Þjóðviljinn - 22.11.1985, Side 6
Auglýsing
frá Launasjóði rithöfunda
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir áriö
1986 úr Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr.
29/1975 og reglugerð gefinni út af menntamálaráðu-
neytinu 19. október 1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar
og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr
sjóðnum fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru veitt í
samræmi við byrjunarlaun menntaskólakennara
skemmst til tveggja og lengst til níu mánaða í senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá
mánuði eða lengur skuldbindur sig til að gegna ekki
fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slík
kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda
skulu þau einvörðungu veitt vegna verka sem birst
hafa næsta almanaksár á undan. Skrá um birt ritverk
höfundar og verk sem hann vinnur nú að skal fylgja
umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum
sem fást í menntamálaráðuneytinu. Mikilvægt er að
spurningum á eyðiblaðinu sé svarað og verður farið
með svörin sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember 1985 til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavík, 20. nóvember 1985.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda.
Auglýsing
frá Reykjavíkurhöfn
Eigendum smábáta, sem báta eiga í höfninni, stendur
til boða upptaka og flutningur báta laugardaginn 23.
nóvember frá kl. 9-18.
Upptaka báta fer fram við Bótarbryggju í Vesturhöfn.
Gjald fyrir upptöku og flutning á bátasvæði á landi
Reykjavíkurhafnar í örfirisey er kr. 1400 og greiðist við
upptöku báta á staðnum.
Skipaþjónustustjóri.
Aðalfundur
Prentsmiðju Þjóðviljans h.f. verður haldinn fimmtu-
daginn 28. nóv. kl. 18 að Síðumúla 6.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Frá Alþingi
Umferðarlög
Frumvarp til umferðarlaga er nú til meðferðar hjá efri
deild alþingis.
Þeir, sem beðnir hafa verið umsagnar um frumvarpið
eða vilja koma á framfæri athugasemdum eða ábend-
ingum, skulu skila þeim til nefndarinnar eigi síðar en
15. desember nk.
Allsherjarnefnd efri deildar.
Lestu
oöeins
sljórnarbloðin?
DJÓÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjórnarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)81333
Forseti Islands tekur við fyrsta miðanum úr hendi Jónu Gróu Sigurðardóttur, formanns Verndar. Viðstaddir afhending-
una voru tveir fulltrúar úr framkvæmdastjórn Verndar, þeir Ottó Örn Pétursson og Sigurjón Kristjánsson.
Happdrœtti Verndar
Landaparís
Félagssamtökin Vernd efna nú
til happdrættis til styrktar
starfsemi sinni. Happdrætti þetta
gengur undir nafninu LANDAP-
ARIS og eru vinningar hundrað
talsins. Vinningshafar geta sjálfír
valið milli 9 ferða, utanlands eða
innan. Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir keypti fyrsta mið-
ann í vikunni sem leið en forseti
íslands hefur um árabil verið
verndari samtakanna.
Félagssamtökin Vernd hafa
það meginmarkmið að aðstoða
einstaklinga sem afplánað hafa
fangelsisdóm. Aðstoðin fer að
miklu leyti fram í formi endur-
hæfingar sem nauðsynleg er þess-
um einstaklingum þegar þeir
snúa á ný inn í samfélag frjálsra
manna. Til þess að slík endurhæf-
ing geti farið fram þurfa fé-
lagssamtökin m.a. að geta boðið
skjólstæðingum sínum heimili
um stundarsakir og aðstoðað þá
við að fá vinnu.
Allir þeir sem slíkrar endur-
hæfingar njóta taka þátt í henni af
fúsum og frjálsum vilja og skil-
yrði er algjört bindindi á áfengi
og aðra vímugjafa og að viðkom-
andi stundi þá vinnu sem honum
býðst. Endurhæfing sem þessi
hefur reynst vel og margir þeirra
sem hennar hafa notið eru í dag
fullnýtir þjóðfélagsþegnar.
Kvenréttindafélag íslands átti
á sínum tíma frumkvæðið að
stofnun Verndar og í dag eru flest
kvenfélög landsins aðilar að sam-
tökunum. Fyrsti formaður Vern-
dar var Þóra Einarsdóttir og
gegndi hún því embætti í tuttugu
ár. Árið 1980 tók Hilmar Helga-
son við formannsstarfinu en
tveimur árum síðar tók núver-
andi formaður, Jóna Gróa Sig-
urðardóttir við embættinu.
Dregið verður í LAND APAR-
ÍS þann 6. janúar, 1986.
Athugasemd
Athugasemd
Húsameistari ríkisins
ekki meir, - ekki meir
Ef sjúkdóminn ónæmistæringu
ber á góma er eins og allir, sem
um hann fjalli glati glórunni.
Smitefni, sem veirur ræktast úr,
hættir að vera smitandi, jafnvel á
vörum sýktra, sem kyssa lítil börn
á munninn.
Menn missa alla sjálfskrítik og
taka hiklaust að sér rannsóknir,
sem þeir hafa enga æfingu í að
gera. Þetta heitir að skima, og til
þess eru bara keypt erlend „kitt“.
