Þjóðviljinn - 08.11.1985, Síða 18
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Viö leitum eftir heimiii fyrir átta ára gamlan dreng, sem
vegna ýmissa ástæöna getur ekki búið heima hjá sér.
Viö leitum aö fjölskyldu sem er tilbúin að taka viö
nýjum fjölskyldumeðlim. Foreldrarnir þurfa aö hafa
reynslu og ánægju af uppeldisstarfi, vilja, þrautseigju
og tíma til aö sinna því af alúð og jafnframt hæfileika
og aðstæður til að setja þurftarfrekum dreng traustar
og hlýjar skorður. Drengurinn þarf helst að fá að vera
yngstur í fjölskyldunni. Við krefjumst engrar sérstakrar
menntunar, en lífsreynsla, góður vilji og jákvæð af-
staða fjölskyldunnar til að taka við drengnum eru
bestu meðmælin. Við viljum helst að þið búið á Suð-
vesturlandinu, en það er þó ekki skilyrði.
Frekari upplýsingar veitir Gunnar Klængur Gunnars-
son félagsráðgjafi, Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar sími 74544.
jjyfl Fjórðungssjúkrahúsið
' á Akureyri
óskar að ráða:
1. Hjúkrunardeildarstjóra að Handlækningadeild.
Starfið er laust 1. janúar 1986.
Umsóknarfrestur til 1. des. 1985.
2. Hjúkrunardeildarstjóra að B-deild (Elli- og kven-
sjúkdómadeild).
Starfið er laust frá 1. janúar 1986.
Umsóknarfrestur til 15. nóv. 1985.
3. Hjúkrunarfræðinga nú þegar eða síðar eftir
samkomulagi að Handlækningadeild.
Lyflækningadeild.
B-deild.
Seli I (Ellideild).
Geðdeild.
Umsóknir sendist hjúkrunarforstjóra, sem veitir upp-
lýsingar. Sími 91-22100.
Húsnæði óskast
Hjón með eitt barn óska eftir 2-3 herbergja íbúð nú
þegar. Erum á götunni. Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Meðmæli fyrir hendi. Þeir sem vildu
liðsinna þessu unga fólki vinsamlegast hringi í síma
23918 e. kl. 20.30. Sigrún.
Lestu
oðeins
stjóraarbloðh?
DJðÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjórnarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)81333
Er ekki tilvalið
að gerast
áskrifandi?
DJÚÐVILJINN
Grikkland
Verkföll gegn niður-
skurðarstefnu Papandreus
Gengi drökmunnarfellt, vísitölubœturskertar
og launfryst nœstu tvö árin
Grískir launþegar hafa farið í
verkföll og efnt til fjölmennra mót-
mælaaðgerða að undanförnu til
að mótmæla kreppuráðstöfunum
sósíalistastjórnar Andreasar
Papandreú. Fimm mánuðum
eftir mikinn kosningasigur flokks
hans, PASOK, Hellenska
sósíalistasambandsins, hefur
hann séð sig neyddan til að fella
gengi drökmunnar, frysta laun í
tvö ár, draga úr dýrtíðaruppbót-
um á laun og grípa til sérstakra
ráðstafana til að draga úr inn-
flutningi. Og launþegar þykjast
illa sviknir og ætlast til annars af
vinstristjórn.
Verkfallabylgjan lamaði um
skeið flestar atvinnugreinar og þó
Grikkjum sé að sögn annað betra
gefið en samstaða, þá voru þeir
furðu einhuga í því að mótmæla
.sparnaðaráformum ríkisstjórnar-
innar hvort sem þeir höfðu fyrir
fimm mánuðum gefið flokki Pap-
andreús atkvæði sitt eða stutt
keppinauta hans.
Vandi
safnast upp
Á fyrsta kjörtímabili sínu stóð
Papandreú fyrir umbótum og
kjarabótum sem vinsælar urðu.
Lægstu laun hækkuðu verulega,
félagsleg þjónusta var stóraukin
og orlof var lengt. Gefin voru
fyrirheit um að velferðarríkið
væri á næstu grösum og ekki
skorti Papandreú bjartsýni í
kosningaræðunum í vor.
En efnahagsleg vandamál hafa
um leið safnast upp og nú telur
Pandreú, að því verði ekki lengur
á frest skotið að glíma við þau.
Iðnaðarframleiðslan er nú minni
en hún var 1979 og atvinnuleysi
hefur aukist og nær nú til 10%
vinnandi manna. Mjög hefur
dregið úr fjárfestingum í einka-
geiranum.
Verðbólgan nemur um 20% og
er hún þrefalt hraðari en gengur
og gerist í löndum Efnahags-
bandalagsins. Ríkisbúskapurinn
hefur verið rekinn með halla sem
nú er kominn upp í um 20%
vergrar þjóðarframleiðslu.
