Þjóðviljinn - 01.12.1985, Qupperneq 4
Fugl dagsins
Uppúr lokaðri skúffu
„þaö má segja aö þessi lög
séu tekin upp úr skúffu, sem
ég hef haft lokaða alllengi.
Þetta er skylt því sem við vor-
um að gera í Spilverkinu hér á
árum áður, og mér þætti vænt
um að fá tækifæri til að halda
áfram á þessum nótum. En
markaðurinn er harður hús-
bóndi, ekki síst hér á íslandi,
þar sem hann er undrasmár
og mettaður að verulegu leyti
með staðlaðri engilsaxneskri
iðnaðartónlist. Eneinhver
staðar hímir stór og þögull
hópur manna sem vill aðra
tónlist; - íslenskan tón. Við
erum að leita að þessum ís-
lenskatón."
Það er tónlistarmaðurinn
Valgeir Guðjónsson sem situr að
spjalli með blaðamanni og þeim
Ævari Kjartanssyni og Diddú
(Sigrúnu Hjálmtýsdóttur). Á-
stæðan er plata sem kemur út nú
um helgina og ber nafnið „Fugl
dagsins". Lögin eru eftir Valgeir,
en textarnir eftir Jóhannes úr
Kötlum; Valgeir, Ævar og Diddú
syngja. Og Valgeir heldur áfram
að segja frá plötunni.
„Þessi lög hafa sem sagt verið í
lokaðri skúffu. Frá því ég fór til
Noregs og fékk kúltúrsjokkið um
árið. Ég fór á skemtun (með einu
emmi!); svona norska vísna-
skemmtun með náungum sem
heita Knutsen og Ludvigsen.
Þetta var áður en Norðmenn
unnu á „La det svinge“. Óg-
leymanleg skemtun.
Sem sagt, ég sá að það var ekki
hægt að Iáta Arna Johnsen einan
um íslenska vísnamarkaðinn. Og
þessar melódíur urðu til af sjálfu
sér. Ég raulaði þetta inn á band
og síðan hef ég geymt bandið og
- Diddú,
/€var Kjartans
ogValgeir
Guðjónsson
syngja kvœði
Jóhannesar
úrKötlumó
plötu við lög
Valgeirs
beðið eftir að fá tækifæri til að
gera eitthvað við það. Þegar við
vorum að filma á Seyðisfirði ætl-
aði ég einu sinni að hlusta á band-
ið, lagðist uppí koiu og það
heyrðist ekki tíst. Eg hélt að
bandið væri orðið úldið, en svo
kom í ljós, að það vantaði bara
rafhlöður í tækið. Lögin voru öll
þarna ennþá og síðan gróf ég upp
Ævar Kjartansson og dustaði af
henni Diddú og hér er platan
komin. 12 lög með textum Jó-
hannesar úr Kötlum. Og nú er
bara að vona að maður hafi rétt
fyrir sér, að til sé fólk sem vill
íslenska tónlist af þessu tagi.
„En hvernig datt þér í hug að
ná í Ævar, ekki er hann þekktur
söngvari?"
„Einmitt þess vegna. En það
eru margir útvarpsþulir góðir
söngvarar. Ég vissi að Ævar var
hörku samkvæmissöngvari. Og í
leyfi frá Útvarpinu“.
/Etlaði að verða
stórsöngvari
„Þetta er alveg nýtt fyrir mig.
En sem saklaus sveitamaður ætl-
aði ég að verða óperusöngvari,“
bætir Ævar inn í að efni og formi.
„Já, Jóhannes hefur mörg and-
lit. Og lögin eru líka mjög ólík og
fjölbreytt. „Svo söng ég í kór í
Menntó með Demetz og kom
fram í sjónvarpi árið 1967. Síðan
hef ég aðallega sungið í sam-
kvæmum. Seint í samkvæmum.
Þetta var einhver þráhyggja í
Valla að drífa mig í þetta. En ég
hef mikla trú á svona kvæðatón-
list, hún á sér líka aðdáendahóp,
þótt meira fari fyrir þeim sem
hlusta á vinsældalistana,“ segir
Ævar. „Og ljóð Jóhannesar eru
ótrúlega fjölbreytt, í útfærslu.
Það var mjög gaman að syngja
þau,“ bætir nú Diddú við.
Hún kom til landsins í ágúst og
á að baki 6 ára klassískt söngnám
í London. Næst ætlar hún að
halda til Ítalíu, nánar tiltekið til
Mflanó, vonandi með vorinu eða
„þegar tvíburarnir leyfa.“ Tví-
burarnir eru sem sagt á leiðinni í
heiminn um áramótin.
„Til að hafa þetta nákvæmt,,
bætir Valli við: „Strax eftir
skaupið á gamlárskvöld.“
„En hvernig er að syngja svona
kvæðalög ofaní klassíkina
Diddú?“
„Fínt. Ég held þessu alltaf við,
það er nauðsynlegt að hafa
breidd í söngnum. En auðvitað er
þetta allt annað. En mér hefur
alltaf þótt vænt um svona tón-
list.“
Platan þeirra þremenninganna
er gefin út af Pennanum, en auk
Valgeirs spila þeir Ásgeir Ósk-
arsson, Skúli Sverrisson, Stefán
Stefánsson og Rúnar Georgsson
á plötunni og svolítið heyrist í
Jakobi Magnússyni.
þs
Og nú er
platan
komin...
(Diddú með
sængurver
á tvíburana
undir
hendinni).
Mynd: Sig.
Gamli Spilverksfílingurinn er alltaf góður.
Bara þráhyggja í Valla að láta mig syngja.
Þætti vænt um að fá tækifæri til að halda áfram svona pælingum.
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. desember 1985