Þjóðviljinn - 10.12.1985, Síða 13

Þjóðviljinn - 10.12.1985, Síða 13
HEIMURINN Suður-Afríka Andófsmenn sýknaðir Pietermaritzburg — Það óvænta gerðist í réttarhöldum yfir 16 andófsmönnum í Suður-Afríku í gær að 12 þeirra voru sýknað- ir af ákærum um landráð og þeim sleppt. Er talið að með þessu vilji stjórn hvíta minni- hlutans friða gagnrýnendur er- lendis. Meðal þeirra 12 sem sleppt var í gær eru ýmsir helstu leiðtogar Lýðræðisfylkingarinnar, UDF, en hún hefur verið í fararbroddi baráttunnar gegn aðskilnaðar- stefnunni undanfarna mánuði. Mennirnir 16 voru handteknir í sumar eftir að herlög tóku gildi á nokkrum stöðum í landinu. Fjór- Guatemala Þrjátíu herveldi ara lýkur Guatemalaborg - Ég er forseti landsins, sagði Vinicio Cereso í gær eftir að allar töivuspár bentu til stórsigurs hans á mótframbjóðandanum úr hópi hægri flokks. Cerezo er fyrsti lýðkjörni for- seti landsins í 30 ár, en þann tíma hefur herinn stjórnað Guatemala í náinni samvinnu við bandarísk stórfyrirtæki og leyniþjónustu hins vesturheimska stórveldis, CIA. í kosningum fyrr á árinu vann Cerezo líka sigur, en fékk þó ekki þá tvo þriðju hluta atkvæða sem tilskildir eru. Til kosninganna, og væntanlegs lýðræðisstjórnarfars í landinu, var boðað í og með til að Fimm ár Fyrir John New York/London...- Þess var víða minnst á sunnudag að þá voru fimm ár frá því John Lennon var skotinn tii bana fyrir utan heimili sitt, Dakota- húsið 1 West 72nd Street, á Manhattan í New York. Tugir manna stóðu dagpart utanvið húsið og hundruð heimsóttu minningarsvæði um Lennon, „Strawsberry fields“ í einum helsta garði borgarinnar, Central Park, sem er hinu- megin götunnar. „Fyrir John“ sagði einn gesta, Steve Paskell, sem ekið hafði um 80 kíómetra leið til að heimsækja dánarstað Lennons, „bara til að votta virðingu okkar.“ í Moskvu hleypti óeinkennis- klædd lögregla upp nokkrum tugum manna sem komið höfðu saman við ferðamannastaðinn Lenín-hæðir og hlustuðu á Lennon-lög af segulbandi. Eftir fimm mínútur var þolinmæði lög- reglu lokið við Bítlalagið Back in the USSR/ Aftur í Sovét. Meðal handtekinna voru fjórir félagar úr óopinberum friðarhópi í borg- inni. í útvarpsviðtali í London í gær sagði samstarfsmaður Lennons, Paul McCartney, að hann væri enn ekki farinn að átta sig á dauða Lennons. „Þetta hrelldi mig meira en flesta aðra,“ sagði Páll, „ég syrgði hann mjög, - per- sónulega, ég hef aldrei verið laginn við opinbera sorg.“ Þegar Bítlarnir hættu árið 1970 var ástæðan talin fyrst og fremst ósætti þeirra Lennons og McCartneys, og skiptust þeir á ýmsum sendingum næstu árin. En, þrátt fyrir allt: „Ég held að ég hafi verið meðal tíu efstu á lista yfir þá sem John þótti vænst um“ segir McCartney, „dauði hans var of mikið áfall.“: / -m reyna að hífa upp ímynd landsins og gera ríkinu kleift að létta á grfðarlegri skuldabyrði. Mann- réttindi hafa verið fótumtroðnari í Guatemala en annarsstaðar í Suður-Ameríku, og síðari ár hef- ur ríkt þar borgarastyrjöld öflugra skæruliðasveita gegn bandarískþjálfuðum stjórnarher. Vinicio Cerezo er úr flokki kristilegra demókrata, en slíkir hafa ögn annað stefnuinnihald í Suður-Afríku en hér í álfunni. Hann hefur í kosningabaráttunni þrumað gegn spillingu og ofbeld- isstjórn og sækir mjög fylgi sitt til indjána sem eru meira en helm- ingur landsmanna. Hinn nýi for- seti er 42 ára, og segist hafa ásett sér stjórnmálabrautina tólf ára gamall, þegar herinn og CIA steyptu umbótaforsetanum Jaco- bo Arbenz árið 1954. um sakbominganna var haldið