Þjóðviljinn - 08.11.1985, Síða 7
Fatlaöir
Atvinnu - ekki forsjá
Kristín Halldórsdóttir í viötali við Glætuna
Á döfinni er að halda nám-
stefnu að Hverfisgötu 105 um at-
vinnumál ungs fatlaðs fólks. Það
er aeskulýðsnefnd Sjálfsbjargar í
Reykjavík sem hefur undirbúið
þcssa námstefnu en í nefndinni
eiga sæti Jóhann Pétur Sveinsson,
Ásgeir Sigurðsson og Kristín
Halldórsdóttir. Glætan fékk
Kristínu Halldórsdóttur til þess
að segja okkur svolítið mcira frá
starfi þessarar nefndar og hvað
verður aðallega rætt um á nám-
stefnunni.
„Pessi nefnd var sett á laggirn-
ar í fyrra og var meðal annars
ætlað að efla æskulýðsstarf innan
Sjálfsbjargarfélaganna víða um
land. Okkur var einnig ætlað að
kynna samnorrænt starf í tilefni
af ári æskunnar úti á landi en því
rniður hefur það ekki gengið
nógu vel. Við höfum verið að
senda bréf til þeirra í sumar og
biðja um uppástungur um hvað
væri hægt að gera en ekki fengið
nein svör. Það er eins og for-
mennirnir hafi ekki trú að hægt sé
að gera neitt né þeir hafi mann-
skap í það en ég held að það sé
stór misskilningur. Vilji er allt
sem þarf.
Nú, það sem við höfum gert á
þessu ári æskunnar hefur aðal-
lega verið í sambandi við hin
Norðurlöndin og það hefur kom-
ið í okkar hlut að hafa samband
við þau. Það var ákveðið að sam-
hæfa allar aðgerðir innan land-
anna og til stóð að nota 46. viku
ársins til þess að vekja athygli á
atvinnumálum ungs fatlaðs fólks.
En við hér á Islandi fengum
undanþágu til þess að byrja í
sumar þar sem við höfum þetta
séríslenska fyrirbæri sumarvinnu
og þar af leiðandi er sumarið
betri tími fyrir okkur. Við höfum
haft samband við öll blöðin og
beðið þau um að aðstoða okkur
við.þetta átak en aðeins eitt blað
hefur tekið þetta fyrir ennþá og
birt viðtöl við fatlaða krakka sem
annað hvort eru með vinnu eða
eru atvinnulaus. Það vakti aftur
meiri athygli fólks þegar við
heimsóttum Öryrkjadeild ráðn-
ingarstofu Reykjavíkurborgar og
sýndum fram á hvers konar að-
stæður okkur er boðið upp á þar.
Fatlað fólk kemst ekki einu sinni
leiðar sinnar inn í húsið, hvað þá
meir. Og núna ætlum við að setja
endapunktinn við þessar aðgerð-
ir í endir 46. viku, með því að
halda námstefnu 16. nóvember.
Hún verður sérstaklega helguð
atvinnumálum ungs fatlaðs fólks,
og yfirskriftin er „Atvinna - ekki
forsjá".
Það verður ókeypis aðgangur
og þarna verða haldnir um 12-14
fyrirlestrar unr efnið frá ýmsum
sjónarhornum. Til dæmis verður
lítillega fjallað um tryggingakerf-
ið og hvort það er vinnuletjandi
eða ekki. Það er nefnilega þannig
að þegar maður fer að þéna yfir
21.000 krónur á mánuði þá missir
maður alla tekjutryggingu og
flest hlunnindi. Full tekjutryg-
ging fyrir 75% öryrkja er í dag
7.844 krónur. Sé maður svo
„óheppinn" að ■ fá vel borgaða
vinnu þá þarf maður auðvitað að
borga skatta og fyrir flesta kemur
dæmið þannig út að það borgar
sig varla að fara að vinna nema að
hafa mun hærra kaup því þeir
koma verr út úr því og hafa sára-
litla möguleika á að auka tekj-
urnar. Þettaermjögóréttlátt. Og
fyrir utan þetta þá er mjög erfitt
fyrir fólk að komast inn í trygg-
ingakerfið aftur ef það missir
vinnuna af einhverjum ástæðum.
Þetta er ein hlið málsins en auk
þess verður rætt um skólamálin
og starf öryrkjadeildar ráðning-
arstofu Reykjavíkur, verndaða
vinnustaði og margt fleira. Og við
vonum bara að sem flestir komi
og kynni sér málin, það er ekki
vanþörf á“ sagði Kristín Hall-
dórsdóttir að lokum og Glætan
þakkar henni kærlega fyrir spjall-
ið.
-vd.
Föstudagur 8. nóvember 1985 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 7