Þjóðviljinn - 10.12.1985, Síða 8
FLÓAMARKADURINN
Atvinnuhúsnæði
óskast
27 ára kona með 2 vefstóla óskar eftir
atvinnuhúsnæði. Má gjarnan þarfn-
ast lagfæringa. Uppl. í síma 44618.
Forrit óskast
Ég óska eftir að kaupa notuð forrit á
Sinclair Spektrum, 48 K tölvum á
vægu verði. Uppl. í síma 15016, eftir
kl. 19.
Veggklukka óskast
Gömul góð veggklukka óskast. Uppl.
í síma 81250 Olafur.
Fataskápur óskast
Óska eftir að kaupa fataskáp. Uppl. í
síma 32440.
Sólbekkur til sölu
Ljósasamloka til sölu. Uppl. í síma
34879.
Gufukassi
Mjög góður vestur-þýskur gufukassi
til sölu. Uþpl. í sfma 621643.
Til sölu
hjónarúm án dýnu. Verð kr. 1.000.-
Uppl. í síma 84992.
Reglusamur
ungur maður
óskar eftir herbergi til leigu á rólegum
stað í Reykjavík. Tilboð sendist
auglýsingad. Þjv, sem fyrst.
Nýtt norskt
sófasett
til sölu. Góður afsláttur. Uppl. í sima
16089.
Örbylgjuofn til sölu
Mjög góöur örbylgjuofn til sölu, hent-
ar vel á skyndibitastað. Hugsanleg
skipti á borðstofuborði og 6 stólum
kæmi til greina þyrfti að vera vel með
farið. Uppl. í síma 671732, eftir há-
degi alla daga.
Stálvaskar -
handlaugar
2 notaðir stálvaskar og 2 notaðar
handlaugarog einnig strauborð (eldri
gerð). Uppl. í síma 33094.
Námsmenn utan af landi
bráðvantar herbergi eða einstakl-
ingsíbúð til leigu, Hlíðar æskilegar,
reglusemi heitið. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 96-41497, frá kl. 13-22.
Dúkkurúm
Er nú með blómlegu rúmin í þremur
stærðum einnig með rúm úr furu.
Verð á útimarkaðnum á torginu alla
laugardaga fram að jólum. Uppl. i
síma 611036, Auður Oddgeirsdóttir.
Til sölu
símaborð með Ijósi og skáhillu fyrir
skrifblokk. Sími 35742.
Réttindanám
vélstjóra
Námskeiö fyrir vélstjóra, sem starfað hafa á unda-
nþágum verður haldið við Framhaldsskólann í Vest-
mannaeyjum á vorönn 1986, ef næg þátttaka fæst.
Umsókn skal fylgja vottorð um minnst 24 mánaða
siglingatíma.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans frá kl. 9 - 12 til
15. desember.
Skólameistari
Sm RÍKISSPÍTALARNIR
ÆÍM Lausar stöður
Fóstrur óskast á dagheimili Landspítalans Sólbakka.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilins í síma
29000 - 590.
Fóstrur óskast á dagheimili Kópavogshælis, Stubb-
asel.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilins í síma
44024.
Reykjavík, 6. desember 1985
Athugið
Kápa tapaðist í Hollywood s.l. laugar-
dag, bláköflótt (stórköflótt) ullar
kvenkápa, finnandi hringið í síma
73668.
Smóking óskast
Óska eftir smóking á háan og
grannan mann. Sími 73668
Hver vill losna
við sófann sinn?
Má gjarnan verða hornsófi, bara að
hann sé þægilegur og ekki of dýr.
Uppl. í síma 29016.
Svalavagn
Rúmgóður svalavagn til sölu. Selst
ódýrt. Sími 12542.
Barnabílstóll óskast
Viljum kaupa notaðan banabílstóll.
Sími 21072.
Stór barnavagn óskast
Óska eftir stórum barnavagni til
kaups, útlit skiptir ekki höfuðmáli,
gegn hæfilegu verði. Uppl. í síma
44882.
Hurð óskast
Óska eftir að kaupa 60 cm hurð í
karmi og klósett með frárennsli í
vegg. Uppl. í síma 621731.
2 syntheseizerar (hljóðgerflar)
YAMAHA DX 7-SIX-TRACK
Til sölu er 1Vz árs gamall Yamaha DX
7 syntheseizer í tösku ásamt 2 pedöl-
um (sustain og volume). Yamaha DX
7 kostar nýr 76.900 kr. en þessi selst
af sérstökum ástæðum á aðeins kr.
50.000 og pedalarnir fylgja með
ókeypis. Einnig er til sölu Six-Track
með innbyggðum sequencer, árs-
gamall, kostar nýr um 50.000 kr. en
selst á 35.000 kr. Loks eru til sölu 2
stór Yamaha hátalarabox með inn-
byggðum 100 watta kraftmögnurum.
