Þjóðviljinn - 23.08.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 23. ögúst 1985 192. tölublað 50. örgangur
DJÓÐVIUINN
Hastarieg afleiðing kvótans
Valtýr Sigurbjörnsson bœjarstjóri: Blasir við töluvert mikið
atvinnuleysi til áramóta. Nœr200, mest konurþegar búnar að
missa atvinnuna. Vilja látaflýta síldveiðum til að tryggja
vinnu í haust.
Bæjaryfirvöld á Ólafsflrði ætla
að reyna að þrýsta á sjávarút-
vegsráðherra um aukinn kvóta
handa heimatogurunum en þeir
eru að klára kvótann og öll vinna í
frystihúsunum að leggjast niður.
Hátt á annað hundrað manns, að-
aUega konur, eru komin á
atvinnuleysisskrá.
í fyrrakvöld funduðu bæjar-
stjórnarmenn með þingmönnum
kjördæmisins og kynntu þeim
stöðu atvinnumála. A fundinum
var m.a. rætt um að athuga þann
möguleika hvort hægt væri að
flýta síldveiðum í haust og tryggja
þannig sfldarsöltun í bænum.
„Það er auðvitað ekki hægt að
búa við þetta ástand og að sjálf-
sögðu hlýtur að þurfa að leita
eftir því að kaupa fleiri báta og
skip hingað,” sagði Valtýr Sigur-
björnsson bæjarstjóri á Olafsfirði
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Þrír togarar eru gerðir út frá
Ólafsfirði. Frystitogarinn Sigur-
björg á smávegis kvóta eftir, Sól-
berg fékk nýlega keyptan við-
bótarkvóta af Siglfirðingum og
Ólafur Bekkur aflar nú fyrir
Hvaleyri hf. í Hafnarfirði.
„Ég býst við að kvótakerfið
hafi komið hastarlegar við at-
vinnulíf héma en víðast annars
staðar vegna þess hve lífsafkoma
Ólafsfirðinga hefur fyrst og
fremst byggst á þorskveiðum.
Samdrátturinn var einmitt mest-
ur í þorskveiðinni í kvótakerfinu
og þess vegna er meira skarð fyrir
Vari
Baldur
situr á
laununum
Dagsbrún höfðar mál
gegn Vara
„Það sem gerist næst I þessu
máli er að við munum höfða mál á
Vara vegna þessara þriggja
starfsmanna. Eg á von á að þau
mál verði þingfest í september,”
sagði Atli Gíslason lögmaður
Dagsbrúnar þegar Þjóðviljinn
spurði hann um framgang Vara-
málsins sem nokkuð hefur verið
skýrt frá á síðum blaðsins að und-
anförnu.
Baldur Ágústsson, eigandi ör-
yggisþjónustunnar Vara, hefur
enn ekki greitt þeim Ragnari
Guðlaugssyni, Axel Hilmarssyni
og Karli Karlssyni laun þeirra
fyrir júlímánuð en þau átti að
greiða 10. þessa mánaðar. Enn
fremur hefur hann neitað að leyfa
þeim að vinna út Iöglegan upp-
sagnarfrest og mun ekki ætla að
borga þeim hann að heldur.
Dagsbrún mun því höfða þrjú
mál á hendur Baldri, og krefjast
þess fyrir hönd hvers og eins
þeirra að þeim verði greiddur
uppsagnarfrestur eins og lög gera
ráð fyrir svo og laun sem þeir fé-
lagar hafa þegar unnið fyrir.
-gg
skildi hér en þar sem fjölbreytnin ástandið verði svipað í mörgum erum með þeim fyrstu að klára mikið atvinnuleysi til áramóta.
hetur venð mein. Eg býst við að sjávarplássum innan tíðar. Við kvótann og hér blasir við töluvert sagði Valtýr. 4
Undirbúnlngur heimilissýningarinnar í Laugardalshöll, sem hefst á fimmtudag ínæstu vikuerífullumgangi. Myndintekinafsmiðumviðvinnusina ( gær.
Ljósm. e. ói. Heimilissýning 1985
Sýning, markaður, skemmtan
Heimilissýning Kaupstefnunn-
ar 1985 verður opnuð í
Laugardalshöll I Reykjavík
flmmtudaginn 29. ágúst og stend-
ur hún til sunnudagsins 8. sept-
ember, sagði Halldór Guðmunds-
son talsmaður Kaupstefnunnar
þá hann kom til viðtals við Þjóð-
viljann í gær.
