Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 9
prestur eins og hann gæti þjónað marxískum guðleysingjum. í mörgum langvinnum samræðum staðhæfði hann að margir Sand- inistar væru jafngóðir kaþólikkar og þeir sjálfir. Að endingu leyfðu þeir honum að syngja messu þar sem viðstaddir voru einkennis- klæddir Contra-liðar og hópur heimavarnarliða úr röðum Sand- inista. Skilningsleysi páfa Margir þeirra presta er ég ræddi við sögðust miður sín vegna skilningsleysis ýmissa aðila á stöðu mála í Nicaragua og vitn- uðu m.a. til orða Jóhannesar Páls II páfa er hann líkti ástandinu í Nicaragua nú við ástandið í Austur-Evrópu árið 1945 og af þeim sökum réðist hann í blindni gegn stjórn Sandinista. Þessi samlíking á sér marga formæl- endur, en að mínu mati er hún alröng. Sandinistar hafa verið við völd í sex ár. Á fyrstu sex árunum eftir stríð voru andstöðuflokkar í Búlgaríu, Tékkóslóvakíu, Rúm- eníu og Ungverjalandi misk- unnarlaust barðirniður, fjölmiðl- ar voru algerlega múlbundnir, kirkjan var fordæmd ef ekki beinlínis ofsótt og blóðugar hreinsanir, byggðar á upplognum sakargiftum, eyddu að stórum hluta kommúnistaflokkum í löndunum. í Nicaragua voru engar blóð- ugar hreinsanir né trúarlegar of- sóknir og litróf stjórnmálaflokka og pólitískrar gagnrýni er álíka víðfeðmt og í lýðræðisríkjum Vesturlanda. Það er vissulega óheppilegt að tveir voldugustu mennirnir í lífi Nicaragua, Reag- an forseti og Jóhannes Páll II páfi, skuli ekki geta skilið og ekki vilja skilja þessar augljósu stað- reyndir. Mig langar að ljúka þessu spjalli með nokkrum athuga- semdum um lífið og tilveruna í Nicaragua. Bið ég þá lesendur að minnast þess að mestan hluta tíma míns dvaldi ég í höfuðborg- inni Managua. Nicaraguabúar eru einlægt fólk og lausir við alla tilgerð. Börnin sem ég sá í forskólunum voru brosmild og leikglöð en ekki há- vær og ekki sá ég hrindingar né pústra. f stærðfræði- og spænsku- tímum hjá eldri nemendum hvísl- uðust krakkarnir sín í milli en kennararnir þurfu ekki að brýna raustina til að ná athygli þeirra. Andrúmsloftið var vingjarnlegt, jafnvel meðal þeirra nemenda sem ekki veittu kennslunni mikla athygli. Þegar ég gekk um götur Masatepe kvöld nokkurt sá ég sjónvarpsskjáina inn um opnar dyr og glugga, en hljóðið var lágt stillt svo varla heyrðist út á götu. Ég sá mikið af hundum en sjaldan heyrði ég gelt. Það var eins og hundarnir fylgdu fordæmi hús- bænda sinna. Ég fór á stóran pólitískan úti- fund þar sem Tómas Borge beindi orðum sínum að heima- varnarnefndum Sandinista og gagnrýndi hann sjálfboðastarf þeirra í borgarhveríum og þorp- um, sem hann kvað ekki nægjan- legt. Fjölskyldur með smábörn gengu um torgið og einkennis- klæddir hermenn og unglingar keyptu sér smárétti, ávaxta- drykki og kjúklinga í sölubásun- um og gengu síðan áfram borð- andi. Ekkert minnti á hernaðar- aga, enginn hávaði, enginn asi á neinum. Allt var nægjanlega hljóðlátt til þess að þeir mættu heyra er vildu hlýða á ræðumanm Fólkið frjálst og afslappað Það sem snart mig dýpst við byltingarástandið í landinu var að hvergi vottaði fyrir þeim þræls- ótta sem gjarnan fylgir slíku á- standi og við hefði mátt búast. Að lifa í samfélagi, sem er lýðræðislegt í stjórnmálum en gegnsýrt samkeppnisanda, þar sem hugur okkar er bundinn ýms- um stöðutáknum en við erum til- finningalega bæld, þar höfum við aðlagast óttanum, boðum og bönnum, gervibrosinu