Þjóðviljinn - 25.08.1985, Page 16

Þjóðviljinn - 25.08.1985, Page 16
LEIÐARAOPNA GENGUR KENNARA Kennarasamband íslands ákvað í vor að látafarafram atkvæðagreiðslu um aðild KÍ að BSRB. Markmiðið með úrsögninni er að stuðla að sameiningu KÍ og Hins íslenska kennarafélags. Umræður um slíkt eru ekki nýjar af nálinni en höfðu ekki áður komist á þetta stig. Atkvæðagreiðslan fór fram í byrjun maí og að henni lokinni kom í Ijós að meirihluti félagsmanna Kl var fylgjandi úrsögn úr BSRB. En túlkun úrslitanna hefur valdið miklum deilum sem og auðvitað úrsögnin sjálf og ekki er enn séð fyrir endann á þeim deilum. Þessi ríkis- stjórn veitir ekki verk- fallsrétt segir Valgeir Gestsson, formaður KÍ KÍ hefur tekið ákvörðun um að atkvæðagreiðslan verði ekki endurtekin og ég á ekki von á að sú afstaða muni breytast. Ég tel að úrslit atkvæða- greiðslunnar í vor tali sínu máli um vilja félagsmanna okkar, en þar voru 1572 með úrsögn og 719 á móti. Auðir seðlar voru 151 og ég tel það fráleittað þeirverði látnirráða úrslitum í svona mikilvægri at- kvæðagreiðslu, sagði Valgeir Gestsson formaður Kennara- sambands (slands aðspurður um hverjar væru líkurnar á því að atkvæðagreiðslan yrði endurtekin íhaust. „Andófshópurinn innan sam- bandsins er að mínu viti mjög fá- mennur og til marks um það má geta þess, að í undirskriftasöfnu- ninni í vor skrifuðu aðeins 105 undir áskorun um að endurtaka atkvæðagreiðsluna. Vilji félags- manna okkar hefur komið mjög skýrt fram“. Hver er í rauninni ástœðan fyrir því að kennarar vilja ganga úr BSRB? „Meginástæðan er sú að við viljum sameina grunnskólakenn- ara og framhaldsskólakennara í einum samtökum. Nú er starf- andi sameiginleg nefnd KÍ og HÍK sem vinnur að gerð tillagna um stofnun slrkra samtaka. Þess- ar tillögur verða væntanlega birt- ar innan tíðar“. Hvað með verkfallið og samn- ingsgerðina í haust? „Það er gífurlega erfitt að meta hvern þátt verkfallið á í þessu. Samningarnir í haust voru mikið félagslegt högg fyrir BSRB og það hefur aldrei verið rætt af hreinskilni innan þess. En ég get ekki sagt um hvort lok verkfalls- ins og samningsgerðin hafa átt þátt í því að svona er komið“. Þegar og ef KÍ gengur úr BSRB hafa kennarar engan verkfalls- eða samningsrétt lengur. Hefur KÍþá einhvern möguleika á að ná fram kjarabótum fyrir sitt fólk? „Það er rétt að við missum verkfallsréttinn við úrsögnina. En ég trúi því að við munum endurheimta hann þótt síðar verði. Núverandi fjármálaráð- herra Albert Guðmundsson hef- ur marg oft lýst yfir því að hann sé á móti verkfallsrétti og ég hef ekki von um að við fáum ver- kfallsrétt í tíð þessarar ríkis- stjórnar. En hann munum við fá og ég óttast það ekki þegar litið er til lengri tíma. Og þótt við fáum ekki verkfailsrétt munum við semja við Albert Guðmundsson. Ég segi ekki að við munum ná betri samningum, við verðum á grýttri braut hvað þetta snertir næstu tvö árin en við óttumst það ekki“. Er ekki mögulegt að stjórnvöld semji bara alls ekki við ykkur meðan þið eruð í þessari aðstöðu og láti ykkur fylgja kjörum BSRB? „Ég hef ekki trú á því. Að mínu mati mun annað tveggja gerast, annað hvort viðurkennir Albert okkur sem sjálfstæðan samnings- aðila eða Alþingi mun breyta samningsréttarlögunum okkur í hag“- Ef KÍ segir sig úr BSRB verða aðeins fjögur þúsund opinberir starfsmenn eftir sem hafa verk- faUsrétt og það er vitað að stjórnvöld eru andsnúin verkfalls- rétti fólks. Óttist þið ekki að fyrst svona er komið muni ríkisstjórnin sjá sér leik á borði og afnema verkfallsrétt þeirra fáu sem enn hafa hann? „Nei“. Eruð þið ekki með þessu að rjúfa samtakamátt launþega- hreyfingarinnar? „Nei, ég sé enga ástæðu til að ætla að kennarar geti ekki átt ágætt samstarf við aðra opinbera starfsmenn á þessu sviði þótt stofnuð séu samtök kennara. Það er samtakamátturinn sem gildir í allri kjarabaráttu eftir sem áður“. gg LEIÐARI Afsal mannréttinda - sterkari staða? í þeim sviptingum sem orðið hafa á íslenskum launamarkaði