Þjóðviljinn - 08.09.1985, Blaðsíða 14
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Landsfundur AB
verður haldinn að Borgartúni 6 dagana 7.-10. nóvember. Fulltrú-
akjöri félaga þarf að vera lokið þremur vikum fyrirfundinn. Dagskrá
verður nánar í blaðinu síðar og í bréfum til trúnaðarmanna flokks-
ins.
Miðstjórnarfundur AB
Miðstjórn Alþýðubandalagsins kemur saman til fundar dagana
4.-6. október að Hverfisgötu 105. Þar verður rætt um undirbúning
landsfundar, stöðu flokksins og utanríkismál. Dagskrá nánar aug-
lýst síðar.
Þjóðviljaráðstefna
Útgáfufélag Þjóðviljans og Alþýðubandalagið gangast fyrir ráð-
stefnu um ÞJóðviljann laugardaginn 21. september að Hverfisgötu
105. Er ráðstefnan opin öllum félögum í Útgáfufélaginu og Alþýðu-
bandalaginu.
Útgáfufélag Þjóðviljans
Framhaldsfundur
verður haldinn 10. október nk. kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Á
dagskrá er: 1) Kosning stjórnar félagsins. 2) Undirbúningur vegna
50 ára afmælis Þjóðviljans 1986. 3) Lög að skipulagsskrá félags-
ins. 4) Önnur mál.
Námstefna um nýja sókn
Námstefna AB
um nýja sókn ( atvinnulífinu fer fram sunnudaginn 22. september
að Hverfisgötu 105 og hefst hún kl. 10.00 árdegis. 18 fyrirlesarar úr
ö-llum greinum atvinnulífsins tala. Látið skrá ykkur til þátttöku fyrir
15. september. Námsefnan er opin öllum sem skrá sig í tæka tíð
en þátttökufjöldi er takmarkaður við 80 manns. Skráningarsími er
17500.
Alþýðubandalagið á Akranesi.
Fundur verður í bæjarmálaráði næstkomandi mánudag 9. sept-
ember klukkan 21.00.
ÆSKULÝDSFYLKINGIN
Aðskilnaðarstefna S-Afríku
Aðgerðir eftir helgi!
Æskulýðsfylkingin og aðrir sem vilja berjast gegn aðskilnaðar-
stefnu stjórnvalda í Suður-Afríku komi saman til undirbúningsfund-
araðgerða sem fyrirhugaðar eru eftir helgina. Fundurinn verður að
Hverfisgötu 105 sunnudaginn 8. september og hefst kl. 19.30.
Nefndin.
Hana nú og sei sei já!
Haustfagnaður - 7. sept.
Bráðum kemur blessaður haustfagnaðurinn og allirfara að hlakka
til ....eða þannig. Dagskráin þennan dag fer nú senn að ná endan-
legri mynd en hún tekur breytingum dag frá degi - og alltaf til
batnaðar.
í dag lítur hún svona út:
13:00 Húsið opnað - kaffi og kökur á færibandi.
14:00 Getur G(olíat) lagt Davíð? - Sigurjón Pétursson og
harðsvíraður andstæðingur keppa.
15:15 Einar Kárason les úr óútkominni bók sinni.
16:00 Spurningakeppni milli framkvæmdastjóra AB og frétta-
manna Þjóðviljans.
17:00 Ljóðskáldið og snillingurinn Sjón les úr verkum sínum.
Hér er á ferðinni splunkunýtt prógramm. Þeir sem vilja fylgjast með
menningarmálunum láta hér ekki happ úr hendi sleppa.
17:30 Þjóðviljinn. Óskar Guömundsson etur kappi við flokkslið
Allaballa.
19:00 Húsinu lokað.
Kl. 21 um kvöldið hefst síðan dansleikur. Þar mun hinn víðfrægi
og fótfrái Halli Jóns kynna þá skemmtikrafta sem fram koma.
Svona til að gefa tilvonandi gestum Fagnaðarins smá innsýn í
tilvonandi skemmtiatriði þá mun það hér með upplýst að Flosi
Ólafsson, rithöfundur, stórskáld og leikari með fleiru, verður meðal
gesta kvöldsins.
Mætum öll tímanlega.
