Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 2
____________________________FRÉTTIR_____________
Kvennafrí
Bjartsýnar á þátttökuna
5 listsýningar kvenna opnaðar á Akureyri. Samfelld dagskrá
allan 24. október. Mikill hugur í konum
Hugmyndin hlaut í fyrstu mis-
jafnar undirtektir. Síðustu
dagana hefur henni aukist mjög
fylgi og við erum mjög bjartsýnar
á þátttöku, sagði Elín Stephensen
kennari á Akureyri. Hún hefur
ásamt félögum úr öllum stéttarfé-
lögum og stjórnmálafélögum á
staðnum undirbúið 24. október á
Akureyri, en þar hafa konur ver-
ið hvattar til að leggja niður
vinnu allan daginn.
Fimmtudaginn 24. október
verður samfelld dagskrá allan
daginn og langt fram á kvöld í
Alþýðuhúsinu nýja. í>ar blandast
saman skemmtidagskrá, kynning
á stærstu stéttarfélögum kvenna,
umræða um kjör kvenna og sagði
Elín að ætlunin væri að reyna að
sameinast um ályktun um þau
efni. Einnig verða kynnt úrslit í
ljóða- og smásagnasamkeppni
Sem efnt var til af þessu tilefni,
fluttir leikþættir og ræður hald-
nar.
„Við höfum hvatt konur ein-
dregið til að taka sér frí frá störf-
um þennan dag og ræða sín kjara-
mál,“ sagði Elín, „og í Degi í dag
birtist stór auglýsing frá helstu at-
vinnurekendum í bænum og for-
ystumönnum stærstu stéttarfé-
laganna, sama efnis.“
í dag verða í tilefni loka
kvennaáratugar opnaðar 5 list-
Flugfreyjur
Líkur á verktalli
Nýr sáttafundur á mánudagsmorgun.
Verkfall boðað á miðnætti þriðjudag.
Margrét Guðmundsdóttir form.
Flugfreyjufélagsins: Sýnist ástandið
ansi dapurt
Töluverðar líkur eru til þess að
til verkfalls flugfreyja hjá
Flugleiðum komi á miðnætti á að-
fararnótt miðvikudags n.k. en
sáttafundir hafa ekki borið neinn
árangur ennþá. Ríkissáttasemj-
ari hefur boðað til nýs sáttafund-
ar með deiluaðilum kl. 10 árdegis
á mánudag.
„Mér sýnist ástandið ansi dap-
urt og það þarf mikið að gerast
svo deilan leysis fyrir boðað verk-
fall,“ sagði Margrét Guðmunds-
dóttir formaður Flugfreyjufé-
lagsins í samtali við Þjóðviljann í
gær. Komi til verkfalls fellur nið-
ur allt flug hjá Flugleiðum bæði
innanlands og utan.
Áætlunarflug hjá Arnarflugi
mun hins vegar halda áfram, þar
sem ekki hefur verið boðað verk-
fall á flugfreyjur félagsins. Að
sögn Margrétar standa yfir við-
ræður við forráðamenn Arnar-
flugs og eru þær skammt á veg
komnar.
„Við erum fyrst og fremst að
fara fram á viðurkenningu á okk-
ar vinnutíma auk þess að fá greitt
vaktaálag. Flugleiðamenn hafa
ekkert þokast nær okkar kröfum
ennþá og við höfum heldur ekki
slegið neitt af,“ sagði Margrét
Guðmundsdóttir.
-*g-
sýningar kvenna á Akureyri:
þrjár samsýningar á myndlist sem
um 30 konur taka þátt í, einka-
sýning Rutar Hansen og handa-
vinnusýning. Þeim Iýkur 24. okt-
óber og verður tónlistarflutning-
ur og ljóðalestur á sýningarstöðu-
num. Þá verður á morgun, sunn-
udag haldin sýning á verkum
eyfirsku skáldkonunnar Kristínar
Sigfúsdóttur í Hrafnagilsskóla.
Hún verður aðeins opin þennan
eina dag.
-ÁI
Þeir vélsalta í plasttunnur hjá Haraldi Böðvarssyni &Co. á Akranesi, fyrir
gyðingana í New York, segja þeir. Mynd. Sig.
TORGIÐ,
KannsKi getur barnabarna-
barnið mitt notað Þjóðarbók-
hlöðuna?
Akranes
Sfldin
komin
Skírnir AK16 kom í
vikunni með 140 tonn
afhreinustu
demantssíld sem
fékkst í einu kasti
Sfldarvertíðin er hafin á Akra-
nesi. Á miðvikudaginn kom
Skírnir AK 16 inn með 140 tonn
af stórri og feitri sfld sem þeir
höfðu fengið í Isafjarðardjúpi á
aðfararnótt þriðjudagsins.
