Þjóðviljinn - 01.12.1985, Page 14
Kvosin
hvað
nœst?
í Þjóðviljanum s.l. fimmtudag var flett
ofanaf þeirri glansmynd sem aðrir fjöl-
miðlar hafa brugðið upp af nýrri deili-
skipullagstillögu fyrir Kvosina. Viðbrögð
við viðtölum blaðsins og dæminu sem
tekið var af varðveislugildi Austurstrætis
22, hafa verið mikil og góð og hafa fjöl-
margir lesendur haft samband við blaðið
vegna þessa.
Greinilegt er af viðbrögðum manna að
fáir hafa gert sér grein fyrir hvað þarna er
á ferð, hvorki hvað varðar hið stórfellda
niðurrif sem fyrirhugað er né þau áhrif
sem stóraukið byggingamagn mun hafa á
umferðarþungann í og kringum Kvosina.
í þessum samtölum hafa ýmsir minnt á
annað álíka plagg, sem þó var miklu
minna í sniðum: Tillöguna haustið 1977
um að rífa 11 reisuleg timburhús við Hall-
ærisplanið og byggja „myndarlega“ í
þeirra stað. Þeirri áætlun Sjálfstæðis-
flokksins var hrundið í kosningunum 1978
og hefur ekkert til hennar spurst síðan.
Þjóðviljinn ræðir í dag við þrjá Reyk-
víkinga sem allir gjörþekkja gömlu
byggðina í miðbænum og hafa á undan-
förnum árum unnið vasklega að varð-
veislu hennar.
Fjölbreytni í húsagerð, byggingarefni, byggingarstíl og stærð er í margra augum fremur kostur en löstur á Kvosinni. Hún segir ákveðna sögu
um verkþekkingumetnaðoglífþeirrasemreistuhúsin.sögusemerauðlesinþeimsem leggja sig eftir henni. Ljósm. Síg.
Hugmyndafrœðilega ósammóla tillögunni
Guðrún Jónsdóttir arkitekt: Þetta verður ón ef aumdeild tillaga. Allt
of mikið rifið. Sögulegi þótturinn gleymist
Þessi tillaga verður án efa um-
deild. Teikningin að þessu er
ákaflega vel útfærð, en hug-
myndafræðilega er ég gjörsam-
lega ósammála tillögunni og það
er synd ef ekki verður lögð meiri
rækt við þennan borgarhluta en
raun ber vitni, sagði Guðrún
Jónsdóttir arkitekt.
„Án þess að hafa kynnt mér
tillöguna í smáatriðum verð ég að
segja að mér finnst að allt of
mikið eigi að rífa af gömlum hús-
um í miðbænum, og ég er ósam-
mála því hvernig gildi þessara
húsa er metið. Það er ekki nægi-
lega mikið tillit tekið til söuglega
þáttarins, það virðist alveg
gleymast að þessi hús hafa að
geyma íslenska byggingarsögu
eins og hún leggur sig, liggur mér
við að segja. Þarna er hluti sögu
okkar og borgarinnar. í húsunum
má sjá marga vel gerða hluti, í
þeim eru falleg hlutföll og þetta
gerir það að verkum að óráðlegt
væri að láta þau hverfa. Mér væri
t.d. mjög sárt um húsið við Aðal-
stræti 16, og raunar mest alla
gömlu byggðina við Aðalstræti.
Elsti hlutinn af húsinu við Aðal-
stræti 16 er frá árinu 1785, frá
tíma innréttinganna. Mér finnst
þetta fallegt hús sem mikil eftir-
sjá yrði að.
Það er áætlað að skilja eftir eitt
og eitt hús, eitt við Aðalstræti og
annað við Lækjargötu, en það
eru allt of veikir hlekkir. Húsin
sem á að rífa eru Reykvíkingum
afar mikilvæg. Það má vissulega
og þarf að byggja á þessu svæði,
en það er víða hægt að byggja án
þess að rífa það sem fyrir er”,
sagði Guðrún.
-gg
Guðrún Ólafsdóttir: Það væri ákaf-
lega sorglegt ef þessi gömlu sögu-
legu hús hyrfu af sjónarsviðinu.
