Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 15
Minning Anna Runólfsdóttir frá Fáskrúðsfirði Fœdd: 12. júlí 1900. Dáin: 12. okt. 1985 Komin eru leiðarlok langrar og farsællar ævigöngu. Kær tengda- móðir mín hefur kvatt okkur. Til hennar kom dauðinn með líkn og lausn frá þjáningum, þráðan frið. Henni er nú heitum muna þökkuð mæt samfylgd frá fyrstu kynnum. Hún hafði sannarlega lært að kenna á lífsins reynslu, en æðru- leysi, rósemi og einlægt trúar- traust hjálpuðu henni að yfirstíga erfiðleika og áföll og veittu henni innra þrek og glaða og ljúfa lund alla ævitíð. Heilsa hennar varð fyrir alvar- legu áfalli á besta aldri hennar, fyrir nær þrem áratugum varð hún að sjá á bak atorku- og um- hyggjusömum eiginmanni, yngri son sinn missti hún sviplega frá sér og nú síðustu árin höfðu tvær dætur hennar kvatt lífið eftir erf- iða sjúkdómsbaráttu. í ellinni varð hún sjálf fyrir slysum og eftir beinbrot og aðgerð í fyrra náði hún sér aldrei. í ljósi þessa alls mætti ímynda sér, að ekki hefðu bjartsýni og lífsgleði verið förunautur hennar, en svo var þó svo sannarlega. Þessir eðliskostir fóru saman við mikla hlýju og kærleik til sinna, sáttfýsi við náungann og um- hverfi allt. Hún barst aldrei á, fór ekki með neinni háreysti, en hetjulund átti hún ærna. Hún var fædd 12. júlí árið 1900 á Klöpp, Reyðarfirði. Foreldrar hennar voru hjónin Jónína Ein- arsdóttir frá Fjallsseli í Felia- hreppi og Runólfur Jónsson frá Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu. Hún ólst upp með foreldrum sín- um og síðar móður sinni á ýmsum stöðum austanlands. 18 ára fer hún að Eyri við Fáskrúðsfjörð og tvítug gengur hún í hjónaband með Þóroddi Magnússyni frá Víkurgerði í Fáskrúðsfirði og þar búa þau allt til ársins 1945 að þau flytjast inn í kauptúnið að Búð- um. Mann sinn missti Anna 1956, en bjó áfram á Búðum með böm- um sínum og um tíma ein þar eystra. Hingað suður fer hún svo alfarin árið 1976 og er hjá dætrum sínum allt þar til fyrir þrem áram að hún fór á Hrafnistu, þar sem hún dvaldi til æviloka. Böra þeirra Pórodds, sem upp komust: Málfríður, látin, hennar maður var Jóhann Þórlindsson; Skafti búsettur á Fáskrúðsfirði, hans kona er Kristín Þórlinds- dóttir; Jónína, látin, hennar mað- ur var Aðalsteinn Tryggvason; Sigfríð búsett í Reykjavík, Jó- Sagnasafn Guðjóns Albertssonar Skákprent hefur gefiö út bók eftir Guðjón Albertsson sem nefnist Uppreins í garðin- um. Hér er um að ræða sex stuttar sögur sem allar gerast á íslandi nútímans og „fjalla um sígild og sammannleg efni, séð af nýjum sjónarhól" eins og segir í bókarkynningu. Þetta er þriðja bók Guðjóns Albertssonar. Fyrsta bók hans var skáldsagan Osköp sem út kom hjá Almenna bókafélaginu 1971 en önnur bókin var sagna- safnið Breiðholtsbúar sem út kom 1979 og hlutu bækurnar góð- ar viðtökur. hanna, búsett á Reyðarfirði, gift undirrituðum; og Bjöm, látinn. Ekki verður ævisaga hennar rakin hér, en hún var hlutskipti sínu trú sem húsmóðir og móðir og gerði svo sannarlega skyldu sína. Það er klökkvi í muna ástvina hennar nú á kveðjustund, þökkin hugarheit ræður ríkjum ofar öðru, þökk fyrir alúðarfullt ást- ríki og umhyggjusaman kærleik alla tíð. Móður og ömmu eru sendar ástúðarkveðjur við ieiðar- lok með hjartahlýrri þökk fyrir allt og allt. Margt afburðagott á ég henni að þakka, þá gjöf, sem þar er dýrst, fæ ég aldrei endurgoldið. Heilsteypt