áfram en þeir eru allir leiðtogar verkalýðsfélags blökkumanna. í Jóhannesarborg standa yfir rétt- arhöld yfir öðmm 22 leiðtogum andófsmanna sem einnig eru ákærðir fyrir landráð og samsæri um að steypa stjórn landsins. Þrýstingur á stjórnvöld eykst dag frá degi og öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna krafðist þess fyrir skömmu að hópnum í Piet- ermaritzburg yrði sleppt og sak- argiftir látnar niður falla. Alls hafa yfir 950 manns fallið í óeirðum í landinu sl. 21 mánuð, þar af fjórir aðfararnótt mánu- dags. Mikill fögnuður varð úti fyrir réttarsalnum í Pietermaritzburg eftir að tólfmenningunum var sleppt. Stallone hlaut ekki blíðari viðtökur hjá blaðakonunum í Los Angeles en í Víetnam þegar hann vann stríðið fyrir Reagan — eftir á. Verðlaun Stallone fékk Súra eplið Los Angeles — Hjá klúbbi biaðakvenna í Los Angeles í Bandaríkjunum ríkir sú hefð að veita á ári hverju ýmiss kon- ar verðlaun til handa kvik- myndastjörnum. í ár fékk hetj- an úr myndunum um Rocky og Rambó, Sylvester Stallone, verðlaun sem nefnast „Súra eplið“ fyrirað vera „ómerkileg- asta og óaðgengilegasta“ kvikmyndastjarna ársins. Clint Eastwood og gamla brýn- ið Elizabeth Taylor fengu hins vegar nafnbótina „fréttnæmustu" kvikmyndastjörnurnar. Breska leikkonan Emma Samms og kan- adíski leikarinn Michael J. Fox þóttu gleðilegustu uppgötvanir ársins í kvikmyndabransanum. Kýpur - kosningar Urslitin styrkja forsetann Nicosia—Úrslit þingkosninga á hinum gríska hluta Kýpur í gær þykja styrkja forseta eyjarinn- ar, Spyros Kyprianou. Að töld- um 85% atkvæða var Lýðræð- isflokkur forsetans með um 27 prósent, en fékk í síðustu kosningum rúm 19. Kosningarnar voru haldnar fyrir tilstilli taktísks bandalags hægriflokksins Rally og komm- únistaflokksins Akel. Þessir flokkar höfðu vonast til að fá saman tvo þriðju hluta þingsæta og knúið þannig fram forseta- kosningar sem annars yrðu ekki haldnar fyrren 1988. Forsetinn er ekki háður þingmeirihluta í landsstjórninni, og stóðu kosn- ingarnar ekki síst um það efni. Hægri flokkurinn vann örlítið á ERLENDAR FRÉTTIR haraldsson/R EUIER í kosningunum, fékk 34%, en Akelflokkurinn tapaði um 6%, fékk 27%, og hefur bandalaginu því ekki orðið að vilja sínum. Forsetinn var í kosningabarátt- unni einkum gagnrýndur fyrir að hafa ekki tekist að stíga nein skref til sameiningar Kýpur. Ríki tyrkneskumælenda stendur enn föstum fótum á suðvesturhluta eyjarinnar, stutt 18 þúsund manna tyrkneskum her, - en enn ekki viðurkennt af neinni ríkis- stjórn nema hinni tyrknesku. -m Halastjarna Grætt á stjömufræðinni Amerískur bisnissmaður hefur einkaleyfi á vörumerkinu „Halastjarn- an Halley “ og hyggstþéna vel á þessum sjaldséða gesti Washington — Það hefur varla farið framhjá neinum að hai- astjarnan Halley nálgast nú jörðu á reglulegu hringsóli sínu um veraldartómið. Þeir eru fáir sem eiga sama láni að fagna og Brynjólfur Bjarna- son, að sjá þennan fágæta gest tvisvar á ævinni þvi hal- astjarnan kemur aðeins inn í sjónsvið okkar á 76 ára fresti. Og vitanlega kunna þeir í Am- eríkunni að búa til pening úr því. Halastjarnan geysist áfram 188 þúsund km hraða á klukkustund og dregur á eftir sér 50 þúsund km langan slóða. Verður hún æ skýrari fram í janúar er hún hverfur á bak sólu. Hún birtist svo aftur í mars og þann 11. apríl verður hún næst jörðu. Að sögn stjörnufræðinga verður hali hennar þá líkastur nokkrum tunglum í röð. Fulltrúi Halley Þann dag vill bandaríski bíssnissmaðurinn Owen Ryan helga halastjörnunni og friði og