Þjóðviljinn - 23.08.1985, Page 9
HEIMURINN
Heilbrigði
Stökkbreytingar á
sendiráðsmönnum?
Bandaríkjamenn kvarta undan
heilsuspillandi njósnum í Moskvu.
Sovét: einskœr hugarburður
Washington/Moskva - Utan-
ríkisráðuneytið í Washington
sendi kremlverjum á mánudag
harðorð mótmæii við
óheilnæmum njósnum um
bandaríska sendiráðsmenn í
Moskvu.
Bandaríkjamenn halda því
fram að sovéska leyniþjónustan
njósni um þá með efninu nítró-
phenylpentadien sem dreift sé
meðal annars á bfla og festist
þannig við hendur diplómatanna
og föt þeirra. Efnið segja ráðu-
neytismenn að sé stökkbreytir og
gæti valdið krabbameini.
Vladimir Sjústoff sovéskur
sendinefndarmaður hjá SÞ sagði í
bandarísku sjónvarpi í gær að tal
bandaríkjamanna væri „einskær
hugarburður“.
Enginn mun hafa veikst enn
við Laufásveg Moskvuborgar en
þegar eru hafnar rannsóknir á
langtímaáhrifum efnisins. Ekki
er vitað hvernig moskóvítar þefa
efnið uppi, en bandaríkjamenn
Priðji heimurinn
Suðurbanki
Djakarta - Fulltrúar ríkja í „77-
hópnum" hafa komið sér sam-
an um að stofna banka sem á
að kallast Suðurbankinn á
fundi í Indónesíu. 77-hópurinn
er nafn á lauslegum samtökum
þróunarríkja innan Sameinuðu
þjóðanna.
Stofnfé bankans á að vera jafn-
gildi 60 milljarða íslenskra króna.
Enn er óljóst hvernig fjár verður
aflað til bankans og hver hlut-
deild hvers ríkis skal verða, en
þetta á að ákveða á öðrum fundi
enn háttsettari manna.
segja að því sé stráð í ósýnilegu
púðurformi og festist við fólk og
staði sem sendiráðsmennirnir
heimsækja.
Haldi menn að hér sé verið að
rekja söguefni í 007-mynd: nei,
málið er svo alvarlegt að Larry
Speakes talsmaður Reagans
Bandaríkjaforseta telur ekki ó-
líklegt að það komi upp í nóvem-
ber samræðum Reagans og Gor-
batsjoffs í Genf. Og það ber ör-
ugglega á góma í viðræðum utan-
ríkisráðherra ríkjanna í næsta
mánuði.
Annars eiga stórveldasendi-
ráðsnjósnir sér allnokkra sögu
sem bandarískir hafa hingaðtil
verið einir um að segja, - frá sinni
hlið:
Árið 1960 fannst hljóðnemi í
nefinu á eminum í skjaldarmerki
Bandaríkjanna inní sendiráði
þeirra í Moskvu, og hefur síðan
ekki linnt uppákomum í því húsi:
1964 fundust 40 hljóðnemar á víð
og dreif um sendiráðið, 1976 vom
sovétmenn sakaðir um að láta ör-
bylgjur dynja á húsinu til að geta
náð fjarskiptum skilaboðum,
árið 1978 uppgötvaðist loftnet á
þakinu tengt rafeindahnusurum í
grannbyggingu sovéskri.
Ekki furða þótt sendimenn í
Moskvu séu hvekktir, þegar það
bætist við að fylgst er vel með öllu
samneyti þeirra við heimamenn,
sem em lattir viðræðu við útlend-
inga, - og flestir vegir lokaðir
fyrir sendiráðsmenn útúr höfuð-
borginni.
Enda mun sá siður stundaður í
hinum einangraða hópi vestan-
tjaldsmanna við Kremlarmúra að
samkvæmi hefjast á því að
glösum er lyft útí loftið í átt að
meintum hlerunartækjum og
mælt fram kveðjan: Skál Boris!
Líbanon
Sýrlendingar sáttasemjarar
Vopnahlé í Beirút
Beirút - Samið var um vopna-
hlé í Beirút í fyrrinótt og var
tiltölulega kyrrt i borginni og
nágrenni hennar í gær eftir
þriggja daga hamslausa bar-
daga.
Um vopnahléð var samið af
nefnd helstu málsaðila og kom
hún saman undir forystu háttsetts
foringja í sýrlenska hernum. Eiga
sýrlenskir fulltrúar að tilkynna
um öll frávik frá vopnahlénu.