og hugumprúð heiðurskona er kvödd með þakk- læti og virðingu. Minning hennar mun lifa með okkur, sem áttum hana að. Blessuð sé sú munarbjarta minning. Helgi Sefjan. Norrœna húsið Tónleikar í d-moll Á mánudagskvöld kl. 20.30 halda Szymon Kuran fiðluleikari og Marc Tardue píanólcikari tón- leikari í norræna húsinu. Á efnisskránni er Partita fyrir einleiksfiðlu eftir Bach, píanós- ónata eftir Beethoven og sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir Brahms og Finn Torfa Stefánsson. Öll þessi verk eru í d-moll og segir Szymon Kuran að sér finnist d- moll tilheyra haustinu. Miðar verða seldir við inn- ganginn. fillllU þegar vöxturinn er hraður * Mjólk: nýmjólk, léttmjólk, undanrenna eða mysa. Unglingar verða að fá uppbyggilegt fæði vegna þess hve vöxtur þeirra er hraður á tiltölulega fáum árum. Þar gegnir mjólkurneysla mikilvægu hlutverki, því án mjólkur og kaiksins sem í henni er ná unglingarnir síður fullri hæð og styrk. Komið hefur í Ijós að kalkneysla unglinga er oft undir því marki sem ráðlagt er og getur þeim því verið sérlega hætt við hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts síðar á ævinni. Sérstaklega eru stúlkur í hættu því konum er 4-8 sinnum hættara við beinþynningu en körlum eftir því sem rannsóknir Mjólk í hvert mál benda til. Ófullnægjandi mataræði og kalklitlir megrunarkúrar eru því miður oft einkenni á neysluvenjum stúlkna í þessum aldursflokki. Tvö mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk- skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki býður hættunni heim. Það er staðreynd, sem unglingar og foreldrar þeirra ættu að festa í minni, því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur dýrmætur. Helstu hetmikfn Bæklingurinn Kalk og beinþynning eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutrition and Physical Fitness, 11. útg., eftir Briggs og Calloway, Holt Ránhardt and Winston, 1984. Aldurshópur Ráðlagður dag- skammtur af kalki í mg Samsvarandi kalk- skammtur f mjólkur glösum (2,5 dl glösf Lágmarks- skammtur f mjólkurglösum (2,5 dl glös)* Börn 1-10ára 800 3 2 Ungiirtgar 11 -18 ára 1200 4 3 Ungt fólk og fulloröið 800 ★ ★★ 3 2 Ófrískarkonurog 1200 ★★★★ 4 3 ★ Hér er gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki komi úr mjólk. ★★ Að sjálfsögðu er mögulegt að fá allt kalk sem llkaminn þarf úr öðrum matvælum en mjólkurmat mjólk, en slíkt krefst nákvæmrar þekkingar á næringarfræði. Hér er miðað við néysluvenjur eins og þær tíðkast f dag hór á landi. ★ ★★ Margir sórfræðingar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tlðahvörf só mun meiri eða 1200-1500 mg á dag. ★ ★★★ Nýjustu staðlarfyrir RDS (Bandarlkjunum gera ráðfyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp. Mjólkinniheldur meira kalk en nær allar aðrar fæðutegundir og auk þess B-vítamín, A-vítamín, kalíum, magníum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar likaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tæplega 1 % er uppleyst í líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamín, sem hann fær m.a. með sólböðum og úr ýmsum fæðutegundum t.d. lýsi. Neysla annarra fæðutegundaen mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Ur mjólkurmat fæst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk. Mé i-íl MJÓLKURDAGSNEFND

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.