Þjóðviljinn - 22.11.1985, Page 14
Útum hvippinn
UM HELGINA
Víkingurinn Steinar Birgisson: stór-
leikur við Stjörnuna á laugardaginn í
Kópavogi.
Körfubolti
Keppni í úrvalsdeild hafin
aftur. Suðurnesjaslagurí
Njarðvík, UMFN-ÍBK FÖ:
20.00. KA-Haukar, Haga-
skólaSU: 14.00. Valur-ÍR,
SeljaskólaMÁ: 20.00.,
1. deild karla: Reynir-ÍS,
Sandgerði FÖ: 20.00. Þór-
Grindavík, Akureyri FÖ:
20.00, og aftur LA: 14.00.
Fram-Breiðablik, Hagaskóla
SU: 20.00.
Kvennadeild: ÍR-KR, Selja-
skólaMÁ:21.30.
Badminton
Bikarmót unglinga (íþrótta-
húsinu Akureyri. Hefst FÖ:
kvöld, lýkurSU.
Tréfoglar Þorsteins Díómedessonar,
- sýning á verkum hans verður opn-
uð á laugardag í Nýlistasafninu.
Kammermússík
Þriðju tónleikar Kammer-
músikklúbbsins á starfsár-
inu. Strengjaflokkur: Guðný
Guðmundsdóttir (fiðla), Sean
Bradley (fiöla), John Robert
Gibbons (lágfiðla), Carmel
Russill (knéfiðla), Gunnar
Kvaran (knéfiðla). Verk eftir
Haydn, Bartók, Schubert. Bú-
staðakirkju. SU: 20.30.
Schubertfjórhent
Tónleikar Önnu Málfríðar
Sigurðardóttur og Martins
Berkofsky. Verk eftir Schu-
bert, fjórhent á píanó. Fyrstu
tónleikar af sex í vetur. Nor-
ræna húsinu. LA: 16.00.
Djass í Stúdó
Norrænn þjóðlagadjass.
Reynir Sigurðsson og Guð-
mundur Ingólfsson. Stú-
dentakjallaranum við Hring-
braut. FÖ:21.00.
Á tjaldinu
I þágu blindra
Kvikmyndin Jólasveinninn/
Santa Claus frumsýnd í
Háskólabíói, fyrsta almenn-
ingssýning myndarinnará
heimsbyggðinni. Barnamynd,
leikstjóri AlexanderSalikin,
leikarar m.a. John Lithow, Du-
dley Moore. Allur ágóði af
frumsýningunni rennurtil
blindra. SU: 14.00. Síðan
einsog venjulega.
Cassavetes
„Mánudagsmyndir alla vik-
una“, Regnboganum. Ást-
arstraumareftir John Cassa-
vetes. Daglega 19 og 21.15.
Danmörk
Dönsk verðlaunamynd frum-
sýnd í Regnboganum: Dísin
og drekinn/Skönheden og
uhyret eftir Nils Malmros,
með styrk f rá Norrænu
ráðherranefndinni. Aðall-
eikkonan: Lina Arlien-
Söborg, viðstödd. LA: 14.00.
Annað gott
T raustar myndir í Reykjavík
samkvæmt „Tjaldi" Þjóðvilj-
ans: Heiður Prizzianna (Bíó-
höllinni), Amadeus (Regn-
boganum), Vitnið (Regnbog-
anum), Kókdrengurinn
(Regnboganum), Birdy
(Stjömubíó), Myrkraverk
(Laugarásbíó).
A vellinum
Handbolti
Stórleikur í 1. deild karla:
Stjarnan-Víkingur. Digranesi
LA: 15.15. Laugardalshöll LA:
Fram-FH 20.00, KR-Þróttur
21.15.
1. deild kvenna: Einu liðin
sem ekki hafa tapað stigi,
Víkingur-Fram, Laugardals-
höllSU: 15.15. Einu liðinsem
ekki hafafengið stig, Haukar-
KR, HafnarfirðiSU. 15.15.
2. deild karla: Þór-HK, Eyjum
LA: 13.30. Grótta-ÍR, Sel-
tjarnarnesi LA: 14.00.
Afturelding-Breiðablik,
Varmá, LA: 14.00. Haukar-
Ármann, Hafnarfirði, SU:
14.00.
Samar
Fyrirlesturum listiðnað sama,
sögu hans, þróun og stöðu.
Maja Dunfjeld Aagárd frá Nor-
egi talar í Norræna húsinu í
tengslum við sýningu á sama-
list.SÚ: 17.00.
Amnesty
Kynningarnámskeið íslands-
deildar Amnesty Internation-
al. Starfsemin kynnt með
stuttum erindum. Lögbergi,
stofu 102. LA: 13.30-17.30.
Heimspeki
William Boos heldur fyrirlest-
ur á vegum Félags áhuga-
manna um heimspeki: „An
interpratation of Berkeleys
Unseen Tree", um nokkrar
forsendur að hughyggju
Berkeleys. Lögbergi. SU:
15.00.
Indíamatur
Indversk matargerð kynnt á
Krákunni, Laugavegi 22.
Gestakokkur: Joseph Fung.
LA: kvöld.
