Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 6
Minjavörður
á Austurlandi
Starf minjavarðar á Austurlandi er laust til umsóknar
frá og með 1. nóvember nk. í starfinu felst skipulag,
uppbygging og fagleg aðstoð við söfn á safnsvæðinu,
sem er Austurlandskjördæmi. Minjavörður er jafn-
framt forstöðumaður Safnastofnunar Austurlands og
starfar undir stjórn hennar. Leitað er að starfsmanni
með menntun í þjóðfræði eða fornleifafræði, sem hef-
ur áhuga á safnamálum og gæddur er góðum sam-
starfseiginleikum. Laun samkvæmt samkomulagi
starfsmanna ríkisins um minjaverði. Umsóknarfrestur
er til 1. október nk. Skriflegar umsóknir sendist Hall-
dóri Sigurðssyni á Miðhúsum, 700 Egilsstaðir. Upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu S.A.L. fyrir hádegi í
síma 97-1451 og hjá Halldóri Sigurðssyni í síma 97-
1320 á ótilgreindum tíma.
Stjórn S.A.L.
Lyfsöluleyfi
er forseti íslands veitir
Lyfsöluleyfi Stykkishólmsumdæmis (Stykkishólms
apótek) er auglýst laust til umsóknar.
Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11.gr.
laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982, varðandi húsnæði
lyfjabúðarinnar og íbúð lyfsala (húseignin Hafnargata
1)-
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1.
janúar 1986.
oOo
Lyfsöluleyfi Ólafsvíkurumdæmis er auglýst laust til
umsóknar.
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1.
janúar 1986.
Umsóknir um ofangreind lyfsöluleyfi skulu hafa borist
ráðuneytinu fyrir 11. október n.k.
Heifbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
11. september 1985.
Mannleg - samskipti
Áætlanir - breytingar
Þetta er meðal námsefnis á námskeiðum Verkstjórn-
arfræðslunnar. Ný námskrá var að koma út. Hringið til
Verkstjórnarfræðslunnar, Iðntæknistofnun íslands,
símar 687000 og 687009, og fáið sendar upplýsingar.
Stýrimann vantar
á mb Hamar SH 224 sem er að hefja síldveiðar með
hringnót. Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 93-6652.
Frjálshyggja
Sjúklingar borgi
SUS-þingið á Akureyri: Einkarekstur íheilbrigðiskerfinu.
Sjúkratryggingar íeinkarekstur. Ávísanakerfi ítryggingarnar.
Skattheimta vegna heilbrigðismála dregur úr vinnuvilja!
Nýting fjármagns verði bætt
m.a. með aukinni kostnaðarþátt-
töku neytenda, segir í stjórnmála-
ályktun SUS um heilbrigðiskerf-
ið, en þingið var háð á Akureyri
um mánaðamótin.
í ályktun þingsins um
heilbrigðis- og sjúkratrygginga-
mál er talið nauðsynlegt að stuðla
„sem víðast að einkarestri í heil-
brigðisþjónustunni og skapa hon-
um lífvænleg skilyrði“.
„Gefa verður almenningi kost
á að kaupa sjúkratryggingar hjá
einkareknum tryggingafélögum,
í stað þess að vera í hinu opinbera
sj úkratryggingakerfi".
Þá er vakin athygli á „heilsu-
tryggingarfélögum" sem hafa
sjúkratryggingar með höndum.
„Þessi fýrirtæki veita viðskipta-
vinum sínum alhliða heilbrigðis-
þjónustu fyrir fyrirfram ákveðna
upphæð. Fjármögnun kemur ým-
ist beint frá einstaklingum, fyrir-
tækjum eða hinu opinbera".
(Þetta er enn eitt form á „ávís-
anakerfinu", sem SUS vill einnig
taka upp í skólakerfinu).
„í tryggingamálum má það
aldrei henda, að það sé hagstæð-
ara fullhraustum íslendingum að
þiggja atvinnuleysisbætur heldur
en að vinna", segir í stjórnmála-
ályktuninni.
