Þjóðviljinn - 10.12.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 10.12.1985, Síða 3
FRETTIR Sjónleikir Páll rann á rassinn Stjórnarslitahótun Sjálfstœðisflokksins hræðir Framsókn. Tilburðir Páls Péturssonar kœfðir á þingflokksfundi ígœr. Ráðherraliðið leggur Sjálfstœðisflokknum lið. Alþýðubandalagið heldursinni tillögu umafstöðuIslands á vettvangi SÞ til streitu Páll Pétursson og gervallur þingflokkur Framsóknar- flokksins lét undan stjórnarslita- hótunum Sjáll'stæðisflokksins á þingflokksfundi í gær eftir mikið þref. Niðurstaða fundarins var bræðingur sem flytja skal sem þingsályktunartillögu almennt um friðarvilja og afvopnun, en ekki orði vikið að tillögu þeirri um frystingu sem Mexíkó og Sví- þjóð hafa lagt fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. „Ég kynnti fulltrúum stjórnar- andstöðunnar og nokkrum þing- mönnum Framsóknarfloksins að við Alþýðubandalagsmenn ætl- uðum að flytja þingsályktunartil- lögu um afstöðu íslands með stöðvun kjarnorkuvopnafram- leiðslu, þ.e. frystingu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Hjörleifur Guttormsson í samtali við Þjóðviljann í gær. Tillaga Alþýðubandalags- manna var til umræðu á þing- flokksfundum í gær, - en áður en fundir hófust hafði það flogið fyrir, að Páll Pétursson þing- flokksformaður hygðist sjálfur flytja tillögu sama efnis og tillaga Alþýðubandalagsmanna, ásamt fleiri þingmönnum Framsóknar- flokksins og stjórnarandstöðu- þingmönnum. A löngum þingflokksfundi Framsóknarflokksins í gær, þar- sem hótun Sjálfstæðisflokksins var rædd fyrsta sinni, leitaði Páll eftir stuðningi við þann málatil- búnað að Framsóknarmenn hefðu frumkvæði í þessu máli. Eggjaði hann þar með lögeggjan fyrir daufum eyrum og beinni andstöðu ráðherraliðsins, sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans. Niðurstaðan varð sú, að sam- þykkt var að 8 þingmenn Fram- sóknarflokksins flyttu tillögu til þingsályktunar, þarsem ekki er kveðið uppúr um afstöðu íslands gagnvart tillögu Sviþjóðar á vett- vangi SÞ. Alþýðubandalagið beið átekta meðan á þessum snúningi Fram- sóknarmanna stóð, en í gær- kvöldi tjáði Hjörleifur Guttorms- son Þjóðviljanum, að Alþýðu- bandalagið myndi flytja sína til- lögu í upprunalegu formi, þarsem skýrt væri kveðið á um stuðning íslands við tillögu Mexíkó og Sví- þjóðar um frystingu kjarnorku- vígbúnaðar. - óg 'STRÍÐOG SÖNGUR Matthías Viöar Sœmundsson —Hispurslaus frásögn litríkra listamanna Sex íslensk skáld lýsa viðhorfum sínum til lífs og dauða, trúar, ástar og listar og rekja leið sína til skáldskapar. Skáldin rekja þá reynslu sem þeim er minnisstæðust og haft hefur dýpst áhrif á þroska þeirra og lífsviðhorf. Þau eru öll fædd milli stríða og tóku út þroska sinn á miklum umbrota- tímum í sögu þjóðarinnar. Hér er margt látið fjúka sem fæstum er áður kunnugt. Guörún Helgadóttir Álfrún Gunnlaugsdóttir Thor Vilhjálmsson Indriöi G. Þorsteinsson Þorsteinn frá Hamri Matthías Johannessen Verö kr. 1.280.00. S£X SKÁLD SEGJA FRA Spítalarekstur Ráðherra frestar á síðustu stundu Boðað að 15 sjúkrahús fari afdaggjaldakerfi yfir áfjárlög. Jóhannes Pálmason framkvstj. Borgarspítala: Veruleg hœtta á aðþjónusta spítalanna minnki. Ymsum spurningum ósvarað Ragnhildur Helgadóttir heil- brigðisráðherra hefur ákveð- ið að fresta ákvörðun fyrirrenn- ara síns Matthíasar Bjarnasonar um að færa 15 sjúkrahús