Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 1
19
október
1985
laugar-
dagur
241. tölublað 50. örgangur
DJÖÐVIUINN
HEIMURINN
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Verslanahallir
Gríðarleg offjárfesting
Verslunarrými íReykjavík helmingi meira á hvern íbúa en ístórborgum nágrannalandanna.
Sigurður E. Haraldssonform. Kaupmannasamtakanna: Erum að reisa okkur hurðarás um öxl.
Langtífrá þörfá öllu þessu verslunarhúsnæði
ormaður Kaupmannasamtak-
anna telur að það sé Iangt í frá
þörf á öllu því verslunarhúsnæði
sem reist hefur verið á undan-
förnum árum. Eins og komið hef-
ur fram í fréttum Þjóðviljans
runnu um 2,3 miljarðar úr bank-
akerfinu til verslunarinnar sl. 12
Þessar litlu hnátur verða orðnar sextugar þegar þjóðarbókhlaðan verður loksins reist eftir 56 ár. Kannski þeim verði þá boðið að vera við opnunina sem
fulltrúum ellilífeyrisþega? Mynd E.ÓI.
Pjóðarbókhlaðan
Tilbúin eflir 56 ár?
Ráðstefna um Þjóðarbókhlöðuna á laugardag.
Afjárlögum fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir 5 milljónum til
Þjóðarbókhlöðunnar sem gnæfir
hálfreist og gagnslaus yfir leifum
Melavallarins í Reykjavík. Verði
framtíðarfl árveitingar til hússins
með sama örlætisbrag má búast
við að framkvæmdum Ijúki árið
2041.
Þessar upplýsingar koma fram
í fundarboði frá Bókavarðafélagi
íslands sem í tilefni aldarfjórð-
ungsafmælis gengst fyrir ráð-
stefnu um Þjóðarbókhlöðuna á
morgun í hátíðarsal Háskólans.
Húsið hefur nú verið sjö ár í
smfðum, en upphafsár í þróunar-
sögu hins nýja bókasafns má telja
árið 1957 þegar alþingi ályktaði
að steypa ætti saman Landsbók-
asafni og Háskólabókasafni.
Frá upphafi til 1985 hefur um
170 milljónum núkróna verið
veitt til bókhlöðunnar, en enn
þarf um 277 milljónir til að ljúka
verkinu. Með sömu framvindu
yrði safnið tilbúið árið 2002, en
með fjárveitingum á borð við
fjárlög næsta árs ekki fyrren 2041
einsog áður segir.
Ráðstefnan á morgun hefst kl.
13.20. Þar verða flutt sjö erindi
um Þjóðarbókhlöðuna frá ýmsu
sjónarhorni, og síðast setjast átta
bókamenn og stjórnmálamenn
að pallborði. Á meðal þátttak-
enda í þeim umræðum eru há-
skólarektor, landsbókavörður,
háskólabókavörður, arkitektar
hússiris, Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður og Ragnhildur
Helgadóttir fyrrverandi mennta-
málaráðherra.
mánuði á sama tíma og tæpur
miljarður fór til undirstöðuat-
vinnuvegs þjóðarinnar, sjávarút-
vegs.
„Ég held að verslunin sé að
lenda ofan í sama pyttinum eins
og útgerðin á sínum tíma. Menn
eru að reisa sér hurðarás um öxl
og ekki lagast það, þegar og ef
allt það kemst í notkun sem nú er
í smíðum," sagði Sigurður E.
Haraldsson formaður Kaup-
mannasamtakanna í samtali við
Þjóðviljann aðspurður um of-
fjárfestingu verslunarinnar.
Á síðustu tveimur áratugum
jókst verslunarrými í Reykjavík
um rúmlega helming eða úr 150
þús. ferm. í 330 þús. ferm. Á yfir-
standandi ári og næstu árum er
talið að fermetrafjöldinn aukist
enn verulega og verði kominn í
um 400 þús. innan fárra ára.
Þetta gerir um 4 ferm. af verslun-
arrými á hvert mannsbarn í
Reykjavík en það er helmingi
meira rými en þekkist í öllum
helstu stórborgum í nágranna-
löndum okkar.
____________ -lg
Sjá fréttaskýringu um versl-
unarhallir og fjáraustur
bankakerfisins til verslunar
í Sunnudagsblaði. bls. 7
Suður-Afríka
Takmarkaðar
refsiaðgerðir
Utanríkisráðherrar Norð-
urlanda gáfu í gær í Osló út sam-
eiginlega yfirlýsingu um að þeir
myndu banna nýjar fjárfestingar í
Suður-Afríku, innflutning
gullmyntarinnar Krugerrand, út-
flutning á tölvum og skyldum
vörum og banna allar lánveiting-
ar norrænna banka, þmt. þátt-
töku þeirra í alþjóðlegum lán-
veitingum, til Suður-Afríku.
Einnig verða öll innkaup ríkis-
stofnana frá Suður-Afríku stöðv-
uð. - ÞH/Reuter
Sjá bls. 13-14.
BSRB þingið
Sjálfstæðisflokkurinn á fullu
Haraldur Hannessonformaður StarfsmannafélagsReykja víkur býður sigfram gegnflokksfélaga
sínum Albert Kristinssyni. Flokksforysta Sjálfstœðisflokksins komin ímálið. „Haraldur á möguleika1
Haraldur Hannesson formaður
Starfsmannafélags Reykja-
víkur hefur lýst yfir því, að hann
ætli að bjóða sig fram til fyrsta
varaformanns BSRB á þingi
Bandalagsins í næstu viku gegn
Albert Kristinssyni núverandi
varaformanni. Báðir eru yfirlýst-
ir Sjálfstæðismenn, en greinir
mjög á um leiðir í verkalýðsbar-
áttu. Forysta Sjálfstæðisflokksins
hefur hafið afskipti af þessum
málum innan verkalýðssamtak-
anna.
Varaformenn BSRB eru tveir,
fyrsti og annar, og venjan hefur
verið sú, að fyrsti varaformaður
komi frá bæjarstarfsmönnum, en
annar frá ríkisstarfsmönnum.
Önnur hefð í Bandalaginu er að
fyrsti varaformaður komi frá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar, en Albert Kristinsson
braut þá hefð síðast þegar kosinn
var varaformaður, en hann var þá
formaður Starfsmannafélags
Hafnarfjarðar. Nú hyggst Har-
aldur vinna þetta embætti til
höfuðborgarinnar aftur.
„Það stefnir allt í harða kosn-
ingabaráttu á þinginu, því það er
mikill ágreiningur á milli þessara
manna, eins og kom berlega í ljós
í samningunum í fyrra vetur.. Al-
bert hefur stuðning stóru félag-
anna utan Reykjavíkur og ég hef
ekki trú á að Haraldur eigi mögu-
leika á að velta honum. Það er
almenn óánægja með Harald
vegna framkomu hans í kjarabar-
áttunni í fyrra vetur,“ sagði einn
fulltrúa á komandi þingi f samtali
við Þjóðviljann í gær.
Flokksforystu Sjálfstæðis-
flokksins stendur ekki á sama um
þessa baráttu Alberts og Har-
alds. Heimildir Þjóðviljans
herma að á föstudaginn í síðustu
viku hafi Þorsteinn Pálsson for-
maður flokksins kallað þá félaga
á fund og reynt að fá annan hvorn
til að falla frá framboði. Það mun
hafa verið borin von hjá for-
manninum, því enn munu báðir
ætla fram. gg