Þjóðviljinn - 19.07.1985, Page 1
19
júlí
1985
föstu-
dagur
162. tölublað 50. örgangur
PJOÐVIUINN
AWNNUUF
GLÆTAN
UM HELGINA
Fatlaðir
Geigvænlegt atvinnuleysi
Ráðningarskrifstofa borgarinnar ekki starfi sínu vaxin. 90 manns á
skrá íhverjum mánuði. Yfirvöld neita aðfjölga starfsfólki. Ásta
Schram: Engin glóra íþessu
Það verður engin glóra í þessari
starfsemi fyrr en starfsfólki
verður fjölgað tii muna, upp í
fjóra til fimm a.m.k., við erum
hérna tvær samtals í einu og hálfu
starfi og það er eins og dropi í
hafið miðað við verkefnin sem
sinna þarf, sagði Ásta Schram,
starfsmaður á öryrkjadeild ráðn-
ingaskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar í samtali við Þjóðviljann.
„Og eins og þú sást sjálfur hérna
fyrir utan áðan þá er það beinlínis
fáránlegt að innganga í húsið
skuli vera með þessu sniði. Hér
fer fram þjónusta fyrir fatlaða, en
mörgum þeirra er hreint ómögu-
legt að komast hingað inn nema
hafa með sér hóp aðstoðar-
manna.“
Um tvöleytið í gær lagði hópur
fatlaðra ungmenna upp frá húsi
Sjálfsbjargar að Hátúni 12. Öll
eru þau atvinnulaus og leiðin lá á
ráðningaskrifstofu Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 1. Það voru
ýmis Ijón í veginum á leiðinni
þangað, en það var ekki fyrr en
kom að húsnæði ráðninga-
skrifstofunnar sem verulega fór
að syrta í álinn. Þar kom fólkið,
sem flest var í hjólastólum, að
snarbröttum tröppum og virtist
engin leið til uppgöngu. Engin
lyfta, engin braut fyrir hjólastóla.
Það þurfti 4-5 manneskjur til að
koma hverjum og einum upp
tröppurnar og inn í stofnun, sem
Náttúra
ærsl
í Geysi
Sápufórnað á laugardag.
Vonasteftirgosi.
Ekki dauður enn
Fyrir skömmu voru tíðinda-
menn Þjóðviljans á ferð við Geysi
í Haukadal og urðu vitni að gos-
ærslum í hinum fræga goshver.
Ekki var um fullkomið gos að
ræða, en þó stóð strókur til him-
ins, og miklu nærri en hin reglu-
legu gos í frænda hans og ná-
granna, Strokki. Ærslin stóðu í
svona 6 til 7 mínútur.
„Það eru læti í honum annað
slagið“, sagði Ragna Samúelsson
hjá Ferðamálaráði. „Það fer eftir
veðri. Það má ekki vera rigning
né mikill vindur. En hann er ekki
dauður úr öllum æðum, blessað-
ur.“
Hægt er að láta Geysi gjósa
með gífurlegum sápufórnum og á
laugardaginn næsta, þann 20. júlí
klukkan 15 mun Ferðamálaráð
eyða sápu í nægilegum mæli til að
búast má við virðulegu gosi úr
hinum aldna jötni undirdjúp-
anna.
-ÖS
á að veita þeim ákveðna þjón-
ustu.
„Árlega leita um 200 manns til
skrifstofunnar og við erum með
80-90 manns á skrá í hverjum
mánuði. Með þessum mannafla
sem við höfum, er útilokað að
komast yfir nema hluta af um-
sóknunum. Starfið er það viða-
mikið, við þurfum að fara í fyrir-
tækin og kynna bæði þeim og
okkur möguleikana sem fyrir
hendi eru, það kemur varla fyrir
að fyrirtæki hringi til okkar og
spyrji um fólk. Ég hef ítrekað sótt
um að fá fleira starfsfólk, en
ávallt fengið neitun. Hvorki ríki
né borg virðast hafa minnsta
skilning á þessu.“
-gg
„Það mætti ætla að hér ættu fatlaðir ekkert erindi", sagði einn úr hópnum er kom að hinu óvinnandi vígi ráðningarskrifstofunnar.
Stuldir
Skál Jóns fbrseta stolið
Kristalsskál úr búi Jóns Sigurðssonar hvarffyrir nokkrum árum. Þór
Magnússonþjóðminjavörður: Fátíttað munir hverfi úrsafninu enþó
kemurþaðfyrir. Menn orðnir meira vakandifyrirþessu en áður og
öryggisráðstafanir eru orðnar mun meiri
Það er ákaflega fátítt að munir
hverfi úr Þjóðminjasafninu
en þó kemur það fyrir. Fyrir
allmörgum árum hvarf lítil skál
úr hillu i safni Jóns Sigurðssonar
og eftir það var sett gler fyrir alla
skápa. Askar og aðrir slíkir hlutir
eru njörvaðir niður með vír en
þeir sem ætla sér á annað borð að
stela eru menn slóttugir svo að
erfitt er að setja fyrir allan leka,
sagði Þór Magnússon þjóðminja-
vörður í samtali við Þjóðviljann
er forvitnast var um það hjá hon-
um hvort munir hyrfu úr safninu
og var tilefni spurningarinnar
askhvarfíð úr Árbæjarsafninu
um daginn.
Þór sagði að stuldir væru
vandamál hjá öllum söfnum í
heiminum og enginn staður væri
óhultur. Síðast sagðist hann
muna til þess að lítil kola hefði
horfið úr lýsislampa en hægt
hefði verið að steypa nýja, ná-
kvæmlega eins, svo að enginn sæi
muninn. Ennfremur hefði horfið
hluti af litlu kökumóti en það
hefði líka verið hægt að steypa
eftir þeim helmingi sem eftir
varð. Hann sagði að menn væru
orðnir miklu meira vakandi fyrir
þessu en áður og fólk fengi til
dæmis ekki að ganga inn í safnið
með skjóður eða regnhlífar.
Þá sagði þjóðminjavörður að
þegar safnið fengi húsnæði Lista-
safnsins yrði það allt stokkað upp
og gerðar nýjar varúðarráð-
stafanir. Hlutir yrðu þá settir
undir gler í meira mæli en nú. Þó
að það væri leiðinlegt krefðust
tímarnir þess.
- GFr.
Alþjóða hvalveiðiráðið
Halldór ekki bundinn
Ráðherra kveður íslendinga ekki þurfa að taka mark á ályktun ráðsins
Svíar og Svisslendingar fluttu
ályktun í gær á fundi Alþjóða
hvalveiðiráðsins um að meina ís-
lendingum að selja úr landi af-
urðir af hval sem veiddur hefur
verið í vísindaskyni.
Ályktunin var flutt að undir-
lagi fleiri ríkja sagði í útvarps-
fréttum í gærkveldi og haft var
eftir Halldóri Ásgrímssyni að á-
lyktun væri leiðbeinandi en ekki
bindandi. Þannig að íslendingar
þyrftu ekki að vera bundnir af
henni ef til samþykktar kæmi í
dag, þegar hún verður borin
undir atkvæði.
______________________ -óg.