í ályktun um velferðarmál er
kvartað undan miklum tilkostn-
aði við heilbrigðisþjónustu sem
séu 55% til 58% af ríkisútgjöld-
um. „Skattheimtan vegna þess-
ara útgjalda bæði í formi beinna
og óbeinna skatta veldur sífellt
meiri óánægju og dregur úr
vinnuvilja og verðmætasköpun“,
segir í ályktuninni. - óg
Frjálshyggja
Vildu banna kennslu
í samfélagsfræöum
SUS-þingið á Akureyri boðar tœrafrjálshyggju: Nemendur á
skólaaldrifái ávísanir. Skólakerfið aðlagaðþörfum atvinnulífsins.
Einkareksturinn fái aukið svigrúm. Bankarnir taki við hlutverki
Lánasjóðsins. Skólagjöld á háskólastigi
Á 28. þingi Sambands ungra
sjálfstæðismanna, sem haldið var
á Akureyri á dögunum, var lögð
fram áskorun til Ragnhildar
Helgadóttur um að banna kenn-
slu í samfélagsfræðum í grunn-
skólum landsins.
í áskoruninni sagði að að þing-
ið skori „á Ragnhildi Helgadótt-
ur menntamálaráðherra að beita
sér hið fyrsta fyrir að kennsla í
samfélagsfræðum verði felld út af
kennsluskrá í grunnskólum
landsins". Við afgreiðslu málsins
var orðalaginu breytt, þannig að
skorað er á Ragnhildi að hraða
endurskoðun námskrár í samfé-
lagsfræðum.
í stjórnmálaályktun SUS-
þingsins er lagt til að hafnar verði
tilraunir með að „greiða skóla-
kostnað með föstu framlagi á
hvern nemanda. Skólakerfið og
námsaðstoð verði aðlöguð mark-
visst að þörfum atvinnulífsins og
einkarekstri í skólakerfinu veitt
aukið svigrúm".
í sérstakri ályktun um
menntamál leggja ungir Sjálfs-
tæðisflokksmenn til að komið
verði á námsstyrkjakerfi „á veg-
um einkaaðila og opinberra aðila
og slíkt auðveldað t.d. með
skattaívilnunum. Tekin verði
upp skólagjöld á háskólastigi og
Lánasjóði íslenskra námsmanna
verði breytt í ábyrgðarlánasjóð
sem ábyrgist endurgreiðslur
námslána, en bankakerfið annist
raunverulegar lánveitingar".
-óg
I
Frjálshyggja
Á múti aðild íslands
að UNESC0
Samband ungra Sjálfstæðis- un Sameinuðu þjóðanna fyrir, með framlagi íslands til UN-
flokksmanna samþykkti á þingi árslok 1986. ESCO, en að undanförnu hafa
sínu um mánaðamótin að skora á Við afgreiðslu síðustu fjárlaga Bandaríkin og nokkur fylgiríki
Geir og Ragnhildi að beita sér greiddu nokkrir þingmenn Sjálf- þeirra gagnrýnt starfsemi UN-
fyrir því að ísland segði sig úr stæðisflokksins (ásamt Jóni Bald- ESCO.
UNESCO, menningarmálastofn- vin Hannibalssyni) ekki atkvæði - óg
ÞJÓÐVILJARÁÐSTEFNA
Ráöstefna um stöðu Þjóðviljans í dag verður haldin laugar-
daginn 21. sept. að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 og stendur til kl. 18.00. Öllum
félögum Útgáfufélags Þjóðviljans og Alþýðubandalagsins er
velkomið að sitja ráðstefnuna.
Dagskrá:
1. Þjóðviljinn og ný viðhorf í fjölmiðlun. Gísli B. Björnsson
2. Fjárhagur Þjóðviljans og dreifing. Guðrún Guðmundsdóttir
3. Blað og hreyfing. Össur Skarphéðinsson
4. Þjóðviljinn og landsbyggðin. María Kristjánsdóttir
Ráðstefnustjóri: Mörður Árnason
Útgáfufélag Þjóðviljans
Alþýðubandalagið