Þjóðviljinn - 01.12.1985, Page 18
Nr. 495
KROSSGÁTA
/ 2 3“ 3 7 sr rr V T~ ? <9 l 9 !0 5
;/ /2 <9 IS T~ )£ y /é> JS' 17 22 18 7
/9 zo /s 20 9 2! )t 20 3 13 22 /o 92 14
21 7- 2/ /y- V /$' 2S ? 17 <9 8 23 /1 3 ¥
d w ? s /<r 3 <9 12 20 27 27 9 S % i
17 9? 13 1? 23 20 V ÍT 22 /s 23 7 20
8 H 9 y 8 v )(c M 7 22 22 S' 22 23
/3 V S' 7 3 20 <s> 2 )S 3 22 27 9 /3
)l 7 H /2 9 K /4 2o 7 92 25J 17 & 5
<9 z7 7 20 /3 /3 9 13 2Z 7 3 22 28 29 d
/9 9 )V 24 2o 10 9 )0 2/ <V 20 7 12 5
T~ 2 Z /r 2z 9 10 ÍT 12 10 2o V * 8 22
7 24 9 lb i4 14 9 zo 22 20 H
AÁBD Ð E ÉFGHIÍJKLMNOÓP R S TUÚVXYÝÞ 0
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá
karlmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík,.
merkt: „Krossgáta nr. 495 . Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
22 2é> 7 30 ? 10
'Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem
lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aidrei komið í stað á og öfugt.
Bók Thomas Mann, „Felix
Krull“ er í verðlaun fyrir rétta
lausn í krossgátunni á dag.
Það er Mál og menning sem
gaf bókina út.
Verðlaun fyrir krossgátu 492
hlaut Ingveldur Filippusdóttir,
Gnoðarvogi 42, Reykjavík.
Lausnarorðið var Álftanes og
Ingveldur fær senda mat-
reiðslubókina „Réttur dags-
ins“.
___________SKÁK________
ARTUR JUSUPOV
heimsmeistarakandidat
í Áskorendamótinu í Montpellier f
síðasta mánuði sönnuðu Sovétmenn
það enn einu sinni að þeir eru yfir-
burðarþjóð á sviði skáklistarinnar.
Þrfr efstu menn voru allir frá Sovét-
I ríkjunum og sá fjórði lenti í 4.-5. sæti.
j Sigurvegarinn í Montpellier Artur
Jusupov er 25 ára gamall. Hann er
einn af þeim skákmönnum frá Sovét-
ríkjunum sem hafa verið aldir upp til
■ að verða stórmeistarar. Hann var að-
eins 20 ára gamall Þegar FIDE út-
nefndi hann stórmeistara í skák og
var hann þá strax kominn í hóp sterk-
ustu skákmanna heims (nr. 18-20
með 2575 stig). Tveimur árum
seinna, árið 1982, sigraði hann glæsi-
lega á svæðamóti í Eravan og hófst
þar með fyrsta áhlaup hans að
heimsmeistaratitlinum. Hann tefldi
síðan á millisvæðamótinu í Toluca og
lenti í4.-7. sæti á eftir Portisch, Torre
og Spassky. En þar sem aðeins tveir
fyrstu komust áfram í áskorenda-
einvígin þá var Jusupov úr leik í það
skiptið. Það var síðan í aprfl síð-
astiiðinn sem annað áhlaupið hófst.
Þá tók hann þátt í millisvæðamótinu í
Túnis og sigraði þar af öryggi. Næstir
já eftir honum voru ekki ómerkari
! menn en Beljavskí og Portisch. Þessi
glæsilegi sigur kom mörgum á óvart,
og þó sérstaklega íslendingum, því
Jusupov hafði staðið sig mjög slælega
á Afmælismóti Skáksambands fs-
lands tveimur mánuðum áður. Þar
varð hann að láta sér lynda 5.-6. sætið
með rétt rúmlega 50% vinningshlut-
fall. Næsta skrefið var síðan
áskorendamótið í Montpellier. Þar
tók han forystu strax í byrjun mótsins
og lét hana síðan aldrei af hendi eftir
það. Eftir þessa tvo glæsilegu sigra er
víst að hann er kominn í þriðja sætið á
alþjóðlega skákstigalistanum á eftir
Karpov og Kasparov.