Fjörfiskarnir
Félagsfundur ABR
Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til félagsfundar miðvikudag-
inn 2. október að Hverfisgötu 105 kl. 20.30. Fúndarefni er félags-
starfið í vetur og kosning uppstillingarnefndar vegna kjörs fulltrúa
félagsins á landsfund. Fjölmennið! Stjórn ABR.
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 46711
Vegna
stórhátíðar
Þann 27. september verða
liðin 10 ár frá stofnfundi
Jazzvakningar. Stofnendur
voru 38. Félagið efndi fljót-
lega til djasskvölda þar sem
fram komu íslenskir tónlistar-
menn og með því starfi fyrstu
árin var brautin rudd að nýju
fyrir íslenskan djass; bæði
fóru hljóðfæraleikararsjálfir
að efna til tónleika og eins var
farið að ráða þá til að spila
djass-ákaupi! í kjölfarþess-
arar þróunar breyttist starf-
semi Jazzvakningartöluvert.
Aðalverkefnið varð nú að
skipuleggja tónleika með erlendu
listafólki, allajafna í fremstu röð.
Það þarf naumast að taka fram að
sá innflutningur hafði mikil áhrif,
ekki síst hjá ungu fólki sem oft
var á sínum fyrstu djasstón-
leikum. Undirritaður getur tam.
borið um það vitni að hann fékk
þá vitrun á Jazzvakningartón-
leikum árið 1978 að kontrabass-
inn væri hið eina og sanna hljóð-
færi!
Það varð því höfuðverkefni
Jazzvakningar að halda gluggan-
um opnum út á við. Síðan í febrú-
ar 1978 hefur hún 32 sinnum
fengið heimsóknir erlendra lista-
manna og í þrjú skipti voru stór-
sveitir á ferð: Clark Terry Big
Band, Charlie Haden’s Liberati-
on Orchestra og Lionel Hampton
Big Band. Fjöldi þeirra hljóð-
færaleikara sem hafa komið til
landsins á vegum hreyfingarinnar
er því kominn hátt á annað
hundrað.
Hljómplötur
Annað verkefni Jazzvakningar
hefur verið plötuútgáfa. Fyrsta
platan var Samstæður, kammer-
jazz eftir Gunnar Reyni Sveins-
son sem kom út 1978. Þegar
bandarísk-íslenski kontrabassa-
leikarinn Bob Magnusson kom
hingað til lands og lék með ís-
lenskum djassmönnum á 5 ára af-
mæli Jazzvakningar 1981 voru
hljóðritaðir 3 tónleikar og síðan
valið úr til útgáfu. Það var Jazz-
vaka sem út kom 1981. Árið 1983
kom svo út tvöfalt albúm - Jazz í
30 ár - og gæti haft undirtitilinn
Drög að djasssögu ísiands.
Gunnar Ormslev er þar í aðalhlu-
tverki sem vænta mátti, en undir-
búningur að plötunni hófst fljót-
lega eftir að hann lést vorið 1981.
Að baki því albúmi lá mikil
vinna; gamlar segulbandsspólur
voru grafnar upp úr dóti í bíl-
skúrum úti í bæ og allir héldu að
væru löngu týndar, austur í Mos-
kvu leituðu menn að spólum með
leik Gunnars Ormslevs og félaga
frá Heimsmóti lýðræðissinnaðrar
æsku og stúdenta árið 1957 og
fundu og til mótmægis við þau lög
tókst að hafa upp á öðrum
tveimur sem tekin voru upp fyrir
Voice of America 1964! Og er þá
fátt eitt talið af þeim vandamál-
um sem leysa þurfti við undirbún-
inginn. Fimrrita plata Jazzvakn-
ingar kemur svo út 12. septemb-
er, þessi ófétis jazz! með þeim
Eyþóri Gunnarssyni, Friðrik
Karlssyni, Gunnlaugi Briem,
Tómasi R Einarssyni og Rúnari
Georgssyni.
Heyrn og sjón
Jazzvakning fagnar afmæli sínu
að hætti jafngamalla barna; safn-
að er saman veisluföngum af
ýmsu tagi, fólki er boðið og á til-
settum tíma ræðst svo skarinn á
pylsurnar. Veisluföngin í þessu
afmælishófi tengjast þó ekki gast-
Stefán S. Stefánsson saxófón-
leikari. Hann hefur skrifað verk
fyrir stórsveit og verður það flutt á
hátíðinni.
eftir
Tómas R.
