Þjóðviljinn - 01.12.1985, Blaðsíða 19
________________MINNING_______________________
Signý Sigurlaug
Smáradóttir
fædd 1.12. 1984, dáin 15.9. 1985
Drottinn er skjól mitt, ég skelfast
þarf eigi,
skyggi með stormum um ævinnar hjarn,
honum ég treysti á hérvistarvegi,
hann hefir frelsað mig, ég er hans barn.
Drottinn er skjól mitt og athvarfið eina.
Ó, þangað stefnir öll hjarta míns þrá.
Ljúfust er hvíld þar og lækningin meina,
lífgandi huggun ef sorgirnar þjá.
W.O. Cushing - þýð. óþekktur.
hennar var stutt, þó skyldi hún
eftir sig minningu sem máist ekki.
Hún var hraust og efnileg og
miðlaði ást og gleði meðal sam-
ferðamannanna. Söknuður for-
eldranna, stóra bróður og amm-
anna og afanna er mikill. Við
stöndum hjá hnípin og segjum,
hversvegna? En þeirri spurningu
verður aldrei svarað.
Öll eigum við gleðina yfir því
að hafa séð og tengst þessari litlu
elskulegu stúlku. Öll áttum við
bjartar vonir um þroska hennar
og þótt hún sé nú horfin, eigum
við minninguna um brosin henn-
ar sem munu ylja okkur um ó-
kominn tíma.
Hún bar nafn ömmu sinnar
Signýjar Sigurlaugar Tryggva-
dóttur frá Þórshöfn og langa-
ömmu sinnar frá Höfn á Strönd.
Foreldrar Signýjar litlu eru hjón-
in Guðbjörg Hilmarsdóttir og
Smári Einarsson Raufarhöfn.
Við hjónin vottum þeim og
öllu þeirra venslafólki innilega
samúð og biðjum góðan guð að
styrkja þau í þessari þungu sorg.
Hulda Pétursdóttir
Hún Signý okkar var annað
óskabarn foreldra sinna og gleði-
geisli heimilisins, en fljótt getur
gleði breyst í sorg, er Alheims-
faðirinn kippti þessum geisla til
sín aftur, breytti honum í Ijúfar
minningar og æðra líf, sem þess-
ari ungu blómarós hefur verið
ætlað af hendi Guðs að starfa að.
Þessi litla mær var alnafna mín
og víst leitaði á huga minn, að við
skryppum í heimsókn nú síðla
sumars, þótt langt væri'á milli, en
þótt margt virtist mæla þar í móti
var eins og eitthvert ósýnilegt afl
ýtti svo á, að ekki varð móti stað-
ið sem betur fór, handleiðsla, þar
sem ég hafði ekki séð hana frá því
að hún varð skírð, né heimsótt
son minn og hans fjölskyldu.
Þótt vitað sé, að aldrei ráði
neinn sínum næturstað kom mér
síst til hugar að ég sæi hana nöfnu
mína ekki oftar, en bið algóðan
Guð að styrkja foreldra hennar
og bróður, létta þeim sorgina,
mýkja með fögrum minningum á
ársafmælinu nú 1. desember.
Minningin um þennan fagra
gleðigeisla vermi hug okkar allra.
Amma
Signý litla er horfin hún hefur
kvatt okkur, álíka og blíður
sumardagur kveður. Jarðvist
Blaðburðarfólk
Ef þú ert
morgunhress.'
Hafðu þá samband við afgreiðslu
Þjoðviljaiis, sími 81333
Laus hverfi:_______________________________
Hamraborg, Frostaskjól, Granaskjól, Ofanleiti, Miöleiti.
Seltjarnarnes - Strandir. Fossvogur
Það bætir heilsu 02 hae
að bera út Þjóðviqann
Kona óskast
Stéttarfélag í Hafnarfirði óskar eftir konu í hlutastarf á
skrifstofu félagsins. Starfiö felst í almennum skrifstof-
ustörfum svo sem vélritun, símavörslu, spjaldskrár-
vinnu o.fl.
Góö vélritunarkunnátta er nauðsynleg. Umsóknir er
greini aldur og fyrri störf umsækjenda, þurfa að berast
í pósthólf 218 Hafnarfirði, eigi síðar en sunnudaginn
15. desember n.k.
I—I—I :N D “S' beinið vioskipíum vkkar J til þeirra sem auglýsa í ^ ÞjóðvHjanum
1
Í.V.VCrLL'L
cJmŒmB&mi iil /
Fjölbreyttari og betri þjónusta
en áður var.
Næturhólf — geymsluhólf.
Öll innlend og erlend
bankaviðskipti.
Sunnudagur 1. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19