Þjóðviljinn - 22.11.1985, Síða 9
HEIMURINN
Leiðtogafundur
Bíðum og sjáum hvað setur
Fundurinn í Genfjók bjartsýni á bœtta sambúðþótt áþreifanlegur árangur virðist ekki mikill
Genf og víðar — LeiðtogafuncSi
þeirra Reagans og Gorbat-
sjofs lauk í gær, tæpum sólar-
hring síðar en ætlað var.
Leiðtogarnir gáfu út sameigin-
lega yfirlýsingu og þótt
áþreifanlegur árangur af fund-
inum væri Iftill ríkti almenn
ánægja með hann og bjartsýni
á að framundan sé tími bættra
samskipta stórveldanna. Báð-
ir lýstu leiðtogarnir ánægju
sinni með fundinn og samherj-
ar þeirra í austri og vestri tóku
undir með þeim.
Leiðtogarnir komu fram á
blaðamannafundi í gærmorgun
og skýrðu frá niðurstöðum fund-
arins. Þar var líka undirritaður
eini samningurinn sem gengið var
Skák
Sovétmenn
halda forystu
Genf — Sovétmenn treystu
stöðu sína í efsta sæti á
heimsmeistaramóti landsliða í
skák sem nú fer fram í Luzern í
Sviss. Það gerðu þeir þrátt
fyrir naumt tap fyrir ungverjum
sem voru í 2. sæti fyrir 5. um-
ferðina sem tefld var í gær.
Skýringin er sú að Anatolí
Karpof vann skák sína við Bor-
is Spasskí úr þriðju umferð.
Úrslitin í 5. umferð voru þau að
ungverjar sigruðu sovétmenn
með 3,5 vinningum gegn 2,5,
englendingar unnu kínverja 4-2
og deila nú öðru sætinu með ung-
verjum. Frakkar unnu sveit Afr-
íku 5-1, rúmenar unnu vestur-
þjóðverja 4-2 og svisslendingar
og argentínumenn skildu jafnir
2,5-2,5, en einni skák er ólokið
Staðan að loknum 5 umferðurr
er því þessi:
1. Sovétríkin 19,5 vinninga og 1 bið-
skák
2. -3. England og Ungverjaland 19 v.
4. Rúmenía 17,5 v.
5. Frakkland 16,5 v.
6. Kína 15,5 v.
7. Vestur-Þýskaland 13,5 v.
8. Sviss 13 v.+l bið
9. Argentína 10,5 v.+2 bið
10. Afríka 4 v.
Fjármál
Hlunnfor
Þjóðverjinn
Karpof?
Hamborg — Vesturþýskur út-
varpsfréttamaður hefur verið
handtekinn og honum gefið að
sök að hafa svikið uþb. 18 milj-
ónir króna út úr fyrrverandi
heimsmeistara í skák, sovét-
manninum Anatoíí Karpof.
Útvarpsmaðurinn, Helmut
Jungwirth, tók að sögn Karpofs
að sér að annast milligöngu vegna
greiðslna á auglýsingatekjum
sem Karpof átti að fá frá fyrirtæki
í Hong Kong sem framleiðir
skáktölvur. Karpof gekk frá því
við Jungwirth árið 1978 að féð
yrði lagt inn á bankareikning
þjóðverjans sem síðan átti að
koma þeim áfram til Kaipofs.
Jungwirth heldur því fram að
hann hafi í einu og öllu staðið við
samninginn en Karpof segist
aldrei hafa fengið féð. Saksókn-
ari í Hamborg sem fyrirskipaði
handtöku Jungwirths sagði í gær
að rannsókn málsins „hefði stað-
ið nógu lengi til að réttlæta hand-
tökuna“.
frá á fundinum en hann er um
samskipti á sviði lista, vísinda og
menntamála. Að fundinum lokn-
um hélt Gorbatsjof annan blaða-
mannafund sem hann var búinn
að boða áður. Þar las hann upp
ávarp og svaraði spumingum
fréttamanna. Að þessu loknu
héldu báðir leiðtogamir til fund-
ar við bandamenn sína. Gorbat-
sjof hitti sína menn úr Varsjár-
bandalaginu í Prag en Reagan
fann sína menn að máli í höfuð-
stöðvum Nató í Bmssel í Belgíu.
Ljóst er af yfirlýsingu leiðtog-
anna að þeir hafa ekki komist að
neinu samkomulagi um afvopn-
unarmál. Þar veldur fyrst og
fremst sú ákvörðun Reagans að
halda til streitu áætlun sinni um
Stjörnustríð en sovéski leiðtog-
inn hafði lýst því yfir fyrir fundinn
að tómt mál væri að tala um af-
vopnun fyrr en sú áætlun hefði
verið lögð á hilluna. Enda tóku
leiðtogarnir það fram í gær að
„verulegur ágreiningur" væri
milli stórveldanna á ýmsum svið-
um.
