Þjóðviljinn - 24.09.1985, Síða 1
24- DJÓÐVIUINH
219. tölublað 50. örgangur
AWNNUUF
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
MANNLÍF
Ríkisstjórnin
Söluskattur eða stjómarslit
Gífurleg óánœgja innanþingflokka ríkisstjórnarinnar með söluskattsáformin. Kæmitilframkvœmda
um áramótin. Höskuldur Jónsson: við gerum klártfyrirþingið. Félag íslenskra iðnrekenda mótmœlir
söluskattinum. Framsóknarþingmenn íhuga samráð við stjórnarandstöðu um stóreignaskatt.
Leiðari DVígœr: Hótun um stjórnarslit
Auknar líkur eru nú taldar á
því að fjárlagadæmið sé ekki
endanlega afgreitt fyrir næsta ár.
Ríkisstjórnin er ennþá þingbund-
in og fyrirhugaðar söluskatts-
hækkanir standa mjög í mörgum
þingliðum ríkisstjórnarinnar.
„Við miðum við að ganga frá
þessum málum þannig að hægt
verði að afgreiða þau á þingi fyrir
áramót“, sagði Höskuldur Jóns-
son ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu við Þjóðviljann í
gær.
„Einstaka niðurfellingar á
söluskattsundanþágum geta hins
vegar tekið gildi með reglugerð-
arbreytingum", sagði Höskuldur
enn fremur.
Starfsmenn fjármálaráðherra
undirbúa nú margvíslegar
breytingar á tollskrá og niðurfell-
ingu á undanþágum frá sölu-
skatti. Hækkun tolla og vöru-
gjalds á að gefa um 750 miljónir í
tekjur fyrir ríkissjóð og aukinn
söluskattur um 400 miljónir til
viðbótar þeim 400 miljónum sem
hækkun bensíngjalds skilar í rík-
issjóð.
Síaukins efa gætir nú í röðum
ýmissa þingmanna stjórnarflokk-
anna vegna þessara stórfelldu
skattaálaga, en meðal þeirra hug-
mynda sem fjármálaráðherra
gælir við er að leggja söluskatt á
ýmsa þjónustu þar á meðal lækn-
isaðstoð, dagblöð og blaðaút-
gáfu, tölvuútbúnað og hjólbarða
svo iítið eitt sé nefnt.
„Það skýtur skökku við að á
sama tíma og mikið er talað um
nauðsyn nýsköpunar og tækni-
framfara í íslensku atvinnulífi
skuli aðgerðir fyrirtækja á þessu
sviði skattlagðar", segir í bréfi
Félags íslenskra iðnrekenda
vegna hugmynda stjórnarinnar
um að afnema undanþágur frá
söluskatti. Nefna iðnrekendur
sérstaklega hugdettur um skatta
á tölvur og hugbúnað í þessu sam-
bandi.
Tœkniþróun
Gangandi
dráttarvél
Moskvu — Sovéskir vísindamenn
hafa búið til farartæki sem ætlað
er til notkunar í iandbúnaði og
hefur sex „fætur“ sem það
„gengur“ á í stað hjóla.
Það hefur lengi vafist fyrir vís-
indamönnum að búa til farartæki
sem getur gengið eins og maður-
inn og þar með komist yfir torfær-
ur sem venjulegum farartækjum
á beltum eða hjólum eru ófærar.
Eftir miklar rannsóknir komust
vísindamennirnir að því að best
færi á því að farartækið hefði sex
ganglimi. Nú er unnið að því að
gera það nógu sterkt til þess að
það þoli álag sem fylgir stöðugri
notkun í landbúnaði þar sem að-
stæður eru erfiðar.
- ÞH/reuter.
Framsóknarmenn eru alvar-
lega að íhuga að leggja fram
frumvörp um stóreignaskatt í
samvinnu við stjórnarandstöð-
una. Stefán Guðmundsson al-
þingismaður kveður menn í þessu
sambandi hafa óbundnar hendur.
f leiðara DV í gær er ummælum
Stefáns svarað með hótun um
stjórnarslit: „Beri framsóknar-
menn fram frumvörp um stór-
eignaskatt og knýi fram í sam-
stöðu við stjórnarandstöðuna má
telja að ríkisstjórnarsambandið
sé búið að vera“.