Barrsneiðin
Skyndisýning áhugahóps um
byggingu náttúrufræðisafns
kringum bandarísku gjöfina í
Háskólabíó. Fróðleikurog
skemmtun um barrtréð eins-
og vera mundi í náttúrufræði-
safni.SU: 10.00-13.30.
Hananú
Ganga Frístundahópsins
Hananú, Kópavogi. Lagtaf
staðfrá Digranesvegi 12, LA:
10.00.
Friður
Fyrirlestrar um þjóðfélag án
of beldis og heimsfrið á vegum
Bahá’ía: Dr. Hossain Danesh
prófessor í Ottawa. Áditoríum
Hótel Loftleiða.SU: 10.00
og 14.00.
Nýr matsölustaður
Hér-inn, Laugavegi 72, opn-
aðurFÖ. Kaffi, meðlæti, ísog
sælgæti. Myndlist á veggjum,
listamönnum boðið að sýna.
Opið 8.30-23.30.
og hvappinn
Gáfnaljón og reikningshestur
úr Hafnarfirði var spurður að
því hvort hann vissi hvað
margir menn hefðu dáið frá
því að mannkynið varð til.
Hafnfirðingurinn hugsaði sig
um dágóða stund og spurði
síðan: Erseinni heimsstyrj-
öldinreiknuðmeð?
BÆKUR
Ástir
Ævintýri tvífara
Snjólaug Bragadóttirhefurnú
þýtt nýja bók eftir ensku skáld-
konuna Nettu Muskett, og nefnist
hún Hljómur hamingjunnar.
Þar segir frá kennslukonunni
Anne, sem skyndilega lendir í
ævintýrum þegar hún hittir tví-
fara sinn, hefðarkonuna Gillian,
og skiptir við hana um hlutverk.
„Við það verða straumhvörf í lífi
kennslukonunnar" segir í frétt frá
Hörpuútgáfunni: „Hún er
skyndilega orðin miðdepill sam-
kvæmislífsins. Öskubuskan er
orðin glæsibúin hefðarkona í
hópi fjölda aðdáenda. Vandinn
er mikill að sneiða hjá óvæntum
uppákomum í þessu nýja hlu-
tverki. Það tekst furðu vel, þar til
fyrrverandi eiginmaður Gillian
birtist óvænt. Við það tekur at-
burðarásin nýja stefnu. Ástamál-
in grípa alls staðar inn í. Fjárkúg-
un og dularfullt mannslát leiða til
lögreglurannsóknar ... “
Ástir
Hamingjudraumar
Hamingju
draumar
Á íslenska tungu hefur nú verið
snúið sautjándu bókinni eftir Bo-
dil Forsberg, og heitir hún Ham-
ingjudraumar. Hörpuútgáfan gef-
urút.
Þetta er saga um ástamál
tveggja systra, Heidi og Lindu,
sem ólust upp á barnaheimilum
og var síðan komið í fóstur hjá
sómamönnum sem þóttu þó ekki
fara sem sómasamlegast fram.
Um Heidi segir eftir að hún hafði
í tvö ár kvalist af angist í vistinni
hjá sóknamefndarmanninum
Kristni Mörk: „Að lokum sá hún
enga aðra undankomuleið en
flótta. „Flýðu“, sagði rödd innra
með henni, „flýðu, áður en það
verður of seint“. Hún ákvað að
hlýða þessari rödd.“ Skúli Jens-
son þýddi.
Spenna
Hefndarverk
„Harðsvíruð og æsileg atburða-
rás“ er dómur breska blaðsins
Daily Mail um bókina Hefndar-
verkasveitin eftir Duncan Kyle,
sem Hörpu-útgáfan hefurnú gef-
ið út í íslenskri þýðingu Hersteins
Pálssonar. Atburðum ersvo lýst:
„Flugrán - mannrán - fiótti.
Það var enginn tími til umhug-
sunar, aðeins skjótra athafna. Is-
raelsmenn vildu ná honum vegna
misheppnaðs flugráns og láta
hann hverfa sporlaust. Rússai
vildu ná honum, því að hann
hafði rænt frægustu fimleikakonu
Sovétríkjanna. Bretar vildu ná
honum, því að blóðferill hans lá
um allt England. Það eina sem
Budzinski sjálfur vildi var að
koma fram hefndum á nazista-
böðlinum frá Layerhouser og
draga hann fyrir dómstóla".
Spenna
Exocet-flugskeytin
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur gefið út bókina Exocet-
flugskeytin eftir Jack Higgins,
höfund bókarinnar Örninn er
sestur og fleiri bóka svipaðs eðl-
is.
„Þetta er fyrst og fremst harð-
soðin spennubók" segir í frétt frá
forlaginu. „Bók sem þú lest í
einni lotu“. Gissur Ó. Erlingsson
þýddi.
Á kápu segir m.a. úr bókinni:
„Úr Iofti virtist kletturinn ó-
kleifur, en við nánarí athugun
sást erfið leið frá fjörunni. Hann
tók handsprengju úr vasanum,
kippti út pinnanum með tönnu-
num og fleygði sprengjunni niður
brekkuna ... Það varð ærandi
sprenging, síðan nistandi kvala-
vein ...“.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. nóvember 1985