Þjóðviljinn - 19.07.1985, Qupperneq 14
FRÉTTIR
Skaftamálið
Við undmmst Hæstaréttardóm
Ályktun Lögreglufélags Reykjavíkur
en röngum ákvörðunum sínum.
Um bótaábyrgð þeirra heyrist
sjaldan. Dómsmálaráðuneytið
og iögregluyfirvöld þurfa að
standa fyrir breytingum því nú
liggur fyrir að aukið lið þarf til
útkalla svo örugglega megi kom-
ast hjá óhöppum. Það er stéttar-
leg nauðsyn þegar ekki er ætlast
til að „viðskiptavinirnir“ séu
ábyrgir gerða sinna.
Umfjöllun fjölmiðla varð meiri
en þekkst hefur. Auðvitað ber
þeim að þjóna sínum lesendum
og sinna frjálsri fréttamiðlun.
Það sem gerðist í þessu máli var
að með reginafli sínu fengu fjöl-
miðlar almenningsálitið til að
dæma þrjá menn seka fyrir níð-
ingsverk. Niðurstaða dómsins
varð hins vegar sú að tveir hæsta-
réttardómarar, studdir af undir-
rétti, sýknuðu alla mennina. Hin-
ir hæstaréttardómararnir sýkn-
uðu tvo hinna ákærðu algerlega
en sakfelldu einn fyrir gáleysis-
verk. Samt er hæpið að sá dómur
nái að breyta áliti almennings
nema að litlu leyti.
Ekki er að sakast við blaða-
mennina sjálfa. Línan kom að
ofan - hún gilti og mun gilda þó
að harðleikið sé að peningamenn
a ritstjórastóli geti leikið sér að
örlögum fólks.
Þó við undrumst dóm hæsta-
réttar gagnrýnum við hann ekki.
Hann er okkar æðsta dómsvald
og verður að njóta trausts. Hins
vegar munum við síðar gagnrýna
saksóknara og teljum okkur geta
rökstutt þá gagnrýni rækilega
þegar þar að kemur. Lögreglu
ber að gæta æðstu stofnana þjóð-
arinnar - því getur verið vara-
samt að veikja afl hennar mikið. “
Flugleiðir
Flug og
bíll til
Reykja-
vfloir
Flugleiðir hafa komið fram
með nýtt ferðatilboð innanlands
sem er flug og bíll til Reykjavíkur
frá öllum áfangastöðum félagsins
úti um land. Með því að kaupa
saman flugfar fram og til baka og
afnot af bílaleigubíl í Reykjavík
fæst umtalsverður afsláttur frá
venjulegu verði. Flugleiðir
hyggjast geta boðið sambærilega
þjónustu út frá Reykjavík áður
en langt um líður.
Svo dæmi sé tekið um verð, má
nefna, að flug og bíll fyrir þrjá frá
Akureyri kostar frá 4.567 krónur
á mann. Innifalið er flug fram og
til baka, bílaleigubíll í fjóra daga
með 400 kflómetra akstri og sölu-
skatti. Bensín og flugvallar-
skattur ekki innifalið.
Frá Egilsstöðum er verðið fyrir
þrjá 5.582 krónur á mann og frá
Isafirði 4.366 krónur. Sérstakur
afsláttur er veittur börnum.
Verðið er mismunandi eftir því
hve margir eru um hvern bfl, dýr-
ast fyrir einn og ódýrast fyrir
fimm í bfl. Lágmarksdvöl í
Reykjavík er fjórir dagar en gild-
istími flugfarseðils er einn mán-
uður.
Sem fyrr segir gildir þetta
ferðatilboð frá öllum 10 áfanga-
stöðum Flugleiða út um land.
„Almennur félagsfundur í Lög-
reglufélagi Reykjavíkur haldinn
16. júlí sl. lýsir yfir undrun sinniá
niðurstöðu Hæstaréttar í svok-
ölluðu Skaftamáli.
Með þessum dómi hljóta
starfshættir lögreglunnar að
breytast því útkallið í Þjóð-
leikhúskjallarann þar sem sam-
komugestur var fjarlægður telst
til hversdagslegri verkefna lög-
reglunnar. Því miður gerðist þar
óhapp. Hinn handtekni, öflugur
maður, veitti mótspyrnu og hlaut
skaða af. Dómurinn yfir félaga
okkar markar eflaust framtíðar-
stefnu þar sem ríkisvaldið er leyst
undan húsbóndaskyldu en verka-
maðurinn gerður ábyrgur og
bótaskyldur fyrir óhöppum og
meiðslum sem handtekinn maður
kann að verða fyrir hvernig sem
hann hagar sér. Að leggja slíka
ábyrgð á herðar venjulegra
óbreyttra starfsmanna getur orð-
ið til þess að þeir veigri sér við
aðgerðum þegar óvíst er um úrslit
og væri hörmulegt ef slíkt yrði til
tjóns þeim sem við eigum að
vernda.