í yfirlýsingunni segir að
leiðtogamir hafi orðið ásáttir um
að hraða afvopnunarviðræðun-
um í Genf og vinna að því að ná
samkomulagi um helmings niður-
skurð kjarnorkuvopna auk þess
að kanna hvort grundvöllur sé
fyrir bráðabirgðasamkomulagi
um meðaldræg vopn. Ákveðið
var að næsta lota samningavið-
ræðnanna í Genf hefjist 16. janú-
ar nk. Einnig urðu þeir ásáttir um
að stuðla að því að komið yrði
upp sérfræðingamiðstöðvum í
höfuðborgum beggja stórvelda
sem hefðu þann tilgang að koma í
veg fyrir að stríð geti hafist af mis-
skilningi eða slysni.
Þeir vora sammála um nauð-
syn þess að koma á algeru banni
við framleiðslu efnavopna og að
eyðileggja núverandi birgðir af
slíkum vopnum. Þeir lögðu
áherslu á viðræður um fækkun
herja í Evrópu en þær hafa staðið
í Vínarborg ámm saman. Loks
má nefna að þeir urðu ásáttir um
að bjóða hvor öðmm heim. Er
Gorbatsjof þjáðist af kvefi þegar hann og Raisa kona hans komu
til Genf. Þótt það sé hvimleiður sjúkdómur var þó huggun harmi
gegn að ekki þurftu þau hjón né hin aðalhjónin í Genf að óttast um
öryggi sitt, 3.500 svissneskir hermenn sáu til þess.
ráðgert að Gorbatsjof fari til
Bandaríkjanna á næsta ári en árið
eftir kómi Reagan til Sovétríkj-
anna. Má búast við að þar verði
haldið áfram þeim viðræðum um
afvopnunarmál sem hófust í
gönguferðunum á bökkum Gen-
farvatns.
Reagan forseti sagði eftir fund-
inn að þeir hefðu átt langar sam-
ræður um önnur ágreiningsmál
stórveldanna, svo sem
mannréttindamál og stöðu mála á
ýmsum átakasvæðum heims. í
yfirlýsingunni er ekki að finna
neitt um þessa málaflokka en
embættismaður úr fylgdarliði
sagði fréttamönnum að svo gæti
farið að einhver hreyfing kæmist
á lausn mála í Afganistan á næst-
unni.
Embættismenn og talsmenn
leiðtoganna vom sammála um að
gott andrúmsloft hefði ríkt á
fundunum og að leiðtogunum
hefði tekist að leiðrétta ýmsan
misskilning og draga úr tor-
tryggni sem verið hefur afar rík í
samskiptum ríkjanna undanfarin
ár. Þeim Reagan og Gorbatsjof
virðist einnig hafa orðið vel til
vina, þeir tókust innilega í hend-
ur og brostu sínu breiðasta fram-
an í fréttamenn. Á leiðinni til
Belgíu sagði Larry Speakes
blaðafulltrúi Reagans ma.: „Ég
held að þeim hafi geðjast vel hvor
að öðmm. Þeim lynti vel og þeir
ræddust við. Ég held að báðir hafi
getað sett sig inn í stöðu hins.“
Speakes var spurður hvort
annar hvor þeirra hefði skipt um
skoðun á fundinum: „Það kemur
í ljós með tímanum. Nú tekur við
tímabil þar sem við verðum að
bíða og sjá hverju fram vindur.“
Ætli það sé ekki helsta niður-
staða fundarins.
Fellibylur
Hvað gerir Kata?
Pensacola — Fellibylurinn
Kata hélt áfram för sinni um
Mexíkóflóa í gær og stefndi
upp á land á norðvestanverð-
um Flórídaskaga. 90 þúsund
manns flýðu heimili sín í gær
af ótta við fellibylinn en fólkið
Suður-Afríka
33 fallnir á tæpri viku
Mamelodi — Suðurafrískar ör-
yggissveitir felldu amk. sex
menn þegar óeirðir blossuðu
upp í blökkumannahverfinu
Mameiodi skammt frá Pretoríu
í gær. Hóf ust þær þegar örygg-
issveitirnar vörpuðu táragasi
að hópi blökkumanna sem efnt
höfðu til mótmæla í hverfinu.
Fólkið kom saman til að mót-
mæla stefnu hverfisstjómarinnar
sem lýtur fyrirmælum stjórnar-
innar í Pretoríu og hefur m.a.
hækkað húsaleigu í hverfinu.
