Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 10
MENNING
Þorsteinn Ö. Stephensen leikari.
inn. Hann hefur búið í París síðan
1979 og starfar fyrir ýmis helstu
viku- og mánaðrrit austan hafs og
vestan, svo sem Paris Match,
Stern, Life, People, Vogue og
Esquire. Hann fæddist í Kazan á
Volgubökkum árið 1945. Að
loknu námi í rafmagnsverkfræði
gegndi hann um tveggja ára skeið
herþjónustu í Baykonur-
geimstöðinni og varð liðsforingi.
Eftir lausn úr hernum starfaði
hann á eigin vegum sem ljós-
myndari og tók einkum myndir
fyrir minjakort og hljómplötu-
kápur. A þessum tíma tók hann
um 180.000 ljósmyndir og lánað-
ist að smygla úr landi til vina á
Vesturlöndum 5000 ljósmynda-
spólum, áður en hann fluttist úr
landi ásamt fjölskyldu sinni.
Þó bæði Vladimir og kona hans
Aida, séu tilheyrandi rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunni (eða
grísku-orþódoxu kirkjunni)
fengu þau vegabréfsáritanir til fs-
raels með því að uppdikta gyð-
inglega ættingja og afla sér þann-
ig heimboðs frá ísraelsstjórn.
Vladimir Sichov hefur gefið út
einstæða bók um Sovétríkin, Les
Russes vus par Vladimir Sichov,
sem komið hefur út á allmörgum
tungumálum, þar á meðal nor-
sku, sænsku og ensku: The Russi-
ans (Little, Brown & Company,
1981). Bókin, sem er löngu upp-
seld á öllum málum, er óvenju-
lega opinská og nærfærin lýsing á
daglegu lífi í Sovétríkjunum sem
útlendingum er aldrei gefið færi á
að sjá eða kynnast af eigin raun -
lífi á rússneskum heimilum og
Nanna Ólafsdóttir ballerína.
samyrkjubúum, í strætum og
húsasundum stórborga, í verks-
miðjum og herbúðum, í óhugn-
anlegum fangabúðum og geð-
veikrahælum sovésku leyniþjón-
ustunnar, KGB, í kirkjum og
heimkynnum útskúfaðra lista- og
vísindamanna.
Sérkennilegur og mjög per-
sónulegur myndstíil Vladimirs
Sichovs hefur gert hann einhvern
virtasta og eftirsóttasta ijós-
myndara Evrópu nú um stundir.
Hal Calbom
og Phil Davies
Höfundar myndarinnar Ice-
land Crucibie eru bandarískir
kvikmyndagerðarmenn, sem átta
sinnum hafa verið sæmdir hinum
Arnar Jónsson og Þórhildur Þorleifsdóttir og fjölskylda.
eftirsóttu Emmy-verðlaunum,
sem veitt eru fyrir framúrskar-
andi sjónvarpsþætti. Þeir eru
báðir búsettir í Seattle í
Washington-fylki og starfa þar. •
Hal Calbom stundaði nám í
stjórnmálafræðum og síðar en-
skum bókmenntum og naut
margra virðulegra styrkja, var
m.a. National Merit Scholar,
Great Book Scholar og Frank
Know Fellow. Hann lauk BA-
prófi í stjórnmálafræðum frá
Harvard College árið 1971 og
MA-prófi í enskum bókmenntum
frá háskólanum í Exeter í Eng-
landi árið 1976. Að námi loknu
starfaði hann sem fréttamaður,
höfundur og framleiðandi sjón-
varpsþátta. Eftir átta ára starf hjá
NBV, gerðist hann sjálfstæður
rithöfundur og kvikmyndafram-
leiðandi í félagi við Phil Davies.
Phil Davies lauk BA-prófi í
fjölmiðlafræðum frá The Ever-
green State College árið 1974.
Eftir það starfaði hann um sinn
sem fréttaljósmyndari og síðan
kvikmyndagerðarmaður og
framleiðandi hjá NBC. Á þeim
árum var hann átta sinnum
sæmdur Emmy-verðlaununum.
Sfðan 1983 hefur hann starfað
sjálfstætt í félagi við Hal Calbom
að gerð kvikmynda og mynd-
banda fyrir sjónvarp og einkafyr-
irtæki.
Sigurður hefur samið nokkrar
bækur á ensku, auk fjölmargra á
íslensku, m.a. Northen Sphinx -
Iceland and the Icelanders from
the Settlement to the Present
(1977 og 1984) og Stallion of the
North - The Unique Story of the
Iceland Horse (1978), sem komið
hefur út á sjö tungumálum. Þá
þýddi hann og ritstýrði The
Postwar Poetry of Iceland (Uni-
versity of Iowa Press, 1982), og
ritstýrði og gaf út Icelandic Writ-
ing Today (1982).
Skáldsaga hans, Undir kal-
stjörnu, hefur komið út á þýsku,
Unter frostigem Stern (1984), og
ensku, Under a Dead Star
(1985). Ljóð hans, smásögur og
bókmenntagreinar hafa birst í
safnritum og tímaritum á Norð-
urlöndum öllum, í Bretlandi,
Þýskalandi, Frakídandi, Belgíu,
Hollandi, Grikklandi, Ítalíu,
Spáni, Indlandi, Mexíkó, Banda-
ríkjunum og Kanada.
Áskell Másson tónskáld.
Páll Stefánsson Ijósmyndari.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlí 1985