eindrægni á jörðinni. Ryan var svo klókur að ná sér í einkaleyfi á að nota vörumerkið „Halleys Co- met“ á fjölmarga vöruflokka. Þeir sem hyggjast græða á fyrir- bærinu verða því nauðugir viljug- ir að fá leyfi hjá Ryan. Hann sagðist hafa fengið hugmyndina þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Los Angeles í fyrra. Þá auglýstu mörg fyrirtæki að þeirra vara væri „hin opinbera skyrta eða buxur ólympíuleikanna“. „Ég fékk þá hugmynd að verða opinber fulltrúi Halley hala- Að frátöldum sjónaukum af þessari stærð eru venjulegir handsjónaukar taldir bestir til að virða fyrir sér halastjörnuna sem kennd er við Halley (borið fram með a-i en ekki o-i). stjörnunnar,“ segir Ryan og hlær. Sjálfur hyggst Ryan og sam- starfsmenn hans setja ýmsar vörur á markað undir vörumerki sínu. Þar má nefna vísindatæki fyrir almenning, skyrtur, náttföt, krossgátubækur, skartgripi, myntir, dúkkur, úr og plast- hjálma sem verja menn gegn loftsteinum sem halastjarnan kann að senda til jarðar. Hann hefur samið við fyrirtæki sem rekur keðju skyndibitastaða um að umbúðir þeirra verðir merktar með vörumerkinu og hann hyggst selja kokkteilglös með merkinu og vitaskuld verður blandaður sérstakur kokkteill til að drekka úr þeim meðan menn virða fyrir sér stjörnuna. Roksala í sjónglerjum Það eru fleiri en Owen Ryan sem ætla sér að þéna á halastjörn- unni. Fyrirtæki sem selja sjóngler sjá fram á gleðitíð. Fyrirtækið Tasco í Miami sem framleiðir stjörnukíkja segist aldrei hafa haft eins mikið að gera. Óttast eigendur þess mest að geta ekki annað eftirspurninni sem rís nú talsvert hærra en fyrir tíu árum þegar halastjarnan Kohoutek átti leið hjá. Að sjálfsögðu verða Ryan og félagar með fingurna í þessum bransa og bjóða upp á sérstakan „Halleyscope“ stjörn- ukíki sem kostar 7.500 krónur. Reyndar er sagt að venjulegur sjónauki sé betur til þess fallinn að virða stjörnuna fyrir sér því sjónsvið hans er víðara en stjörn- ukíkisins og stjarnan breiðir mjög úr sér, Stjörnufræðingar segja að bestu skilyrðin til að skoða Hall- ey séu á suðurhveli jarðar og veldur því möndulsnúningur jarðar. Þetta hafa ferðaskrifstof- ur hagnýtt sér og bjóða nú alls konar ferðir suður á bóginn og eins upp á fjöll. Á ferðamarkaðnum er úr ýmsu að velja. Ensk ferðaskrifstofa býður upp á 8 daga ferð frá New York um London til Botswana og Rwanda í Afríku. Stjörnufræð- ingar verða með í för og túrinn kostar 160 þúsund krónur. Þeir sem kjósa sjóferð geta farið með skemmtiferðaskipum frá Flórída til óshólma Amazon eða eyðim- erkurinnar í miðhluta Ástralíu en þar verða einnig samankomnar þúsundir ferðamanna frá Japan og stjörnufræðiáhugamenn víðs- vegar að. Sú ferð kostar uþb. kvartmiljón. Þeir sem ekki hafa ráð á þessum lúxusferðum geta brugðið sér í næturflug frá Lund- únum fyrir 4.000 krónur og er þá innifalið glas af kampavíni. Pillur og gasgrímur Sagt er að svipað hafi verið uppi á teningnum árið 1910 þegar halastjarnan átti hér síðast leið um. Þá voru spekúlantar öllu óprúttnari og hagnýttu sér marg- víslega hjá trú og vanþekkingu almennings. í New York bauð framtakssamur náungi til sölu gasgrímur til varnar gegn eitur- gufum sem halastjarnan átti að gefa frá sér og í París voru til sölu pillur til varnar samskonar eiturgasi. Þar var hjátrúin svo mögnuð að fjöldi manns varpaði sér í ána Signu til að forðast bruna af völdum geimryks sem fólkið hélt að félli til jarðar ná- kvæmlega þar sem það stóð. Þriðjudagur 10. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.