Þjóðviljinn - 25.08.1985, Qupperneq 10
Aðalsteinn einbúi á Laugabóli í Arnarfirði sóttur heim.
Fé hans var skorið niður, þakið fauk af húsinu, hann lá
veikur í allan vetur en œðarvarpið er dásamlegt og
hann fer hvergi
Fjallfoss eöa Dynjandi er meö
frægari fossum á landinu.
Hann er í Dynjandivogi innst í
Arnarfirði og þar liggur þjóö-
leiðin um. En sunnan megin í
voginum er fáfarinn vegur um
svokallaða Uröahlíð og eru
þaö grettnar skriður fráfjalls-
brún niður ífjöru. Þegar hlíð-
inni sleppir er komið allbreitt
dalverpi sem heitir Mosdalur
og þar eru tveir bæir í byggð
en voru fleiri áður. í Mosdal
tóku menn seint kristni og
voru göldróttirfram undirokk-
ar tíma. Á Ósi búa nú feðgar
en á Laugabóli einyrki. Það er
Aðalsteinn bóndi Guðmunds-
son, aldraður maður, gjarnan
kallaður Alli á Laugabóli. Til
þess að komast heim til hans
þarf að fara yfir óbrúaða á er
nefnist Ósá. Þegar við renn-
um í hlað kemur kvíga hlaup-
andi á móti okkur með miklum
látum en hvergi sést
mannvera. Við bönkum upp á
en enginn kemurtil dyra. Þeg-
ar við erum að fara verðum
við vör við mannaferð. Alli
kemur út og segist hafa verið
að leggja sig. Kvígan lætur
öllum illum látum. Hún er víst
yxna. Þetta genguryfir á2-3
dögum, segir Alli og býður
okkur elskulega að ganga í
bæinn.
Hús eru allgömul á Laugabóli
og allt í fremur gömlum stíl, pan-
ell á "Veggjum í eldhúsi, bitar í
loftum, búr inn af, tvær eldavél-
ar, önnur kolavél en hin Rafha.
En hér er allt með afbrigðum
snyrtilegt þó að enginn sé kven-
maðurinn. Alli er með gaman-
yrði á vör og brátt erum við sest
við vaxdúkað kaffiborð og spjall-
' ið hefst.
Á marga
góða að
en líka harða
andstœðinga
- Ég er búinn að frétta að allt
þitt fé hafi verið skorið niður
vegna riðuveiki. Var það ekki
mikið áfall fyrir þig?
- f>að er ekkert um það að
segja en náttúrlega er það áfall
fyrir okkur. Sérstaklega finnum
við fyrir því sem erum einir. Ég
veit ekki hvort ég kem aftur upp
þeim fjölda fjár sem þarf. Það eru
nógu margir sem eru að hnýta í
’ okkur. Ég veit ekki hvort þeir
verða ofan á en svo eigum við
bændur líka marga ágætis menn
sem halda okkur á lofti. Land-
búnaður er annar aðalatvinnu-
vegur þjóðarinnar þannig að við
verðum varla þurrkaðir út.
dóminn?
- Ég hafði heimt illa síðustu
árin án þess að hafa skýringu á
því hvernig stóð á því. Líklega
hefur það verið þessi sjúkleiki. í
hitteðfyrra fauk þak af fjárhúsum
hjá mér og fór alla leið út í sjó.
Einn sveitungi minn skrifaði
skammargrein um mig og sagði
að ég færi illa með fé. í>að var
gífurlegur snjór tvo vetur í röð.
Þessi sami varð að biðja um gott
fyrir sig hjá sýslumanninum. Eg á
marga góða að og líka harða and-
stæðinga.
Puh -
sjúkrahús
- Fauk svo ekki þakið af íbúð-
arhúsinu í vetur?
- Það er rétt, þetta er veðra-
jörð. Hjálparsveitin á Bfldudal
brá skjótt við og var komin eftir
tvo tíma. Meðan þeir voru hægði
á sér og þeir gátu sett upp bráða-
birgðaþak, en svö fór strax í vest-
anrok. Eftir þetta var svo kalt í
bænum að ég fékk vonda gigt og
varð.að halda mig inni.
- Þú hefur ekki farið á sjúkra-
hús?
- Puh... sjúkrahús. Nei. Við
réttum bara við þegar við erum
- Hversu margtfé vprsttrmeð? búnir að hvfla okkur.
