Þjóðviljinn - 23.08.1985, Síða 2
___________________FRÉTTIR____
Ríkisstjórnin
Auka olnbogarýmið
Þrímenningarnir á vegum ríkisstjórnarinnar leggja til
margvíslegar ráðstafanir fyrir atvinnulífið: Skattafríðindi, rýmri löggjöf
verðlœkkun á rafmagni, breytingar í peningamálum.
Heimildir fyrirtækja til að taka
erlend lán verði rýmkaðar,
skattafríðindi vegna hlutabréfa-
kaupa verði rýmkuð, virðisauka-
skattur verði lögfestur fyrir árs-
lok, og fjárfestingahömlur út-
iendinga hérlendis og íslendinga
erlendis verði rýmkaðar veru-
lega.
Þetta eru nokkrar af þeim til-
lögum sem starfshópur á vegum
forsætisráðherra skilaði af sér
fyrr í sumar varðandi aðgerðir til
að hvetja til nýsköpunar í at-
vinnulífinu. I starfshópnum áttu
sæti þeir Ólafur Davíðsson, Ingj-
aldur Hannibalsson og Þorsteinn
Ólafsson.
í álitsgerð sinni til forsætisráð-
herra segja þremenningarnir að
þeir telji brýnt að undirbúningur
hefjist þegar á vegum viðkom-
andi ráðuneyta að svo miklu leyti
sem hann er ekki hafinn til að
koma tillögunum í framkvæmd.
Gera þurfi veigamiklar
breytingar á peninga-, lána-,
gjaldeyris- og skattamálum. Efla
þurfi bankakerfið, koma á verð-
bréfamarkaði, rýmka um öll
gjaldeyrisviðskipti, auka skatt-
fríðindi vegna hlutabréfakaupa og
lögfesta virðisaukaskatt.
I kafla skýrslunnar um sérstak-
ar aðgerðir til nýsköpunar er
m.a. lagt til að ríkið borgi helm-
ing launa nýrra starfsmanna í
rannsóknar- og þróunarstarfsemi
í fyrirtækjum í tiltekinn ára-
fjölda. Felld verði niður ýmis
gjöld af tækjum og búnaði fram-
leiðslu, ríkisábyrgðum verði beitt
í ríkari mæli og að fjárfestingar-
hömlur í löggjöf verði rýmkaðar
verulega, hvort heldur er um að
ræða fjárfestingu íslendinga er-
lendis eða erlendra aðila hér-
lendis. Þó verði gerðir sérstakir
fyrirvarar varðandi fjárfestingar
erlendra aðila í sjávarútvegi og
fiskeldi. Einnig verði heimilt að
undanþiggja fyrirtæki í nýjum
greinum tekjuskatti, launaskatti
og aðstöðugjaldi um ákveðinn
tíma. Söluskattur og verðjöfn-
unargjald á raforku til fram- ,
leiðslufyrirtækja verði fellt niður
og mótuð verði stefna um verð-
lagningu á raforku sem hvetji til
uppbyggingar nýrra fyrirtækja.-lg
Húsamerkingar
Að merkja
eða
merkja
ekki...
Húsin Reynisnes og Reynistað-
ur við Skildinganes í Skerjaflrði
bera húsnúmerin 13 og 15.
Þessar upplýsingar fengust hjá
Mælingadeild borgarinnar. í
Þjóðviljanum í gær var sagt frá
því að gatnamálastjóri hefði látið
setja upp skilti með nöfnum þess-
ara húsa. Gatnamálastjóri, Ingi
Ú. Magnússon sagði að þetta
hefði verið gert að ósk íbúanna,
m.a. vegna þess að þessi hús
hefðu ekkert götunúmer. Það er
ekki rétt hjá honum. Þessi hús
Hvar er götunúmerið? Mynd. E.ÓI.
bera, eins og áður sagði, númerin hér í borg með götunúmerum, þó ekki orðið svo með Reynisnes og
13 og 15 við Skildinganes. Eins og svo þau beri ákveðin nöfn. Af Reynistað í Skerjafirði.
kunnugt er skal merkja öll hús einhverjum ástæðum hefur það -IH
Ég hef aldrei ratað neitt í
Skerjafirðinum.