„Við fengum þetta í einu
kasti,“ sagði Árni Aðalsteinsson
stýrimaður á Skírni. Árni sagði
að það væri mikil sfld þarna núna
og þeir færu strax aftur.
Sfldarsöltun var í fullum gangi
hjá Haraldi Böðvarssyni & Co.
og sagði Guðmundur Sveinsson,
verkstjóri að þegar best léti af-
kö.stuðu þau rúmlega 100 tunnum
á klukkustund þar sem þeir væru
búnir að vélvæða söltunina. „Sig-
urborgin kom hér inn með síld á
sunnudaginn síðasta en það var
bara prufukeyrsla. Nú erum við
að byrja fyrir alvöru.“ Og þar
með var hann rokinn.
IH
Húshjálp óskast
til almennra heimilisstarfa, virka daga eftir samkomu-
lagi. Uppl. í síma 53758.
Styrkir til náms
í Sambandslýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir
handa íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi á námsárinu 1986-
87.
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu
hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið
1986. Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs há-
skólanámi og hafa góða undirstöðukunnáttu í
þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknarstarfa um allt að fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykajvík, fyrir 22.
nóvember n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
17. október 1985.
Landsvirkjun
2.5 miljarða lántaka
872 miljónirfara íframkvœmdir íár. Afgangurinn til að greiða upp
eldri skuldir
Landsvirkjun tók í gær scxtíu
niiljón dollara lán sem
reiknast á núverandi gengi 2491
miljón íslenskra króna. Stærstan
hlut lánsins á að nota til að greiða
upp eldri og óhagstæðari lán eða
1619 miljónir króna en 872 milj-
ónum verður varið til fram-
kvæmda í ár.
Það voru þeir Halldór Jónat-
ansson forstjóri og Jóhannes
Nordal Seðlabankastjóri sem
undirrituðu víxilinn í London.
Lánið er tekið með opinberri
skuldabréfaútgáfu í London og er
lánstími 15 ár. Vextir eru sk. sex
mánaða millibankavextir í Lond-
on eins og þeir eru á hverjum
tíma að viðbættu vaxtaálagi.
Vextirnir í dag eru 8.4%.
-v
Ráðstefna
Fjárlögin skeggrædd
Forystumenn ASÍog VSÍá opinni ráðstefnu
umfjárlög nœsta árs og efnahagsstefnu
stjórnarinnar
Félag viðskiptafræðinga og
hagfræðinga hefur boðað til
ráðstefnu um nýframlögð fjárlög
ríkisstjórnarinnar og efnahags-
mál á þriðjudaginn kemur. Þor-
steinn Pálsson fjármálaráðherra
flytur ávarp og Magnús Péturs-
son hagsýslustjóri fjallar um fjár-
lög fyrir næsta ár auk þess sem
hagfræðingarnir Þór Einarsson,
Ásmundur Stefánsson forseti ASI
og Vilhjálmur Egilsson form.
SUS og starfsmaður VSÍ munu
segja álit sitt á fjárlögunum.
Að loknum framsöguerindum
verða pallborðsumræður með
þátttöku þeirra Björns Björns-
sonar hagfræðings ASÍ, Harðar
Sigurgestssonar forstjóra Eim-
skips, Sigurður B. Stefánssonar
hjá Kaupþingi, Þorvalds Gylfa-
sonar prófessors og Sigurðar R.
Helgasonar forstjóra Björgunar
h/f. Umræðustjóri verður Þórður
Friðjónsson efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra.
Ráðstefnan verður í Súlnasal
Hótel Sögu og hefst kl. 13.45._jg,
Félagsmiðstöðvar
Nýir for-
stöðumenn
Tvcir nýir forstöðumenn hafa
verið ráðnir til félagsmiðstöðva
Æskulýðsráðs Reykjavíkur og
var gengið frá ráðningu þeirra í
borgarráði fyrir skömmu.
Jónas Kristinsson var ráðinn til
Þróttheima. Hann er fæddur árið
1960, hefur unnið í Fellahelli sl.
ár og nýkominn frá námi í Gauta-
borg. Tómas Ó. Guðjónsson var
ráðinn til nýrrar félags-
miðstöðvar við Frostaskjól.
Hann er fæddur árið 1959, lauk
nýlega námi frá HÍ í líffræði.
Hann hefur unnið hjá Æskulýðs-
ráði frá 1977.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. október 1985