- Hálft þriðja Tiúndrað. Til
þess að fá fé á ný/þarf að moka
útihúsin og sótthreinsa þau en
það er engan mann hægt að fá til
að hreinsa húsin fyrir sig. Sigurð-
ur yfirdýralæknir var hjá mér í
gærkvöldi og það ;er/ leitað að
öllum mögulegum Hættustöðum.
Við förum skilyrðislaust eftir
þeim skilmálum senj settir eru.
- Varðstu mikiðjvar við sjúk-
L
Ertu búinn að vera lengi einn
hérna á Laugabóli?
- Að mestu leyti síðan 1963 að
móðir mín dó. Foreldrar mínir
komu hingað 1921 og þá hafði
enginn tollað á þessari jörð. Hún
er svo vorvot og engin kvistbeit.
Fjaran er aftur sterk, mikil fjöru-
beit. Á stríðsárunum fóru menn
að flýja sveitina og þá keypti ég
tvær jarðir hér í dalnum, Skóga
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. ágúst 1985
og Horn, og fékk ágætis kvistbeit
á þeim. Ég var álitinn ágengur og
vitlaus. Ég verð alltaf hundeltur.
- Hvernig hefur gengið að
byggja upp jörðina?
- Ég ætlaði að byggja fjárhús
meðan við vorum hvattir til að
koma þeim upp en hef sennilega
hugsað of stórt. Ég fékk efnið,
sement og sand en það liggur hér
enn. Síðast ætlaði ég að byggja
bæinn en hann verður aldrei
byggður. Ég hef líka orðið fyrir
áföllum með jarðarbætur. Mælt
var út fyrir skurðum fyrir mig en
það voru mistök hversu langt var
á milli þeirra. Ég sléttaði 7 hekt-
ara og beið í 7 ár en það verður
aldrei töðutún.
-Á hverju lifirðu þegarféð hef-
ur verið tekið frá þér?
- Ég fær skaðabastur í tvö ár.
Þær eru 65% af afurðaverði mið-
að við 15 kflóa dilk. Svo er ég með
æðarvarp og hef líklega náð 20-30
kflóum af dún í vor. Tvær kýr hef
ég og styðst við ellilaunin. Ég
reyki ekki, drekk ekki og vil ekki
hafa vín í landinu.
Oft só ó fólki
ó vorin
- Hvað ertu gamall?
- Ég er fæddur 1907 og er því 78
ára gamall. Ég er fæddur á Núpi
en alinn upp á Þingeyri í Dýra-
firði, get aldrei orðið
Amfirðingur. Ég passa ekki inn í
þetta. Lengi fannst mér ég vera
að fara heim þegar ég fór yfir
heiði.
- Hvernig var hér þegar þú
komst hingð fyrst?
- Þá var hér þéttsetið. Fólkið
var fátækt en það var gott. Oft sá
á fólki á vorin. Fyrsta vorið sem
við vorum hér var áberandi hvað
fólkið var grannt. Svo fóru menn
til róðra og þá fór það að hressast
við. Sjálfur var ég vesalingur
fram eftir árum, sá aldrei mjólk á
Þingeyri. Foreldrar mínir eignuð-
ust 7 börn en við vorum tveir sem
lifðum. Þá herjaði hvíti dauðinn
og sjálfur hef ég líklega vérið með
berkla. Ég vár í Reykjavík meira
og minna á ámnum 1930-1947 að
Hekla gaus. Þá þorði ég ekki að
vera lengur syðra. Einu sinni fór
ég til læknis og hann fann sam-
gróning í öðru lunganu. Þú hefur
einhvern tíma verið tæpur, sagði
hann. Ég óx til 27 ára aldurs. Þá
var ég loks orðinn fullorðinn.
Varpið er
dósamlegt
- Er erfitt að búa hér á Lauga-
bóli?
- Ekki nema þegar húsin voru
að fjúka. Ég kann vel við mig og
fiiinst alveg dásamlegt að hafa
æðarfuglinn. En það hafa verið
margþættir erfiðleikar sem eyði-
leggja hjá mér varpið. Ég var
kominn upp í 41 kfló þegar mest
var en svo hrapaði það niður í 14
kfló. í fyrravor fékk ég 19 kfló.
- Hvað er það sem eyðileggur?
- Það er tófa, minkur og alls
konar vargfugl. Ég hef jafnvel
fengið heimsókn af eminum, það
er skaðræðisfugl. Ef öm sést fer
allur æðarfugl fram á sjó en ef
flugvél flýgur yfir situr allt kyrrt.
Svo hafa líka rækjubátarnir dreg-
ið of nálægt landi og eyðiiagt fyrir
mér. Ég er nú búinn að reisa