Þarfnast lagfæringar. Seljast ódýrt.
Upplýsingar gefur Guðmundur í síma
36718.
Bamaskiptiborð
með 3-4 skúffum óskast. Uppl. í síma
40682, e.kl. 16.
Húsgögn vantar
Sófasett af minni gerð, einnig hjóna-
rúm helst 11/2 breidd, fataskápur og
skrifborð. Húsgögnin mega gjarnan
vera gömul og góð en þurfa að vera á
einstöku verði og kostakjörum. Uppl.
í síma 42462.
Vínrautt sófasett
3+2+1, tilsöluá12þús. Uppl. ísíma
666653, eftir kl. 19.
Til sölu
tvö unglingarúm með náttborðum og
þriggja ára Toshiba plötuspilari, lítið
notaður. Selst ódýrt. Uppl. í síma
37745.
ÞJÓÐMÁL
Frysting kjarnavopna
r
Allsherjarþing SÞ að störfum. Þar verða væntanlega á fimmtudag greidd atkvæði um frystingartillöguna og spurningin er
hvort ísland eitt Norðurlandanna, treystir sér ekki til að styðja hana þar.
Fmmskref, ekki lokatakmaik
Tillagan sem Geir Hallgrímsson treystir sér ekki til að styðja á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Dreift hefur verið á alþingi í
íslenskri þýðingu margumræddri
tillögu um frystingu kjarnorku-
vopna sem Geir Hallgrímsson fyr-
irskipaði hjásetu við þegar 1.
nefnd allsherjarþingsins fjaliaði
um hana fyrir nokkru. Tillagan
verður væntanlega til afgreiðslu á
allsherjarþinginu sjálfu n.k.
fimmtudag.
Tillöguna flytja auk Svíþjóðar
og Mexíkó: Indónesía, Pakistan,
Uruguay og Perú. Hún er svo-
hljóðandi:
„Allsherjarþingið hvetur enn
einu sinni Sovétríkin og Banda-
ríkin, sem tvö fremstu kjarnorku-
veldin, til að lýsa yfir, annað
hvort samtímis með einhliða yfir-
lýsingum eða með sameiginlegri
yfirlýsingu, tafarlausri frystingu
kjarnavopna, sem verða myndi
fyrsta skref í átt til allsherjaráætl-
unar um afvopnun, er að formi og
umfangi yrði sem hér greinir:
Hún myndi fela í sér:
A. - Allshérjarbann við til-
raunum með kjarnavopn og skot-
búnað þeirra.
- Algera stöðvun framleiðslu
kjarnavopna og skotbúnaðar
þeirra.
- Bann við allri frekari uppsetn-
Það er ekki á hverjum degi sem
utanríkisráðherrar senda ríkis-
stjórnum annarra landa tóninn
opinberlega en það gerði Geir
Hallgrímsson á alþingi sl.
fimmtudag þegar hann ræddi af-
stöðu þeirra til frystingar kjarn-
orkuvopna. Norðmenn sátu hjá
við afgreiðslu tillögunnar í fyrra
eins og Islendingar og árið þar
áður sátu 3 Norðurlönd hjá: ís-
land, Norcgur og Danmörk. Nú
er ísland eitt eftir.
í ræðu sinni á alþingi gerði Geir
Hallgrímsson sinnaskipti Norð-
manna að umræðuefni, en margir
þingmenn höfðu látið í ljós þá
skoðun að okkur væri ekki vand-
ara en þeim að styðja tillöguna.
Hann sagði m.a.: „Mig minnir að
sumir þingmenn sem nú
gagnrýna það að við förum ekki
að dæmi Norðmanna hafi verið
að prédika að fslendingar ættu að
hafa sjálfstæða utanríkisstefnu.
Ég er alveg sammála þeim að
þessu leyti en hún er ekki fólgin í
því að við látum afstöðu Norð-
manna ráða atkvæði okkar og ég
ingu kjarnavopna og skotbúnað-
arþeirra.
- Algera stöðvun framleiðslu
kjarnakleyfra efna í hernaðar-
legum tilgangi.
B. Hún yrði háð viðeigandi
eftirlitsráðstöfunum og reglum,
svo sem þeim er þegar hefur orð-
ið samkomulag um í SALT I og
SALT II samningunum, svo og
þeim sem grundvallarsamstaða
hefur náðst um í undirbúnings-
viðræðum þríhliðasamninganna
um allsherjarbann við tilraunum,
sem haldnar eru í Genf.
