Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 12
Það var eins og búist væri við mjög miklu af okkur. „Þarna koma íslendingarnir, þetta eru íslendingarnir, hérnaeru (slendingarnir". Það vareins og fólk héldi að á íslandi væru allirlistamenn, skáld, málar- ar, tónskáld o.s.frv. Sjálfsagt er það þessi rómatík með menningararfinn sem skapar þetta viðhorf hjá útlendingum. Sá hópur fslendinga sem búist var við svona miklu af er hópur nýutskrifaðra nemenda úr Myndlista- og handíðaskóla ís- lands. Seinni hluta nýliðins ág- ústmánaðar fóru þau níu saman til Svíþjóðar á Norræna listahátíð sem haldin var í Stokkhólmi í Sví- þjóð. Hátíðin nefndist Ung Nor- disk Kulturfestival og var haldin á Skeppsholmen í Stokkhólmi. Þessi hátíð var skipulögð af nokkrum nemendum Listahá- skólans í Stokkhólmi og var að sögn hópsins óskaplega vel skipu- lögð og vel heppnuð. Þau sem fóru í þessa ferð í MHÍ voru Svanborg Matthíasdóttir, Sara Vilbergsdóttir og Leifur Vil- hjálmsson úr Málunardeild. Osk- ar Jónasson og Georg Guðni Hauksson úr Nýlistadeild. Anna Sigríður Sigurjónsdóttir og Ás- gerður Helgadóttir úr Skúlptúr- deildinni og Guðný Björk Ric- hards og Kristbergur Pétursson úr Grafíkdeild. Hluti hópsins sem fór til Svíþjóðar. Frá hægri Óskar, Anna Sigga, Svanborg, Kristbergur og Georg Guðni. A myndina vantar Guðnýju Björk, Asgerði og Leit. Mynd. Sig. Menning „Sœnska fýlan er bara goðsögn” Nýútskrifaðir nemendur úr Myndlista- og Handíðaskólanum segja ferðasögu fró Ung Nordisk Kulturfestival í Svíþjóð. Blaðamaður Þjóðviljans fékk nokkur þeirra til að segja aðeins frá þessari listahátíð einn sunnu- dagseftirmiðdag fyrir stuttu. Kornflex ó Carmen „Okkar þáttur í þessu kom þannig til að í vetur voru valdir nokkrir nemendur úr Myndlista- og handíðaskólanum til þess að vera fulltrúar ungra íslenskra myndlistarmanna á þessari há- tíð,“ það er Svanborg sem hefur orðið. „Upphaflega áætlunin var sú að við sendum aðeins myndir á þessa hátíð. Þannig var það hjá flestum hinum þjóðunum. En einhvern tíma í vetur kom síðan sú uppástunga frá Svíþjóð að við kæmum í eigin persónu á hátíð- ina. En til að slíkt gæti orðið að veruleika þurfti auðvitað pen- inga. Og þá vildi svo heppilega til að nokkur íslensk fyrirtæki buð- ust til að styrkja okkur. SÍS, Sam- vinnutryggingar, íslenska álfé- lagið og Verslunarráð íslands buðu okkur styrk sem náði að borga ferðir, Keflavík-Köben fram og til baka, bílaleigubíla, vasapeninga og kornflex á Carm- en. Það var auðvitað stuðningur þesara fyrirtækja sem gerði okk- ur mögulegt að komast á þessa listahátíð og við erum þeim óend- anlega þakklát". „Það fóru nú reyndar fleiri en við á þessa hátíð. Þarna var leikhópurinn Svart og sykurlaust, einnig íslenski dansflokkurinn ásamt tveimur dönsurum frá Kramhúsinu. En við tölum nú bara fyrir okkar hönd. Myndlist- arsýningin var hugsuð sem tæki- færi til að kynnast myndlist ungra listamanna á Norðurlöndum, skapa kynni milli okkar og þeirra og gefa fólki kost á að sjá hvað ungir myndlistarmenn á Norður- löndunum eru að gera í dag“. „Þetta varð í heildina mjög skemmtileg sýning,“ segir Guðný Leifur. Mynd. Svanborg. Björk, „og mjög vel skipulögð, frábærlega að henni staðið. Það sem ég held að hafi komið okkur einna mest á óvart er hvað mun- urinn er gífurlega mikill á allri liststarfsemi hér og í Svíþjóð. Og það er ekki bara varðandi starfs- aðstöðu fyrir listamenn. Það er allur mórallinn þarna úti sem er svo ólíkur því sem er hérna heima. Manni finnst að listamenn og verk þeirra séu miklu sjálf- sagðari hlutur í daglegu lífi fólks miðað við hér heirna". „T.d. þetta með að listamenn séu afæt- ur á þjóðfélaginu," skýtur Krist- bergur inn í. Annar mórall útl „Já, það er eins og allur mórall gagnvart listum sé miklu jákvæð: ari þarna úti heldur en hér heima. Menn sem eru að spila á götum úti eru ekki reknir burtu eins og gerist hér heima. Og þessar neð- anjarðarstöðvar eru nú alveg sérkapítuli. Þar hafa listamenn fengið alveg frjálsar hendur við að skreyta umhverfið og það kemur oft mjög vel út. Á einni stöðinni hafði t.d. myndum af þeim verkamönnum sem unnu við gerð stöðvarinnar verið varp- að á veggina, mjög flott. Svo stóðu kannski einhverjar fígúrur upp við vegg og maður þurfti að koma alveg að þeim til að átta sig á því hvort þetta voru styttur eða mennskar verur. Ég sé það nú ekki alveg fyrir mér að einhverju slíku væri komið fyrir á Hlemmi eða Lækjartorgi,“ segir Guðný. „Og það sem iýsir þessum móral kannski best er að við sáum hvergi að nokkuð af þessu hefði verið skemmt,“ segir Svanborg. „Það má segja að einmitt þetta hafi verið hálfgert kúltúrsjokk fyrir okkur,“ segir Sara. „Að koma t.d. í Listamiðstöðina í Stokkhólmi og sjá þar fólk koma utan af götu, fara að mála eða Ásgerður. Mynd. Svanborg. gera vídeómynd með aðstoð fag- manna. Þetta gerist ekki hér heima. Og svo við hnykkjum nú aðeins á þá neitaði fólk algjörlega að trúa okkur þegar við fórum að lýsa starfsaðstöðu okkar hér heima í skólanum. Þegar við sögðum t.d. að það væru 40 manns í Málunardeildinni sem hefðu u.þ.b. 100 fermetra til um- ráða var hreinlega hlegið, engu trúað. Fólk spurði bara hvernig í ósköpunum við færum þá að því að gera svona stórar myndir". Mikill ferskleiki í myndlist „En það var annað sem kom okkur nokkuð á óvart,“ heldur Sara áfram, „það var hversu mikil gróska virðist vera í mynd- list á Norðurlöndum, a.m.k. er það svo hjá ungu myndlistarfólki. Það er oft talað um að það sé eitthvert slen ríkjandi í myndlist á Norðurlöndum, einhver sænsk fýla, þarna kom hins vegar í ljós að það er mikill ferskleiki í fólki, góður ilmur“. „Já, grafíkin t.d.,“ segir Guðný. „Það var lítil grafík á sýningunni, en hún var öðruvísi en maður hefur áður séð frá Skandinavíu, hrárri og kraft- meiri“. „Það má segja það sama um skúlptúrinn,“ segir Anna Sig- 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.