Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 13
HEfMURINN
Frakkland
Ætla að svaia Stjömustríði
París — Frönsk stjórnvöld hafa
hrundið af stað rannsóknum
sem beinast að því að fram-
leiða kjarnorkuvopn sem
standast hugsanlegar
geimvarnir á borð við þær sem
Ronald Reagan forseti Banda-
ríkjanna hefur í hyggju að setja
upp. Er litið á þessar rann-
sóknir sem svar frakka við
Stjörnustríði Reagans en þeir
hafa hafnað öllum tilboðum
um að taka þátt í rannsóknum
sem tengjast því.
Geimvarnir þær sem Reagan
lætur nú vinna að byggjast á því
að komið sé upp einskonar
„skildi“ í háloftunum sem stöðv-
ar og eyðir öllum eldflaugum sem
skotið er að Bandaríkjunum.
Skjöldurinn er gerður úr gervi-
tunglum sem endurvarpa leysi-
geislum að eldflaugunum. Það
sem frakkar hafa í hyggju er að
smíða kjarnaodda sem eru svo
smáir að þeir sjást ekki í ratsjám.
Einnig vinna þeir að því að gera
eldflaugar sínar ónæmar fyrir
leysigeislum. Ætlunin er að koma
þessum vopnum fyrir í kafbátum
vegna þess hve erfitt er að fylgjast
með því hvaðan þeir skjóta vopn-
um sínum.
Frakkar hafa á uandanförnum
árum lagt æ meiri áherslu á kaf-
bátaflota sinn. í vor tóku þeir í
notkun nýjan kafbát sem borið
getur sextán flugskeyti af tegund-
inni M-4 en hvert þeirra er búið
sex kjarnaoddum. Nú vinna þeir
að hönnun á nýjum kafbáti sem á
að vera korninn í gagnið árið 1994
og þá er ætlunin að búa hann nýj-
um eldflaugum með smávöxnum
kjarnaoddum. Poul Quiles varn-
armálaráðherra Frakklands sagði
nýlega á fundi að frakkar hefðu
hug á að koma 'sé upp kjarna-
vopnum sem gætu sloppið óséð
framhjá hugsanlegu geimvarn-
arkerfi sovétmanna. Talið er að
hann hafi átt við hljóðfráar og
lágfleygar eldflaugar sem gætu
laumast undir geimvarnarskjöld-
inn.
Ljóst er að frökkum er ramm-
asta alvara með þessum áætlun-
um. íbyrjunþessamánaðarveitti
Quiles 140 miljörðum króna til
eflingar kjarnorkuvarna landsins
á næsta ári en það er 7,7% hækk-
un frá þessu ári. Samsvarar þessi
upphæð þriðjungi allra fjár-
veitinga franska ríkisins til her-
mála.
Þversagnir
Fréttaskýrendur hafa bent á að
svo virðist sem einkennileg þver-
sögn ríki í afstöðu franskra sósía-
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsWREUIER
lista til kjarnorkuvígbúnaðar og
afvopnunar. Helsta röksemd
þeirra gegn aðild að geimvarnar-
áætlun Reagans var sú að hún
myndi leiða til stigmögnunar í
kjarnorkukapphlaupinu. Síðan
rjúka þeir til og hrinda af stað
áætlun um smíði vopna sem eiga
að gera geimvarnirnar óvirkar.
Svo er annað. Frakkar ganga
til kosninga í mars á næsta ári og
fæstir telja sósíalista hafa mögu-
leika á að vinna þær kosningar.
Líklegt má telja að þá komist
mið- og hægriflokkar til valda en
þeir hafa aðra stefnu í varnarmál-
um en sósíalistar. Stærstu stjórn-
arandstöðuflokkarnir, Gaullistar
og UDF, eru hlynntir því að
frakkar taki þátt í áætlunum Re-
agans. Sá síðarnefndi hefur mas.
hvatt ríki Evrópu til að koma sér
saman um slíka þátttöku.
Komist hægriflokkarnir til
valda eftir kosningarnar má búast
við því að þeir reyni að endur-
skoða stefnu landsins í varnar-
málum. Þar gætu þeir steytt á
þeim steini sem Mitterrand fors-
eti er. Hann mun sitja á forsetast-
óli fram til ársins 1988 og sem
forseti hefur hann á hendi yfir-
stjórn franska hersins. Þar með
gæti komið upp sú staða að
franska stjórnin tæki þátt í að
koma upp geimvörnum samtímis
því sem hún ynni að því að smíða
vopn sem brjóta þær niður.
