Þjóðviljinn - 16.08.1985, Síða 8
GLÆTAN
!
1 r-L '-jk
Þessi uppdráttur er til að hjálpa þeim sem áhuga hafa til að þekkja stjörnurnar á
stóru myndinni, sem er á plötuumslaginu We are the World: 1. Lionel Richie 2.
Steve Perry 3. Al Jarreau 4. Kenny Loggins 5. Jeffrey Osborne 6. Lindsey
Buckingham 7. Dan Aykroyd 8. Harry Belafonte 9. Bob Geldof 10. Ruth Pointer
11. Sean Hopper, The News 12. Bill Gibson, The News 13. Mario Cipollina,
The News 14. Daryl Hall 15. Dionne Warwick 16. Kenny Rogers 17. Huey
Lewis 18. John Oates 19. Johnny Colla, The News 20. Chris Hayes, The News
21. Tina Turner 22. Billy Joel 23. Cyndi Lauper 24. Bruce Springsteen 25. Willie
Nelson 26. James Ingram 27. Bob Dylan 28. Anita Pointer 29. Tito Jackson 30.
Jackie Jackson 31. Marlon Jackson 32. Paul Simon 33. Kim Carnes 34.
Michael Jackson 35. Diana Ross 36. Stevie Wonder 37. Quincy Jones 38.
Smokey Robinson 39. Ray Charles 40. Sheila E. 41. Randy Jackson 42. La
Toya Jackson 43. Bette Midler.
Lagið með ofanskráðum titli
þekkir hvert mannsbarn sem
hlustar á rásir Ríkisútvarps-
ins. Hitt vita færri að auk
smáskífunnar með þessu lagi,
sem skartar skærustu og
bestu poppstjörnum Banda-
ríkjanna, var líka gefin út breið-
skifa undir sama nafni, þar
sem titillagið er að finna sjö
mínútna og tveggja sekúndna
langt auk níu laga, sem lista-
mennirnir gáfu til Afríkusöfn-
unarinnar... og reyndar er öll
vinna gefin í sambandi við
hljómplötu þessa.
We are the world hefst náttúru-
lega á titillaginu sem hópurinn
USA for Africa syngur, en ná-
kvæmlega heitir þetta framtak
United support ofartistfor Africa
- Sameiginlegur stuðningur lista-
manna við Afríku. Svona til gam-
ans skulum við telja upp ein-
söngvarana í þeirri röð sem í
þeim heyrist í laginu: Lionel Ric-
hie, Stevie Wonder, Paul Simon,
Kenny Rogers, James Ingram,
Tina Turner, Billy Joel, Michael
Jackson og Diana Ross, Dionne
Warwick, Willie Nelson, (?),
Bruce Springsteen, Kenny Logg-
ins, Steve Perry, Daryl Hall, Mic-
hael Jackson, Huey Lewis, Cyndi
Lauper (sem fékk leyfi hjá upp-
tökustjóranum Ouincy Jones til
að fara frjálslega með laglínuna),
Kim Carnes, Bob Dylan, Ray
Charles, Stevie Wonder, Bruce
Springsteen...
Hin lögin
Steve Perry, söngvari Journey,
hristi lagið Ifonly for the Moment
Girl fram úr erminni ásamt
Randy Goodrum sérstaklega fyr-
ir þessa plötu og gerir hér gott
betur en með Journey að mínu
viti. Af honum taka við hinar
stórgóðu og -huggulegu söng-
stúlkur Pointer-systur í laginu
Just a little closer og eins og yfir-
leitt bjóða þær systur upp í dans.
Endahnútinn á hlið eitt rekur
sjálfur rokkbossinn Bruce
Springsteen með E-götu bandi
sínu. Þeir flytja lag Jimmys Cliff
Trapped. Þessi upptaka lagsins
var gerð í ágúst í fyrra á hljóm-
leikum í New Jersey, en þeir fé-
lagar hafa leikið Trapped af og til
á hljómleikum síðan 1980 en
aldrei sett það á plötu. Því þykir
þetta lag gífurlegur fengur rokk-
unnendum.
