Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 14

Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 14
UM HELGINA Heimili á Reykjavíkursvæðinu Nú liggur mikið á, því skólinn er byrjaður. Öskjuhlíðar- skóli leitar eftir heimili fyrir ungan pilt utan af landi. Hann vantar gott heimili á Reykjavíkursvæðinu skóla- árið 1985-1986. Upplýsingar í síma 17776 og 23040. Dagskrá föstudag 13.9 Háskólabíó kl. 19: Tríó Niels-Henning Örsted Pedersen (NHÖP, Ole Kock og Pétur Östlund) ásamt strengjakvartetti, á efnisskrá m.a. íslensk þjóðlög í útsetningu Ole Kock Hansen. Hótel Loftleiðir - Víkingasalur kl. 21: Gammar; Etta Cameron með íslendingum. Hótel Loftleiðir— Blómasalur kl. 21: Kvartett Kristjáns Magnússonar ásamt gestum. Djúpið Sýning Gorm Valentin og Tryggva Ólafs- sonar. Forsala aðgöngumiða í Karna- bæ Austurstræti og við inn- ganginn. • Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verötilboð SIMI 46711 Hérognú Tónlist Afmœlishátíð Jassvakningar í fullum gangi Æft fyrir afmælið. Ole Kock-Hansen, Niels Henning Örsted-Pedersen, Pétur östlund og hluti strengjakvartettsins. Ljósm Sig. Ole Kock-Hansen, píanó, Ni- els Henning Örsted- Pedersen bassi, PéturÖst- lund trommur og strengja- kvartett undirforystu Þórhalls Birgissonar leika dönsk og ís- lensk þjóðlög á tónleikum Jassvakningaríkvöld íHá- skólabíó kl. 19.00. Meðal verka sem flutt verða eru Maður hefur lent í öðru eins, úr kvikmyndinni Skilaboð til Söndru eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Vikivaki eftir JónMúla Á laugardag kl. 14 leika Mezzoforte ásamt tveimur gest- asólistum: ástralska saxófón- leikaranum Dale Barlow og danska trompetleikaranum Jens Winther í Háskólabíói. f jass- klúbbi á Loftleiðum á föstudag leika Gammarnir, Kvartett Krist- jáns Magnússonar og Kvintett Ettu Gameron, en í jassklúbbi laugardagsins í átthagasal Hótel Sögu leika Emphasis on Jass sem er skipuð Pétri Östlund og fjór- um Svíum og Ófétin sem leika lög af nýútkominni plötu, Þessi ófétis djass. Á sunnudag verður tónleikar á Hótel Loftleiðum kl. 12-14 þar sem Kvintett Friðriks Theodórs- sonar með gestum leikur. Jass- hátíðinni lýkur með tónleikum í Átthagasal Hótel Sögu sem hefj- ast kl. 20 og lýkur á miðnætti. Á tónleikum sem verður útvarpað beint leika Jassmiðlar, Árni Scheving og Jón Páll Bjarnason gítarleikari, tríó Guðmundur Ingólfssonar, Emphasis on Jass og Léttsveit Útvarpsins sem leikur nýtt verk eftir Stefán S. Stefánsson. í tengslum við Djasshátíðina stendur yfir sýning í Djúpinu á 21 djassteikningum eftir Tryggva Olafsson og ljósmyndum sem Daninn Gorm Valentin hefur tekið. Sýningin stendur til föstu- dags 20. september og er opin á venjulegum opnunartíma Djúps- ins. Nýiistasafnið Samsýning 8 listamanna Föstudaginn 13. september kl. 20.00 verðuropnuðsýning í húsakynnum Nýlista- safnsins. Þettaersamsýning á verkum eftirtalinna lista- manna: Gerwald Rockensc- haub, Jan Knap, Jan Mladow- sky, John van’t Slot, Juliao Saramento, Peter Anger- mann, Stefan Szczesny, og Tomas Stimm. Gerwald sýnir þrjú olíumál- verk, sem mynda eina heild. Jan Knap sýnir fjórar teikningar af trúarlegum toga. Jan Mladowsky er með fjórar myndir, málaðar með akrýllit á pappír. John van’t Slot sýnir fimm gouache myndir. Hann hefur áður sýnt á samsýn- ingu í Nýlistasafninu og nokkrum sinnum í gallerí Ganginum. Mynd eftir Jan Mladowsky. Juliao Saramento sýnir þrjár akrýlmyndir. Peter Angermann Tónleikar Philip Jenkins á fimm stöðum Píanóleikarinn Philip Jenkins heldur tónleika á fimm stöð- um á landinu nú á næstunni. Philip hefur haldið fjölmarga einleikstónleika, komiðfram sem einieikari meðýmsum hljómsveitum, m.a. Sinfóníu- hljómsveit íslands, flutt kammertónlist með ýmsu tón- listarfólki, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Philipstarf- aði um áraraðir sem píanó- kennari við Tónlistarskólann á Akureyri en er nú búsettur í London og kennir píanóleik við Royal Academy of Music. Fyrstu tónleikar hans voru í Safnahúsinu á Sauðárkróki, aðrir verða í Víkurröst á Dalvík - sunnudaginn 15. sept. kl. 16. Þriðju tónleikarnir fara fram í Al- þýðuhúsinu á ísafirði - þriðju- daginn 17. sept. kl. 21. Síðan leikur hann í Norræna húsinu í Reykjavík fimmtudaginn 19. sept. kl. 20.30. Að ferðalokum leikur Philip Jenkins í Borgarbíói á Akureyri - laugardaginn 21. sept. kl. 17, en þeir tónleikar verða jafnframt fyrstu tónleikar á nýju starfsári Tónlistarfélags Akureyrar. í þessari ferð frumflytur Philip píanólög eftir Hafliða Hallgríms- son, en þau eru byggð á vel þekktum þjóðlögum, „Sofðu unga ástin mín“ og „Ljósið kem- ur langt og mjótt“. Hann leikur einnig sónötu í g-moll eftir Schu- mann, píanólög eftir Franz Liszt, Impromptu í Fís eftir Chopin og Chaconnu eftir Bach. sýnir átta filtpennateikningar sem teiknaðar eru á svartan pappír. Hann er einnig að góðu kunnur hér, því hann hefur m.a. haldið einkasýningu í Nýlista- safninu og f Ganginum ásamt fleiru. Stefan Szczesny sýnir tvær myndir unnar með blandaðri tækni. Thomas Stimm sýnir tólf gouache myndir er sýna eðlilegt og frjálslegt baðstrandalíf. Allir þessir listamenn hafa sýnt út um allan heim, bæði einkasýn- ingar og samsýningar, svo of langt mál yrði upp að telja. Það er þeim sameiginlegt að tengjast, eða verða afkomendur þess, sem hér hefur verið kallað „nýja mál- verkið“. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 22. sept. og er opin dag- lega frá kl. 16.00 til 20.00. Philip Jenkins 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.