Þjóðviljinn - 19.07.1985, Side 8
GLÆTAN
Vinnuskólinn í Kópavogi
Uppákomur
í Hlíðargarði
Á föstudaginn fyrir viku fór
Glætan á Hlíðargarðshátíð í
Kópavogi. Vinnuskólinn
heldur þessa hátíð, og er
þetta nú orðið árlegur við-
burður. Múgur og marg-
menni var samankominn
enda var ekki hægt að
kvarta undan veðrinu, sól
og norðankaldi. Fólk var
þarna komið til að skemmta
sér, enda höfðu krakkarnir
undirbúið leiki og settfram
ýmis tæki í því tilefni.
Mini-golfið átti vinsældum að
fagna, en ekki minni athygli
vöktu hinir sívinsælu vatnsslags-
leikir, þarna var spjald með gati
á. Krakkarnir áttu síðan að stinga
hausnum í gegnum gatið og láta
félagana síðan reyna að hitta með
blautum svampi í hausinn á sér!
Furðulegt en satt, það var biðröð
að þessu spjaldi. Vinnu-
skóla-vinnuáhöldin eins og hinar
gömlu „rallýhjólbörur" voru not-
aðar sem grill, og var löng biðröð
að hverjum grillhjólbörum.
Sigurður Þorsteinsson skóla-
stjóri Vinnuskóla Kópavogs var
að sjálfsögðu á staðnum og sagði
hann að þetta væri í fjórða sinn
sem þeir hjá Vinnuskólanum
héldu Hlíðargarðshátíð. Upphaf-
lega átti Marteinn Sigurgeirsson
yfirflokksstjóri í unglingavinn-
unni hugmyndina, sem síðan hef-
ur verið sett upp árlega við mik-
inn fögnuð jafnt ungra sem ald-
inna.
Tilgangurinn er í raun að fá
þetta hjarta Kópavogs til að slá.
Minna fólk á að það eigi þennan
garð sameiginlega, og að það get-
ur komið hingað og sýnt sig og
séð aðra á góðum degi.
Það er alltaf flokkur úr Vinnu-
skólanum starfandi í garðinum.
Þegar veður leyfir er skellt út
mini-golfi og fleiri leiktækjum.
Síðan hafa verið sett upp auglýs-
ingaskilti um bæinn til að minna
Kópavogsbúa á að nú gæti verið
tilvalið að skreppa í Hlíðargarð-
inn.
Glætunni fannst þessi endur-
vakning þorpstjarnarinnar, alveg
tilvalin hugmynd og finnst að
Unglingavinnan í Reykjavík gæti
tekið upp á slíkri uppákomu.
Við látum myndirnar hér á síð-
unni sem Ari ljósmyndarinn
okkar tók tjá stemmninguna á
hátíðinni.
-SP
Sigga Jóns 9 ára er þarna í hlutverki fegurðardrottningarinnar sem varð óspart
fyrir barðinu á skotglöðum félögum. mynd Ari.
Hundvotur fellur þessi í valinn í annað sinn, eftir harða viðureign við mótherja sinn í koddaslagi i Hlíðargarðinum Sigurður Þorsteinsson skólastjóri Vinnuskólans í Kópavogi var að sjálfsögðu
síðastliðinn föstudag. mynd Ari. mættur á Hlíðargarðshátíðina. mynd Ari.
Unglingar
Við liggjum
ekki í leti
Á Hliðargarðshátiðinni hitti
Glætan Erlend Eriendsson,
Kristján J. Svavarsson og Inga
Nikulásson og eru þeir allir 14
ára. Þeir eru búsettir í Kópa-
vogi og auðvitað vinna þeir i
Vinnuskóla Kópavogs.
Strákar, hvernig er að vinna í
unglingavinnunni í Kópavogi?
Það er allt í lagi, flokksstjórinn
okkar er fínn, enginn harðstjóri.
Við vinnum bara hálfan daginn
fyrir og eftir hádegi til skiptis,
þannig að við höfum hálfan dag-
inn til að gera það sem okkur
langar til.
Okkur finnst það útbreiddur
misskilningur meðal almennings
að krakkarnir í unglingavinnunni
liggi bara í leti, geri ekki neitt.
Það er ágætt að fá tækifæri til að
koma því á framfæri að svo er
ekki. Hér í Kópavogi að minnsta
kosti er okkur haldið við verkið.
Við erum aðallega í því að tyrfa,
og er það allt í lagi, maður sér
skikkanlega fjótt árangur af því
sem maður er að gera.
Kaupið mætti alveg vera
hærra, en það er eins með Kópa-
vogsbæ og aðra launagreiðendur,
allir eru á skallanum. Þeir geta
sennilega ekki borgað betur, þó
erum við betur borguð en krakk-
arnir í bænum.
Farið þið í félagsmiðstöðina
Agnarögn?
Já, já, við byrjuðum þó ekki á
því fyrr en nú í sumar. Vinnu-
skólinn og Félagsmiðstöðin Agn-
arögn hafa verið með diskótek í
sameiningu og látum við okkur
aldrei vanta. Það er mjög gaman
að fara þangað því maður hittir
alla krakkana úr Vinnuskólan-
um, sögðu félagarnir að lokum og
með það voru þeir roknir að poll-
inum til að sjá koddaslaginn.
—sp
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. júlí 1985