Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 20
Daði Guðbjörnsson við mynd eftir sig sem á annaðhvort að heita Dyggðirnar þrjár eða Lestlrnir þrír. Að vera Fímari... Spjallað við Daða Guðbjörnsson myndlistarmann Daði Guðbjörnsson sýnir um þessar mundir í Galierí Borg. Þar hafa verið hengd upp eftir hann olíumálverk, dúk- skurðarmyndir og steinþrykk, sem er fínt orð fyrir litografíu. Við fórum í heimsókn til Daða á vinnustofu hans í Skipholti, þar sem málunardeild MHÍ er reyndartil húsaen Daðifær að vera um sinn. ætt við barokkið. Ég er alltaf að leita að mörkunum milli mynd- listar og dekorasjónar. Það eru spennandi landamæri. Annars er ég yfirleitt ekki með stífar hug- myndir fyrirfram áður en ég fer að mála. Þær eru frekar lauslegar og þróast á alia kanta. En ég er hrifinn af þessum frumformum, ég neita því ekki.“ „Ég bý mínar myndir oft til út- frá einhvers konar grunnlínum, sem ég svo vinn úr. Kannski ó- ljósar í byrjun en smám saman skýrast litirnir og þá kemur líf í málverkið. Málverk getur breyst svo skemmtilega mikið þegar t.d. alls konar litir koma í gegn.“ Trúi ekki á hreinsun - Þú ert sem sagt ekki boðandi ákveðna hugmyndafræði í þínum verkum? „Nei, það er ég ekki. Ég held að það eigi að nota hugmynda- fræðina annars staðar en í listum. Ég trúi ekki á þessa „hreinsun“ (katharsis) sem komin er frá Ar- istótelesi og menn tala oft um í þessu sambandi. Súrrealisminn átti til dæmis að „frelsa“ andlega. En hins vegar er betri myndlist í sjálfu sér jákvæð, hún leiðir til jákvæðari hugsunar og er auðvit- að keppikefli myndlistarmanna. Auðvitað hafa verið gerðar ágæt- ar myndir sem hafa haft pólitísk áhrif, mikil ósköp.“ - Hvað er að frétta af „nýja“ málverkinu? „Ja, „nýju“ málverkin eru nú jafn mörg og einstaklingarnir sem þau mála. Það má segja að ég komi fram með „nýja“ málverk- inu, við vorum þarna ákveðinn hópur sem síðan hefur þróast í allar áttir. Það er oft þannig í myndlistinni, ákveðnir hlutir koma fram hjá mörgum lista- mönnum sem eru að byrja en svo fara hlutirnir að þróast. Það var til dæmis talað um að við Tumi Magnússon hefðum svipaðan stfl hér á sínum tíma, en ef þú hefur séð síðustu sýningu hans þá sérðu að við erum að fara í ólíkar áttir. Það verður gaman að sjá myndir okkar eftir svona 5 ár.“ Almenn róleghelt elnkennandi „Sko, myndlist „nýja“ mál- verksins greinist í ótal marga anga. í byrjun voru Berlínarmál- ararnir og þeir ítölsku einna kraftmestir, en eitthvað eru þeir að dala. Nú eru „spray- artistarnir" svokölluðu mjög of- arlega á baugi í myndlistinni. Það er lið sem byrjaði með því að spreyja neðanjarðarstöðvar í New York, en hefur síðan verið tekið inn í galleríin. Það má segja að það séu ekki eins hreinar línur í myndlistinni eins og voru t.d. fyrir 15 árum þegar konseptið var og hét. Það var heilstæðari stefna. En það er með myndlist- ina eins og annað. Þú sérð hlutina alltaf eftir á. Ég mundi segja að hérna heima væru almenn róleg- heit einkennandi fyrir myndlist- ina í dag. Fyrir 3-4 árum þá rifust menn grimmt, það gera menn ekki lengur.“ - Og þú genginn í FÍM! „Já, já, ég er orðinn Fímari. Nú er það lenska að vera nógu íhaldssamur og gamaldags. Nei, að öllu gamni slepptu þá þarf að koma þessum stéttarmálum á hreint. Myndlistarmenn eiga að geta sameinast um sín hagsmunamál. Það er til dæmis þessi óheyrilegi tollur á olíulit- um, það þarf að mótmæla og gera eitthvað. Það er líka skynsam- legra að ganga í stéttarfélag sem er til frekar en að vera sífellt að stofna ný. Mér finnst það líka asnalegt að það skuli vera alveg viðtekin skoðun að FÍM sé hall- ærislegt. Það er allt annað líf að vera fímari. Það er auðvitað fár- ánlegt að vera í rifrildi við ein- hverja kalla. Ég var áður í hús- gagnasmíði og þar var ekki verið að rífast t.d. um spýtur á fundum. Myndlistarmenn eiga að einbeita sér að sameiginlegum hlutum.“ Grafíkin minni og kurteislegri - Þín myndlist? „Ég skipti mér eiginlega jafnt á miili málverksins og grafíkur. Grafíkin er svona minni og kurt- eislegri og henni hefur verið vel tekið. Annars finnst mér að steinþrykkið sé meira einkenn- andi fyrir mig. Svo hef ég fiktað við dúkskurð og ætingu. Ég var húsmóðir í vetur og þá var hægt að skera dúka heima við.“ „Ég byrjaði að mála svona 15- 16 ára, og það má segja að ég sé að miklum hluta sjálfmenntaður, fór á kvöldnámskeið og svoleiðis. í Myndlista- og handíðaskólann fór ég ekki fyrr en 1976 og hafði þá að minnsta kosti dálitla hug- mynd um hvað ég vildi. Ég var ekki algjört beibí þegar ég fór inn í MHÍ. Það er held ég mikill kost- ur, að vita hvað maður vill.“ -pv - Þú málar mikið hringi og alls konar form? „Já, þetta er kannski dálítið í „Ég þyrfti eiginlega að lengja þessa mynd um 10-15 sentimetra hvorum megin, eins og Kjarval gerði stundum.“ GRANDAGARÐI3 - SÍMI: 29190 Nýjar vörur á óvenjulágu verði Opið til kl. 16 laugardaga og til kl. 19 virka daga 20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.