undanfarin misseri er fyrirhuguð úrsögn Kennarasambands íslands úr BSRB einna afdrifaríkust. í gærog dag heldurfulltrúa- ráð kennarasambandsins innan BSRB fund þar sem m.a. erfjallað um úrsagnarmálið. í leiðara- opnu Þjóðviljans í dag er spjallað við tvo forystu- menn þeirra sem barist hafa fyrir úrsögn og tvo talsmenn kennara sem andvígir eru úrsögn úr heildarsamtökum opinberra starfsmanna. Það er forvitnilegt fyrir lesendur að sjá hvaða atriði eru talin mæla með aðild og hvaða atriði mæla á móti aðild KÍ að BSRB. Úrsagnarmennirnir nefna ekki nema eina ástæðu fyrir því að Kennarasamband íslands eigi að ganga úr BSRB og hún er sú að „hag kennara sé best borgið innan sterkra heildar- samtaka kennara," eins og Svanhildur Kaaber formaður Bandalags kennarafélaga segir. Og Valgeir Gestsson formaður Kennarasambands íslands er á sama máli og nefnir sameininguna serp meginástæðu. Úrsagnarmenn nefna máli sínu til styrktar að yfirgnæfandi meirihluti kennara hafi í heildarat- kvæðagreiðslunni í vor lýst sig fylgjandi úrsögn, og telur ekki útilokað að verkfallið sl. haust hafi haft áhrif í þessa veru. „Samningarnir í haust voru mikið félagslegt högg fyrir BSRB og það hefur aldrei verið rætt af hreinskilni innan þess,“ segir Valgeir. Haukur Helgason fulltrúi KÍ í stjórn BSRB bendir hins vegar á í þessu sambandi að „kenn- arar í samninganefnd BSRB skáru sig ekkert útúr þegar ákveðið var að skrifa undir kjara- samninginn". Bendir það til þess að árangurinn í verkfallinu hafi ekki heldur verið ræddur af nægilegri hreinskilni innan KÍ? Viðmælendur Þjóðviljans sem vilja að kenn- arar verði áfram innan BSRB telja margt upp máli sínu til stuðnings. Aðalatriðið er þó það að með úrsögn úr BSRB missi Kennarasamband íslands mannréttindi sem kennarar nú haf. Haukur Helgason segir að með því séu kennar- ar að afsala sér „verkfalls- og samningsrétti og þar að auki munu þeir veikja mjög möguleika félaga sinna í BSRB á því að ná fram kjarabót- um. Þeir munu með öðrum orðum stefna sinni eigin kjarabaráttu í voða og skilja félaga sína eftir í sárum.“ „Launþegahreyfing á sér ekkert vopn sterk- ara en verkfallsréttinn," segir Guðlaug Teitsdóttir, en Svanhildur Kaaber segir hins vegar: „eins og ástandið er núna hef ég ekki trú á verkföllum sem baráttutæki í kjarabaráttu". Haukur Helgason telur að svo virðist sem fólk sé farið að trúa því um verkfallsvopnið sem hægri pressan hamrar á í sífellu, að verkfalls- rétturinn sé einskis virði. „Við verðum að leita annarra leiða í kjarabar- áttu okkar,“ segir Svanhildur Kaaber. „Ég held aftur á móti,“ segir Haukur Helgason, „að verk- föll séu það eina sem dugi til að ná fram rétti sínum. Hvað höfðu t.d. HÍK menn upp úr krafs- inu í vetur með uppsögnum sínum?“ Nær sjö þúsund manns tóku þátt í verkfalli BSRB sl. haust, þaraf rúmlega þrjú þúsund kennarar, þannig að það gefur auga leið að styrkur BSRB-samtakanna verður allur annar eftir úrsögn KÍ ef af yrði. „Að mínu áliti er þetta mál afleiðing launastefnu stjórnvaida undanfar- inna ára,“ segir Guðlaug Teitsdóttir kennari. Hún segir að kennarar eigi ekki síður samleið með öðrum uppeldisstéttum innan BSRB en með kennurum í framhaldsskólum, svo sem fóstrum. Þá segir Guðlaug: „Hvernig sem þetta fer er brýnasta verkefnið hjá KÍ að halda félögunum saman og byggja þá upp til áframhaldandi bar- áttu. Þetta á ekki síður við um BSRB. Þar þurfa miklar breytingar að eiga sér stað ef takast á að snúa vörn í sókn gegn árásum ríkisstjórnarinnar á kjör félaganna." Fyrir alla launamenn sem berjast nú fyrir því að fá kjaraskerðingu bætta og sækja eftir meiri lýðréttindum, hlýtur það að vera áhyggjuefni þegar þúsundir manna missa á einu bretti mannréttindi einsog verkfalls- og samningsrétt. Svarið gagnvart hinu fjandsamlega ríkisvaldi hlýtur að vera fólgið í því lausnarorði sem allir skilja: samstöðu. ”Ó9 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. ágúst 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.