Einnig mótmælti fólkið hömlum
á útfömm sem oftar en ekki snú-
ast upp í pólitískar aðgerðir og
nærvem hersveita í hverfinu.
Eftir að öryggissveitirnar réðust
til atlögu reisti fólkið götuvígi og
Líbanon
Barist um þjóðfánann
Beirut — Barist hefur verið á
götum í vesturhluta Beirut í Lí-
banon í tvo daga vegna deilna
um líbanska þjóðfánann en í
fyrradag var dagur fánans í Lí-
banon. Ekki er Ijóst hve mann-
fall hefur verið mikið en það
mun vera töluvert.
Bardagamir hófust þegar
sveitir drúsa fóm um og fjar-
lægðu alla líbanska fána sem í
augsýn voru. Rifu þeir niður fána
af opinberum byggingum og fjar-
lægðu pappírsfána sem víða
höfðu verið hengdir upp í tilefni
dagsins. Sögðu þeir fánann vera
tákn um ólögmæt yfirráð krist-
inna manna í stjórnkerfí landsins.
Sveitir sjíta-múslima sem nefn-
ast Amal hófu gagnsókn og kom
til átaka víða í vesturhluta Beirut
en þar ráða múslimar og vinstri-
menn lögum og lofum. Harðastir
urðu bardagamir úti fyrir sjón-
varpsstöð borgarinnar en þar
vörðust sveitir úr Amal í tvo tíma
meðan drúsar reyndu að komast
til að fjarlægja fánann sem blakti
yfir húsinu.
kveikti í húsum.
Lögreglumenn meinuðu
blaðamönnum að fara inn í hverf-
ið og vildu engar upplýsingar gefa
um mannfall eða slys á fólki.
„Hér er ekkert á seyði,“ sagði
Iögreglumaður einn við frétta-
menn sem heyrðu skothríð innan
úr hverfinu og sáu reyk leggja
upp af brennandi húsum. í þeim
orðum töluðum þutu framhjá
brynvarðir bflar á leið inn í hverf-
ið. Það voru íbúar hverfisins sem
skýrðu frá mannfallinu og bættu
því við að margir hefðu særst í
átökunum sem urðu.
Suðurafrísk lögregla skýrði frá
því í gær að hún hefði skotið til
bana 5 manns í Jóhannesarborg
sl. mánudag. Kváðust lögregluyf-
irvöld hafa gleymt að skoða
skýrsluna sem skrifuð var um at-
burðinn.
Síðustu dagar hafa verið
óvenju blóðidrifnir í Suður-
Afríku. Alls hafa 33 fallið á einni
viku, 27 fyrir hendi lögreglu-
manna, 5 í innbyrðis átökum
blökkumanna og einn fyrir hendi
verslunareiganda. Fjöldi látinna í
óeirðum undanfarið ár er kominn
hátt á níunda hundrað.
býr við ströndina. Olíufyrir-
tæki fluttu í land 20 þúsund
verkamenn af olíuborpöllum
úti fyrir strönd Louisiana-
fylkis.
Kata hefur þegar valdið
umtalsverðri eyðileggingu á leið
sinni yfir Kúbu og eyjarnar suður
af Florida. Ríkisstjórinn íFlorida
hefur lýst yfir neyðarástandi í
fylkinu og fólk sem býr á 480 km
langri strandlengju frá Missisippi
til Flórída hefur verið varað við
fellibylnum. 700 þjóðvarðliðar
hafa verið kallaðir út til að annast
björgunarstörf ef þörf krefur.
Vindhraðinn í fellibylnum hef-
ur mælst vera uþb. 180 km á
klukkustund og færðist lægðar-
miðjan áfram með 25-30 km
hraða í fyrradag. í gær hægði hún
heldur á sér þegar hún nálgaðist
kuldaskil sem lágu meðfram
ströndinni. Vonuðust veðurfræð-
ingar til að þau mundu svifta
Kötu mesta kraftinum en vömðu
þó við því að hætta væri á allt að
fjögurra metra hárri flóðbylgju í
kjölfar hennar.
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/R EUTER
...Sovéskir jarðfræðlngar hafa
fundið oltu á svæði sem ekki hefur
áður verið nýtt tll olíuvinnslu.
Svæðið er i Austur-Síberfu og telja
sérfræðingar hugsanlegt að hefja
olíuvinnslu þar árið 1990. Þessi ol-
íufundur kemur sér vel fyrir sovét-
menn því olfuframleiösia þeirra
minnkaðl úr 616 miljónum tonna
árið 1983 í 613 mlljónir tonna ífyrra
og er búist vlð áframhaldandi sam-
drættl í ár...
Föstudagur 22. nóvember 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9