„Um er að ræða 8. heimilissýn-
ingu Kaupstefnunnar frá því fyr-
irtækið hóf starfsemi 1970, að
auki höfum við staðið fyrir þrem-
ur stórum alþjóðlegum vörusýn-
ingum. Ákvörðun var tekin um
það 1973 að efnt skyldi til slíkra
heimilissýninga árlega, undir-
búningur er þegar hafinn að
Heimilissýningu 1986.
Þátttakendur í Heimilissýn-
ingu 1985 verða á annað hundr-
að; til sýnis verður því allt sem
nöfnum tjáir að nefna varðandi
heimilishald og þjónustu við
heimilin. Samsýning verður á
vegum 20 franskra fyrirtækja auk
þess sem verslunarfulltrúi
franska sendiráðsins hefur haft
milligöngu um komu fransks
tískusýningarflokks sem koma
mun fram. Er ekki að efa að
margir munu hafa áhuga á því að
sjá með eigin augum tískusýning-
ar slíks flokks. Viss franskur blær
verður yfir heimilissýningunni.
Ríkisútvarpið mun eiga stóran
þátt í sýningunni, bæði sjónvarp
og útvarp. Gefst sýningargestum
kostur á að sjá gerð dagskrárefnis
og jafnvel beinar útsendingar
sjónvarps. Tylft íslenskra og er-
lendra aðila setja upp íbúð í
Laugardalshöll með innan-
stokksmunum. Þá má ekki
gleyma sérstöku kvikmyndahúsi
sem starfrækt verður í sambandi
við heimilissýninguna, verða þar
sýndar mjög svo hrífandi kvik-
myndir, áhorfendur munu t.d.
hafa það sterklega á tilfinning-
unni að þeir séu um borð í flugvél
sem hrapar í gljúfur eða er um
það bil að rekast á fjall.
Einkunnarorð heimilissýning-
arinnar 1985 verða: Sýning,
markaður, skemmtan. Hingað til
hafa sýningargestir heimilissýn-
inga verið 60-80.000,“ sagði Hall-
dór að lokum.
-já.
15% hækkun dagvistunargjalda
Nú kostar 4150 kr að hafa barn á dagvistarheimili. Gjöld íKópavogi hœkkuðu um 9% fyrir
mánuði. 100 dagvistarpláss íReykjavík eru laus en börn ekki tekin inn vegna skorts áfóstrum
Gjöld á dagvistarheimili í
Reykjavík hækka um 15% frá
og með 1. september. Fulltrúar
Alþýðubandalagsins greiddu at-
kvæði gegn þessari hækkun í
borgarráði og félagsmálaráði.
Eftir 1. sept. þurfa svokallaðir
forgangshópar þ.e. einstæðir for-
eldrar og námsmenn að greiða
2750 kr. á mánuði fyrir börn sín á
dagheimilum Reykjavíkurborg-
ar. Fyrir hækkun kostaði þetta
2400 kr. Gift fólk greiddi fyrir
börn sín kr. 3600 á mánuði fyrir
hækkun en þarf nú að borga
4150.
Pláss á leikskóla kostar nú 1750
á mánuði, fyrir fjögurra tíma
gæslu á dag en kostaði áður 1500.
5 tímar á dag kosta 2150 kr. á
mán. en kostuðu 1875. 6 tímar á
dag kosta nú 2550 í stað 2250
áður.
1. ágúst hækkuðu dagvistar-
gjöld í Kópavogi um 9%. Bragi
Guðbrandsson félagsmálastjóri í
Kópavogi sagði í samtali við
Þjóðviljann að forgangshóps-
gjald væri 2600 á mánuði en aðrir
greiddu 4300 fyrir barn á dag-
heimili. Fjögurra tíma gæsla á
Leikskóla kostar 1740 kr. á mán-
uði en fimm tíma gæsla kostar
2200.
Bragi sagði að forgangshópur-
inn væri nær eingöngu einstæðir
foreldrar. Þó geta námsmenn sótt
um að fá að greiða forgangshóps-
gjald en það fer eftir efnahag
þeirra.
Biðtími eftir plássi á dagheimili
í Kópavogi er nú um 1-lVS ár. f
Reykjavík bíða nú um 1200 börn
eftir plássi á leikskóla en 465 bíða
eftir plássi á dagheimili. Hjá
skrifstofu Dagvistarheimila
Reykjavíkurborgar var blaðinu
tjáð að um 100 pláss hafa verið
laus undanfarið en ekki hefur
verið ráðstafað í þau vegna skorts
á fóstrum.
SA
Ólafsfjörður