C. Hún yrði í fyrstu miðuð við
fimm ára tímabil, með fyrirvara
um framlengingu eftir að önnur
kjarnavopnaríki gerist þátttak-
endur í slíkri frystingu, eins og
allsherjarþingið hvetur þau til.
í inngangi tillögunnar er minnt
á fyrri samþykktir allsherjar-
þingsins um afvopnunarmál og
þá staðreynd að núverandi birgð-
ir kjarnavopna eru meira en
nægilegar til að útrýma lífi á
jörðu. - Einnig er minnt á nýja
yfirlýsingu utanríkisráðherra
óháðra ríkja (september 1985)
um að endurnýjuð stigmögnun
kapphlaupsins á sviði kjamorku-
vígbúnaðar, bæði hvað varðar
magn og tæknilega fullkomnun
er nú alveg undrandi ef þing-
mennirnir Guðrún Agnarsdóttir
og Hjörleifur Guttormsson eru
ánægð með að við greiðum at-
kvæði með þessari tillögu Sví-
þjóðar og Mexíkó með greinar-
gerð eins og Norðmenn gerðu
fyrir sínu atkvæði. Því miður álít
ég þá greinargerð fyrir neðan
virðingu Norðmanna og raunar
mundi slík greinargerð vera fyrir
neðan vírðingur okkar.”
Hjörleifur Guttormsson svar-
aði ráðherra og sagði m.a.:
„Vegna þess að hann innti eftir
því hvort við myndum telja við-
unandi að hann gerði fyrirvara á
eigin afstöðu þegar ráðið væri at-
kvæði íslendinga á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna, þá teldi ég
það fyllilega réttmætt. Slíkt er
mjög algengt þegar ríkisstjórnir
taka þar afstöðu, það er spurt þar
um já eða nei og skýringar fylgja
oft atkvæðum. Ég tel að utan-
ríkisráðherra væri fullsæmdur af
slíkum fyrirvara eins og norska
ríkisstjórnin gerði, vegna afstöðu
vopna, svo og traust á kenningum
um fælingarmátt kjarnavopna,
hafi aukið hættuna á að kjarn-
orkustríð brjótist út og hafi ieitt
til frekara öryggisleysis og óst-
öðugleika í alþjóðamálum.
Pá er fagnað viðræðum Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjanna í
Genf og sagt að frysting kjarna-
vopna, þótt ekki sé hún lokatak-
mark í sjálfri sér, myndi marka
árangursríkasta frumskrefið til
að koma í veg fyrir áframhald-
andi fjölgun og tæknilega þróun
núverandi gerða kjarnavopna
meðan samningaviðræður standa
yfir.
-ÁI
Stefna
íslendinga í af-
vopnunarmálum
Þann 23. maí sl. samþykkti Al-
þingi einróma þingsályktun um
„Stefnu íslendinga i afvopnun-
armálum”, sem Geir Hallgríms-
son reynir nú að bera fyrir sig sem
skýringu á hjásetu íslands, eins
Norðurlandanna, á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna um
frystingartillögu Svíþjóðar, Mex-
íkó og fleiri ríkja. Hér fer á eftir
sá kafli ályktunarinnar frá í vor,
sem fjallar um stöðvun
vígbúnaðarkapphlaupsins:
„Alþingi fagnar hverju því
frumkvæði sem fram kemur og
stuðlað getur að því að rjúfa víta-
hring vígbúnaðarkapphlaupsins.
Alþingi ályktar að beina því til
ríkisstjórnarinnar að styðja og
stuðla að allsherjarbanni við til-
raunum, framleiðslu og upp-
setningu kjarnavopna undir
traustu eftirliti, svo og stöðvun á
framleiðslu kjarnkleyfra efna í
hernaðarskyni, jafnframt því að
hvetja til alþjóðlegra samninga
um að árlega verði reglubundið
dregið úr birgðum kjarnavopna.
Þessu banni og samningum um
niðurskurð kjarnorkuvopna
verði framfylgt á gagnkvæman
hátt þannig að málsaðilar uni því
og treysti enda verði það gert í
samvinnu við alþjóðlega eftir-
litsstofnun.
Leita verður allra leiða til þess
að draga úr spennu og tortryggni
milli þjóða heims og þá einkum
stórveidanna. Telur Alþingi að
íslendingar hljóti ætíð og hvar-
vetna að leggja slíkri viðleitni
lið.”
Og svo geta lesendur spreytt
sig við að finna hvort og-þá hvar
þessi einróma samþykkt alþingis
fer þvert á tillögu Svíþjóðar,
Mexíkó og fleiri!
-ÁI
hans í þessu máh.
-AI
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 10. desember 1985
Alþingi
Geir skammar Norömenn
„Greinargerðinfyrir neðan virðinguþeirra”