar af krafti um árabil. Nú
eiga 86 leikfélög aðild að
Bandalaginu og hafa aldrei
verið fleiri.
Það er gleðiefni að eftir
langt hlé skuli nú leiklistará-
hugi í höfuðborginni vera að
aukast verulega. Um árabil
hefur eingöngu verið um að
ræða áhugamannasýningar
innan skólanna eða á þeirra
vegum. f nágrannabæjum
Reykjavíkur þ.e. Kópavogi,
Mosfellsveit og Hafnarfirði
hafa leikfélög starfað af mikl-
um krafti. Nú hefur hins vegar
Áhugaleikfélag Reykjavíkur
„Hugleikur“ starfað í rúmt ár
og unglingaleikhópurinn Veit
mamma hvað ég vil mun fara
með sitt fyrsta verkefni á nor-
ræna leiklistarhátíð unglinga í
Finnlandi nú í júlí n.k.
í tengslum við aðalfundinn
var haldin ráðstefna um
leiklistarstarf meðal ungs
fólks. Mikil þörf er á því að
leikfélögin í landinu séu opin
fyrir þátttöku unga fólksins og
virki frumkvæði þess. Skól-
arnir hafa hér einnig mjög
mikilvægu hlutverki að gegna
og er nú kominn tími til að
kennslu með leikrænni tján-
ingu verði gerð að skyldu með
lagasetningu.
Aðalfundurinn og ráðstefn-
an voru haldin í Reykjanes-
skóla við ísafjarðardjúp með
þátttöku 60 manns alls staðar
að af landinu. Naut fólk góðs
atlætis í skólanum og notaði
óspart sundlaug staðarins,
sem mun vera sú lengsta á
landinu eða 50,46 cm. Bæjar-
stjórn ísafjarðar bauð gestum
til veglegs kvöldverðar og
Leikfélag Isafjarðar skemmti
gestunum með sýningu á hinni
bráðskemmtilegu revíu Engin
mjólk og ekkert sykur.
Dœmt í nauðgunarmáli í USA
Ttyggingarfélagi
gert að greiða 150
millj í skaðabætur
Nauðgunarmál hafa verið
mikið til umfjöllunar í fjölmiðl-
um beggja vegna Atlantshafsins á
undanförnum árum. Nýlega voru
sænskri konu dæmdar skaðabæt-
ur sem nema um 30 millj.
sænskra króna eða um 150 milj.
ísl kr. og eru þetta með hæstu
skaðabótum sem nokkurn tíma
hafa verið dæmdar í nauðgunar-
máli.
Konan, sem var á ferð í Banda-
ríkjunum með tveimur börnum
sínum, er fráskilin hjúkrunar-
kona og hafði hún og börnin
fengið herbergi á móteli. Það er
tryggingarfyrirtæki mótelsins
sem sér um greiðslu skaðabót-
anna, sem ekki eru þó greiddar í
einu lagi, heldur mánaðarlega
alla ævina. Kona þessi, sem heitir
Maria Granlund, segir að fram-
ganga lögreglunnar og Rape
Crisis Center í Florida, en þar var
ódæðið framið, hafi verið mjög til
fyrirmyndar, en hins vegar hafi
sænsk lögregluyfirvöld sýnt mál-
inu lítinn áhuga. Þegar kom í ljós
að mennirnir sem réðust inn í
herbergi hennar á mótelinu voru
margdæmdir glæpamenn og ann-
ar þar að auki vanheill á geðs-
munum, breyttist tónninn í
sænsku lögregluyfirvöldunum,
sem fylgdu málinu eftir þegar
Maria var komin heim til Sví-
þjóðar. Málinu lyktaði svo ný-
lega með skaðabótadómi, en
Maria kveðst aldrei munu jafna
sig fullkomlega eftir árásina,
hversu margar milljónir sem
henni verði dæmdar.
Hjúkrunarkonan Maria leitaði til Rape Crisis Center í Florida og ber þeim og
lögreglunni þar mjög góða sögu.
Kjarvalsstaðir
Sýning
á málverkum
eftir Kjarval
Opnuð hefur verið sýning á
málverkum eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval á Kjarvals-
stöðum. Á sýningunni eru 30
málverk og teikningar, allar í
eigu Kjarvalsstaða. Þar á meðal
eru nokkur verk sem keypt hafa
verið á síðustu árum, og ekki hafa
sést opinberlega fyrr. Sýningin
verður opin daglega kl. 14 - 22,
fram til júlíloka.
Þá er í undirbúningi mikil yfir-
litssýning á verkum Kjarvals að
Kjarvalsstöðum, sem opnuð
verður á 100 ára afmælisdegi hans
15. október í haust. í tengslum
við sýninguna hefur verið unnið
að skrásetningu verka Kjarvals,
og er nú búið að ljósmynda og
skrásetja um þrjúþúsund verk
sem eru í eigu fólks víðsvegar um
landið. Því verki er þó hvergi
nærri lokið, og verður haldið
áfram eftir föngum. Menn eru
hvattir til þess að gefa starfsfólki
Kjarvalsstaða upplýsingar um
myndir sem ekki hafa enn komist
þar á skrá.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlí 1985