Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 2
____________FRÉTTIR Hafnarfjörður Hagsmunir aldraðra víkja Meirihluti bœjarstjórnar breytir útboðsskilmálumfyrirþjónustuíbúðir aldraðra. Verktakinn fœr að selja áfrjálsu verði og tekuryfir helminginn af þjónusturými bœjarins. Hörð mótmæli minnihlutans Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur knúið fram breytingar á áður einróma samþykkt bæjarstjórnar um út- boðskilmáia vegna væntanlegrar íbúða og þjónustubyggingar fyrir aldraða við Hjailabraut í norður- bæ Hafnarfjarðar. I hinum nýju útboðsskiimálum er væntan- legum verktaka gefln heimild tii að selja íbúðirnar á frjáisu mark- aðsverði en fyrri skilmáii gerði ráð fyrir að íbúðirnar yrðu seldar til aldraðra miðað við fast verð framreiknað samkvæmt bygging- avísitölu. Þá samþykkti meirihluti bæjar- stjórnar að verktakinn eignaðist sjálfur helminginn af því þjónust- urými sem átti að vera í umsjón bæjarins, og fengi að ráðstafa því að eigin vild. Það sem eftir stend- ur af þjónusturými sem átti að vera í umsjón bæjarins, og fengi að ráðstafa því að eigin vild. Það sem eftir stendur af þjónusturými bæjarins verður byggt fyrir fast verð en íbúðirnar til aldraðra á að selja á frjálsu markaðsverði eins og áður sagði. Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjórn, Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks mótmæltu harðlega framkomu bæjaryfirvalda í þessu máli. í bókun sem Rannvcig Trausta- dóttir bæjarfulltrúi AB lagði fram við afgreiðslu málsins sagði hún að með þessum nýja útboðs- skilmála væri fyrst og fremst gætt hagsmuna væntanlegs verktaka Alþingi Mælt fyrir Búseta Steingrímur J. Sigfússon mælti í fyrradag fyrir frumvarpi stjórn- arandstæðinga um búseturétt en það er sama frumvarp og Sjálf- stæðisflokkurinn hefur bannað Alexander Stefánssyni félags- málaráðherra að leggja fram. Steingrímur rakti í framsögu sinni hvernig félagsmálaráðherra hefði verið í stöðugum afturábak gír eftir að hann lýsti því yfir vor- ið 1984 að hann myndi sjálfur leggja fram slíkt frumvarp. Hann sagði þátt Sjálfstæðisflokksins í þessu máli einstakan: Flokkurinn gerði ekki annað en þvælast fyrir og beitti til þess öllum tiltækum ráðum. „Vill Sjálfstæðisflokkur- inn yfirleit húsnæðissamvinnufé- lög og búseturétt á íslandi eða vill hann þau ekki?“ spurði Steingrímur, en í klukkutíma- iangri ræðu Halldórs Blöndals voru engin skýr svör fremur en fyrri daginn. _ý| en hagsmunir þeirra sem ættu að búa í húsinu fyrir borð bornar. Lýsti hún undrun sinni og hneykslan á vinnubrögðum þeirrar undirbúningsnefndar sem stóð fyrir breytingunum á út- boðsskilmálunum. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins lýsti því yfir á fundinum að undir- búningsnefndin hefði sýnt al- gjöra vanhæfni í störfum og það væri algjörlega óþolandi að sam- þykktir bæjarstjórnar væru með- höndlaðar af undirnefndum bæjarkerfisins og embættis- mönnum bæjarins eins og ómark- tækir minnispunktar. -lg Hrönn í hlutverki sínu í Grímudansleik. Hrönn í Grímudansleik Idag hefjast á ný sýningar á Grímudansleik í Þjóðleik- húsinu og er jafnuppselt í dag og á allar fyrri sýningar. Hlutverk Ulriku spákonu er nú í höndum Hrannar Hafl- iðadóttur og verður til loka; Sigríður Ella Magnúsdóttir er nú farin utan. Hrönn hefur ekki áður sungið í Þjóðleikhúsinu en þeim mun meira í íslensku óperunni: Töfraflautan, Mík- adó, Nóaflóðið, Leðurblak- an. Hrönn tók einsöngvarapróf úr Söngskólanum og lærði síð- an í Vínarborg hjá Helene Karusso. Sýningum á Grímudansleik lýkur fyrir miðjan desember. Yfirborgaðir? - fer það eftir stærð og gæðum verkfær- isins? íslandsklukkan Eiríkur vann í Hæstarétti Eiríkur J ónsson rithöfundur vann meiðyrðamálið gegn dómnefnd heimspekideildar. Ummœlin íumsögninni dœmd ómerk Eiríkur Jónsson rithöfundur vann í Hæstarétti mál gegn dóm- nefnd Háskóla íslands, fyrir um- mæli í álitsgerð nefndarinnar um bók Eiríks, Rætur íslandsklukk- unnar. Átalin ummæli fela sam- kvæmt úrskurði Hæstaréttar í sér siðferðisdóm, sem er meiðandi fyrir höfundinn. Eiríkur skaut máli þessu til Hæstaréttar eftir að undirréttur hafði úrskurðað þann veg í mál- inu, að dómnefndin væri sýkn af ákærunni. Eiríkur Jónsson lagði bók sína, Rætur íslandsklukkunnar, til doktorsvarnar - og eins og venja er, var valin dómnefnd til að meta vísindagildi bókarinnar. í álitsgerð hennar er umsögn, sem Eiríkur taldi meiðandi og höfðaði má á hendur dómnefnd- armönnum, þeim Sveini Skorra Höskuldssyni, Ólafi Halldórssyni og Peter Hallberg. Ummælin sem nú eru dæmd dauð og ómerk eru þessi: „Hér verður að telja að ritgerðarhöf- undur standi tæplega full heiðar- lega að verki,“ og „Nokkuð svip- að virðist upp á teningnum að því er varðar notkun ritgerðarhöf- undar á seðlasafni Orðabókar Háskóla íslands.“ -óg Fyrirlestur Dönsk tunga í dag klukkan 13 flytur danskur málfræðingur, Jörn Lund, fyrir- lestur um dönskukennslu í Dan- mörku í stofu 101 í Odda, ný- byggingu Háskólans gegnt Nor- ræna húsinu. OPIÐ TIL KL.4 I DAG rVer»«ö VtSA JIS Jón Loftsson hf. /A A ▲ ▲ ▲ ▲ Hringbraut 121 Simi 10600

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.