Jusupov skrifaði nýlega grein í
rússneska skákblaðið „64“ þar sem
hann heldur því fram að það sé miklu
árangursríkara til að vinna skák að
halda sér fast og bíða eftir að and-
stæðingurinn leiki ónákvæmt heldur
en að leika djörfum og áhættusömum
leikjum. Og það má segja að Jusupov
hagi taflmennsku sinni eftir þessari
kenningu. Hann liggur yfirleitt í
þungum þönkum í þær fimm klukku-
stundir sem skákin stendur yfir og
bíður eftir ónákvæmni af hálfu and-
stæðingsins. í eftirfarandi skák þarf
hann ekki að bíða nema fjóra leiki.
Hvítt: Arthur Jusupov
Svart: Gena Sosonko
Drottningarbyrjun
1. d4 Rf6
2. Rf3e6
3. e3 d5
4. Bd3 g6?!
Þessi hugmynd er ekki ýkja snjöll
eins og framhaldið leiðir í ljós.
5. b3 Bg7
6. Ba3 Rbd7
7. Rbd2 c5
Nú hefur svartur sennilega haldið
sig hafa komið ár sinni vel fyrir borð,
en svörtu reitirnir í stöðu hans eiga
eftir að gera honum lífið leitt.
8. 0-0 0-0
9. c4 Da5
10. Bb2 Hd8
11. De2 cxd4
12. Bxd4
Hvítur er kominn með mjög
heilsteypta og sterka stöðu á meðan
svartur glímir enn við að leysa úr
liðskipunarvandræðum sínum.
12. - Rc5
13. Bc2 Rce4
14. Rxe4 dxe4
15. Re5 Bd7?!
Skárra hefði verið að leika 15.- Re8
til að geta svarað f4 með exf3.
Eftir 16.- exf3 17. DxB á svartur
enga vörn við stórskotaliðsárás hvíts
á f6 og f7.
17. Hadl Be8
18. Bbl Da3
19. h3 Hac8
20. Hd2 b6
21. Hfdl De7
22. Df2 b5?!
Betra hefði verið að leika 22.- Db7
með hugmyndinni að losa um spenn-
utreyjuna á kóngsvæng með Rh7 og
f6.
23. c5 b4
24. Dh4 Hc7
25. g4 hxg4
26. hxg4 Hdc8
27. Rc4 Bc6
28. Rd6
Jusupov herðir smátt og smátt
' tökin á svörtum.
28. - Hd7
29. Rd6 Hcd8
30. Hh2 Bd5
abcdefgh
31. Kf2!
Svartur á ekkert svar við Hdhl með
hugmyndinni Dh8+. T.d. 31,- Kf8
32. Hdhl Hc7 33. Dh8+ Bxh8 34.
Hxh8+ Rg835. Hxg8+ Kxg836. Hh8
mát. Sosonko gafst því upp.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. desember 1985
BRIDGE
Stórmót ó Húsavík
Annað mótið af þremur, sem
Samvinnuferðir/Landsýn og Bridge-
samband íslands gangast fyrir á
Húsavík, fer fram helgina 7.-8. des-
ember n.k.
Skráning er þegar hafin hjá fé-
lögum norðanlands (með Akureyri
og Húsavík sem tengla) og hjá skrif-
stofu Bridgesambandsins (Ólafi Lár.)
Frestur til að tilkynna þátttöku renn-
ur út fimmtudaginn 5. desember n.k.
kl. 15.
Fyrirkomulag keppninnar verður
með sama sniði og fyrsta mótið, sömu
tímasetningar. Spilamennska hefst
kl. 13 á laugardeginum og verður þá
1. umferðin spiluð (30 spil). 2. um-
ferðin hefst svo kl. 20 um kvöldið
(eða 19.30 að ákvörðun keppnis-
stjóra) og 3. umferðin síðan kl. 12 á
hádegi (eða 11.30 að ákvörðun kepp-
nisstjóra) á sunnudeginum. Alls um
90 spil, eftir Mitchell-fyrirkomulagi,
með tölvuútreikningi. Keppnisstjóri
verður Hermann Lárusson en Vigfús
Pálsson annast útreikning.
