Þjóðviljinn - 08.09.1985, Page 3
Guðmundur Steinsson fyrirliði Fram.
Knattspyrnan
Spennan
í hámarki
- íslandsmótið í knattspyrnu
virðist í ár ætla að verða eitt
hið jafnasta og fjörugasta í
manna minnum og ólíklegt að
úrslit ráðistfyrren
ísíðasta leik.
Framarar hafa haft for-
ystu nær allan tímann þartil
nú og hafa þess utan unnið
þrjá titla á árinu. Guðmundur
Steinsson fyrirliði þeirra var
tekinnístuttviðtal.
- Eru Framarar eitthvað að
dala?
„Við töpuðum þremur erfiðum
leikjum í röð og vorum óheppnir í
leiknum á móti Þór. Svo var dá-
lítil þreyta í liðinu í KR leiknum
og það var auðvitað hörmulegt að
vinna ekki Þrótt um daginn í leik
sem að við áttum allan. Þeir
græddu á þessum litla velli, - það
er auðveldara að pakka í vörn,
eins og þeir gerðu.“
- Nú verður Pétur Ormslev
ekki með á móti FH?
„Nei, það er slæmt að missa
Pétur og þetta er þriðji maðurinn
sem við missum í bann í sumar.
Annars er nóg af strákum sem
geta fyllt skarð hans og við ætlum
okkur sigur.“
- Hvernig hefur sumarið verið
knattspyrnulega?
„Gott. Skemmtilegur fótbolti
og mörg mörk. Það hefur verið
mun betri bolti en í fyrra, meiri
sóknarfótbolti. Mótið er líka
meira spennandi, það eiga enn
fjögur lið góða möguleika á titlin-
um, Valur, ÍA, Þór og svo við.
Og KR og ÍBK eiga góða mögu-
leika á Evrópusæti."
„Svo tekur Evrópukeppnin við
hjá okkur. Við spilum fyrri
leikinn við írska liðið Glentoran
hér heima 21. september. Við
reynum auðvitað allt sem við get-
um til að vinna þá. Eyjamenn
gerðu það um árið, svo við eigum
góða möguleika.“
- Verður þú áfram í fótboltan-
um og þá með Fram?
„Ja, ég skipti að minnsta kosti
ekki um félag heima. Jú, jú mað-
ur á mörg ár eftir í fótboítanum,
það er alveg klárt. Ég á ekki von á
miklum breytingum á mannskap
hjá Fram. Þetta er góður hópur
og okkur hefur gengið vel í
sumar. Þá eru menn mjög
ánægðir með Ásgeir Elíasson
þjálfara og hann hefur skilað
góðum árangri.“
-pv
fff IAUSAR STÖÐUR HJÁ
tfl REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Deildarfulltrúi óskast hjá Unlingaathvarfi Reykjavíkur-
borgar.
Félagsráðgjafa- eða svipuð starfsmenntun áskilin auk
reynslu af starfi með unglingum.
Upplýsingar veitir deildarfulltrúi í síma 20606 e.h. og
yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500.
Umsóknarfrestur rennur út 22.9. 1985.
Húsvörður óskast í fullt starf fyrir 70 íbúða sambýlis-
hús.
Húsvörður annast minni háttar viðhald og hefur um-
sjón með umgengni og ræstingu. Góð íbúð fylgir starf-
inu.
Upplýsingargefur húsnæðisfulltrúi í Félagsmálastofn-
un Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4, sími 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00
fimmtudaginn 12. september 1985.
Ríkisútvarpið
auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar:
Starf aðalbókara Ríkisútvarpsins. Staðgóð þekking á bók-
haldsstörfum er nauðsynleg.
Starf fulltrúa í fjármáladeild Ríkisútvarpsins til afleysinga í 6
mánuði. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg og þekking á
ritvinnslu væri æskileg.
Starf málara í leikmyndadeild sjónvarpsins. Vaktavinna.
Starf skrifstofumanns á aðalskrifstofu sjónvarpsins. Við-
komandi þarf að hafa bílpróf.
Umsóknarfrestur um þessi störf er til 20. september og ber
að skila umsóknum til starfsmannastjóra Ríkisútvarpsins,
Skúlagötu 4 eða Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást á
báðum stöðum.
Ríkisútvarpið vill einnig ráða tvo fréttamenn til starfa á
fréttastofu útvarpsins frá 1. október til maíloka á næsta ári.
Háskólamenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 15. sept-
ember.
ráv
RÍKISÚTVARPIÐ
ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA
* KRAMHÚSIÐ *
DANS OG LEIKSMIÐJA
v/BERGSTAÐASTRÆTI
Haustnámskeiðin hefjastló.sept.
Fyrir böm og
unglinga:
A Jassdans
• Afríkudans
A Leikræn tjáning
námskeið)
■ Leikfimi
• Dansleikfimi
■ Jassdans
• Klassískur ballett
■ Afríkudans
• Leikræn tjáning
■ Dansspuni
Kenmrar:
Hafdís Ámadóttir
Hafdís Jónsdóttir
Elísabet Guðmundsdóttir
Edda Guðmundsdóttir
Halla Margrét Ámadóttir
Ásdís Paulsdóttir
Sigríður Eyþórsdóttir
og Abdoul Dhour
t*
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í verkið Arnar-
fjörður 1985. (Lengd 6,9 km, styrking 10.000 m3).
Verki skal lokið 1. desember 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á (sa-
firði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 9. sept-
emer n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 23. september 1985.
Vegamálastjóri
Auglýsið í Þjóðviljanum
Nú þegar haustar viljum við minna viðskiptavini
okkar á að hitastig í vöruskálum Eimskips getur farið
niður fyrir 0°C. Öryggi eigenda vöru sem ekki þolir
frost eykst eftir því sem varan staldrar skemur við í
skálunum, og mikilvægt er t.d. að athuga að
frostlögur sé á bílum eða vélum.
Vandaður frágangur vörunnar tryggir öruggari flutning
EIMSKIP
*
Síml 27100
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3