Þjóðviljinn - 24.09.1985, Qupperneq 5
Sjávarútvegur
Tvífrysting
möguleiki
Alda Möller: Talsverður áhugi á tvífrystingu meðalforráðamanna ífiskiðnaði.
Stuðlar að samrœmingu veiða og vinnslu
„Það er talsverður áhugi hjá
forráðamönnum í flskiðnaði
fyrir tvífrystingu sjávarafla og
þær rannsóknir sem við höfum
gert eru reyndar gerðar að
beiðni íslenskra sölusamtaka.
Okkar rannsóknir hafa ein-
göngu beinst að gæðunum og
hafa leitt í Ijós að gæði hráefn-
islns minnka ekki við tvífryst-
ingu. Kostir tvífrystingar eru
aftur á móti afar margir“, sagði
dr. Alda Möller starfsmaður
Rannsóknarstofnunar fiski-
ðnaðarins í samtali við Þjóð-
viljann á sunnudaginn.
Tvífrysting sjávarafla er ekki
ný hugmynd. Alda benti á í erindi
sínu á námsstefnu Alþýðubanda-
lagsins, að fjölmargar rannsókmr
hefðu verið gerðar á sjöunda ára-
tugnum og bæði Bretar og Norð-
menn stunda þetta í nokkrum
mæli. Og að sögn Öldu hvöttu
niðurstöður erlendra rannsókna
til þess að sambærilegar rann-
sóknir færu fram hérlendis:
„Það er skoðun mín að frysti-
togarar ættu að snúa sér í auknum
mæli að heilfrystingu í stað þess
að fullvinna aflann um borð.
Margir hafa áhyggjur af fjölgun
frystitogara og víða er áhugi á að
sporna við þessari þróun með því
að taka upp tvífrystingu á fiski. í
tvífrystingu felst að fiskurinn er
heilfrystur um borð í veiðiskipi.
Uppþíðing, frekari vinnsla og
endurfrysting fer síðan fram í
landi með þeim afköstum er hver
vinnslustöð kýs, því að fryst hrá-
efnið liggur ekki undir skemmd-
um.
- Nú er kostnaður við að koma
upp frystibúnaði í togurum gífur-
legur. Eru engar aðrar leiðir til
að koma þessari hugmynd í fram-
kvæmd?
„Rannsóknir okkar hafa eink-
um miðast við að heilfrysta
fiskinn skömmu eftir að hann er
veiddur, þ.e.a.s. um borð í fiski-
skipinu. En nú eru fyrirhugaðar
hjá okkur rannsóknir á áhrifum
tvífrystingar á fisk sem geymdur
hefur verið nokkra daga í ís er
hann berst til frystihúsanna.
Alda Möller: leggja verður mesta óherslu á gæði fisks næstu árin.
Ljósm.: Ari.
Markmið okkar er að komast að
því hvort gæðalegur grundvöllur
er fyrir slíkri vinnslu og sé svo er
það auðvitað mun heppilegri
lausn þar sem hún krefst ekki eins
mikilla fjárfestinga."
Hollustuvara
Tvífrysting gerir meira en að
samræma veiðar og vinnslu og
stuðla að auknum gæðum þeirra
afurða sem við nú þegar flytjum
út. Möguleikarnir á að þróa vör-
una enn frekar og fara út á nýjar
brautir eru að sögn óldu fjöl-
margir. Hún sagði m.a. í erindi
sfnu á sunnudaginn:
„Ég nefndi áðan að tvífrysting
skapaði aukna möguleika á
fullvinnslu fiskafurða. Flestir
skynja með orðinu fullvinnsla að
f því felist skurður á fiskblokkum
og húðun fiskstykkja með deigi
eða raspi. Þetta er hins vegar tak-
markaður skilningur á orðinu og
að mínu mati eru mun meiri
möguleikar á fullvinnslu hér-
lendis fólgnir í að auka hlutfall
hæstu gæðaflokka afurða, bæði
Alþýðubandalagið
Glæsileg námsstefna um nýja sókn
Fjöldiframsöguerinda um nýja möguleika í íslensku
atvinnulífi. Glœstframtíð efrétt verður á málum haldið
Alþýðubandalagið gekkst á
sunnudaginn fyrir námsstefnu
um nýja sókn í atvinnulífinu.
Þar voru flutt 16 erindi um hin-
ar ýmsu greinar atvinnulífsins
á íslandi, bæði þær hefð-
bundnu sem og atvinnugrein-
ar sem íslendingar eru að stíga
sín fyrstu spor í.
Flytjendur vor menn og konur
úr öllum stjórnmálaflokkum, en
áttu það sammerkt að þekkja ís-
lenskt atvinnulíf út í ystu æsar,
hver á sínu sviði. Margir flytj-
enda höfðu fram að færa niður-
stöður úr nýlegum könnunum
sem gerðar hafa verið á vegum
hins opinbera og ýmissa stofnana
og hagsmunasamtaka, og spjót-
unum var aðallega beint að fram-
tíðinni: hvernig eigum við að
haga uppbyggingu atvinnulífsins í
framtíðinni? Námsstefnan var vel
sótt og námsstefnugestir sann-
færðust um að framtíð íslensks
atvinnulífs er glæst ef rétt er á
málum haldið.
Þjóðviljinn mun greina ítar-
legar frá þessari ágætu náms-
stefnu síðar.
Námsstefnugestir hlýða á einn
hinna fjölmörgu fyrirlestra sem
fluttir voru á sunnudaginn.
Ljósm.: Ari.
Þriðjudagur 24. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 5