Israel
Sharon dró til baka
Tel Aviv — Stjórnarkreppan í
ísrael leystist í fyrrakvöld eftir
aö Ariel Sharon viðskiptaráð-
herra féllst á að draga til baka
þær ásakanir sem hann hafði
haft í frammi í garð Shimon
Peres forsætisráðherra.
Sharon hafði sex sinnum á und-
anförnum vikum viðhaft ummæli
um Peres að hann væri að „teyma
stjórn ísraels út á villigötur í
samningaviðræðum sem Peres
hefur staðið í við jórdani. Peres
hafði hótað að reka Sharon úr
ráðherraembætti nema hann tæki
orð sín til baka. Átti brottrek-
sturinn að ganga í gildi í gær en
Sharon beygði sig áður en til hans
kom.
Skák
Ég hefði hafnað jafntefli
Anatolí Karpov, fyrrverandi heimsmeistari: Kasparov gekkskrefi
lengra og ég dróst aftur úr. Teflir áheimsmeistaramótisem hefst í Sviss í dag
Anatólí Karpov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, í upphafi einvígis síns við Garrí Kasparov, núverandi heimsmeistara í
skák.
Heimsmeistaraeinvígið í
skák er enn til umræðu enda
eitt það eftirminnilegasta sem
háð hefur verið að sögn skák-
skýrenda. Við höfum hér á síð-
unni viðtal við nýkrýndan
heimsmeistara, Garrí Kaspar-
ov, og því þótti okkur við hæfi
að kanna hug þess sem hann
lagði að velli, Anatólí Karpov
fyrrverandi heimsmeistara. Að
beiðni Þjóðviljans sá sovéska
fréttastofan APN svo um að
við fengjum það viðtal sem
birtist hér á eftir. Þar fjallar
Karpov um einvígið og í lokin
segir hann frá miklu skákmóti
sem hefst nú í dag, laugardag,
í Sviss en þar leiðir hann sveit
Sovétríkjanna.
„Hvað varðar nýafstaðið ein-
vígi um heimsmeistaratitilinn í
skák við Garrí Kasparov, er ég
óánægður með sjálfan mig bæði í
skáklegum skilningi og íþrótta-
skilningi," sagði Anatolí Karpov,
fyrrverandi heimsmeistari í skák í
viðtali við V. Babkin, fréttaritara
TASS.
„Kasparov var feikilega vel
undirbúinn. Ef þetta einvígi er
borið saman við hið fyrra, má
segja að andstæðingur minn hafi
farið skrefi lengra en ég (eða
hálfu skrefi) og ég hafi þá dregist
aftur úr. Þess vegna virtist mis-
munurinn svo mikill
Ég var í bestu formi í annarri
skákinni og til þeirrar elleftu. Það
gekk ótrúlega illa þar. En ég er
þó ánægður með eitt og það er að
meira að segja eftir það háði ég
harða baráttu, tókst að halda í við
hann til síðustu skákarinnar og
var nálægt því að halda titlinum.
Eins og þér munið, átti ég mögu-
leika í 24. skákinni, en...
Það er líka öllum kunnugt að
jafntefli var mér ekki að skapi í
þeirri skák. Það var hið sama og
að tapa. Þess vegna viðurkenni
ég að ég hefði hafnað að skrifa
undir jafntefli, þó að Kasparov
hefði boðið mér það.
Ég tel bestu skákina í einvíginu
þá fimmtu, þar sem ég sigraði í
spænskri vörn, er ég hafði svart,
og þá sextándu, þegar Kasparov
sigraði í Sikileyjarvörn og hafði
þá líka svart.
Þann 16. nóvember fer sovéska
landsliðið í skák að tefla í Luzern
í Sviss á Sveitamóti karla um
heimsmeistaratitilinn í skák, sem
er hið fyrsta í sögunni. Þetta er
mjög áhugavert mót, þar sem
verðug lið leiða saman hesta sína.
Mér hefur enn einu sinni verið
falið að vera fyrirliði landsliðs So-
vétríkjanna - verja heiður föður-
landsins og tefla á fyrsta borði.
Það eru sennilega einhverjir
undrandi á þvi að ég skuli vera
með í þessu móti þegar eftir erfitt
einvígi, eins og heimsmeistara-
einvígið var. En ég held að það sé
betra að komast yfir tapið í nýrri
skákbaráttu, heldur en að fela sig
einhversstaðar og pína sjálfan sig
með því að hugsa um ónýtt tæki-
færi í einvíginu.
