Þjóðviljinn - 19.07.1985, Blaðsíða 3
_________________________FRÉTTIR______________________
Álskatturinn
Ekki stórkostlegur ávinningur
Iðnaðarráðherra:
Bíðum eftirhœrra álverði. Hallast sífellt á svartsýnishliðina ístóriðjumálunum
- Það er ekki stórkostlegur
ávinningur af þessum samningi
eins og sakir standa en við höfum
fengið fast undir fætur, sagði
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra um nýja skattasamning-
inn við Alusuisse sem undirritað-
ur var í gærmorgun. Saming-
urinn gefur ekki af sér neinar við-
bótartekjur af álverinu fyrr en ál-
verð hefur náð uppí rúm 60 cent
hvert pund. í dag selst álpundið á
heimsmarkaði fyrir aðeins 45
cent, en spáð er hækkandi verði á
næstu árum.
Aðspurður hvort fyrri samn-
ingurinn hefði að hans mati verið
óviðunandi sagi ráðherrann að
nú væri búið að setja undir leka
og girða fyrir mistúlkanir. Samn-
ingurinn lokaði illvænlegum
deilum við Alusuisse og vonandi
þyrfti ekki að koma til frekri
átaka.
Sverrir vildi lítið segja um
fyrirhugaða stækkun Álversins í
Straumsvík. Þau mál væru öll á
byrjunarstigi. „Það hefur hallast
á svartsýnishliðina síðan ég settist
Fóðurgjaldið
í þennan stól, í öllum þessum lét fálega með alla stóriðju- andi markaðsverð, undirboð á víða erlendis um raforkufram-
stóriðjumálum“, sagði Sverir og drauma. Nefndi hann til sflækk- raforkusölu og stórfelld áform leiðslu fyrir stóriðju. -lg.
Voldugustu karlar á Islandi? Meðal þeirra sem þarna sjást eru Páll Flygenring Garðar Ingvarsson lögfræðingur, Halldór Kristjánsson ráðunautur og Hjörtur
ráðuneytisstjóri, Ragnar Halldórsson álforstjóri, Halldór H. Jónsson stjórnar- Torfason lögfræðingur, Sverrir iðnaðarráðherra og nokkrir forstjórar frá Alusu-
formaður og eigandi margra stærstu fyrirtækja á Islandi, Jóhannes Nordal isse.
Seðlabankastjóri meðmeiru, Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar,
Alþingi
Milliþinganefnd til að
stokka upp húsnæðislánakerfið
Skipuð nefnd meðfulltrúum allraflokka til að gera tillögur um nýtt
húsnæðislánakerfi. Isamrœmi við kröfur stjórnarandstöðunnar. Jóhann
Einvarðsson aðstoðarráðherra: Nefndin hefurfullt umboð
5%
hámarks-
hækkun
Landbúnaðarráðuncytið hefur
sent frá sér fréttatilkynningu þar-
sem segir að hækkun fóðurgjald-
sins valdi 10% meðalhækkun á
innfluttu fóðri sem leiði að há-
marki til 1-5% hækkunar búvara
til neytenda.
Með nýju reglugerðinni, segir í
fréttatilkynningunni, var grunn-
gjald af innfluttu fóðri ákveðið
50%, þó eigi hærra en 4000 krón-
ur á tonnið. Kjarnfóðurgjaldið
falli niður með tilkomu gjaldsins,
þannig að hækkunin á fóður-
gjaldi nemi því að hámarki 1300
krónur á tonn. Fréttin af hækk-
unum umfram 5% eigi því ekki
við rök að styðjast, segir ráðu-
neytið.
-óg.
„Nefndin hefur fullt umboð til
að gera tillögur um hvað sem er“,
sagði Jóhann Einvarðsson að-
stoðarfélagsmálaráðherra í sam-
tali við Þjóðviljann í gær, en
ráðuneytið hefur sent frá sér til-
kynningu um skipan milliþinga-
nefndar til að gera tillögur um
nýtt húsnæðislánakerfi.
Með bréfum, dagsettum 11.
þ.m., voru eftirtaldir skipaðir í
nefndina: Guðmundur Bjarna-
son, alþingismaður, tilnefndur af
þingflokki Framsóknarflokksins
og er hann jafnframt formaður
nefndarinnar, Jón Sveinsson,
lögfræðingur, tilnefndur af þing-
flokki Framsóknarflokksins,
Halldór Blöndal, alþingismaður,
tilnefndur af þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins, Björn Þórhalls-
son, varaforseti ASÍ, Sjálfstæðis-
flokki og Steingrímur Ari Ara-
son, hagfræðingur, Sjálfstæðis-
flokki, Magnús H. Magnússon,
fyrrv. félagsmálaráðherra, til-
nefndur af þingflokki Alþýðu-
flokksins, Guðlaugur Ellertsson,
viðskiptafræðingur, tilnefndur af
þingflokki Bandalags jafnaðar-
manna, Guðni Jóhannesson,
verkfræðingur, tilnefndur af
þingflokki Alþýðubandalagsins
og Kristín Einarsdóttir, tilnefnd
af þingflokki Samtaka um
Kvennalista.
