Þjóðviljinn - 25.08.1985, Síða 17
LEIÐARAOPNA
SAMBANDIÐ ÚR BSRB?
Svanhildur Kaaber.
Kennurum best borgið
utan heildarsamtaka
segirSvanhildurKaaber, formaður Kennarafélags Reykjavíkur
„Fulltrúaráðið hefur þegar
tekið afstöðu til þess hvort endur-
taka eigi atkvæðagreiðsluna og
ég tel enga ástæðu til að ætla að
því hafi snúist hugur nú“, sagði
Svanhildur Kaaber formaður
Bandalags kennarafélaga, þegar
Þjóðviljinn spurði hana hverjar
hún teldi líkurnar til þess að
ákveðið yrði á fundi fulltrúaráðs-
ins að endurtaka atkvæðagreiðsl-
una.
„Ég lít svo á að fulltrúaráðið
hafi þegar gert upp hug sinn“.
Hvers vegna vilt þú að KÍ segi
sig úr BSRB?
„Einfaldlega vegna þess að ég
held að hag kennara sé best borg-
ið innan sterkra heildarsamtaka
kennara. Kennsla er það sérhæft
starf að ég tel nauðsynlegt að
kennarar eigi sem best samstarf
sín á milli. En með því að kennar-
ar stofni með sér samtök er ekk-
ert útilokað að þau samtök geti
átt gott samstarf við heildar-
samtök, t.d. BSRB“.
Eru í rauninni einhverjar líkur
til þess að svo verði?
„Ástandið er mjög erfitt núna
og það eru sárindi á báða bóga,
en ég vona að það grói um heilt
milli KÍ og BSRB og við berum
gæfu til samstarfs í framtíðinni“.
Mun það ekki koma sér illa
fyrir kennara að afsala sér verk-
fallsréttinum?
„Mér hefur ekki sýnst það á
undanförnum árum að verkföll
hafi fært okkur nein ósköp ög
eins og ástandið er núna hef ég
ekki trú á verkföllum sem bar-
áttutæki í kjarabaráttu. Hvers
vorum við t.d. bættari eftir verk-
fallið í haust? Við verðum að leita
annarra leiða í kjarabaráttu okk-
ar“.
Heldurðu að stjórnvöld muni
semja við KÍ um kjör? Nú hefur
KÍ engan samningsrétt eitt og sér?
„Ég get ekki séð annað en að
svo verði“.
Hver telurðu að staða BSRB
verði að úrsögn lokinni?
„Úrsögnin verður BSRB ef-
laust mjög erfið. En það liggur
ljóst fyrir hvort sem er að BSRB
þarf að endurskipuleggja".
Að lokum Svanhildur?
„Ég tel að kjarni þessa máls sé
sá, að kennarar sameinist sem ein
stétt og vil ítreka það að ég held
að hag þeirra sé best borgið í sam-
tökum sem standa utan heildar-
samtakanna“.
gg
Afleiðing launa-
stefnu stjórnarinnar
segir Guðlaug Teitsdóttir kennari
Til þess að geta gengið út
með hreinan skjöld þyrfti K(
að endurtaka atkvæða-
greiðsluna. Þessi túlkun
stjórnar og fulltrúaráðs er
mjög umdeild og stjórn BSRB
mun líklega úrskurða sem svo
að KÍ sé enn aðili að banda-
laginu. Úrþessu verðurað
fástskorið, sagði Guðlaug
T eitsdóttir kennari í samtali
viðblaðið.
„Það er mjög skiljanlegt, að
kennarar séu óánægðir rétt eins
og aðrir launþegar þegar
kaupmáttur þeirra hefur verið
skertur eins og raun ber vitni, en
ég held að þessi leið, sem veikir
launþegahreyfinguna sé ekki
rétt. Og innan BSRB eru einmitt
aðrar uppeldisstéttir sem kennar-
ar eiga samleið með, t.d. fóstrur.
Þessir hópar verða að standa
saman í kjarabaráttu og þeir eiga
ekki síður samleið að því marki
að gera stjórnvöldum ljóst mikil-
vægi þessara starfa“.
Hvernig heldurðu að KÍ muni
vegna án BSRB?
„Það er mjög alvarlegt mál að
afsala sér verkfallsrétti og ég held
að KÍ muni standa mjög veikt án
hans. Launþegahreyfing á sér
ekkert vopn sterkara en verk-
fallsréttinn. Verkfallið í haust
sannaði það svo ekki verður um
villst að BSRB getur staðið geysi-
lega sterkt í verkfalli og það átt-
aði sig í rauninni enginn á því fyrr
en þá. En það sem skeði var það
að forystan réði ekki við að beita
þeim styrk sem bjó í fjöldanum á
þessum tíma. Því fór sem fór. Það
er engin von til þess að kennarar
muni endurheimta þennan rétt á
næstu árum og aðrar leiðir í
kjarabaráttu sem nefndar hafa
verið hafa ekki skilað því sem til
er ætlast“.
Hvað rekur kennara til að segja
sig úr BSRB?
„Að mínu mati er þetta mál
afleiðing launastefnu stjórnvalda
undanfarinna ára. Fólki hefur
verið talin trú um að barátta
smærri hópa skili sér betur en
fjölmennari aðgerðir og hægt
hefur verið að benda á t.d. verk-
fræðinga sem dæmi um það. En
kennarar eru bara alls ekkert í
sömu aðstöðu og verkfræðingar,
sem hafa getað miðað sig við
sambærileg störf á almennum
vinnumarkaði".
Ertu á móti sameiningu kenn-
arafélaganna?
