Þjóðviljinn - 16.11.1985, Blaðsíða 14
ALÞÝÐUBANDALAGHD
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði sunnudaginn 17. nóvember kl.
20.30.
Dagskrá:
1) Innanbæjarskipulagið,
2) Stefna ABA vegna gerðar fjárhagsáætlunar,
3) Dagskrá bæjarstjórnarfundar 19/11 1985,
4) Önnur mál.
Stjórnin
AB félög á Suðurlandi
Starfsdagur
Laugardaginn 16. nóvember verður vinnudagur í húsinu að Kirkjuvegi 7 Sel-
fossi. Húsbyggingunni hefur miðað vel áfram í haust, svo er dugmiklum fé-
lögum okkar fyrir að þakka. En betur má ef duga skal, ef takast á að gera húsið
klárt fyrir mikið og öflugt vetrarstarf. Félagar, eflum starf sósíalískrar hreyfingar
og styrkjum þannig baráttuna fyrir betra þjóðfélagi. Stjórnin
AB Boiungarvík
Almennur stjórnmálafundur
verður haldinn laugardaginn 23. nóvember nk. kl. 15.00 í Félagsheimili
Bolungarvíkur. Ræðumenn verða Svavar Gestsson formaður AB og Mar-
grét Frímannsdóttir gjaldkeri AB.
Alþýðubandalagið Bolungarvík
Svavar
AB Bolungarvík og ísafirði
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsfélaganna í Bolungarvík og Isafirði verður haldin
laugardaginn 23. nóvember í Félagsheimilinu Bolungarvík.
Gestir árshátíðarinnar verða Svavar Gestsson og Margrét Frímannsdóttir.
Borðhald hefst kl. 19.30. Skemmtiatriði og dansleikur á eftir.
AB Bolungarvík og ísafirði
Byggðamenn AB
Ársfundur byggðamanna Alþýðubandalagsins verður haldinn nú á sunnu-
daginn 17. nóvember að Hverfisgötu 105 og hefst hann kl. 10.00.
Dagskrá:
1) Skýrsla. stjórnar og tillögur að stefnumörkun í sveitarstjórnarmálum.
2) Ávarp formanns Alþýðubandalagsins Svavars Gestssonar.
3) Geir Gunnarsson alþingismaður talar um áhrif hægri og vinstri stjórnar
á hag sveitarfélaganna.
4) önnur mál.
Stefnt er að fundarlokum eigi síðar en kl. 17.00. Léttar veitingar verða á
staðnum í hádeginu.
Svavar Geir
AB Neskaupstað
Félagsfundur
verður haldinn að Egilsbraut 11 sunnudaginn 17. nóvember kl. 16.00.
Landsfundarfulltrúar segja fréttir af landsfundi. - Stjórnin.
AB Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 20. nóvember að Kirkjuvegi 7 á Selfossi kl.
20.30. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga, 2) Fréttir af landsfundi, 3) Undir-
búningur sveitarstjórnarkosninga.
Áríðandi að allir mæti. - Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Laugardagur kl. 17.00
Stjórnarfundur ÆF
Fyrir fundinum liggur bunki af málum. Stjórnarmenn verða að mæta. Allir
aðrir ÆFAB-arar velkomnir.
Formaður
Selfyssingar og nágrannar
Nú er tækifærið
Framkvæmdaráð Æskulýðsfylkingarinnar verður með opinn rabbfund að
Kirkjuvegi 7 Selfossi sunnudaginn 17. nóvember kl. 14.00.
Hvað er Æskulýðsfylkingin? Hvað er hún að gera? Er hún eitthvað fyrir
mig?
Þetta allt og meira til getur þú fengið að vita á sunnudaginn. Sjáumst!
Framkvæmdaráð ÆF
Ásmundarsafn
Tónagyðjan
StjórnÁsmundarsafnshefur (hæð43sm)eftirÁsmund Ásmundarsafni við Sigtún. Allar
iátl'ðsteypaíbrons5tÖlusett Sveinsson frá árinu 1926. nánari upplýsingar eru gefnar í
eintök af verkinu TÓnagyðjan Myndirnarerutilsýnisogsöluí slma 32155.
Kvikmyndir
Vika í
Helsinki
Fimm íslenskar
myndir sýndar
Síðustu viku nóvember-
mánaðar eiga Helsinkibúar
þess kost að ylja sér við ís-
lenska kvikmyndavorið sál-
uga. Þá verða sýndar mynd-
irnar Land og synir, Andra
dansen, Atómstöðin,
Hrafninn flýgur og Húsið.
í tengslum við sýninguna kem-
ur út bæklingur með upplýsing-
um um myndirnar fimm og yfirliti
um kvikmyndagerð samtímans á
íslandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er
til íslenskrar kvikmyndahátíðar í
Finnlandi, og verða Atómstöðin,
Hrafninn og Húsið nú frumsýnd-
ar í Finnlandi.
Kjarvalsstaðaloft
Allir vilja breyta
Hugmyndir stjórnar Kjar-
valsstaða um að breyta lofti í
sýningarsölum njóta almenns
stuðnings listamanna.
Nýlega samþykkti stjórn
Myndhöggvarafélagsins stuðn-
ingsyfirlýsingu við Kjarvalsstaða-
stjórn í málinu og segir stjórnin
að lýsing í sölunum hljóti að
batna til mikilla muna.
Áður höfðu stjórn og fulltrúa-
ráð Sambands íslenskra mynd-
listarmanna lýst stuðningi við
þessar breytingarhugmyndir.
Virðist því arkitekt hússins
einn um andstöðu við breytingar
á loftinu.
Afmæli
~GM~
Arason
90 ára
Á morgun sunnudaginn 17.
nóvember verður 90 ára Gísli
Arason Sogavegi 132 í Reykja-
vík. Hann tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Óháða safnaðar-
ins Kirkjubæ, á afmælisdaginn
frá kl. 15 til 18.
AB
Síðmiðaldir
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér 6.
bindið af Sögu mannkyns.
Það fjallar um síðmiðaldir í
Evrópu, tímabilið 1300-1500
og ber heitið Evrópa við
tímamót. Höfundurinn er
Káre Lunden, prófessor við
háskólann í Osló, og þýðandi
Snæbjörn Jóhannsson,
cand.mag.
Samfara þessu þróuðust listir í
Evrópu, ekki síst byggingar- og
myndlist eins og glöggt kemur
fram í myndefni bókarinnar.
Þetta bindi Sögu mannkyns
byggir á nýjustu rannsóknum
bæði varðandi mannfjölda og
efnahagslíf og tengir þær síðari
tíma rannsóknum á öðrum svið-
um.
Forsíða málfræðirits frá 1491.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. nóvember 1985