Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 8
MENNING Hljómplata Alþýðleg sönglist Söngdúettar, hljómpiata með söng Bjarna Lárentsínussonar og Njáls Þorgeirssonar við undirleik Jóhönnu Guðmundsdóttur. Útgefandi: Fermata. Upptaka: Halldór Víkingsson. Dreifing: Fálkinn. Ef einhverntíma verður rituð íslensk tónlistarsaga.'þá er víst aðhluturalþýðlegrar sönglistar verður ekki smár í þvíverki, svo ríkan þátthefur hún átt í mótun tónmenningar okkar. Kirkjukórar, karlakórar, samkórar, kvartettar, tríó, dú- ettar, lúðrasveitir, allt hópar áhugafólks úr hinum ýmsu atvinnugreinum þjóðfélags- ins, sem lætur sér ekki nægja að vera einvörðungu hlust- endur, heldurkemursaman- oft eftir langan vinnudag - og gleðst af því að finna lag mót- ast. En því er á þetta minnst hér, að upp í hendur mér hefur borist ein sérlega ánægjuleg hljómplata með söng tveggja landsmanna sem ekki eru skólaðir í „akademí- um“ heimsins, en syngja samt af guðs náð og innileik með sínum náttúruröddum, alltaf smekklega og oft bráðvel. Efnisskráin eru íslenskir og er- lendir húsgangar, lög sem sungin eru á hverju alþýðuheimili þar sem söngur er á annað borð við hafður. Svanasöngur Kaldalóns, Vöggukvæði Emils, Hrísla og lækur Inga T, Á vegamótum Eyþórs, Játning Fúsa, svo nefnd séu nokkur af þeim 17 lögum sem hljómplatan geymir og í hugann koma. • Þeir félagar Bjarni Lár- entsínusson og Njáll Þorgeirsson mega vel við una, þeirra framlag til eflingar alþýðusönglistar í landinu verður áreiðanlega vel metið af því fjölmarga fólki sem ann fallegum söng og leggur á sig að mæta á söngæfingar á þeim tíma er flestir sitja heima og safna kröftum fyrir næstu lotu þess allt of langa vinnudags er viðgengst hér á landi. Jóhanna Guðmundsdóttir að- stoðar þá félaga, og er með leikur hennar með miklum ágætum. Upptöku annaðist Halldór Víkingsson, og er öll vinna og frá- gangurplötunnartil fyrirmyndar. Klausturmorð Rósin kvikmynduð Connery í gamla essinu; nú taka við annarskonar rannsóknarstörf. Franski leikstjórinn Jean- Jacques Annaud og hans lið byrjuðu í vikunni að kvik- mynda Nafn rósarinnar, hina frægu metsölubók Umberto Eco. Meðal leikara eru Sean Connery, kunnastur hingað til fyrir James Bond-hlutverk sitt, og Abraham Murray, sem fékk Óskarsverðlaun síðast fyrir leik sinn sem Salieri í Am- adeus. Myndin er filmuð í Kiedrich í Vestur-Þýskalandi, 3500 íbúa, vínþorpi á Rfnarbökkum, og fyrst og fremst í gömlu Sistersían- aklaustri sem leikstjórinn Ann- aud (gerði m.a. Leitina að eldin- um) telur heppilegastan arftaka hins mikla bókaklausturs bókar- innar. Klaustrið hefur verið munka- laust frá árinu 1803 og notað sem geðveikrahæli, fangelsi og vín- kjallari. Eldhús þess er nú orðið að pyntingaklefa í þágu kvik- myndalistarinnar og harðsnúinn flokkur ítalskra trésmiða hefur farið höndum um helstu innviði aðra. Munkspæjarinn Vilhjálmur frá Baskerville er í höndum hins hálfsextuga Sean Connery sem af þessu tilefni er orðinn gráskeg- gjaður með gleraugu. Helsta andstæðing Vilhjálms, hinn páfa- lega erindreka og djöflaútdrífara Bernardo Gui, leikur Abraham Myrray. Annaud er miðaldafræðingur að mennt, og hreifst undireins af bók Umberto Eco, þótt hann hafi sennilega ekki lesið hana í íslenskri þýðingu Thors Vil- hjálmssonar. Hann segist hafa ákveðið að kvikmynda verkið þegar