af dag- gjaldakerfl yflr á fjárlög. Landssamband sjúkrahúsá hélt sérstakan fund um þessa fyrirætl- an á dögunum þar sem kom fram hörð gagnrýni á að sjúkrahúsin yrðu færð yfir á fjárlög, auk þess sem lýst var vanþóknun á því að ekkert samráð skyldi haft við for- ráðamenn sjúkrahúsanna um þessi mál. „Það er mín skoðun að veruleg hætta sé á því að þjónusta spítal- Iðnráðgjafar í eitt ár enn Lagt hefur verið fram stjórnar- frumvarp um að framlengja lög frá 1981 um iðnráðgjafa um eitt ár, til ársloka 1986, en lögin áttu sjálfkrafa að falla úr gildi um næstu áramót. í greinargerð kemur fram að þriggja manna nefnd iðnaðarráðherra lagði í sumar til að lögin yrðu framlengd og jafnframt lögfestar nokkrar breyting- ar á þeim m.a. um auknar heimildir til að greiða skrifstofu- og ferðakostnað iðnráðgjafa. Ekki hafi náðst sam- staða um þær breytingar og því sé lagt til að lögin verði framlengd óbreytt í eitt ár. A þeim tíma verði þau skoðuð nánar og nýtt lagafrumvarp lagt fram í október 1986. anna minnki ef við verðum færð yfir á fjárlög. Við höfum þá enga tryggingu fyrir því að halli á rekstri verði greiddur," sagði Jó- hannes Pálmason framkvæmda- stjóri Borgarspítalans og formað- ur Landssambands sjúkrahúsa í samtali við Þjóðviljann. Á fundinum var gagnrýnt hvernig heilbrigðisráðuneytið hefði staðið að þessu máli og að ekkert samráð hefði verið haft við eigendur sjúkrahúsanna né rekstraraðila og menn ekki vitað af þessari fyrirhuguðu yfirfærslu á fjárlög fyrr en fyrir nokkrum vikum. Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri og Landskotsspítali voru flutt af daggjaldakerfi yfir á fjár- lög árið 1983. Síðan hafa sjúkra- húsin safnað umtalsverðum rekstrarskuldum. Skuldir Land- akots nema nú mili 15-20 miljón- um fyrir árið 1984-84 og svipaðri upphæð fyrir þetta ár. Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri er með rekstrarhalla uppá rúmar 8 milj- ónir fyrir sömu ár og aðra eins fjárhæð fyrir árið í ár. „Því er enn ósvarað hvernig ákveða eigi rekstrarramma hverrar stofnunar og ef halli er af eðlilegum rekstri, hvernig á þá að taka á málum? Verður það skuldasöfnun eins og við höfum dæmi um eða á að skera niður þjónustu? Þessu þarf að svara,“ sagði Jóhannes Pálmason. ®ac j a pe|A LAN DSMOÐURIN NAR GÖMLU Gabriel García Márquez —Meistaraverk Nóbels- skáldsins Makondó — þorpið þar sem menn þrauka og blða. Þorpið þar sem grimmdin og niðurlægingin ríkir. Andrúmsloftið mettað raka — hita- svækjan óbærileg. Af meistaralegri íþrótt fléttar skáldiö saman sögu þjóðar sinnar, kvunn- dagsleika hennar, kjaftasagnir og goð- sagnir. Þessi veröld er allt í senn, jarð- bundin og smámunasöm, full af undr- um og stórmerkjum. Þorgeir Þorgeirsson þýðir verkið af einstakri snilld. Verð kr.1.087.00 innb.—kr. 850.00 kilja. ÍSLENSKIR ELSKHUGAR —viötöl viö ólján karlmenn- Jóhanna Sveinsdóttir — Opinská og heiðarleg Karlmenn á aldrinum 20—75 ára ræða um ástir sínar og tilfinningamál. Hreinir sveinar og flekkaðir, skemmti- staðafolar í ævintýraleit, ráðsettir margra barna feðpr, Einsi kaldi úr Eyjunum og Fúll á móti. í bókinni er að finna einlægar um- ræður um ástir og tilfinningar karla— efni sem íslenskir karlmenn ræða sjaldan ódrukknir nema í tvíræðni og hálfkæringi. Verð kr. 1.180.00 innb.—kr. 880.00 kilja. fSŒlSISKlR ELSKHUGAR

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.