Þjóðviljinn - 24.09.1985, Qupperneq 7
Reykjavík
Blómstrandi
kaffihúsa-
menning
Um þessar mundir blómstra kaffihúsin. Ný
kaffihús hafa sprottiö upp og sum þeirra eldri
fá sér nýjan búning. Kaffihúsin eru helsti
stefnumótsstaðir unga fólksins. Þjóðviljinn
leit inn á nokkur kaffihús bæði gömul og ný
m.a. til að forvitnast lítillega um það hvaða
hópar sækja hvern stað.
SA
Skeifan. Verkamennirnir á höfninni fá sér kaffisopa í Skeifunni og sumir hafa
komið reglulega í 15 ár. Ljósm. E.ÓI.
Kaffistofan Skeifan
við T ryggvagötu
í þessu húsi var fyrst báta-
viktin og í turninn átti að setja
klukku en það varð ekkert út
því, sagði eigandi Skeifunnar
um þetta sérkennilega litla
hús við höfnina. „Hingað
koma aðallega verkamenn af
höfninni, á sumrin eru hér
margir útlendingar og svo er
þó nokkuð um heilu skips-
hafnirnar hér. Þetta hús var
byggt upp úr stríðinu og marg-
ir af fastagestunum hafa kom-
ið hingað undanfarin 15 ár.
Við opnum kl. 7 á morgnana
og þá er heilmikið að gera í
Skeifunni.“
SA
Inga og Vallý, fastagestir á Cafó Gesti:
Hingað kemur mikið af nýbylgjuliði. Ljósm. Sig.
Rósa lengst til hægri: Ég kem ekki oft hingað því ég drekk kaffið bara heima hjá mér. Slgrún og Anna Soffía:
„Við erum fastagestir. Komum hingað tvisvar á dag, því við erum í Flokki mannsins og við stefnum fólki hingað í
spjall." Ljósm. Sig.
Mokka
á Skólavörðustíg
Þeir gestir sem Þjóðviljinn fyrir hvern viðskiptavin. Einn skemmtilegt í menningarlíf-
talaði við á Mokka voru sam- fastagestur á Mokka Sveinn inu,“ sagði Sveinn. Mikið af
mála um að það sem laðar fólk Rafnsson sagði að á Mokka fólki kemur á Mokka á kvöld-
að staðnum er alveg sérstak- kæmi mikið af listafólki. in t.d. eftir bíó því opið er til
legagottMokkakaffiogkakó. „Hingað kemur allt það fólk kl. hálftólf. Kaffibollinn kost-
Hver kaffibolli er sérlagaður sem er að gera eitthvað ar 55 kr.
Prikið. Sumt fólk kemur ár eftir ár. Ljós. E. Ól.
Veitingastofan Prikið
við Bankastræti
Starfsstúlkurnar á Prikinu „Sumir koma ár eftir ár og eru umupúr7oghéreralltaffullt,
sögðu á þessum stað væri búið hættir að panta, við vitum nú- líklega vegna þess að það er
að reka kaffistofu í 30 ár. orðiðhvaðþeirvilja. Viðopn- svo gott hjá okkur kaffið“.
Bollinn kostar 40 kr.
Café Gestur við Laugaveginn
Café Gestur er tiltölulega
nýr staður. Hann er nýtísku-
lega innréttaður og var það
samróma álit þeirra gesta á
Gesti sem Þjóöviljinn ræddi
við að mikið skemmtilegra
væri að fara á kaffistaði sem
væru dálítið smart. Kaffiboll-
inn kostar 50 kr.
Inga og Vallý eru fastagestir
á Café Gesti. „Við komum
hingað því þessi staður er mið-
svæðis og hér er fólk á okkar
aldri þ.e. um og yfir tvítugt.“
Hvernig fólk kemur hingað
aðallega?
„Á kvöldin og seinni part
dags er hér mikið af nýbylgju-
gengi, þessi staður hefur ný-
bylgjustíl yfir sér,“ sögðu þær
Inga og Vallý.
Þriðjudagur 24. september 1985 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7