AB - Vestfirðir
Kjördæmis-
ráðstefna
Kjördæmisráðstcfna Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum
verður haldin nú um helgina á
Reykhólum í Austur-Barða-
strandasýslu. Ráðstefnan verður
sett kl. 10.00 árdegis á laugardag,
24. ágúst en verður slitið á sunnu-
daginn kl. 17.30.
Auk hefðbundinna dagskrár-
atriða kjördæmisráðstefnunnar
mun verða fjallað um útgáfu
Vestfirðings, fjallað verður sér-
staklega um atvinnu- og byggða-
mál. Framsögu hafa þeir Kjartan
Ólafsson og Ragnar Arnalds. Þá
mun Kristinn Á. Gunnarsson for-
maður kjördæmisráðsins hafa
framsögu um stefnuumræðuna.
Á sunnudeginum hefst dag-
skráin með nefndastörfum, um-
ræðum og afgreiðslu mála frá
nefndum. Þá verður kjör stjórnar
kjördæmisráðs og uppstiílinga-
nefndar, tilnefning til miðstjórn-
arkjörs. Einsog áður sagði er gert
ráð fyrir þingslitum kl. 17.30.
Hvanneyrarfundurinn
Fyrirlitning
og tillitsleysi
Fjölmargir bændur eru óá-
nægðir með afgreiðslu Alþingis á
lögunum um Framleiðsluráð
sem, - meira af kappi en forsjá, -
Mannréttindabrot
Fangar mánaðarins-ágúst 1985
Mannréttindasamtök Amnesty
International sendu frá sér
frétt þar sem þeir vekja athygli
manna á samviskuföngum júní-
mánaðar og hvetja fólk til að sýna
andstöðu sína við
mannréttindabrotum í verki og
skrifa bréf til hjálpar þessum
föngum.
Samviskufangar júnímánaðar
Kenya. Maina wa Kinyatti 41
árs háskólakennari. Hann var
handtekinn 1982 og ákærður fyrir
að hafa undir höndum upp-
reisnarskjöl. Gögn þessi fundust
ekki heima hjá honum. Hann var
dæmdur f 6 ára fangelsi. Maina
wa Kinyatti var þekktur fyrir
marxískar skoðanir sínar og and-
stöðu við stjórnina. Hann var
handtekinn þegar stjórn landsins
breytti stjórnarskrá landsins
þannig að aðeins einn
stjórnmálaflokkur var leyfður.
Taiwan. Pai Ya-tsan, lögfræð-
ingur, var handtekinn 1975.
Hann var þá í framboði til þings. í
framboðsræðu gagnrýndi hann
utanríkisstefnu stjórnarinnar og
spillingu innan ríkisins. Pai Ya-
tsan var dæmdur í lífstíðarfang-
Markaðsmál
Torhyggnir gagnvart ódýru kjöti
Vaxandi ótti við kemisk efni, lyfjagjöf og verksmiðjubúskap
£ inn þeirra manna, sem þeir
Sigurgeir Þorgeirsson og
Gunnar Páll Ingólfsson ræddu
við er þeir voru að athuga mögu-
leika á sölu íslensks dilkakjöts 1
Bandarikjunum, var Fred
D’Agostino. Hann er einn af
eigendum og aðalforstjórum
D’Agostino matvöruverslananna.
Hann rekur 20 verslanir í „fínni“
hverfum New-York borgar og
hefur á sér það orð, að bjóða að-
eins hágæðavörur.
D’Agostino taldi að við ættum
skilyrðislaust að verðleggja kjöt-
ið hátt og forðast samanburð og
samkeppni við Nýja-Sjáland.