Karami forsætisráðherra og Berri
helsti leiðtogi shíta hafa báðir
óskað aukinnar þátttöku sýrlend-
inga í Líbanon.
Yfir hundrað manns féllu í bar-
dögunum í Beirút í vikunni, en
þeir hófust eftir að bílasprengjur
sprungu á yfirráðasvæðum krist-
inna og múslima með miklu
manntjóni.
Desmond Tutu hlýðir á sjónvarpsræðu Pieter Botha forseta.
Suður-Afríka
Verkfallinu frestað
Genscher hvetur Botha til að ræða við Nelson og Tutu
Johannesburg - Samband
námumanna í Suður-Afríku
hefur frestað verkfalli sem
boðað hafði verið í gull- og kol-
anámum landsins á sunnu-
dag.
Námueigendur lögðu í fyrra-
dag fram nýtt tilboð og ætla
námumenn að svara því á mið-
vikudag í næstu viku. Efnisatriði í
tilboðinu eru ókunn. Talsmenn
stærsta félagsins innan sam-
bandsins sagði í gær að ef ekki
tækjust samningar skylli verkfall-
ið á sunnudaginn 1. september.
Ókyrrð er en mikil í svörtum
úthverfum helstu borga í landinu,
en átök virðast minni. í fyrrinótt
dó „aðeins" einn, átta særðust.
Kanadamenn hafa hert á efna-
hagsþvingunum gegn Suður-
Afríku-stjórn og í vikunni til-
kynntu ástralíumenn harðar að-
gerðir. Hans-Dietrich Genscher
utanríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands sagði í gær að Suður-Afríka
stæði á þröskuldi byltingar vegna
ósveigjanleika stjórnarinnar í
Pretoríu, og hvatti ráðamenn til
viðræðna við leiðtoga svartra,
fyrst og fremst fangann Nelson
Mandela og biskupinn Desmond
Tutu. Vestur-þýska stjórnin hef-
ur lagst gegn efnahagsþvingun-
um.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna fordæmdi enn í fyrrakvöld
stjórnarstefnuna í Suður-Afríku
og lítur alvarlegum augum ný-
legar yfirlýsingar Botha forseta,
og mun þar átt við sjónvarpsræðu
hans í síðustu viku sem valdið
hefur vonbrigðum innanlands og
utan.
Petta
líka...
...Samningaviðræður tamilskra
skæruliða við stjórnina á Sri Lanka
(Ceylon) eru farnar útum þúfur. Ta-
mílar berjast gegn meirihluta
slnghalesa og vilja sjálfstjórn eða
sjálfstæði. Þetta var önnur við-
ræðulota aðila, sem fyrir tilstilli
indverja settust að græna borðinu
í höfuðborg Himalaja-ríkisins
Bhutan í júlí.
...54 létust í flugslysi á
Manchester-flugvelli í gær þegar
eldur braust út t Boeing 737 þotu
réttfyrir flugtak.
...Þokkalega rólegt er í Punjab-
fylki í Indlandi þráttfyrír morðið á
helsta leiðtoga sikka, Longowal
sem útför hans var gerð í fyrradag.
Gandhi leiðtogi Indlands heidur
fast við fyrirtætlun sína um kosn-
Ingar í fylklnu
mánaðar.
síðla september-
Sjónvarp
Evrópskur J.R.:
úrafursti í Sviss
Zurich - Tökur eru nú hafnar í
Sviss á nýjum framhaldsþætti
fyrir sjónvarp og á hann aö að
siá við síbyljunum bandarísku,
Dallas og Dynasty að minnsta
kosti á evrópskum markaði.
Efniviðurinn er auðvitað stór-
fjölskylda í milljónabraski,- en í
evrópsku þáttunum, Sinfóníu,
eru söguhetjurnar svissarar og
byggja veldi sitt á úrsmíðum.
Höfuð Sinfóníu-fjölskyldunnar
er tilþrifamikil ekkja sem reynir
að stilla saman strengi stríðandi
barna, tengdabarna og svo
framvegis,- og laga gamla fjöl-
J.R. og Sue Ell-
en: verður þeim
skákað
skyldufyrirtækið að nýjum há-
tækniaðstæðum.