Hér munar miklu á ábyrgð
þeirri sem lögð er á mismunandi
stéttir. Ekki heyrist um bóta-
ábyrgð lækna. Gera þeir aldrei
mistök? Lítið heyrist um bóta-
ábyrgð þeirra sem stýra stórum
stofnunum eða skipuleggja stór-
framkvæmdir. Sannað er að
sumir þeirra hafa valdið stór-
felldu tjóni með þaulhugsuðum
Ljósmynd úr kvikmyndinni „Þegar verslunin er trjáls...'
- Gamli tíminn. (Ljósmyndasafniö).
Verslun og viðskipti
Heimildamynd um versiunina
Nýverið var frumsýnd kvikmyndin „Þegar verslunin er frjáls...“ sem
samtökin Viðskipti og verslun létu gera, sem heimildamynd um versl-
un á íslandi.
Samtökin Viðskipti og verslun eru samtök atvinnurekenda og
launþega í verslun og stóðu flest samtakanna að byggingu Húss versl-
unarinnar á sínum tíma.
Heimildamyndin var gerð af Lifandi myndum sf. og var hún frum-
sýnd 17. júlí VR-salnum í Húsi verslunarinnar.
-óg.
Austurland
Stofna ferða-
málasamtök
7% erlendraferðamanna 1984 tóku land á Seyðis-
firði. Austlendingar vilja sporna viðfólksflótta.
Tilgangurinn með stofnun
þessara ferðamáiasamtaka er
m.a. sá, að sporna við þeim fólks-
flutningum sem nú eiga sér stað á
suðvesturhornið, þar sem höfuð-
borgarvaldið er allt að gleypa.
Við stefnum að því að reyna að
auka fjölbreytni í atvinnulífínu
hér á Austurlandi, svo við getum
haldið einhverju af því fóiki sem-
ekki hefur áhuga á að vinna í físk-
vinnslu, sagð Jónas Hallgríms-
son, ritari nýstofnaðra ferða-
málasamtaka á Austurlandi í við-
tali við blaðið.
Þann 6. júlí sl. komu fulltrúar
allra ferðamálafélaga á Austur-
landi saman í Djúpavogi og stofn-
uðu formlega Ferðamálasamtök
Austurlands. Á stofnfundinum
var Rúnar Pálsson frá Egilsstöð-
um kosinn formaður, Asthildur
Lárusdóttir frá Neskaupstað var
kosin gjaldkeri og Jónas Hall-
grímsson ritari. Stofnun þessara
samtaka hefur verið í undirbún-
ingi undanfarin tvö ár.
„Um 7% allra erlendra ferða-
manna komu til Seyðisfjarðar
með Norröna á síðastliðnu sumri.
Ferðamálasamtök Austurlands
hyggjast bæta alla þjónustu við
þessa ferðamenn svo og auðvitað
innlenda ferðamenn sem til
Austurlands koma. Samtökin
munu standa að ýmiss konar
kynningarstarfsemi, stefnt er að
því að koma upp tjaldstæðum á
sem flestum stöðum, styðja við
bakið á því fólki, sem þegar
stundar ferðamannaþjónustu og
fleira og fleira. Verkefnin eru
óþrjótandi", sagði Jónas að lok-
um.
Fjörutíu fulltrúar voru á fundi Brunabótafélags íslands á Egilsstöðum.
Brunabótafélag íslands
Fulltrúaráðsfundur
á Egilsstöðum
Aukafundur fulltrúaráðs
Brunabótafélags íslands var
haldinn á Egilsstöðum 29. júní
síðastliðinn. Fuiltrúar voru 40
talsins og voru tvær ályktanir
samþykktar einróma á fundin-
um. Onnur um umferðarmál og
aukningu á umferðarlöggæslu en
hin fjallaði um tillögur Verslun-
arráðsins um brunatryggingar.
Mótmælti fundurinn sérstaklega
tillögum í þá átt, að réttur
Reykjavíkurborgar til að reka
Hústryggingar sínar og réttur
annarra sveitarfélaga til að bjóða
út í einu lagi brunatryggingar
fasteigna í umdæmum sínum yrði
lagður niður. í ályktuninni er
skorað á sveitarstjórnarmenn um
allt land að standa vel á verði um
forræðisrétt sveitarfélaganna í
þessum efnum.
- vd.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. júlí 1985