„Þið eruð með vöruna, sem ég
get selt og mínir viðskiptavinir
spyrja sjaldan um verð“. Hann
kvaðst reiðubúinn að taka kjötið,
skipuleggja með okkur ódýrasta
máta á auglýsingum, sem beint
yrði að hans viðskiptavinum, og
ítrekaði æ ofan í æ, að verðið
mætti ekki vera of lágt. „Mínir
viðskiptavinir eru tortryggnir
gagnvart ódýru kjöti“, sagði
hann.
Hann sagði einnig, eins og
margir fleiri, að sívaxandi ótti
fólks við „kemisk“ efni, lyfjagjöf
og andúð á verksmiðjubúskap,
skapaði aukna ásókn í allt, sem
teldist náttúrlegt og á því sviði
dytti sér engin kjötvara í hug,
sem stæði betur að vígi en ís-
lenska lambið. Sjálfur hefði hann
borðað íslenskt lambakjöt og
bragðið væri frábært.
D’Agustino lagði áherslu á að
ná sambandi við „foodeditors"
virtra blaða og tímarita og vinna
hylli þeira á lambakjötinu.
Kvaðst hann geta orðið þar að
liði.
-mhg
elsi fyrir að „reyna að koma á
uppreisnaranda" með skoðunum
sínum.
Austur-Þýskaland. Hjónin Al-
fred (43 ára) og Helga (37 ára)
Kulhanek, starfsmenn í ávaxta-
ræktarfýrirtæki. Þau sóttu um
leyfi til þess að fá að yfirgefa
landið en án árangurs. í október
1984 tók dóttir þeirra, sem búsett
er í V-Berlín þátt í mótmælastöðu
við landamærin vegna þess að 35
ár voru síðan A-Þýskaland var
stofnað. Þetta gerði hún til að
undirstrika kröfu foreldra sinna.
Þau voru handtekin nokkrum
klst. síðar og dæmd fyrir að „hafa
tekið þátt í ólögmætum sam-
skiptum" þó þau hafi að sögn
ekki vitað um fyrirætlanir dóttur
sinnar. Alfreð var dæmdur í 18
mánaða fangelsi en Helga í 2 ár
og 2 mánuði.
í frétt frá Amnesty segir að þeir
sem vilji leggja þessum föngum
lið séu beðnir um að hafa sam-
band við skrifstofu fslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15, Rvík.
Síminn er 16940. Skrifstofan er
opin frá 16-18 alla virka daga. Þar
fást nánari upplýsingar og veitt er
aðstoð við bréfaskriftir ef óskað
er.
SA
voru knúin gegnum þingið á sið-
ustu dögum þess í vor.
Nýafstaðinn stofnfundur
Landssamtaka sauðfjárbænda
lýsti því einróma yfir, að hann
„fordæmdi þá fyrirlitningu og til-
litsleysi, sem Alþingi íslendinga
sýndi bændastéttinni, er lög um
framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum voru knúin í gegnum
Alþingi í andstöðu við samtök
bænda”. -mhg
Sigurgeir
sinni
markaðs-
málum
Hvanneyrarfundur sauðfjár-
bænda taldi að betur þyrfti að
vinna að markaðsmálum, hér-
lendis og erlendis, en gert hefði
verið til þessa.
Því beindi fundurinn „þeim
eindregnu tilmælum til Búnað-
arfélags íslands, að það feli
sauðfjárræktarráðunaut sínum,
Sigurgeiri Þorgeirssyni, að starfa
að markaðsleit fyrir sauðfjáraf-
urðir, heima og erlendis, á næstu
mánuðum. Eins og málum
sauðfjárbænda er komið í dag, þá
er það lífsnauðsyn stéttarinnar að
tryggja markaði. Fundurinn telur
að héraðsráðunautar eigi að geta
unnið að því kynbótastarfi, tíma-
bundið, sem áformað var að Sig-
urgeir ynni“. -mhg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. ágúst 1985