Þjóðviljinn - 13.09.1985, Side 7
„Rokk, létt rokk, vandað raggí
og nýbylgja er það sem við spil-
um“, sögðu meðlimir hljóm-
sveitarinnar The Voice í samtali
við Þjóðviljann.
The Voice hefur spilað í Safarí,
Laugardalshöllinni, á Rykk rokki
og í öllum félagsmiðstöðvunum.
Þeir hafa einnig haldið tvenna
tónleika í portinu fyrir utan æf-
ingarplássið. Þjóðviljinn ræddi
við þessa hressu stráka m.a. um
„spiliríið“, stelpur og framtíðina.
Byrjum á því að kynna hljóm-
sveitina:
Össur er bassaleikarinn. Hann
er 16 ára og að læra skósmíði.
Gunnar er gítarleikarinn.
Gunni er 17 ára og í atvinnuleit.
Einar er á trommunum. Hann
er 15 ára og er í 9. bekk í Þing-
hólaskóla.
Davíð er söngvarinn. Hann er í
9. bekk í Vogaskóla.
„Við viljum stoppa það að vera
kallaðir pönkarar. Við erum ný-
bylgjuhljómsveit og þær hljóm-
sveitir sem við höfum sótt
eitthvað til eru: Class, Sex pist-
ols, Killing joke og Utangarðs-
menn.
Hvað er skemmtilegast við það
að vera í hljómveit?
„Að spila á tónleikum. Það er
alveg frábært ef undirtektirnar
„Aksjón“
Hvað skiptir mestu máli fyrir
hljómsveit til þess að hún verði
vinsæl?
Hver eru áhugamál ykkar fyrir
utan tónlist?
„íþróttir, svefn, hjólreiðar og
kannski líka kaktusasöfnun."
Aftur létu þeir í sér heyra'sem eru
á föstu: „Það er sko ekki mikið
annað hægt að gera en vera í
hljómsveit og vera með stelpu,
allur tíminn fer í það.“
Hvað um framtíðina?
„Við ætlum að æfa svona 3svar
spila á sem flestum stöðum þar
sem eitthvað er að gerast. En því
miður þá er ekkert að gerast í
rokkbransanum í Reykjavík. Það
vantar aðra Rokk í Reykjavík
kvikmynd, fleiri hljómleika og
einnig fleiri hljómsveitir (okkur
vantar meiri samkeppni).
Þeir sem vita um einhverja tón-
leika, þar sem vantar hljómsveit
til að spila, vinsamlegast hringi í
Vigdís frábær
Um hvað syngið þið?
„Við syngjum um allt það sem
okkur finnst skipta máli. T.d. um
fólk sem er langt leitt af dópi, fólk
sem er að hætta saman og um fólk
sem selur bassann sinn. Við erum
ekki pólitísk hljómsveit en við
erum á móti kjarnorkuvopnum,
Reagan og Gorbachev og okkur
finnst Vigdís frááábær."
Lag sem er dæmigert fyrir The
Voice er t.d. lagið Koksað fyrir
Kolbrá.
Þú varst hrædd þegar þeir komu,
kaldur svitinn spratt fram.
Þeir komu til að sœkja eitrið
sem þú kláraðir í gœr.
Þú dast fyrir fáum árum
lagðir líf þitt í rúst,
gafst aleiguna fyrir skammt
af eitri
skammtur sem kallar á annan.
„Okkur finnast eiturlyf vera
mesta vitleysan sem til er í
heiminum og þess vegna syngjum
við töluvert um þau. Textar okk-
ar eru bæði á íslensku og ensku.
Davíð söngvari semur textana en
Össur og Gunni semja lögin.“
Eruð þið vinsælir fyrst að þið
eruð í hljómsveit?
„Við finnum fyrir því að við
erum vinsælli af stelpum, það er
bara nóg af lífvörðum í kringum
mann“, sögðu þeir hljóm-
sveitarmeðlimir sem eru á föstu.
Hins vegar er leiðinlegt þegar
fólk er öfundsjúkt og ætlar að
lemja okkur bara fyrir það að við
erum í hljómsveit. Við erum í
hljómsveit til þess að skemmta
okkur og öðrum.“
The Voice: Össur 16 ára, bassi.
Gunnar 17 ára, gítar. Einar 15
ára, trommur. Davíð 15 ára,
söngur. Ljósm.: Sig.
Staðráðnir í að ná langt“
eru góðar. Svo er það bara „fíl-
ingurinn'1 við það að spila á
hljóðfæri. Það getur verið leiðin-
legt að æfa en þegar við erum
frjóir, og fáum margar hugmynd-
ir, þá er það ekkert leiðinlegt."
„Ef hljómsveit ætlar að ná
langt verður sviðsframkoman á
tónleikum að vera hressileg. Það
þarf að vera stöðug aksjón. Útlit
og sviðsframkoma skiptir örugg-
lega 50% máli.“
sinnum í viku í vetur, við höfum
ágætis aðstöðu sem Útideildin
hefur lánað okkur. Svo stefnum
við að því að vera með ýmis-
skonar uppákomur. T.d. í
skólum. Við ætlum að reyna að
síma 625769. Umboðsmaður
okkar heitir Hafþór.
Við eigum okkur draum, hann
heitir The Voice, plötu- og út-
gáfufyrirtæki. Annars erum við
bjartsýnir á að geta gefið út plötu
hjá Gramminu þegar við erum
komnir úr „undergrándinu“,
þegar fólk þekkir okkur.“
Eitthvað að lokum?
„Já, já heilmargt. Við elskum
allt fólk sem fílar tónlistina okk-
ar, og annað, Þjóðviljinn er eina
blaðið sem skiptir sér af ung-
lingum.“
- SA.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7