Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 2

Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 2
FRETTIR Melaskóli Óvissa með yfirkennara Yfirkennarinn sagði upp. Frœðsluráð mœlist til að uppsögnin verði dregin til baka. Ástœður óljósar Jú það er rétt, Fræðsluráð Reykjavíkur óskaði eftir því bréfíega við mig um að ég drægi uppsögn mína til baka vegna þess að hún kæmi á óheppi- legum tíma að mati ráðsins,“ sagði Helga Einarsdóttir yfirkenn- ari í Melaskóla í samtali við Þjóð- viljann, en Helga hugðist hæta störfum sem yfirkennari og taka upp stundakennslu frá og með 1. nóvember. „Ég hef ekki svarað þessu endanlega ennþá en úr því að þessi tilmæli eru samþykkt ein- róma í Fræðsluráði þá býst ég við að ég þreyi veturinn“ sagði Helga. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins vildi svo til að Fræðsluráð fjallaði um upp- sögnina sama dag og skólastjóri Melaskóla, Ingi Kristinsson, til- kynnti hana á kennarafundi og sagði frá því um leið að hann hygðist mæla með Rögnu Ólafs- dóttur í starfið þegar Helga Ein- arsdóttir léti af störfum. Þetta hefur skólastjórinn staðfest en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Heimildarmenn blaðsins telja nokkuð víst að ástæðan fyrir því að Helga var beðin um að fresta uppsögn sinni sé fyrst og fremst sú að Ragnar Júlíusson formaður Fræðsluráðs sé alls ekki sáttur við að Ragna Ólafs- dóttir verði næsti yfirkennari í Melaskóla. Samkvæmt upplýs- ingum sem fengust hjá Lenu Rist varafulltrúa AB í Fræðsluráði var málið ekki kynnt frekar á fundin- um. Ekki kom fram í máli Ragn- ars hvort mælt væri með einhverj- um ákveðnum í stöðuna og að auki hefði þetta mál verið tekið fyrir utan dagskrár. Taldi hún að ef fengist hefði meiri vitneskja um málið hefði líklega verið farið fram á frestun á afgreiðslu þess, en eins og fyrr segir var samþykkt einróma að biðja starfandi yfir- kennara að kenna út þetta skólaár. -vd Bréfið hvarf og Davíð hvarf og BÚR hvarf. Karpov með vænlega biðskák í gær fór fram hin árlega busavígsla í Menntaskólanum við Sund. Vígalegir böðlar ýttu busunum á bólakaf í fiskiker og helltu yfir þá sinnepi. Að venju var líf í tuskunum eins og vera ber á busadaginn. Að athöfn lokinni töldust busarnir vera komnir í fullorðinna manna tölu. Til hamingju með það! Ljósm.: Sig. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garry Kasparov Drottningarbragð 1. d4 d5 5. Bg5 h6 2. c4 e6 6. Bxf6 Bxf6 3. Rc3 Be7 7. e3 0-0 4. Rf3 Rf6 8. Dc2 Kasparov lék 8. Db3 í þriðju skák- inni sem var nýr leikur. En heimsmeistarinn er íhaldssamur og velur þann leik sem hann beitti í 27. skák síðasta einvígis með góðum ár- angri. 8. Ra6 N f áðurnefndri skák lék Kasparov 8. - c5 og kom svo með nýjung í næsta leik sem reyndist ekki nógu vel. f*að er athyglisvert hve áskorandinn er frjór á nýjar hugmyndir í alþekktum stöðum sem hafa kannski verið tefld- ar eins áratugum saman. Ástæðan fyrir því að enginn hefur látið sér detta þessi leikur í hug er kannski sú að fyrir mörgum árum setti einhver fróður maður upphrópunarmerki fyrir aftan leikinn 8. - c5 og virðist sem hann hafi verið tekinn í guðatölu um leið. 9. Hdl Ef 9. cxd5 þá Rb4. 9. c5 10. dxc5 Da5 11. cxd5 Rxc5 12. Dd2 Karpov áræðir ekki að hirða peðið á e6 vegna þess hve langt á eftir í liðskipan hann yrði þá. 12. Hd8 13. Rd4 exd5 14. Be2 Db6 15. 0-0 Re4 16. Dc2 Rxc3 17. Dxc3 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Karpov er ekkert að flýta sér. 20. Hdc8 21. Rxe6! Býður svörtum að velja hvort hann vilji standa í þvf að verja d5 peðið það sem eftir er skákarinnar eða taka á sig veikingar á kóngvæng. 