Samkvæmt erindisbréfinu á
nefndin að skila tillögum sínum í
haust. Þessi nefnd er skipuð í
samræmi við málafylgju húsnæð-
ishópsins og stjórnarandstöð-
unnar undir þinglok og féllst
ríkisstjórnin á að skipa milli-
þinganefnd um uppstokkun hús-
næðiskerfisins að kröfu stjórnar-
andstöðunnar.
-óg.
Hafnarfjörður
Útgerðarfélaginu slitið
Fyrsti hluthafafundurinn og einnigsá síðasti haldinn ígœr
Hluthafafundur í Útgerðarfé-
lagi Hafnfirðinga h/f sem haldinn
var í gær samþykkti að slíta fé-
laginu. Þetta var fyrsti og jafn-
framt síðasti hluthafafundur fél-
agsins.
Útgerðarfélag Hafnfirðinga
var stofnað að frumkvæði bæjar-
yfirvalda sem hlutafélag í meiri-
hlutaeign bæjarins er átti að taka
yfir rekstur Bæjarútgerðar Hafn-
afjarðar. Skömmu eftir að hluta-
fjársöfnun var hafin ákvað meiri-
hluti bæjarstjórnar skyndilega að
selja eigur BÚH til einkaaðila og
láta Útgerðarfélagið lönd og leið
þrátt fyrir að formlega væri búið
að stofna félagið og ráðstafa flest-
um eigum BÚH til þess.
Á hluthafafundinum í gær lá
fyrir tillaga frá stjórn félagsins
sem eingöngu er skipuð bæjar-
fulltrúum þar sem lagt var til að
slíta félaginu þar sem forsendur
er lágu til grundvallar stofnun
þess væru brostnar.
Rannveig Traustadóttir bæjar-
fulltrúi AB afsalaði sér umboði
sínu á fundinum í mótmælaskyni
við þann skrípaleik sem við-
hafður hefur verið af hendi meiri-
hlutans í þessu máli.
-íg
Skógarsnípa
Karlinn syngur á flugi
Skógarsnípa, fugl skyldur hrossagauk, er að flendast hérlendis. Frá
1980 hefur skógarsnípa verið fastagestur í Ásbyrgi nyrðra og í hljóð-
varpsfréttum í gær var sagt að skógarsnípan væri þannig að ílendast hér
álandi. Þessi nýi íslendingur erm.a. merkilegur fyrir þásök að karlinn
syngur á flugi.
-óg.
Grundarfjörður
Nýir
bústaðir
Nú eru hafnar framkvæmdir
við verkamannabústaði í Grund-
arfirði en slíkar byggingar hafa
ekki verið reistar þar síðan 1965,
að því er Rósant Egilsson, for-
maður stjórnar Verkamanna-
bústaðanna á Grundarfirði sagði
í spjalli við Þjóðviljann.
Byggt verður svokallað parhús
með tveimur íbúðum, níutíu fer-
metra hvor og gert ráð fyrir að
verkinu ljúki í nóvember á næsta
ári.
Sex tilboð bárust í bygginguna,
og hið lægsta var upp á 3,96 milj-
ónir, sem var einungis 87,8 prós-
ent af áætluðum byggingar-
kostnaði. Tilboðið kom frá
Guðna E. Halldórssyni og Pálm-
ari Einarssyni.
Undirbúningur að verkinu hef-
ur staðið í tvö ár og gengið vel, að
sögn Rósants, sem kvaðst vona á
þessu yrði nokkurt framhald því
mikil eftirspurn væri eftir slíkum
byggingum. - ÖS
Skák
Tvísigur
Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafs-
son unnu báðir skákir sínar í lands-
liðsflokki á norðurlandameistara-
mótinu í Gjörvik, Noregi. Jóhann er
efstur eftir 3 umferðir með fullt hús
vinninga og Helgi næstur, en finninn
Yrjölá og sá danski Curt Hansen geta
náð Helga með sigri í biðskákum. Úr-
slit í gær: Helgi vann Máki (F), Jó-
hann vann Westerinen (F), Agde-
stein (N) vann Öst-Hansen (D),
Helmers (N) - Wiedenkeller (S)
jafnt, Curt Hansen (D) - J. C. Hans-
en (Fær) bið, Yrjölá (F) - Schussler
(S) bið.
í fjórðu umferð í dag tefla þeir
Helgi og Jóhann.
Ekki var teflt á millisvæðamótinu í
Sviss í gær. ~m
Föstudagur 19. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3