Hin hliðin
Norðurljósin skína fyrst á hlið
2, með lagið Tears are not enough
okkur til áminningar, bæði á
ensku og frönsku, um að ekki sé
nóg að gráta yfir hörmungunum í
heiminum, við verðum að gera
eitthvað í málinu. Norðurljósin
(Northern Lights) eru kanadískir
listamenn og af þeim nefnum við
djasspíanistann Oscar Peterson,
Joni Mitchell, Neil Y oung, Bryan
Adams, Mike Reno í Loverboy,
Geddy Lee í Rush, Anne Murr-
ay, Gordon Lightfood, Richard
Manuel (Band) og klassíska gít-
arleikarann Liona Bond. Ljóm-
andi samsöngslag hjá Kanadaf-
ólkinu.
Prince er næstur á dagskrá.
Hann mætti ekki til að syngja tit-
illagið en samdi 4 the Tears in
Your Eyes sérstaklega á þessa
plötu og var sá fyrsti sem skilaði
inn lagi á hana. Mér finnst þetta
vera með bestu lögum Prinsins
sem flytur þetta með hljóm-
sveitinni Revolution, og bakradd-
irnar eru hreint yndislegar. Þess
má geta í framhjáhlaupi, að Huey
Lewis hljóp í söngskarð Prince í
We are the World.
Gömlu garparnir í Chicago eru
samir við sig í laginu Good for
nothing, bæði ljúfir og hressilegir
í einu og kunna vel til verka eftir
einar 17 breiðskífur og sumar
tvöfaldar! Á eftir þeim í róleg-
heitunum kemur Tina Turner í
laginu Total Control eftir Mörtu
Davis í Motels. Tina er svo róleg í
tíðinni að lagið þurfti að stytta
um helming til að koma því fyrir á
plötunni. Kenny Rogers er öllu
léttari á barunni í laginu A little
more Love og gamlir félagar hans
úr hljómsveitinni First Edition,
Kim Vassy og Terry Williams,
taka með honum lauflétt við-
lagið.
Lestina á þessari ágætu fjöl-
skylduplötu rekur Huey Lewis
með góðri og fagmannlegri að-
stoð félaga sinna í The News, Tro-
uble in Paradise var tekið upp á
hljómleikum í San Francisco á
síðustu stundu fyrir plötu þessa
og er hressilegur endahnútur
með saxófónum á fullum dampi;
en titillinn minnir okkur á til-
ganginn með plötu þessari,
Vandræði í Paradís. A
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir (4) 1. Animal instinct - Commondores (2) 2. Peeping Tom - Rockwell (3) 3. You are my heart you are my soul - Modern Talking (-) 4. Star - Alfie (5) 5. Dare me - Pointer Sisters ,(10) 6. Keylich - Marillon (8) 7. All fall down - Five Star (-) 8. Life in one day - Howard Jones (1) 9. Live is life - Opus (-) 10. There must be an angel - Eurithmics Grammib (1) 1. Low life - New Order (2) 2. Kona - Bubbi Morthens (-) 3. Talking Heads - Little creatures (-) 4. Nick Cave and the bad seeds - The firstborn is dead (4) 5. Skemmtun - Með Nöktum (-) 6. Cult - Dream time (-) 7. Nico the Faction - Camera obscure (-) 8. New order - Perfect kiss (6) 9. How will the wolf survive - Los Lobos (8) 10. Rip, rap, rup - Oxmá Rás 2 1 (1) Live is life-Opus 2 (3) Money for Nothing - Dire Straits 3 (5) Into the Groove- Madonna 4 (2) There must be an Angel- Eurythmics 5 (13) Ve don’t needanother HeroTma Turner 6 (-) Tarzan Boy- Balti Mora 7 (8) Á rauðu Ijósi- Mannakorn 8 (7) Keleigh - Marillion 9 (4) Head over Heels - Tears for Fears 10 (15) Hitt lagið - Fásinna
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. ógúst 1985