Þjóðviljinn - 08.11.1985, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 08.11.1985, Qupperneq 1
FISKIMÁL GLÆTAN ÍÞRÓTTIR HEIMURINN Sjúkdómar Refaræktinni stefnt í voða íslenskur villirefur notaður til kynblöndunar á aliref. íslenski villirefurinn haldinn veirusýki sem veldur lifrarbólgu. Refabœndur taka mikla áhœttusegja sérfrœðingar Með því að nota villirefinn ís- lenská til kynblöndunar við aliref, jafnvel aðeins það að láta þá ganga saman í búri, taka ís- lenskir refabændur mikla Óvœnt Æ, hvernig leit hann út? Melbourne — Evelyn Stewart, þriggja barna móðir og heima- vinnandi í Melbourne í Ástralíu, fékk óvæntan glaðning með póst- inum nú í vikunni. Hann bar henni bréf þar sem sagði að Evel- yn hefði erft eignir og lausafé að upphæð rúmlega 4 miljónir króna. Sá sem hugsaði svo hlýtt til Evelyn á banastundinni var ein- búi nokkur, Laurie Delaney, sem með þessu vildi þakka henni fyrir að dansa við sig á balli fyrir 45 árum. Arfleiddi hann Evelyn að bóndabæ sínum sem metinn er á 2,6 miljónir króna og 1,5 miljón- um króna á bankareikningum. Evelyn sagði að kynni þeirra hefðu verið afar lausleg. „Við hvorki föðmuðumst né kysst- umst, það var engin rómantík í þessu,“ sagði hún og bætti því við hversu mikið sem hún reyndi gæti hún ekki komið því fyrir sig hvernig Laurie leit út. Hún sagðist ætla að nota pen- ingana til að breyta býlinu í dval- arstað fyrir dauðvona börn. -ÞH/reuter Pórshöfn Loðnuverk- smiðja næsta haust Hraðfrystistöðin á Þórshöfn áformar að endurbyggja gamla beinaverksmiðju í þorpinu og hefja framleiðslu gufuþurrkaðs mjöls sem heppilegt er í laxa- og loðdýrafóður. Áætlað er að verksmiðjan geti tekið til starfa næsta haust og afkastað 500-600 tonnum á sólarhring. -gg Fiskimál Ráðherra í órétti Hinn kunni dálkahöfundur Þjóðviljans, Jóhann J.E. Kúld, skrifar í blaðinu í dag grein um aðför sjávarútvegsráðherra að Ríkismati sjávarafurða og vitnar hann þar m.a. í álitsgerð Sigurðar Líndal prófessors í lögum þar sem fram kemur efi um að löglegt sé að fela öðrum en Ríkismatinu yfirmat sjávarafurða til útflutn- ings. - Þessi grein Jóhanns átti að birtast í blaðinu í gær en af óvið- ráðanlegum orsökum gat hún ekki birst fyrr en í dag. Sjá bls. 5. áhættu. Ástæðan er sú, að ís- lenski villirefastofninn er sýktur af veiru sem veldur heilabólgu í refum. Alirefurinn er svo til laus við þessa veiru, aðeins eitt tilfelli hefur fundist hér á landi og það bú er í einangrun. Nokkrir refa- bændúr hafa ekki viljað hlusta á varnaðarorð í þessu máli og nota villiref til kynblöndunar í von um að fá fram stofn með sérstökum feldi, sem er í háum verðflokki. En það tekur í það minnsta 2-3 ættliði að ná fram þeim feldi og þá eiga þeir á hættu að allur refa- stofn þeirra sé orðinn sjúkur. Þetta kom fram í samtali sem Þjóðviljinn átti við þá Stefán Að- alsteinsson hjá RALA og Eggert Gunnarsson dýralækni á Keld- um, en þeir eru að rannsaka þetta mál. Eggert sagði að veiran hefði lýst sér sem lifrarbólga í hundum, en hér áður sem heilabólga í refum, en nú hin síðari ár hefði hún einnig valdið lifrarbólgu í refum. Hann sagði það mjög áhættusamt að taka villireflnn inní refabúin, vegna þess að grunur léki á að hann væri hald- inn enn fleiri sjúkdómum, en litl- ar rannsóknir hefðu farið fram á villirefnum hér á landi. f vor er leið var 120 villiyrð- lingum safnað saman á Möðru- völlum í Hörgárdal og þar kom fram að veiran sem veldur lifrar- og heilabólgu í refum er til stað- ar. Af þeim dýrum sem smitast deyja á bilinu 10% til 40%, hinir sem lifa sjúkdóminn af verða áfram smitberar en sjúkdómur- inn er ólæknandi. Mesta hættan felst í því að dýr sem eru smitber- ar smiti nýfædda yrðlinga, sem aftur þýðir það að menn lenda í því ár eftir ár að missa þetta 10% til 40% af þeim yrðlingum sem fæðast. -S.dór Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins flytur ræðu sína í gær fyrir troðfullu Austurbæjarbíói. Ljósm.: E.ÓI. Landsfundur AB Vísum bjartsýn til nýirar aldar Landsfundur AB settur ígœr. Svavar Gestssonformaður AB: Undirstrikum samstöðuna. Mótumskýrsvörviðkröfum dagsins. Búumfólkinubjartaframtíð. Ungtfólk skapi sjálft forsendur hins nýja þjóðfélags. Verkefni Landsfundarins eru að undirstrika samstöðu Al- þýðubandalagsins um stefnu okk- ar - að móta skýr svör og hvöss við kröfum dagsins - að afhjúpa blekkingar gróðahyggjunnar, að sýna hvernig framtíð við viljum búa fólkinu í landinu, framtíð sem vísar bjartsýn og baráttuglöð til nýrrar aldar,“ sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins m.a. í setningará- varpi sínu á Landsfundi AB í gær- kvöldi. í niðurlagi setningarræðu sinn- ar vék formaður Alþýðubanda- lagsins að því að unga fólkið ætti að skipa áberandi sess á fram- boðslistum flokksins. „Meirihluti kjósenda í vor er undir 35 ára aldri. Þetta er kyn- slóðin sem nú er á götunni, sem húsnæðislánakerfið hefur hafn- að. Þessi kynslóð þarf strax í næstu sveitarstjórnarkosningum að fá verulegt rúm á framboðs- listum þannig að hún geti sjálf skapað forsendur þess nýja þjóðfélags sem mætir okkur senn með nýrri öld“. „Það eru 14 ár, þar til ný öld gengur í garð. Verði farið að efnahagsáætlun Alþýðubanda- lagsins og tillögum um nýja sókn í atvinnulífinu þá getum við skilað næstu kynslóð til framtíðar stolt og bjartsýn í senn. Ég vona að þessi landsfundur hjálpi flokknum og þar með þjóðinni áleiðis í rétta átt. Það sem þarf að einkenna landsfund- inn er samstaða, bjartsýni, bar- áttuvilji og gleði yfir því hlut- skipti sem við höfum kosið okk- ur: Að leiða sósíaliska hreyfingu á íslandi fram til sigurs". Sjá bls. 3.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.