Sérfræðingar Efnahagsbanda-
lagsins hafa sett á langar tölur yfir
Grikkjum og sakað þá um að lifa
um efni fram. Og nú um miðjan
október lagði Papandreú fram
niðurskurðar- og aðhaldsáætlanir
sínar.
Ráðstafanir
stjornarinnar
Byrjað var á að fella gengi
drökmunnar um 15%. Sú ráð-
stöfun á að örva útflutning og
fjölga túristum, auk þess á það að
bæta stöðu grískrar vöru á heima-
markaði að innfluttar vörur
hækka í verði.
Síðan Grikkland gekk í Efna-
hagsbandalagið hefur innflutn-
ingur til landsins stóraukist og
viðskiptahallinn nemur nú um
þrem miljörðum dollara. Til þess
að rétta hann við er gengisfell-
ingin ein sér ekki talin nægja. Því
verða innflytjendur nú að leggja
út allt að 80% af verði um 1200
vörutegunda og eru þessar inn-
borganir síðar geymdar á lokuð-
um reikningum í sex mánuði
vaxtalausar.
Sósíalistastjórnin hafði á sín-
um tíma komið á vísitölubind-
ingu launa, en nú verður sú trygg-
ing gegn verðbólgu verulega
skert. Þetta þýðir í reynd, að á
næsta ári munu rauntekjur verka-
manna og opinberra starfsmanna
minnka um 5-10%.
Papandreú vill reyna að koma
því svo fyrir, að allir axli sinn
hluta byrðarinnar eins og það
heitir. Pví fá bændur, sem verið
hafa dyggir stuðningsmenn Pas-
ok, ekki þær hækkanir á afurðum
sem þeir vilja og lagður verður
sérstakur ágóðaskattur á einka-
fyrirtæki. Ríkisstjórnin segist líka
ætla að spara. Bæði á að skera
niður útgjöld og ráðherrar og
þingmenn munu ekki fá neinar
vísitölubætur - ekki frekar en
aðrir hálaunahópar. Skattfríð-
indi þingmanna verða skert og
pólitískir flokkar fá minni opin-
beran styrk en þeir hafa notið um
skeið.
En eins og að líkum lætur koma
þessar kreppuráðstafanir harðast
við það fólk, sem gerði sér mestar
vonir um Papandreú og hans
flokk. Því það fylgir með í
kreppupakkanum að laun verða
bundin næstu tvö ár - og þetta á
einnig við um þá sem lægst hafa
launin. Atvinnurekendum er
reyndar bannað með lögum að
hækka laun meira en sem svarar
til hinna skertu vísitölubóta á
lægri laun. Samningsrétti verk-
lýðsfélaganna er þar með kippt úr
sambandi og það þykir að vonum
ekki nein fyrirmyndarhegðun hjá
sósíalískum forsætisráðherra.
Papandreú segist gera þetta til að
bjarga atvinnulífinu, en verklýðs-
samtökin heimta að afturkallaðar
verði ráðstafanir sem þau telja
verklýðsfj andsamlegar.
Kommúnistaflokkur Grikk-
lands hefur gagnrýnt sósíalista-
stjórnina óspart á seinni misser-
um og búast má við því, að óá-
nægjan með niðurskurðarstefn-
una verði til þess að auka enn
áhrif hans í verklýðsfélögunum,
sem eru mikil fyrir. Papandreú
hefur líka átt í erfiðleikum í eigin
flokki. Átta menn af 45 í mið-
stjórn Sambands grískra verka-
manna, sem Pasok hefur tögl og
hagldir í, greiddu á dögunum at-
kvæði með verkföllunum gegn
kreppuráðstöfunum - voru þeir
þá umsvifalaust reknir úr flokkn-
um.
Alþjoða-
mál
Stundum hefur Papandreú
slegið á óánægju með óvinsælar
ráðstafanir innanlands með því
aðminnamenn á erfðaféndurna
tyrknesku eða með því að rifja
það upp, að hann ætli að leggja
niður bandarískar herstöðvar í
Grikklandi. En í reynd kemur
það æ betur fram, að í herstöðv-
amálum er Papandreú bundinn í
báða skó. Hann framlengdi á síð-
asta kjörtímabili herstöðvasamn-
ingana - með nokkrum lagfær-
ingum að vísu - og þáði fyrir
hernaðaraðstoð frá Bandaríkjun-
um, sem hann réttlætir sem
nauðsynlega til að hafa í fullu tré
við Tyrki.
AB byggði á Spiegel
og Le Monde.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. nóvember 1985