Einarsson
Pótur Östlund í kraftmikilli sveiflu
fyrr á árum. Ekki er vitað hvort
hann mætir í jakkafötum á djass-
hátíðina.
rónómíunni nema í yfirfærðri
merkingu - teitið er helgað
eyrunum og svo sjóninni; í Djúp-
inu við Hafnarstæti verður opnuð
sýning þann 12. september. Þar
eru sýndar 20 myndir hins
sveifluglaða málara Tryggva Ól-
afssonar af ýmsu djassfólki og svo
Ijósmyndir af sams konar fólki,
teknar af þeim danska
djassmeistara Gorm Valentin.
í fjögur dægur þenur sig djass-
fólk af ýmsum þjóðernum;
spánskt, sænskt, danskt, íslenskt,
breskt og bandarískt. Fjöl-
breytnin er mikil: íslensk og
dönsk þjóðlög í útsetningu pían-
istans Óle Kock Hansen, flutt af
honum, Niels-Henning, Pétri
Östlund og fslenskum strengja-
kvartett föstudagskvöldið 13.
september. Píanóvirtúósinn Tété
Montoliu frá Barcelona leikur
með Niels-Henning á fyrri helm-
ing tónleika í Háskólabíói 12.
september; Tété lék í æsku „grát-
fagra sálarmarsúka Sjópengs“ -
klassískt uppalinn eins og Aldin-
blóð í Atómstöðinni, en hljóp
síðar „gönguhlaup útí ofsafeng-
inn djass“. Það er mikill hiti og
skap í píanóleik þessa manns, ein
plata hans hét Katalónskur eldur,
en flestir Barselónubúar sem
eitthvert tak er í telja sig frekar
katalónska en spænska. Mezzo-
forte, sem reyndar spiluðu fyrir
150 þúsund manns í Barcelona í
júní, leika sitt fönk í Háskólabíói
laugardaginn 14. og með þeim
breski saxófónleikarinn Dale
Barlow. Barlow er einn af
fremstu saxófónleikurum Breta
af yngri kynslóð, hefur leikið í
Bandaríkjunum og víða í Evrópu
og hefur nýlokið við að hljóðrita
með þeim Cedar Walton og Billy
Higgins. Og ef að líkum lætur
verður hann ekki eini gesturinn
með Mezzoforte, ýmsir slag-
verksmenn og blásarar eru í sigti!
Söngur og
gleði
Djasssöngurinn verður til stað-
ar í Háskólabíói 12. september
(seinni hluti tónleika) og í Vík-
ingasal Flugleiða kvöldið eftir;
það er Etta Cameron, sem hreif
íslenska sjónvarpsáhorfendur
fyrir stuttu síðan, söngkona sem
hefur í sér allan svarta arfinn -
gospel, soui og blús að viðbættum
djassinum. (Sænska sveitin Emp-
hasis on Jazz undir forystu Péturs
Östlund, en Pétur leikur öll kvöld
hátíðarinnar og er það gleðiefni
að fá að njóta þessa eldhærða
trommusnillings í svo fornemum
selskap.) Tveir ólíkir straumar
eiga fulltrúa sína í Víkingasal 13/
9: hinir rafvæddu og sjaldheyrðu
Gammar og Kvartett Kristjáns
Magnússonar. með gestum, þ.á
m. Jóni Páli Bjarnasyni sem kem-
ur beint frá Los Angeles. f Átt-
hagasal á laugardagskvöld spila
svo hin íslensku Öféti lög af
plötunni Þessi ófétis jazz! og síð-
ar sama kvöld spilar þar sænska
hljómsveitin Emphasis on Jazz.
Á sunnudag leikur sveit Friðriks
Theódórssonar í Blómasal um
hádegisbilið og um kvöldið er
miðilsfundur í Átthagasal á Sögu;
Árni Scheving og fleiri endur-
vekja Jazzmiðla, stórsveit leikur
nýtt verk eftir Stefán S. Stefáns-
son, Guðmundur Ingólfsson og
Reynir Sigurðsson leika dúett og
margt margt fleira - í beinni út-
sendingu Rásar tvö.
Sumsé allt harðla gott og viss-
ara fyrir lesendur Þjóðviljans að
kaupa sér strax miða í Karnabæ í
Austurstæti ef þeir vilja tryggja
sér sæti einhvers staðar í þessu
afmælisboði.