Þátttökugjald keppenda er þannig:
Frá Reykjavík á föstudegi (gisting 2
nætur m/morgunverði, flug og þátt-
tökugjald) er pakkinn á kr. 4.500. Frá
Norðurlandi/Austurlandi (gisting 1
nótt m/morgunverði og þátttöku-
gjald) kr. 1.600 pr. spilara. Án gist-
ingar er gjaldið kr. 1.000 pr. spilara.
(Sé um fleiri nætur en eina að ræða,
hækkar gjaldið um kr. 800 pr. spilara)
Á föstudagskvöldinu fyrir keppni,'
I mun Hótel Húsavík gangast fyrir
stórskemmtun á staðnum, með lands-
frægum skemmtikröftum. Vín-
veitingaleyfi er fyrir hendi, fyrir þá
sem áhyggjur hafa af þeim mála-
flokki. (Að gefnu tilefni er þessu bætt
hér inn í, og er beðist velvirðingar á
því).
Spilað er um gullstig í þessu móti,
auk hæstu heildarverðlauna sem veitt
hafa verið til þessa í einni keppni hér
á landi. Að auki eru tveir aukavinn-
ingar í boði, m.a. ferð til Amsterdam
fyrir sigurvegarana.
Fyrsta mótið tókst afburða vel að
mati flestra. Látum ekki þetta mót
verða síðra. Þriðja og síðasta mótið
verður svo helgina 15.-16. febrúar á
næsta ári.
Opið hús:
Þátttakan í Opnu húsi hefur verið
um 20 pör að undanförnu og betur má
ef duga skal. Úrslit sl. laugardag urðu
þessi:
N/S: Stig
Magnús Þorkelsson -
Sigbert Hannesson 275
Björn Hermannsson -
Gústaf Bjömsson 256
Mjöil Sigurðardóttir -
Ágúst 244
Elísabet Jónsdóttir -
Leifur Jóhannesson 240
A/V:
Lárus Hermannsson -
Sigmar Jónsson 288
Sveinn Sigurgeirsson -
Tómas Sigur j ónsson 262
Eymundur Sigurðsson -
OlafurBjörnsson 233
Andrés Þórarinsson -
j HuldaHjálmarsdóttir 232
Spilamennska í Opnu húsi að Borg-
artúni 18 (húsi Sparisjóðsins) hefst kl.
13.30. Allt spilaáhugafólk velkomið.
Boðið er upp á tvímenningskeppni.
Bikarkeppni Norðurlands:
Minnt er á að frestur til að tilkynna
þátttöku í Bikarkeppni Norðurlands
(vestra og eystra) rennur út 1. des-
ember n.k. Hægt er að hafa samband
við þá Hörð Blöndal og Örn Einars-
son á Akureyri til skráningar.
Bikarkeppnin er fyrst og fremst
hugsuð, til að allt bridgeáhugafólk
geti verið með, og þannig stuðlað að
skemmtilegri samgangi bridgespilara
yfir vetrarmánuðina norðanlands.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Norðurlandsmót vestra:
Bræðrasveitin frá Siglufirði, þeir
Ásgrímur Sigurbjörnsson, Bogi, Ánt-
on og Jón, sigruðu örugglega á
Norðurlandsmótinu í sveitakeppni,
sem háð var á Blönduósi um síðustu,
helgi. Jafnframt var keppt um þátt-
tökurétt á íslandsmót. Tvær efstu
.sveitirnar áunnu sér rétt til þátttöku.
Aðeins 5 sveitir tóku þátt í mótinu,
sem hlýtur að benda á að mikið verk1
sé óunnið á svæðinu til eflingar á þátt-
töku í slíku móti.
Úrslit urðu þessi:
1. Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
Siglufirði 105 stig
2. Sveit Kristjáns Jónssonar Blöndu-
ósi 89 stig
3. Sveit Þorsteins Sigurðssonar
Blönduósi 81 stig
4. Sveit Halldórs Tryggvasonar
Sauðárkróki 68 stig
5. sveit Ingibergs Guðmundssonar
Skagaströnd 45 stig
Keppnin fór vel fram undir stjórn
Alberts Sigurðssonar frá Akureyri.