- íg./óg.
Guðrún Bachmann starfsmaður Listahátíðar kvenna: Stöðugur straumur fólks á Listahátíð kvenna. Ljósm.: E.Ol.
Listahátíð kvenna
Aðsókn með eindæmum góð
Troðfullt á leiksýningar, tónleika, Ijóðadagskrárog sýningar allskonar
Aðsókn á sýningar og dagskrár
Listahátíðar kvenna hefur
verið með eindæmum góð, sagði
Guðrún Bachmann, starfsmaður
hátíðarinnar.
Dagskráin úr verkum Jakobínu
Sigurðardóttur var frumsýnd
fyrir troðfullu húsi, fyrsta ljóða-
dagskráin Við vinnu var mjög vel
sótt, og sömu sögu er að segja um
frumsýningu á leikgerð Helgu
Bachmann á Reykjavíkursögum
Ástu Sigurðardóttur. Uppselt var
á aðra sýninguna og á þá þriðju
sem er í kvöld.
Sýningin á bókum og bóka-
skreytingum í Gerðubergi var
opnuð á sunnudag að viðstöddu
miklu fjölmenni. A Kjarvalsstaði
hefur verið stöðugur straumur
fólks bæði á sýninguna Hér og nú
og svo á tónleikana á sunnudag
þar sem voru flutt verk eftir ís-
lenskar konur. Á sýningu ís-
lenskra kvenarkitekta í Ásmund-
arsal hefur og fjöldi fólks lagt leið
sína.
Við viljum benda fólki á að allt
sem er í gangi í Gerðubergi er
ókeypis. Dagskráin úr verkum
Jakobínu verður flutt á Kjarvals-
stöðum á föstudag og sunnudag-
inn 29. í Gerðubergi. Fleiri sýn-
ingar á dagskránni hafa ekki ver-
ið bókaðar. Þriðja ljóðadagskrá-
in, Um trúna, verður í Gerðu-
bergi fimmtudaginn 26. og sú
fjórða, Um lífið, verður flutt 28.
september.
Listahátíð hefur látið gera veg-
lega möppu sem í eru allar sýn-
ingarskrár listahátíðar og kostar
hún 500 krónur og fæst á öllum
sýningarstöðum og í miðasölunni
á Vesturgötu 3. Sýningarskrárnar
eru fullar af myndum, upplýsing-
um og heimildum sem sumar
hverjar eru hvergi annars staðar
til. Sem dæmi má taka skrá yfir
fagurbókmenntaverk íslenskra
kvenna sem út hafa komið frá
1876 til ársloka 1984.
Miðasalan á Vesturgötu 3 er
opin milli kl. 15 og 18 og síminn er
19560 og starfsmaður Listahátíð-
ar er í síma 21500. - aró.
Ný sókn
Gæti skilað 25 miljörðum
Sigurjón Arason á námsstefnunni um helgina: Bylting í nýtingu afurðanna
gœtiskilað okkur tugmiljörðum á ári hverju. Glœsileg námsstefna
Iíslenskum sjávarútvegi er 120-
180 þúsund tonnum af úrgangi
fleygt árlega. Ef þetta yrði allt
nýtt til fóðurgerðar fyrir laxeldi
gæti þetta gefið okkur 25 milj-
arða í tekjur árlega, sagði Sigur-
jón Arason efnaverkfræðingur í
samtali við Þjóðviljann á sunnu-
daginn.
Sigurjón hélt erindi undir
heitinu „Vannýttir fiskistofnar -
melta og önnur fóðurfram-
leiðsla" á námsstefnu Alþýðu-
bandalagsins um nýja sókn í at-
vinnulífinu sem haldin var á
sunnudaginn.
í máli Sigurjóns kom einnig
fram að ef fslendingar sneru sér
að því í auknum mæli að nýta
fiskistofna eins og gulllax og kol-
munna væri hægt að auka útflutn-
ingstekjurverulega. Nánarigrein
verður gerð fyrir erindi Sigurjóns
í Þjóðviljanum síðar.
-gg-
Sjá hls. 5