Þjóðviljinn - 01.12.1985, Qupperneq 13
Ahrif
eldgosa
á veðurfar
Okkur íslendingum ætti að
leika nokkur forvitni á að vita
hvaða áhrif öflug eldgos hafa
á veðurfar. Allir kannast við
frásagnir af Móðuharðindun-
um miklu og hörmungunum
sem fylgdu á eftir Skaftáreld-
um 1783. Þar kom vafalítið til
versnandi veðurfar sem átti
ræturað rekjatilgossins
sjálfs. Það spúði milljónum
tonna af gastegundum og
miklu magni af fíngerðu sáldri
háttíloftupp.
Athuganir
í Mexíkó
Vitað er um stórgos á borð við
hamfarirnar á Krakatá 1883 er
höfðu merkjanleg áhrif á sólgeisl-
un til jarðar. Nútíma vísinda-
menn hafa hins vegar sjaldan
fengið tækifæri til að kanna þessi
áhrif náið, sumpart vegna þess að
slík umbrot eru fremur sjaldgæf.
Það er heldur ekki auðvelt að
stunda rannsóknir í veðrahvolf-
inu á stóru svæði. Veðrahvolfið
eru neðstu 10 kflómetrarnir í guf-
uhvolfinu jarðar. Menn verða
einnig að teygja sig hærra; upp í
heiðhvolfið þar fyrir ofan.
Gosið í St. Helenufjalli í maí
1980 þeytti miklu dökku skýi til
himins en askan var svo gróf að
mest af henni hafði fallið til jarð-
ar að fáeinum vikum liðnum. Var
enda talið þá þegar að nánast öll
gjóska sem slík hefði ekki afger-
andi ill áhrif á veðurfar vegna
þess hve fljótt hún skilaði sér nið-
ur. Mikilvæg staðfesting á að gos-
gufur vega þyngra á metunum
fékkst á árunum 1982-1984, eftir
eldgos í vesturhluta Mexíkó.
El Chichón
Gosgufur eru ýmsar loftteg-
undir sem losna við eldgos úr
kviku í gosrásum eða annars stað-
ar á yfirborði jarðar. Nefna má
vatnsgufu, brennisteinsdíoxíð
(samband brennisteins og súrefn-
is), kolefnisgös, flúorvetni og
fleira. í ágúst 1982 hófst eldgos í
fjallinu E1 Chichón. Eftir þrjár
stuttar en öflugar þeytigoshrinur
var efri hluti fjallsins horfinn.
Fjallið er fremur lítið og hafði
ekki bært á sér í 600 ár. Það teng-
ist væntanlega plötumótunum
sem geyma upptök jarðskjálft-
anna í landinu fyrir ekki löngu.
Brennisteinssýra
myndast
Óvenju mikið af brennisteins-
gufum þeyttust upp í allt að 20-26
kílómetra hæð og fáum vikum
síðar lá mjótt ský vestur af fjal-
linu alla leið umhverfis hnöttinn.
Á 2 árum dreifðist skýið um allt
norðurhvel jarðar og hluta af
suðurhvelinu. Magn brenni-
steinsgufunnar er áætlað 3,3
milljónir tonna.
Líkt og í gosinu úr Lakagígum
gengu brennisteinslofttegundirn-
ar í samband við vatn í andrúm-
sloftinu og varð þá til brenni-
steinssýruúði; einar 20 milljónir
tonna af örsmáum sýrudropum.
Mátti sjá úðaskýið á gervitungla-
myndum. í um 2000 km fjarlægð
frá eldfjallinu reyndist úðaskýið
um 140 sinum þéttara en svipað
ský frá St-Helenufjalli tveimur
árum áður; í sömu fjarlægð frá
upprunastaðnum.
Athuganir með tækjum í loft-
belgjum sýndu að hitastig í há-
loftum hækkaði, trúlega vegna
þess að úðaskýið gleypti í sig sól-
geislun auk þess sem það endur-
kastaði henni að hluta. Afleiðing
þess er sú að hitastig í neðri hluta
veðrahvolfsins lækkar. Banda-
rískir vísindamenn reyna að meta
lækkunina og birta tölur á milli
0,3 og 0,5 gráða fyrir norðurhvel
jarðar. Erfitt reynist að staðfesta!