Og það eru aðeins níu umferðir
í Luzern. Við höfum líka góða
varamenn, svo að hægt verður að
tefla færri skákir. Þetta verður
allt miklu auðveldara.
í augnablikinu er ég líka að
hugleiða hvort ég eigi að notfæra
mér réttinn til að skora á heims-
meistarann til að hefna harma
minna eins og ég hef rétt til. En ég
þarf að átta mig sem fyrst eins og
sagt er og leysa það mál.“
1 landsliði Sovétríkjanna á
fyrsta Sveitamóti karla um
heimsmeistaratitilinn í skák eru:
A. Karpov, A. Jusupov, A. Sok-
olov, R. Vaganjan, Á. Beljavskí,
V. Smyslov, A. Chernin og L.
Polugajevskí.
Kína
Stétta-
baráttan
endurreist
Peking — Dagblaðið Guangm-
ing í Kina birti í gær grein þar
sem hugmyndir Maós for-
manns um stéttabaráttuna eru
vaktar til lífsins á nýjan leik en
þær hafa ekki þótt góður kveð-
skapur í ríki Deng Hsiao-ping
síðan formaðurinn féll frá.
Blaðið Guangming er einkum
ætlað menntamönnum og birti
það á forsíðu í gær langa grein um
marx-lenínismann og hugsanir
Maós sem hlytu að verðá grund-
völlur allrar stjórnarstefnu í Kína
um langa framtíð. Stéttabaráttan
er enn í fullu gildi, hún mun halda
áfram innan vissra marka enn um
langa hríð og á köflum magnast
frá því sem nú er, sagði í
greininni.
í greininni er vitnað í orð Maós
en það hefur ekki verið gert í kín-
verskum blöðum í þrjú ár. Þar er
lögð áhersla á að kínverskt
þjóðfélag sé grundvallað á „hin-
um fjóru meginreglum“ Maós,
þe. forystu kommúnistaflokks-
ins, alræði öreiganna, leiðinni til
sósíalismans og marx-lenínisma,
hugsun Maós. „Þessum fjórum
meginreglum verður að halda á
lofti allt fram á þann dag þegar
kommúnisminn er orðinn að
veruleika," sagði í greininni.
Erlendir sendimenn í Peking
voru ekki vissir um hvort túlka
bæri þessi skrif sem boðbera
stefnubreytingar i landinu.
„Deng og umbótamenn hans
ráða því sem þeir vilja ráða, en
vandamálin sem umbæturnar
hafa skapað eru kjörnir ásteyt-
ingssteinar fyrir andstæðinga
þeirra,“ sagði einn. Vandamálin
sem hann á við eru ma. útbreidd
spilling meðal embættismanna,
stjórnunarmistök í efnahagslífinu
og verðbólga.
Eldgos
Óvíst um
manntjón
Armero — Eldgosið í fjallinu
Nevado del Ruiz í Kólumbíu er
næstmannskæðasta elgos á
þessari öld og hugsanlega
slær það eldgosið í Martinique
árið 1902 út en þá létust tæp-
lega 30 þúsund manns. Óvíst
er hve margir fórust vegna
sprengigossins sem varð i
fyrradag en þeir eru ekki undir
20 þúsundum.
í bænum Armero standa að-
eins um 100 hús eftir aurskriðuna
sem kaffærði bæinn eftir gosið.
Sprengingin bræddi snjóhettuna
ofan af fjallinu sem er yfir 5.000
m á hæð og vatnið flæddi niður
fjallshlíðarnar og sópaði með sér
jarðvegi, trjám og öllu lauslegu.
íbúar Armero voru 21 þúsund
talsins en sennilega hafa verið allt
að 30 þúsund manns í bænum
þegar gosið varð. Armero er mið-
stöð kaffiræktar og í upphafi upp-
skerutímans streyma þangað þús-
undir farandverkamanna.
Auk Armero grófst þorpið
Chinchina undir aurskriðunni en
þar bjuggu um 1.000 manns.
Fjöldi annarra þorpa og bæja
fengu að kenna á gosinu og talið
er að yfir 25 þúsund manns hafi
hlotið meiðsl í hamförunum.
Vísindamenn telja miklar líkur
á því að fjallið eigi eftir að láta frá
sér heyra aftur á næstu dögum.
Byggja þeir þá skoðun sína á
hegðun eldfjallsins St. Helens í
Washington-fylki í Bandaríkjun-
um fyrir fimm árum.
Laugardagur 16. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13