„Nei, þvert á móti, en það
verður að vera ljóst á hvaða for-
sendum það er gert. Hvort þetta
á að vera fagleg samvinna eða
kj arabandalag sem byggir á sömu
launastefnu.
Hvernig sem þetta fer er brýn-
asta verkefnið framundan hjá KÍ
að halda félögunum saman og
byggja þá upp til áframhaldandi
baráttu. Þetta á ekki síður við um
BSRB. Þar þurfa miklar
breytingar að eiga sér stað ef tak-
ast á að snúa vörn í sókn gegn
árásum ríkisstjórnarinnar á kjör
félaganna". gg
KÍ afsalar sér mannréttindum
segir Haukur Helgason, fulltrúi kennara í stjórn BSRB
Ég tel það nauðsynlegt að
fram fari ný atkvæðagreiðsla
meðal kennara um úrsögn KÍ
úrBSRB, fyrrverðaþessar
deilur ekki til lykta leiddar.
Stjórn BSRB álíturatkvæða-
greiðsluna frá í vor ólöglega
og byggir þar á þeirri hefð
innan samtakanna að telja öll
atkvæði sem berast greidd at-
kvæði, hvort sem þau eru auð
eða ekki. Nú, og svo stendur
það skýrum stöfum í lögum
BSRB að tvo þriðju hluta þurfi
til að úrsögn sé gild, sagði
Haukur Helgason fulltrúi K( í
stjórn BSRB í samtali við
Þjóðviljann en hann er einn af
þeim sem tekið hefur skýra
afstöðu gegn því að KÍ dragi
sig út úr heildarsamtökum
ríkisstarfsmanna.
„Eins og staðan er í dag er KÍ
að fara út á ólöglegum grundvelli
og á meðan svo er ástatt er félagið
að brjóta bæði á heildarsamtök-
unum og sínum eigin félags-
mönnum, þ.e.a.s. þeim sem ekki
greiddu því atkvæði sitt að fara úr
BSRB“.
Hvað mun úrsögnin þýða ef
hún verður að veruleika?
„Hún mun einfaldlega þýða
það, að Kf mun koma því til
Íeiðar að kennarar afsala sér
sjálfsögðum mannréttindum eins
og verkfalls- og samningsrétti og
þar að auki munu þeir veikja
mjög möguleika félaga sinna í
BSRB á því að ná fram kjarabó-
tum. Þeir munu með öðrum orð-
um stefna sinni eigin kjarabar-
áttu í voða og skilja félaga sína
eftir í sárum. Ef KÍ gengur út
munu aðeins tæplega fjögur þús-
und ríkisstarfsmenn hafa ver-
kfallsrétt í stað rúmlega sjö þús-
und. Það segir sig sjálft að þarna
ér verið að veikja stöðu fólks
gagnvart ríkisvaldinu. Og ég tel
að þetta muni veita þeim aðilum
byr undir báða vængi sem helst
vilja að verkfallsréttur þessa
fólks verði afnuminn með öllu.
Það hefur oft heyrst hjá stjórn-
málamönnum í ákveðnum flokk-
um að skerða beri eða afnema
eigi verkfallsréttinn og með úrs-
ögninni myndi KÍ vissulega gefa
slíkum aðilum höggstað á
hreyfingunni".
Hvaða þátt átti verkfallið í
haust íþvíað kennarar ákváðu að
ganga til þessarar atkvæða-
greiðslu?
„Því er ekki að neita að margir
félagar í BSRB urðu fyrir miklum
vonbrigðum með niðurstöðu
verkfallsins í haust og þá sérstak-
lega vegna þess að ekki náðist
trygging kaupmáttar. Kennarar
stóðu sig mjög vel í baráttunni og
þótti mörgum súrt í broti að fá
ekki meira en þó náðist. Upp úr
því mögnuðust raddir um að
BSRB væri bara dragbítur á
kjarabaráttu kennara og þeim
kæmi best að standa einir í henni
eða með HÍK. En það er rétt að
benda á í þessu sambandi að
kennarar í samninganefnd BSRB
skáru sig ekkert útúr þegar
ákveðið var að skrifa undir kjara-
samninginn. En hvað sem því líð-
ur þá er eins og fólk hafi misst
trúna á verkföllum sem baráttu-
tæki í kjarabaráttu og farið að
trúa því sem hægri pressan hamr-
aði á á þessum tíma eins og
reyndar jafnan áður. Ég held aft-
ur á móti að verkföll séu það eina
sem dugi til að ná fram rétti sín-
um. Hvað höfðu t.d. HÍK-menn
upp úr krafsinu í vetur með upp-
sögnunum?“
Telurðu einhverjar líkur á því
að KÍ og HÍK muni sameinast í
eitt stéttarfélag kennara?
„Ég tel ekki miklar líkur á því
en þó er hugsanlegt að þau myndi
með sér einhvers konar banda-
Haukur Helgason.
lag, en það kæmi ekki til með að
skila miklum árangri. Og hvort
sem af verður eða ekki, þá hefur
KÍ valið alranga leið til þess. Það
er hægt að vinna að slíku án þess
að afsala sér mannréttindum.
Það er ekki fyrr en í fyrsta lagi
árið 1987 sem sameining gæti átt
sér stað og þangað til hefðu kenn-
arar enga möguleika á að stunda
kjarabaráttu. Og miðað við að
þessi ríkisstjórn eða skoðána-
bræður hennar haldist við völd er
afar ólíklegt að kennurum verði
veittur verkfalls- eða samnines-
réttur". gg