Ljósm. Sig
LEHDARI
Verjum kvosina
Hjarta Reykjavíkur er ekki stórt. Það er Kvos-
in, spildan sem liggur á milli Lækjargötu, Tjarn-
arinnar, Aðalstrætis og Hafnarstrætis. Slagæð-
ar borgarlífsins liggja út frá þessu smáa og lát-
lausa svæði, sem vegna hefðar og sögulegrar
uppbyggingar bæjarins hefur orðið að
heimsmiðju, sem líf þúsundanna sem borgina
byggja hefur legið í kringum á ótal ósýnilega
vegu.
Kvosin er þessvegna partur af lífi allra
Reykvíkinga, og raunar allra þeirra sem sækja
erindi sín í einhverjum mæli til höfuðborgarinn-
ar. Hún er hluti af persónulegri fortíð, partur af
minningum og æsku sem kemur aldrei aftur en
lifir hljóðlátu lífi í fylgsnum hugans, kannski
vegna þess að hjá börnum borgarinnar er hún
fléttuð saman við kennsluleitin í Kvosinni,
gömlu húsin, sem rifja upp fyrir okkur eitthvað
hálfgleymt í hvert sinn sem leið okkar liggur um
hana, gamlan vin, hlátur, eitthvað horfið.
Vegna þessa er Kvosin bæjarbúum svo
undarlega dýrmæt, og þessvegna þarf að fara
um framtíð hennar með nærfærni og gát. Því má
ekki heldur gleyma, að um langan aldur var
Reykjavík nánast ekkert nema Kvosin. Kvosin
er upphaf bæjarins, þar standa elstu húsin í
borginni. Þessvegna hefur hún ekki .einvörð-
ungu persónulegt gildi, heldur líka sögulegt
mikilvægi.
Nú er loksins búið að gera tillögu að skipulagi
Kvosarinnar til frambúðar. Það er sannarlega
ámælisvert, að við þá vinnu var þeim flokkum
sem starfa öndvert meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur ekki gert
kleift á neinn hátt að taka þátt í þróun tillagna.
Þær voru ekki heldur unnar á neinn hátt í sam-
vinnu við skipulagsnefnd borgarinnar þetta er
vert að benda á, vegna þess að með slíkum
vinnubrögðum er hinn lýðræðislegi réttur minni-
hlutans þverbrotinn, og jafnframt komið í veg
fyrir að önnur og fleiri sjónarmið hafi áhrif á
framtíð Kvosarinnar.
Nú er það að sönnu rétt, að svo virðist sem
vönduð og mikil vinna liggi að baki tillögunum
og sumt er þar vel gert. Þar má til dæmis nefna
menningarmiðstöðina sem er fyrirhuguð á
gamla Steindórsplaninu. Þetta er rétt að nefna,
til að sýna það að skipulagstillögurnar eru ekki
alvondar. En það eru á þeim verulegirog alvar-
legir gallar, og það er rétt að vekja eftirtekt á því,
að kunnuáttumaður um skipulagsmál og helsti
oddviti Alþýðubandalagsins í þeim efnum í
borginni, Sigurður Harðarson arkitekt hefur
kallað þessar tillögur „stærsta skipulagsslys
íhaldsins“.
Tillögurnar fela það nefnilega í sér, að 20 til
30 hús, öll á meðal þeirra elstu í Kvosinni, verði
einfaldlega rifin, þurrkuð út. Þannig er gert ráð
fyrir að öll timburhúsin við Austurstræti og Lækj-
argötu milli Reykjavíkurapóteks og Nýja Bíós
hverfi á einu bretti. Og í staðinn, - hvað á að
reisaístaðinn? Fimm hæða virki úrsteinsteypu!
Þetta er auðvitað ekkert annað en einskonar
stórskotaliðsárás á hjarta Reykjavíkur einsog
þjóðin þekkir það í dag. Þetta hrikalega niðurrif
getur enginn maður samþykkt. Hver vill fimm
hæða steinbákn í staðinn fyrir gömlu timburhús-
in við Torgið?
Að ætla sér að rífa þessi gömlu hús er ekki
bara slys frá fagurfræðilegu og menningar-
sögulegu sjónarhorni, heldur skemmdarverk á
fallegasta og hlýjasta bletti þessarar borgar
sem vex svo hratt, að hún þarf á öllum sínum
tengslum við fortíðina að halda.
Með því að rífa þessi 20 til 30 af elstu húsum
borgarinnar yrði skorið á taug sem tengir fortíð
og nútíð, á taug sem aldrei yrði aftur hnýtt.
Það má aldrei verða. Kvosina verður að veria.
-OS
14 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN Sunnudagur 1. desember 1985