hann var búinn að lesa 200 síður, frétt eftir 300 síður að ítal- ska sjónvarpið átti réttinn, heim- sótt Eco að 400 síðum lesnum til að sannfæra rithöfundinn um að kvikmyndun væri ekki hugsanleg nema í sínum höndum, og þegar Annaud var búinn með bókina var búið að kaupa réttinn af ítölu- num. Tökur eiga að standa yfir í fimm vikur. -m/reuter Tónlistaþrenning frá Stykkishólmi: Bjarni Lárentsínusson, Jóhanna Guð- mundsdóttir, Njáll Þorgeirsson. Kjartan Ólafsson Plötur Smartband Ný fjögurra laga hljómplata heitir Smartband og geymir lög eftir Kjartan Ólafsson, texta llluga Jökulssonarog leik Kjartans og Péturs Grét- arssonar. Kjartan hefur um árabil lagt stund á tónsmíðanám í Amster- dam, og hlaut nýlega verðlaun í tónsmíðakeppni Ríkisútvarpsins. Hann og Pétur, lærður slagverks- maður, skipta á milli sín hljóð- færaleik en hafa fengið til liðs bassaleikarann Skúla Sverrisson og gítarleikarann Kristján Eld- járn. Útgefandi er Smart-Art, upp- tökur fóru fram í Mjöt. Ungur málari Steingrímur Þorvaldsson í Gallerí Salurinn Svo er þó ekki og fyllir Steingrímur þann stóra flokk listamanna sem einhverra hluta vegna sýna verk sín eingöngu til að sýna, án þess að hafa háleitari Reyndar er það orðið alltof al- gengt að ungir menn sýni, áður en þeir hafa mótað sér hugmynd- ir um það sem þeir vilja að fram komi í verkum þeirra. Þetta tákn- ar ekki að menn verði að hafa fastmótaðar hugmyndir, eða að þeir megi ekki leyfa sér óljósan framsetningarmáta. Þetta táknar einfaldlega að menn verða að stefna að einhverju, í stað þess að festa sig í ákveðinni formgerð sem þegar hefur verið til lykta leidd. Steingrímur Þorvaldsson heitir ungur málari sem sýnir um þessar mundir verk sín í Gallerí Salnum við Vesturgötu. Málverk hans eru abstraksjónir, málaðar með olíu-, akrýl-, og vatnslitum. Steingrímur fæst við form- og litastúdíur, eða það sem í eina tíð var kallað komposisjónir. Svavar Guðnason mun hafa íslenskað orðið komposisjón og nefndi fyrirbærið fönsun. Einhvern veginn er það svo að hinn mikli fjöldi myndlistarsýn- inga á höfuðborgarsvæðinu leggur listamönnum á herðar ákveðnar skyldur, nefnilega þær að þeir leitist við að bregða nýju ljósi á það fyrirbæri og hugtak sem venjulega kallast list. Hið mikla framboð listaverka, sem hér er við lýði, ætti m.ö.o. að efla gæði og framsækni íslenskrar list- ar. markmið í huga. Vera kann að Steingrímur sé enn að leita fyrir sér um Ieiðir og það sé ástæðan fyrir því hve ófrumlegt pródúkt hans er. En þá getur hann beðið með að sýna, þar til hann hefur frá einhverju að segja sem máli skiptir. Það seni Steingrímur er að segja hefur nefnilega svo margoft verið sagt áður. Þótt myndir hans séu misjafnar að gæðum og sumar þess vegna betri en aðrar, er í þeim afar lítil leit. Leitið og þér munuð finna, sagði meistarinn og eru það orð að sönnu. Leiti menn ekki, finna þeir aldrei neitt. ísafjörður Tobacco Road Litii leikkiubburinn a Isafi: lætur ekki deigan síga: á morg er frumsýning fyrir vestan á 1 bacco Road, eftir Eugene O’N leikstjóri Sigríður Hagalín. Sýnt er í félagsheimilinu Hnífsdal. Aðalhlutverk lei Guðni Ásmundsson og Sigurbo Benediktsdóttir. Frá æfingu á Tobacco Road: Guðni Ásmundsson, Páll As- geirsson og Dagmar Gunnarsdóttir í hlutverkum sínum. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.