Þjóðviljinn - 23.08.1985, Qupperneq 14
UM HELGINA
FERÐAVASABOK
FJÖLVÍS 1985
Viö höfum meira en 30 ára reynslu i
utgafu vasaboka, og su reynsla kemur
viöskiptavinum okkar aö sjalfsögöu til
góöa. Og okkur hefur tekist einkar vel
meö nýju Feröavasabokina okkar og
erum stoltir af henni. Þar er aö fmna
ótrúlega fjölbreyttar upplysingar, sem
koma feröafólki aö ómetanlegu gagni
jafnt heima sem erlendis.
Meöal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort
af öllum hringveginum - Heimshluta-
kort - Sendiráö og ræöismannaskrif-
stofur um allan heim - Feröadagbók -
Feröabókhald - Öryggiskort - Gjald-
eyristöflur - Kaupstaöakort - Evropu-
vegirnir - Neyöar- og viögeröaþjón-
usta - Vegalengdatoflur - Bandariska
hraöbrautakerfiö - o.m.fl. sem of langt
er upp að telja.
ÓMiSSANDI í
FERÐALAGIÐ!
L.
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt að hver sé á sínum stað
- með beltið spennt.
aUMFERÐAR
RÁÐ
Blikkiðjan
Iðnbuö 3, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmidi.
Gerum föst verðtilboö
SIMI 46711
Djúpið
23 hundar
elta rautt haf
Það er ekki tilviljun að hunda-
dögum Ijúki 23. ágúst, sama
dag og Þór Eldon sendirfrá
sér sína þriðju bók: „23 hund-
ar“. (Þórer23 ára)!!!
í bókinni eru 11 ljóð og 5
myndir eftir Margréti Örnólfs-
dóttur. (Hún er 17 ára)!!! Þetta
mun allt verða opinberað í Djúp-
inu undir Horninu föstudags-
kvöldið 23ja því þá ætlar Þór
Eldon að lesa úr bók sinni og á-
rita hana. „23 hundar" er ánægju-
legt framtak ungs manns á ári
hundsins. Það er Medúsu, sem
hefur um 6 ára skeið útgefið um
það bil 20 bækur (allar fallega
prentaðar á góðan pappír) við
góðar undirtektir, sönn ánægja
að kynna þessa góðu bók.
Steingrímur St. Th. Sigurðsson með „Blóm" og „Hverfið".
Hveragerði
Afmœlissýning
tileinkuð Suðurnesjum
Þriðjudaginn 20. ágúst opnaði
Steingrímur St. Th. Sigurðs-
son 58. málverkasýningu sína
í Eden í Hveragerði. Sýningin
ber yfirskriftina Afmælissýn-
ing og ertileinkuð Suðurnesj-
um.
Steingrímur sýnir stemmnings-
og sjávarmyndir, 32 talsins frá
ýmsum stöðum á Suðurnesjum,
svo sem Merkinesi, Junkara-
gerði, Kalmanstjörn, Básendum,
Njarðvíkum, Höfnum, Vatns-
leysuströnd, Garðsskaga og Vog-
um. Myndirnar eru allar málaðar
í vor og sumar. Steingrímur hélt
sína fyrstu sýningu í Bogasalnum
í desember 1966 og var fyrstur til
að sýna í Eden á því herrans ári
1974.
Nýlistasafnið
Samsýning Hjalteyringa
Nokkrir Hjalteyringar opna
samsýningu í Nýlistasafninu
föstudaginn 23. ágúst 1985
klukkan 20. Þessir„nokkrir“
eru fimm og heita: Eric Ro-
hner, Rúna Þorkelsdóttir, Jan
Voss, Kees Visserog Hettie
van Egten. Þau standaað
sýningunni, en hafa boðið
með sér gesti sem er þýskur
myndlistarmaður, Stephan
Runge.
Þessir „Hjalteyringar" eru
reyndar af ýmsu þjóðerni. Þarna
eru t.d. Svissari, Þjóðverji; tveir
Hollendingar; og einn íslending-
ur úr Kópavoginum. Öll dvöldust
þau á Hjalteyri við Eyjafjörð sl.
sumar, þar sem þau unnu að
undirbúningi sýningarinnar, sem
samanstendur af skúlptúrum,
ljósmyndum, málverkum, teikn-
ingum. o.s.frv.
Sýningin í Nýlistasafninu er
opin frá 16-20 daglega og stendur
til sunnudagsins 1. september nk.
Nýlistasafnið er að sjálfsögðu á
Vatnsstíg 3B í Reykjavík.
Norrœna húsið
Saga
jökla-
rannsókna
Sunnudaginn 25. ágúst kl.
14.00 verður opnuð í anddyri
Norræna hússins sýning á
kortum, bókum, myndum og
ýmsu, sem tengist rannsókn-
um ájöklum á íslandi.
Sýning þessi er sett upp á veg-
um Norræna hússins í tilefni af
alþjóðlegri jöklaráðstefnu, sem
haldin verður í Háskóla íslands
dagana 26.-29. ágúst næstkom-
andi.
Á sýningunni getur að líta
gömul og ný kort, þar sem sjá má
útbreiðslu jökla, hvernig þeir
hafa ýmist vaxið eða hopað í tím-
ans rás.
Meðal mynda á sýningunni eru
loftmyndir frá Landmælingum ís-
lands og sjást á þeim breytingar,
sem orðið hafa á jökulsporðum
síðan byrjað var að fylgjast með
þeim úr lofti. Elsta myndin er frá
árinu 1945 og sést þar sporður
Breiðamerkurjökuls og Jökulsár-
lónið, sem þá var nýlega komið
undan jöklinum og rétt grillir í
það.
Ennfremur verða til sýnis
bækur og tímarit, þar sem fjallað
er um jöklarannsóknir og annað
þeim tengt.
Veg og vanda af uppsetningu
sýningarinnar hefur Helgi
Björnsson jöklafræðingur haft,
og 3. september heldur hann
fyrirlestur með litskyggnum um
jöklarannsóknir.
Sýningin stendur til 4. sept-
ember og er opin daglega á
venjulegum opnunartíma Nor-
ræna hússins. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Hundar
Sýning og
fyrirlestur
Hundaræktarfélag íslands
heldur seinni hluta sinnar ár-
legu hundasýningar24. ág-
úst.
Fyrri hluti sýningarinnar hefur
farið fram við félagsmiðstöð
gagnfræðaskólans í Garðabæ og
tókst með miklum ágætum.
Seinni hluti sýningarinnar
verður haldinn þ. 24. ágúst á
sama stað og hefst kl. 13.
Þá verða dæmdir íslenski fjár-
hundurinn og Poodle hundar.
Dómari þann dag verður Diane
T. Anderson frá Noregi.
Sunnudaginn 25. ágúst kl. 20
flytur Diane T. Anderson fyrir-
lestur og heldur sýnikennslu í fé-
lagsmiðstöð um hvernig best sé
að undirbúa hund fyrir sýningu,
en þar kemur margt til greina, allt
eftir hundategundum; einnig
hvernig sýna á hund á dómhring.
Þetta er fyrsti fyrirlestur sinnar
tegundar á íslandi og einstakt
tækifæri fyrir áhugafólk.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. ágúst 1985