Þjóðviljinn - 25.08.1985, Síða 15
NYKOMIN
REYRHÚSGÖGN FRÁ SPÁNI
Verslið þar sem úrvalið
er mest og kjörin best
UfcJQQQqv}
□ DiíDQjjy
Jón Loftsson hf. C3 _____________
Hringbraut 121 Sími 10600
húsiö
eða
þannig..
Hver man ekki eftir Miu Farrow
sem kom hingað til íslands með
þáverandi manni sínum hljóm-
sveitarstjóranum Andre Previn
og var með tvíburana í burðar-
rúmum á tónleikunum í Háskóla-
bíó. Þeir sem muna ekki eftir því
muna kannski eftir henni í „Ros-
emarys Baby" eða öðrum þekkt-
um myndum sem hún lék í. Mia
hefur nú tekið saman við grínfugl-
inn Woody Allen og þau eru nú
að leita sér að íbúð. Það þarf að
vera sæmilega rúmt um þau því
Mia hefur með sér, auk tvíbur-
anna sem heimsóttu Island ný-
fæddir, 5 önnur börn og eru 4
þeirra tökubörn frá Asíu.*
Hinirfimm meðlimir borgarstjórn-
ar vestur Hollywood, sem mun
vera eina borgarstjórnin þar sem
kynhverfir eru í meirihluta, lokuðu
sig inni á dögunum með sálfræð-
ingi til að fá úr því skorið hvort
skyldi taka viö formennsku í
borgarstjórninni, Valerie Ferr-
igno, ein þekktasta baráttukona
lesba í borginni eða lögfræðing-
urinn John Heilman, sem er einn-
ig kynhverfur. Hann vildi fá völdin
af Valerie, en hún vill halda emb-
ættinu lengur.
Reikningurinn sem skattgreið-
endur borga svo fyrir sálfræðing
borgarstjórnarinnar mun vera um
tvö þúsund dollarar...*
Sjaldan launar kálfur ofeldið,
segir gamalt máltak og er það orð
að sönnu. Dætur frægra
leikkvenna, hafa margar þénað
drjúgt á því að skrifa bækur um
mæður sínar og mest hafa þær
upp úr því að rógbera þær sem
mest. Fræg var bók dóttur Joan
Crawford, Christine, en mótleik-
ari hennar í myndinni „What
happened to Baby Jane,“ Bette
Davis, hefur nú fengið sinn
skammt. Dóttir hennar, Barbara,
hennar eina eigið barn, hefur
skrifað bók um móður sína og
segja þeir sem lesið hafa að lý-
singar á Joan Crawford séu eins
og „Húsið á sléttunni" miðað við
þaö sem aumingja Bette Davis
fær að heyra. Bette hefur alltaf
veriö fremur hátt skrifuð í Holly-
wood, var aldrei hin dæmigerða
fegurðardís, en ákveðin og
greind kona sem lét sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. Nú íellinni ber
hún sig illa undan rógburði dóttur
sinnar og fjöldi vina hennar hafa
mótmælt skrifum Barböru og
sagt þau sprottin af fégræögi og
öfund.«
Það er hægt að gifta sig víðar en í
kirkjum. í nyrsta vita í Noregi, á
Fruholmen, voru nýlega gefin
saman í hjónaband þau Wenche
Pedersen og Erling Johansen.
Tuttugu brúðkaupsgestir fóru á
bát út í hólmann á dögunum sem
er skammt fyrir utan Lofoten.
Margar draugasögur fylgja Fru-
holmen, m.a. um aðalsfrú sem
bjó þarna ein og yfirgefin og
drukknaði síðan á leið í land.
Hjónakornin létu sögurnar ekki
aftra sér og voru vígð með við-
höfn uppi í vitanum.*
Ferðamannastraumur leggur leið
sína í gegnum undarlega höll, sem
Lúðvík annar Bæjarakonungur
reisti sérog heitir Neuschwan-
stein. Og leiösögumaðurinn held-
ur ræðu um þennan f ræga og ein-
ræna aðdáanda Richards Wagn-
ers:
- Hér vann Lúðvík annar, og í
þessu herbergi hér borðaði hann
sínarmáltíðirog þarna hinum
megin svaf hann og þarna fór
hann í bað á hverjum degi.
Á hverjum degi? spurði maður
nokkurforviða
Uss, sagði konan hans. Þú veist
að hann var brjálaður.*
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Auglýsið í Þjóðviljanum
fasteignaveðlána
til einstakl inga
Hinn 11. júlí sl. gengu í gildi lög um greiðslujöfnun
fasteignaveðlána til einstaklinga. Tilgangur þeirra
er aðjafnagreiðslubyrðina. Greiðslubyrði af greind-
um lánum skal ekki þyngjast þótt lánskjaravísitala,
byggingarvísitala og/eða raunvextir hækki meira en
laun.
í greiðslujöfnun felst að hækki laun minna en
viðmiðunarvísitala (þ.e. lánskjaravísitala eða
byggingarvísitala) er hluta af endurgreiðslu lánsins
frestað þar til laun hækka á ný umfram viðmið-
unarvísitöluna. Þetta gerist með þeim hætti að
mismunur launavísitölu og viðmiðunarvísitölu er
færður á sérstakan jöfnunarreikning. Skuld á
jöfnunarreikningi telst hluti af höfuðstól lánsins og
um hana gilda því sömu kjör og tilgreind eru í
lánssamningi. Þessi skuld er síðan endurgreidd
hlutfallslega þegar launavísitalan hækkar umfram
viðmiðunarvísitölu, eða eftir upphaflegan lánstíma,
ef þá er enn skuld á jöfnunarreikningi.
Greiðslumarkið er gjaldfallin afborgun auk vaxta, á
því verðlagi sem í gildi var 1. mars 1982, hafi lán
verið tekið fyrir þann tíma. Hafi lán verið tekið eftir
1. mars 1982 er greiðslumarkið á því verðlagi sem
gilti við lántöku.
Á gjalddaga láns er greiðslumarkið framreiknað
miðað við breytingu á launavísitölu, sem Hagstofa
íslands reiknar út, og borið saman við þá fjárhæð
sem greiða ætti af láninu samkvæmt lánssamningi
(afborgun, vextir og verðbætur).
Greiðslujöfnunin nær sjálfkrafa til allra sem fá sín
lán greidd út eftir gildistöku laganna.
Einstaklingar, sem fengið hafa fullverðtryggð lán úr
byggingarsjóðunum fyrir gildistöku laganna og eru
í greiðsluerfiðleikum, geta sótt um greiðslujöfnun
fyrir 1. sept. 1985:
1. Vegna komandi gjalddaga.
2. Vegna fyrri gjalddaga.
3. Vegna komandi og fyrri gjalddaga.
Eins og fyrr segir geta einstaklingar, sem eru í
greiðsluerfiðleikum, sótt um greiðslujöfnun vegna
fyrri gjalddaga. Þeim verður gefinn kostur á að
fresta greiðslu, eða hluta af greiðslu, afborgana,
vaxta og verðbóta á næsta heila ári hvers láns.
Heimilt er að fresta greiðslu á allt að þeirri fjárhæð
sem á jöfnunarreikningi stæði, ef ákvæði þessara
laga hefðu gilt frá lántöku.
Þessi frestun vegna fyrri gjalddaga gildir aðeins
einu sinni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins og bæjar- og sveitarstjórnarskrif-
stofum.
Umsóknum skal skilað til Húsnæðisstofnunar
ríkisins fyrir 1. sept. 1985.
Reykjavík, 24. ágúst 1985.
^ Húsnæðisstofnun ríkisins