Því minna sem menn vita, því
meira fullyrða þeir, og akkúrat
þetta blasti við lesendum á for-
síðu Þjóðviljans í morgun. Það er
frá því greint, hvernig Sjálfstæð-
isflokkurinn sé nú að bjarga
kaupmanni einum hér í bænum
með því að ætla að láta ríkissjóð
kaupa af honum hús „undir rann-
sóknir á ónæmistæringu". í frá-
sögninni er hvergi minnst á, að
kannske sé nú líka þörf á að leysa
annan húsnæðisvanda, sem
veirurannsóknir fyrir heilbrigðis-
þjónustuna eru í og ýmsum er
kunnur. Heldur ekki, að kannske
mætti leysa jafnframt í þessu
stóra húsi vanda annarra
rannsóknadeilda á Landsspítala-
lóð, til dæmis bakteríu-
rannsóknadeildarinnar í bráða-
birgðahúsinu, sem er á hraðri leið
niður í grunninn á fyrirhugaðri
K-byggingu Landspítalans. Sú
deild vinnur líka fyrir allar
sjúkrastofnanir og starfandi
lækna í landinu, eins og veiru-
rannsóknadeildin, þó að minna
hafi farið fyrir umræðum um
bakteríurannsóknir að undan-
fömu. Öll verkleg kennsla í
veiru- og bakteríufræði er nú á
götunni. Það mál varðar um 500
stúdenta, sem eru að búa sig
undir störf í heilbrigðisþjónust-
unni, einnig í matvælafræði og
ýmsum greinum líffræði. Ég gæti
haldið áfram að nefna starfsemi í
húsnæðisvanda, en læt þetta
nægja. Sjálfstæðisflokkurinn ber
nú pólitíska ábyrgð á heilbrigðis-
þjónustunni í landinu og sem bet-
ur fer er hann á fullu að reyna að
finna lausn á þessum húsnæðis-
vanda. Mér fyndist miklu ámælis-
verðara, ef hann talaði ekki við
kaupmenn eða aðra þá, sem aug-
lýsa til sölu eða leigu aðgengileg
hús á heppilegum stöðum í bæn-
um. Á Landsspítalalóð er nefni-
lega engin lausn í sjónmáli. Ég
veit, að Hagsýslan hefur nú til
athugunar tvö hús í Ármúla
vegna ofangreindrar starfsemi.
Annað er til sölu, hitt til leigu.
Það verður enginn vandi að fylla
þau bæði af nauðsynlegri starf-
semi, ef sýslumennirnir sam-
þykkja. Flitt er meira áhyggju-
efni, að mark verði tekið á óá-
byrgum blaðaskrifum. Þar sem
hér á í hlut deildin, sem ég rek að
minnsta kosti í mánuð enn, vil ég
ekki liggja undir því að vera
kannske álitin heimildarmaður
að svo ómaklegu slúðri. Þessi
„frétt“ á ekki sinn uppruna hér á
veirurannsóknadeild og ég set
þessar línur saman til að vísa
henni til föðurhúsanna.
Rannsóknastofu í veirufrœði
19! 11'85
Margrét Guðnadóttir, prófessor
Starfa
ekki fyrir
Suðurvirki
Eftirfarandi yfirlýsing hefur
blaðinu borist frá Guðmundi
Sigþórssyni skrifstofustjóra:
Vegna fréttar í blaði yðar í dag
föstudaginn 15. nóvember 1985
um að skrifstofustjóri
landbúnaðarráðuneytisins gegni
stjórnarstörfum í fyrirtækinu
Suðurvirki h.f. sem er starfandi í
Keflavík og þar sem undirritaður
gegnir starfi skrifstofustjóra í
landbúnaðarráðuneytinu, óskast
eftirfarandi tekið fram:
1. Undirritaður gegnir hvorki
stjórnarstörfum né fer með for-
mennsku í stjórn fyrirtækisins
Suðurvirki h.f.
2. Starfsemi Suðurvirkis h.f.,
sem samkvæmt frétt í blaði yðar
er verktaki á Suðurnesjum fyrir
varnarliðið, snertir á engan hátt
starf skrifstofustjóra landbúnað-
arráðuneytisins hver sem því
starfi gegnir.
Með kærri þökk fyrir birting-
una.
Reykjavík, 15. nóv. 1985
Guðmundur Sigþórsson.
Frá ritstj.
Samkvæmt upplýsingum frá
hlutafélagaskrá er Guðmundur
Sigþórsson, Sólbraut 15,
Seltjarnamesi einn af 5 skráðum
eigendum Suðurvirkis hf. og
jafnframt skráður þar sem
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Suðurvirki hf. hefur hvergi skráð
heimilisfang, en skrifstofustjóri
varnarmálaskrifstofu Utanríkis-
ráðuneytisins sem hefur með
verksamninga vegna sorphirðu á
Keflavíkurflugvelli að gera vísaði
blaðamanni Þjóðviljans á Guð-
mund Sigþórsson skrifstofustjóra
í landbúnaðarráðuneytinu sem
forsvarsmann Suðurvirkis. Þjóð-
viljinn stendur því við frétt sína.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINn! Föstudagur 22. nóvember 1985