Að þáttagerðinni standa sjón-
varpsstöðvar í Sviss, Frakklandi,
Belgíu og Vestur-Þýskalandi og
hafa lagt undir jafnvirði 160
milljóna íslenskra króna. Sýning-
ar eiga að hefjast í Sviss eftir
næstu áramót.
Einn leikara er Josephine
Chaplin, dóttir Charles og yngri
systir Geraldínu.
Talsmaður framleiðenda segir
að Sinfónía sé aðeins fyrsta verk-
ið af mörgum sem stöðvarnar
hyggjast setja á flot til samkeppni
við bandaríska framleiðlsu.
...Vestur-Þjóðverjar eru agndofa
yfir gríðariegu njósnamáli: austur-
þýskir njósnarar eiga greiðan að-
gang að æðstu stöðum, og er talið
að forsprakki njósnahringsins
sem er fyrir rétti sé flúinn austur-
um og hættur störfum sem - yfir-
maður vesturþýsku gagnnjósna-
stofnunarinnar.
...Lögreglan í Ástralíu hefur sent til
Filippseyja lista yfir kunna ástr-
alska barnaþuklara. Lögreglan á
Fllippseyjum er í herferð gegn
kynferðisiðnaði ýmissar tegundar
t höfuðborginni og segir ástrali
helstu viðskiptavini.
...Borgarstjórnin í Leningrad ætlar
að endurreisa þrjú hús sem
minnismerki um kapitalisma t
Rússíá. Húsin eru villa aðals-
manns, venjulegt íbúðarhús og
krá þarsem fá má veitingar í stíl
þess tíma þegar staðurinn hét St.
Pétursborg. Húsin eiga að sýna
hvernig stéttirnar lifðu fyrir bylt-
Ingu.
...Einn helsti oddviti stjórnarand-
stöðunnar í Panama fannst í gær
hálfmeðvitundarlaus við landa-
mæri Costa Rica. Tveir ókunnung-
ir menn réöust að Mauro Zuniga á
veitingahúsi í Santiago norðan við
höfuðborgina, neyddu hann inní
bíl og börðu hann í klessu.
...Biskupinn í Jaen á Spáni sagði í
gær að kona sem gekkst undir lög-
lega fósturey ðingu í borginni hefði
þarmeð bannfært sjálfa sig. Hið
sama gildir um lækni konunnar og
aðstoðarmenn hans. Fóstur-
eyðingarlög voru nýlega sam-
þykkt á Spáni í fyrsta sinn og má
eyða fóstrum ef líf konunnar er í
hættu, búist er við vansköpuðum
börnum eða konunni hefur verið
nauðgað. Sú sem hér um ræðir var
með rauða hunda.
Lee lacocca.
Ynni Bush
Detroit - Skoðanakönnun
vestra bendir til að lacocca,
stjóri í Crysler-bílaverksmiðj-
unum ynni Bush varaforseta í
forsetakosningunum.
lacocca er í sviðsljósi eítir að
hafa hífað Chrysler uppúr gjald-
þrotshættu og kornið smiðjunum
aftur á legg, en hefur ekki sagst
sækjast eftir pólitískum frama.
Þótt kannanir sýni lacocca vin-
sælli en hvaða repúblikana sem er
segja þær að demókratar halli sér
fremur að Edward Kennedy sem
frambjóðanda flokks síns.
REUTER
Umsjón:
MÖRÐUR ÁRNASON
Rainbow Warrior
Reyndist
úr hernum
Wellington - Nýsjáienska ]ög-
reglan tiikynnti í gær að annar
tveggja ákærðra fyrir tilræðið
við Rainbow Warrior væri liðs-
foringi í franska hernum.
Franska lögreglan hefur til-
kynnt hinni nýsjálensku að kon-
an sem er í haldi vegna málsins
ásamt „eiginmanni" sínum heiti
ekki Sophie Turenge einsog fals-
að vegabréf gaf til kynna, heldur
Dominique Prieur, og sé liðsfor-
ingi í franska hemum en ekki fé-
lagsfræðiprófessor einsog hún
hafði haldið fram. Staðfestast
þarmeð fréttir franskra blaða.
Um raunnafn og stöðu karlsins er
enn ekki vitað.
Forsætisráðherra Nýja-
Sjálands, David Lange, sagði í
gær að þetta táknaði ekki endi-
lega að franska leyniþjónustan
væri viðriðin málið, en gaf í skyn
að öll vötn féllu til þess fjarðar.
Opinberri franskri skýrslu hér-
um er vænst á hverri stundu.
Föstudagur 23. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9