og öðrum einkennum hins öryggislausa meirihluta í okkar vestrænu löndum. í Managua fannst mér í reynd sem allir hegðuðu sér eins og þeir væru frjálsir og jafnir. Strætisvagnastjórarnir, verka- mennirnir og þjónarnir voru vingjarnlegir og samvinnuþýðir, en allt gerðu þeir með sínu lagi og sínum rólega gangi án þess að sýna þrælslund í orði eða verki. Mér virtist einnig sem fólk væri þreytt en jafnframt ákveðið að verja Sandinistabyltinguna. Sex ár er langur tími að búa við verð- bólgu, skort og innrásarógnir, einkum þar sem enginn endir er í augsýn. Mikil ringulreið ríkir um hvernig hið blandaða hagkerfi á Þjóðleikhúsið Leikritasamkeppni Skilafrestur í samkeppni meðal kvenna um gerð ein- þáttunga fyrir leiksvið hefur verið framlengdur til 24. október nk. Þjóðleikhússtjóri Konur, konur Áríðandi fundur með hluthöfum í Vesturgötu 3 h.f. verður haldinn þriðjudaginn 10. september kl. 20.30 í húsunum okkar. - Mætið allar. Leiðsögunámskeið Ferðamálaráð íslands efnir til námskeiðs fyrir leiðsögumenn ferðafólks ef næg þátttaka fæst. Nám- skeiðið hefst í lok september nk. og því lýkur í maí 1986. Námskeiðsstjóri verður Birna G. Bjarnleifsdóttir. Nán- ari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ferðamálaráðs Laugavegi 3, Reykjavík. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 13. sept. nk. éRb Feróamálaráó Islands að vera og hvernig móta skal lýðræðisleg ákvæði í stjórnarskrá fyrir friðartíma framtíðarinnar. Én það ríkir enginn vafi um að hafna kúgunarstjórn eins og hjá Somoza forðum. Á því er heldur enginn vafi að þessi stjórnvöld, laus við stéttahömlur fortíðarinn- ar, hafa boðið öllum þorra lands- manna raunverulegt og virkt lýð- ræði í fyrsta sinn síðan þjóðin fékk sjálfstæði að nafninu til árið 1820. Þetta á ekki síst við um heilsugæslu, menntun, ræktunar- möguleika smábóndans og möguleika alþýðumannsins að byggja sér lítið og einfalt hús- næði. Á því er enginn vafi að fordæmi Sandinos gefur Nicaraguabúum allan þann siðferðisstyrk er þeir þarfnast, á sama hátt og fordæmi Benito Juárez reyndist Mexík- önum og fordæmi Abraham Lincolns reyndist Bandaríkja- mönnum. Hvernig fjölflokka- kerfið og efnahagslífið þróast í landinu byggist mjög á því hvort Bandaríkin þola raunverulega lýðræðisbyltingu í Mið-Ameríku og hvort ríki Vestur- og Austur- Evrópu veita Nicaragua lág- marks tækni- og efnahagsaðstoð. Sigurður Hjartarson sueri úr „E1 País“ Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurbætur sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu. Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum. Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar bílsins sem mest mæðir á. Með því að ... ... taka upp símtólið og panta tíma í síma 21246, eða renna við á smurstöð Heklu hf. Laugavegi 172. Þar sem ... ... þú slappar af í nýrri vistlegri móttöku, færð þér kaffi og lítur í blöðin. A meðan ... ... við framkvæmum öll atriði hefðbundinnar smumingar, auk ýmissa smáatriða t.d. smumingar á hurðalömum og læsingum. Auk þess ... ... athugum við ástand viftu- reima, bremsuvökva, ryðvamar og pústkerfis og látum þig vita ef eitthvert þessara atriða þarfnast lagfæringa. Allt... ... þetta tekur aðeins 15-20 mínútur og þú ekur á brott með góða samvisku á vel smurðum bíl. H HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 212 40

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.