21. fxe6 22. Bg4 Hc4 23. h3 Dc6 24. Dd3 Karpov er greinilega kominn með betri stöðu. Sigurjón Pétursson: „Eg þekki engin dæmi um að slíkt bréf hafi ekki verið lagt fram og kynnt og þessi framkoma borg- arstjóra er að mínu mati dæmi- gerð fyrir öll hans vinnubrögð í þessu máli,“ sagði Sigurjón Pét- ursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins ma. í viðtali við Þjóðviljann 10. september sl. um það hvernig Davíð Oddsson stakk erindi Kirkjusands hf undir stól og skýrði borgarráði ekki frá því að fyrirtækið hefði óskað eftir að- ild að viðræðum um endurskipu- lagningu útgerðar í Reykjavík. Ragnar Júlíusson, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins hefur viðurkennt í viðtali við blaðið að hann hafi ekki haft hugmynd um tilvist bréfsins. Erindið mun hafa borist borgarstjóra í byrjun júní en eins og fram hefur komið, fást engar skýringar frá honum fyrr en hann kemur til landsins í lok mánaðarins. Þjóðviljinn leitaði álits hinna minnihlutaflokkanna á þessu máli. - ÁI. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: „Ég hef ekki frekar en aðrir séð þetta bréf Kirkjusands og vissi ekkert um það fyrr en ég las um það í blöðunum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi Kvennaframboðs. ,Jíitt af yfir- lýstum markmiðum viðræðn- anna var að ræða möguleika á samvinnu jafnt og sameiningu og ég skil ekki því t ósköpunum ekki mátti draga fieiri inn í það dæmi.“ „í fljótu bragði finnst mér undarlegt að bréfið skuli ekki hafa verið lagt fram og rætt sem er lágmark, úr því ræða átti möguleika á samvinnu,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Borgarstjóri er enginn prívat aðili, heldur embættismaður borgarinnar og bréfið berst honum í krafti síns embættis. Hann á því skilyrðis- laust að standa skil á því og það á ekki að vera hans persónulega mat sem ræður því hvaða bréf fara fyrir augu borgarráðs." -ÁI. Sigurður E. Guðmundsson: „Það er fyrir neðan allar hellur og hvorki sanngjarnt né sæmilegt að gera borgarráði ekki grein fyrir að þetta erindi hafi borist. Hins vegar get ég ekki sagt að svona vinnubrögð komi manni á óvart eftir það sem á undan er gengið,“ sagði Sigurður E. Guð- mundsson borgarfulltrúi Alþýð- uflokksins. „Ég lét í upphafi í ljós þá skoðun að ef fara ætti út í endur- skipulagningu á útgerð í Reykja- vík þá væri eðlilegt að tala við öll stærstu útgerðarfyrirtækin hér og athuga síðan með samstarf ef grundvöllur skapaðist fyrir slíku,“ sagði Sigurður. „í sam- ræmi við þá skoðun hefði ég talið rétt að ræða við Kirkjusands- menn. Við kratar erum hins veg- ar á móti öllum viðræðum um að ieggja BÚR inn í annað fyrirtæki eða leggja það niður eins og kom- ið hefur fram í bókunum okkar.“ -ÁI Kristján Benediktsson ,JMér finnst ákaflega furðulegt þegar um er að ræða mál sem er í brennidepli og verið er að fjalla um að gögn séu lögð til hliðar með þessum hætti,“ sagði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks. „Það hvarflaði svo sem að manni að ef Reykjavíkurborg ætlaði sér að gerast guðfaðir í þessum efnum og taka að sér fyr- irtæki eins og ísbjörninn þá væri eðlilegt að stíga skrefið til fulls og athuga með samvinnu við aðra aðila, a.m.k. Kirkjusand og Hraðfrystistöðina og gera úr þessu eitt voldugt fyrirtæki,“ sagði Kristján, „í stað þess að þjóðnýta ísbjörninn. í ljósi þessa er furðulegt að stinga erindi Kir- kjusands undir stól sem eftir því sem fram hefur komið lýsir vilja til viðræðna.“ -ÁI Bréfið sem hvarf Hvað segir minnihlutinn? 25. Hfdl a5 26. b3 Hc3 27. De2 Hf8 28. Bh5 b5 30. Bd3 b4 31. Dg4 De8 32. e4 Bg5 33. Hc2 Hxc3 Ef 33. - Dc8 þá 34. exd5 Hxc2 35. De4 og vinnur. 34. Bxc2 Dc6 35. De2 Dc5 36. Hfl Dc3 37. exd5 exd5 38. Bbl Dd2 39. De5 Hd8 40. Df5 Kg8 abcdefgh Og hér fór skákin í bið. Líklegast leikur Karpov 41. De6 í biðleik því Kasparov má ekki leika 41. - Kf8 vegna42. Bg6Df4 43. Hel með máti. Og eftir 41. - Kh8 getur Karpov þrá- leikið með Df5 eða þá fundið eitt- hvert sterkara framhald heima. Karpov hefur nú tekist að einfalda taflið mikið og koma í veg fyrir þær flækjur sem í aðsigi voru í kringum 10. leik. 17. Be6 18. Dc2 Hac8 19. Dbl Hc7 20. Hd2

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.