þær vegna þess að margir aðrirj
þættir í „veðurvél“ jarðar geta
ýmist jafnað hitasveifluna eða
valdið annarri álíka. Talið er að
úðaskýið hafi haft áhrif á loft-
strauma í háloftunum. Þeir reka
lægðir áfram og kemur þar fram
önnur atlaga að veðurfarinu, ým-
ist til hækkunar eða lækkunar á
meðalhita á ákveðnum stað.
ísland ó blaði
Vísindamenn nokkurra þjóða
hafa lengi stundað rannsóknir á
borkjörnum úr Grænlandsjökli.
Þeirra á meðal eru bandarískir og
danskir fræðimenn og íslending-
urinn Sigfús Johnsen. Komið hef-
ur fram að sýrustig íssins, ef
þannig má að orði komast, eykst
hér og hvar í kjörnunum. Með
aðstoð gjóskulaga (fíngert ryk)
og þó sérstaklega með athugun-
um á hlutfalli súrefnissamsæta er
aldur íssins í kjörnunum sæmi-
lega þekktur. Súru kjarnahlut-
arnir eru á sömu árabilum og
ýmis stór eldgos er menn vita um í
sögunni. Þannig finnast ummerki
t.d. eftir Krakatárgosið, umbrot-
in í Katmai í Alaska 1912 og
Heklugosið 1947 í Grænlandsísn-
um, auk margra forsögulegra
gosa sé miðað við íslandssöguna.
Allt ber því að sama brunni:
Öflug eldgos, og gosefni, rík af
brennisteinsgufum, geta haft um-
talsverð áhrif á veðurfar á stórum
svæðum. Basaltgosin á íslandi
eru meðal þeirra eldsumbrota á
jörðinni sem framleiða hlutfalls-
lega mikið af brennisteinsgufum.
Stórgos á borð við áðurnefnda
Skaftárelda eða gosin í Eldgjá um
930 hafa haft og munu hafa vond
áhrif á veðurfar hérlendis um
tíma og vafalítið víðar á norður-
hveli jarðar.
Það er full ástæða fyrir íslend-
inga að fylgjast vel með rann-
sóknum á afleiðingum eldgosa á
veðurfar.
Vilji lesendur Þjóðviljans
fræðast meira um efnið er þeim
m.a. bent á kafla eftir Níels Ósk-
arsson í „Eldur í norðri"
(Reykjavík 1982), og á kafla um
gosgufur Skaftárelda í safnritinu
stóra frá Máli og menningu
(1985). Lesi menn ensku má t.d.
vísa þeim í grein eftir Harald Sig-
urðsson og fleiri í nýjasta hefti
tímaritsins Jökuls (1985).
B: Vatnsgufuský blandað gosgufum og fíngerðu dusti.
C: Gjóskufall úr gosmekkinum undan vindi í veðrahvolfi.
D: Hraunstraumur og gosgufur sem losna úr honum.
E: Kvika stígur í gosrás; gosgufurnar „sjóða“ burt í gignum.
Öflugt gos úr eldfjalli: A: Brennisteinsgufur hafa hvarflast við vatn og brennisteinssýruúði fýkur undan háloftavindum
uppi í heihvolfi ofan krossalínunnar.
STUNDUM
GENGUR DÆMIÐ
EKKIUPP
HVERNIG SEM REYNT ER
Sum dæmi eru flóknari en önnur. Ekki síst ef í þeim eru margir lítt þekktir
þættir. Þá ganga þau ekki alltaf upp.
Sumar framtíðaráætlanir eru þess konar dæmi.
• ♦
íív' RAÐGIAFARSTOÐ
m HÚSNtÐISSIOFNUNAR
LEITAST VIÐ AÐ GERA FLÓKIÐ DÆMI EINFALT - FYRIR ÞIG
Stefnir þú á húsnæðiskaup? Við erum reiðubúin að veita þér aðstoð við
slíka framtíðaráætlun. BYRJAÐU á að koma til okkar.
Við veitum þér alhliða ráðgjöf endurgjaldslaust.
Þú skýrir okkur frá óskum þínum og aðstæðum
og við reiknum út fyrir þig gjaldþol og greiðslubyrði.
Þannig kemur í Ijós hvort efnahagur þinn leyfir slíka fjárfestingu.
Best er að engar óþekktar stærðir séu í dæminu.
LEITAÐU RÁÐA STÖÐVARINNAR
LÁTTU ÞITT r ÆMI GANGA UPP
Húsnæðisstofnun ríkisins
Sunnudagur 1. desember 1985, þjóÐVILJINN - SÍÐA 13
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK S: 28500