Þjóðviljinn - 08.11.1985, Page 3

Þjóðviljinn - 08.11.1985, Page 3
FRETTIR Landsfundur Ræsum fram atorku fólksins Nær300fulltrúar hófu landsfundarstörfígærkvöldi. Framsaga um fimm ára atvinnustefnu AIþýðubandalagsins: Nýsókn. Spennaundir niðri. Svavar sennilega einn íformannskjöri. Óvíst umvaraformann Eftir setningarathöfnina í Austur- bæjarbíó hófust eiginleg störf lands- fundar í „Rúgbrauðsgerðinni“, Borg- artúni 6 um níuleytið, og voru nær þrjú hundruð manns viðstaddir fyrsta kvöldið. Aðalfuiltrúar á fund- inum eru um 240. Svavar Gestsson flutti setningarræðu sem sagt er frá annarsstaðar í blaðinu, en að því loknu höfðu þeir Ragnar Arnalds og Össur Skarphéðinsson framsögu um stefnu flokksins í atvinnumálum. Þeir Ragnar og Össur kynntu fundarmönnum tvö þingskjöl, um fimm ára stefnu AB í atvinnumálum þarsem vandi atvinnulífsins er kruf- inn í stuttu máli og lagðar fram til- lögur að leiðum til úrbóta, og um nýja sókn þarsem raktir eru nýir mögu- leikar sem tæknibylting undanfarinna ára hefur opnað. „Efnahagsskipu- lagið er vanskapnaður," sagði Ragn- ar Arnalds meðal annars, - og Al- þýðubandalagið verður að hafa for- ystu um að hala það uppúr eymdinni. Össur Skarphéðinsson sagði meðal annars að það væri hlutverk flokksins að ræsa fram atorku fólksins í landinu. Alþýðubandalagið hefði nú komið sér upp öflugri hugmynda- banka um atvinnumál en nokkur ann- ar flokkur, - og nú lægi fyrir að rífa landsmenn uppúr þeirri svartagalls- vímu sem stjórnvöld hefðu komið ís- lendingum í. f*á fylgdi Helga Sigurjónsdóttir úr hlaði skýrslu starfsháttanefndar sem birtist í heild í blaðinu í fyrradag. Landsfundarfulltrúar eru vel bratt- ir fyrsta fundardaginn, og má vera að sú spenna sem ríkt hefur um þennan landsfund eigi þar nokkurn þátt. Augljóst er að menn vænta kröftu- grar umræðu og jafnvel átaka um ein- stök mál og niálaflokka, þannig var Ásmundur Ásmundsson að leggja fram sín eigin drög að stjórnmálaályktun sem valkost við hin undirbúnu þegar Þjóðviljinn þurfti í prentun. í lok ræðu sinna kom Össur Skarp- héðinsson inná þetta spennuástand með þessum orðum: Flokkurinn verður að hafa þann stórhug að refsa þeim ekki eða brjóta á bak aftur sem dirfast að vera á öðru máli en hæstvirt flokksforysta... Flokkurinn þarf bæði stórhug og eldmóð til að geta hafið nýja stórsókn. Á þessu stigi máls virðist ekki lík- legt að alvarlegt mótframboð komi fram gegn Svavari Gestssyni í for- mannskjöri á laugardag. Um varafor- mannskjör er hinsvegar allt óljóst. Kristín Ölafsdóttir mun vera að hugsa sig um, en einnig er lagt hart að Vil- borgu Harðardóttur að endurskoða ákvörðun sína um að hætta varafor- mannsstörfum á þessum landsfundi. í dag eru á dagskrá lagabreytingar og almennar stjórnmálaumræður til klukkan fimm. - m. Halló afi! Svavar ásamt Guðrúnu Helgadóttur alþingismanni spjallar fyrir setn- Ástráð sem heldur á Oddi syni sínum ungum og lengst til hægri er dóttir ingarfundinn í Austurbæjarbíói við son sinn Gest lengst til vinstri, tengdasoninn Svavars, Svandís. Ljósm. E.OI. Steingrímur mættur? Nei, Jón Hjartarson leikari brá sér í gervi Steingríms Hermannssonar og Soffía Jakobsdóttir leikkona í gervi Ragnhildar Helgadótt- ur. Mátti vart greina mun á þeim leikurunum og hinum sem starfa við Austurvöll. Ljósm. E.ÓI. Fundahöld stóðu langt frameftir í gærkvöld og það var ekki verra að geta gripið i prjónana undir ræðuhöldunum. Myndir E.ÓI. Fæmm út land- helgi lýðiæðisins Svavar Gestsson ísetningarræðunni ígœrkvöldi: Samhliða nýrrisókn í atvinnulífinu verði aukið vald til byggðarlaganna sjálfra. Þarfað knýjafram samninga um raunverulega styttingu vinnuvikunnar Markmiðið er að færa út land- helgi lýðræðisins - til allra þátta þjóðlífsins, - það er aðalat- riðið ásamt kröfunni um jöfnun lífskjara, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins m.a. í setningarræðu sinni á landsfundinum í gærkveldi. „Þannig tel ég nauðsynlegt að samhliða nýrri sókn f atvinnulíf- inu verði ákveðið að færa aukið vald til byggðarlaganna sjálfra. Það er ekki keppikefli aðeins af lýðræðislegum ástæðum. Það er líka keppikefli vegna þess að það eykur ábyrgð og áhuga heimaað- ila og tryggir því betri árangur en heildarákvarðanir sem byggjast á alls konar misjafnlega vel grund- uðum meðaltölum.“ Svavar rifjaði upp stóru íhalds- draumana: Erlenda stóriðju- stefnan hefur breyst í martröð. Markaðshlutdeild íslenska iðn- aðarins hefur minnkað hér á landi og útflutningur almennra iðnaðarvara er aðeins 1% af heildarútflutningi landsmanna, - eitt prósent. Fjármagnsstefna nú- verandi ríkisstjórnar er að kyrkja 'framleiðslugreinarnar í greip sinni. Þeirra stefna hefur þannig ekki dugað - okkar stefna hefur sýnt að hún dugar.“ Um vinnuþrældóminn sagði Svavar m.a.: „Það er hægt að hækka kaup fyrir unna vinnu- stund verulega með aukinni þjóðarframleiðslu og það er hægt að stytta vinnutímann þannig að fólk fái mannsæmandi laun fyrir eðlilegt vinnuframlag. Að mínu mati ætti það að vera forgangs- verkefni verkalýðshreyfingarinn- ar að knýja fram samninga um raunverulega styttingu vinnutím- ans. Lífskjaramunurinn á íslandi og nágrannaiöndum okkar er hvergi eins mikill og í vinnutím- anum“. -óg. Svavar Gestsson flytur ræðu sína í upphafi Landsfundar í gærkvöld. Við háborðið sitja starfsmenn fundarins, Helgi Guðmundsson, Guðrún Ágústsdótt- ir og Sigurjón Bjarnason fundarstjórar og Gunnlaugar Haraldsson og Benedikt Sigurðsson og Ásdís Þórhallsdóttir fundarritarar. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.