Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 3
FRÉTTIR Lúðueldi Þær pluma sig vel Starfsmenn Fiskeldis hfí Grindavík prófa sig áfram með lúðueldi Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort ekki megi rækta lúðu eins og aðra fiska og erum með þrjú stykki hérna sem við ætlum að sjá hvernig dafna,“ sagði Þröstur Elliðason, einn af starfsmönnum Fiskeidis hf. í Grindavík við Þjóðviljamenn þegar þeir áttu leið um Suðurnes í gær. „Þær voru nú þrjár lúðurnar sem við vorum með hér í keri við Bjarnargjá en af einhverjum dul- arfullum orsökum er ein þeirra horfin. Við dælum sjó hér upp úr Bjarnagjá sem við notum í kerið fyrir lúðurnar, aðstæðurnar hér , Bónusviðrœður Veraleg hreyfing VSÍgekk að kröfum um fastanýtingu ígœr. Þátttaka í bónusverkfalli eykstsífellt að varð veruleg hreyfing á þessu í dag, meiri en verið hef- ur allt fram til þessa. Þeir sam- þykktu að taka fastanýtingu inn í öll hús innan skamms tíma, þ.e.a.s. þar sem hún er ekki þegar komin í notkun. En lengra kom- umst við ekki enn, sagði Guð- mundur J. Guðmundsson for- maður Verkamannasambandsins í samtali við Þjóðviljann í gær- kvöldi. Samningafundir hófust um tvöleytið í gær og stóðu fram eftir kvöldi. Guðmundur sagði að þótt samist hefði að nokkru leyti um fastanýtingu væru fjölmörg tæknileg atriði enn óumsamin og það væri þungt fyrir. Þessi atriði væru þó mun einfaldari en fasta- nýtingin. Kröfur um bónusálag og hækkun bónusgrunns hafa enn engan hljómgrunn fengið meðal samningamanna VSÍ. „Annað hvort er að keyra þetta áfram núna á næstu dögum eða mun meiri harka verður sett í aðgerðir fiskverkunarfólks en nú er. Það er hugur í þessu fólki og það er ekkert á því að hætta að- gerðum án þess að fá sínum kröf- um framgengt," sagði Guðmund- ur. Sífellt fleiri félög bætast í hóp þeirra sem hefja aðgerðir til að knýja á um að samningar takist um bónusmálin. Fólk víða um land vinnur í hægagangi þótt næg- ur sé aflinn. Fréttir berast af því hvarvetna að afköst séu einungis 40-60% af því sem venja er og má af því sjá hversu mikið aukaálag fylgir bónusvinnu fyrir verkafólk- ið. Verkstjórar sem Þjóðviljinn hefur haft samband við segja að ástandið sé mjög slæmt og taka flestir undir það að hækka þurfi kaup fiskverkunarfólks til að fá það til vinnu í húsunum. Sumir ganga svo langt að segja neyðará- stand ríkja vegna manneklu og minnkandi afkasta verkafólks. gg eru mjög ákjósanlegar þar sem við þurfum ekki að bora eftir vatninu. Seltustigið í vatninu úr gjánni er 10 promill, er venjulega 35 promill í sjó og því erum við hálfundrandi yfir því hversu vel lúðugreyin pluma sig.“ Þröstur sagði að þeir væru að athuga með lúðueldi í samráði við Fiskifélag íslands. Ef þetta gengi vel ætluðu þeir að sækja um styrk og fara út í þetta af fullri alvöru. Kvikmyndir Geimveiw og glæpir Loksins gefst nú almenningi færi á að berja augum kvikmynd- aafurðir Oxsmáfyrirtækisins á opinberum vettvangi. Sýningar eru fyrirhugaðar í hliðarsal Regnbogans F sal, föstudags, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 21.00. Um tvær myndir er að ræða. í fyrsta lagi Oxsmá plánetan senni- lega eina íslenska framtíðar- skáldsagan sem fest hefur verið á filmu. Sorgarsaga um illa uppal- inn geimkarl úr Reykjavík sem hyggst ná fótfestu á fjarlægri draumaplánetu og tileinka sér lifnaðarhætti frumbyggja. Sjúgðu mig Nína er hröð og spennandi glæpamynd sem á sér aftur á móti stað í Reykjavík árs- ins 1973. Harðsvíraðir eiturlyfj- aneytendur svífast einskis til að viðhalda LSD magninu í blóði sínu. Miðar fást í miðasölu Regn- bogans og skyldi fólk athuga að tryggja sér þá í tíma þar eð sæta- fjöldi er takmarkaður. Hœkkanir Hömstrum strætómiða Þeir hækka23. september Eins og sagt hefur verið frá í Þjóðviljanum munu fargjöld SVR hækka um 13,6% á næst- unni. Fargjald fullorðinna verð- ur eftir 23. september 25 krónur og barnafargjöld hækka í 7 krón- ur. Búist er við ágreiningi í borg- arráði vegna þessa en fulltrúar AB hafa lýst sig andvíga þessari ákvörðun meirihlutans. „Þetta bitnar mest á láglaunahópunum, það eru aðallega konur, ung- lingar og börn sem þurfa að nota þessa þjónustu" sagði Guðrún Ágústsdóttir í samtali við Þjóð- viljann. „Það bitnar á þeim að meirihlutinn vill lækka útsvörin." Og blaðið skorar á fólk að byrgja sig nú upp af miðum fyrir vetur- inn. imber 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 „Það er djöfuls kraftur í henni." Þröstur handleikur „tilraunalúðu." Ljósmynd. Einar Ól. Enn heldur gamla góða stuðið áfram ■ II^ l[3/tiuh igs- og augardagskvöld Hinir frábæru Swinging Blue Jeans, Kapparnir skemmta aðeins semkomutil íslands um árið og slógu þá svo sannarlega í gegn, koma nú og skemmta landsmönnum í Broadway af sinni alkunnu snilli. þessi tvö kvöld. Tryggið ykkur miða og borð í tíma ísíma 77500kl. 11-19. IVlats Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti Nva* Núkoma allir og kætast meðfrábæru bandi í

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.